Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Blaðsíða 15
7.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
arnir og vikurnar fyrir útgáfu eru svolítið
stressandi. En týpískur dagur byrjar á hefð-
bundinn hátt með morgunmat og æfingu. Svo
fer ég kannski á flakk og hitti fólk. Ég er
mikið með kærustunni og vinum. Ég er mikið
að gigga á kvöldin, en síðustu tvær vikur hef
ég verið með fjögur, fimm gigg í viku,“ segir
Birnir og segir það ótrúlega gaman að
standa á sviði fyrir framan stóran sal af
áhorfendum.
„Það er líka gaman að krakkarnir séu að
hlusta og fíla þetta. Það er algjör snilld og mik-
il forréttindi að fá að vinna við það sem manni
finnst skemmtilegast að gera. Ég er ótrúlega
þakklátur að fá frelsi til að gera það og að hlut-
irnir séu að ganga upp.“
Lagið Vogur, er það um meðferðina á Vogi?
„Ég skrifaði það í meðferð og var svolítið
pirraður að vera lentur þar aftur. Það er eitt af
mínum uppáhaldslögum. En núna er uppá-
haldslagið mitt Púls. Það er minnst spilaða
lagið. Sagan á bak við það er leyndarmál,“ seg-
ir hann sposkur.
„En fólk má endilega senda mér skilaboð í
gegnum Instagram eða Facebook um hvað það
heldur að það sé um. Það er nauðsynlegt að
hlusta á næstsíðasta lagið og svo Púls, síðasta
lagið, til að skoða meininguna í heild.“
Vil ekki stjórnast af egói
Birnir vinnur gjarnan með öðru tónlistarfólki
og segist njóta þess.
„Páll Óskar söng Spurningar sem ég skrif-
aði. Högni syngur í einu lagi á plötunni. Ég
elska að vinna með öðru fólki. Það taka mér
allir mjög vel. Við erum í þessum leiðangri
saman til að búa til tónlist og viljinn til að gera
það frábærlega er til staðar hjá öllum aðilum.
Það að vinna með öðrum og fá þeirra hug-
myndir á borðið gerir hlutina oft miklu betri
og áhugaverðari. Engin hugmynd er slæm
hugmynd og við prófum okkur áfram.“
Finnst þér þú vera orðinn frægur?
„Kærastan mín sagði einmitt í gærkvöldi að
hún væri að upplifa að ég væri orðinn frægur.
Mér persónulega finnst ég ekkert sérstaklega
frægur. Ég sé mig ekki sem einhverja stjörnu.
Ég tengi ekki við það að vera betri en aðrir.“
En sem listamaður, er ekki gott að einhver
kunni að meta þína list?
„Frábært. Það er mesta snilldin. Ég elska
að hitta fólk úti á götu og ræða tónlistina. Og
svo er geðveikt að standa á sviði. En ég reyni
að láta það ekki stíga mér til höfuðs, ég vil ekki
láta egóið stjórna. Í grunninn er ég að búa til
list og það sem mér finnst vera kúl. Að fá
svona góðar viðtökur við því er frábært. Mitt
helsta takmark í lífinu er að vera á stað þar
sem ég get framkvæmt hugmyndir. Og ég er
þar núna og bara dýrka það.“
Hvar sérðu þig eftir fimm ár?
„Ég verð pottþétt enn að búa til tónlist því
það er eitthvað sem ég losna ekkert við. En
kannski verð ég að búa til eitthvað meira en
tónlist. Það kemur í ljós. Ég vil í raun bara
halda áfram að skapa. Eftir fimm ár langar
mig líka að vera edrú og vera til staðar fyrir
fjölskyldu og vini. En sköpunarferlið er eitt-
hvað sem er þarna og ég hef þessa köllun.
Mér finnst rangt að skapa ekki og ég verð að
gera það. Það er skemmtilegast og mest gef-
andi.“
Morgunblaðið/Ásdís
Ljósmynd/Ómar Sverrisson
Birnir segir það góða tilfinn-
ingu að koma fram og segist
þakklátur fyrir að vinna við
það sem hann elskar.