Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.11.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.11. 2021 08.15 Veira vertu blessuð 08.16 Örstutt ævintýri 08.18 Ást er ást 08.19 Hérinn og skjaldbakan 08.20 Litli Malabar 08.25 Blíða og Blær 08.50 Monsurnar 09.00 Tappi mús 09.05 Adda klóka 09.30 Angelo ræður 09.35 Angry Birds Toons 09.40 It’s Pony 10.00 K3 10.15 Mörgæsirnar frá Mada- gaskar 10.35 Ævintýri Tinna 11.00 Top 20 Funniest 11.40 Friends 12.00 Nágrannar 13.55 Ireland’s Got Talent 15.25 Kviss 16.15 Um land allt 16.55 Supernanny US 17.35 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.45 Sportpakkinn 18.55 Ísland í dag 19.10 Framkoma 19.40 Ummerki 20.10 Dr. Death 21.15 The Sinner 22.05 Animal Kingdom 22.50 Moonshine 23.35 Succession 00.35 The Third Day ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Þegar – Pétur Ein- arsson 20.30 Þegar – Pétur Ein- arsson 21.00 Tónlist á N4 21.30 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 18.30 Mannamál (e) 19.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 19.30 Bókahornið 20.00 Undir yfirborðið Endurt. allan sólarhr. 10.05 Dr. Phil 12.15 The Bachelorette 13.45 Top Chef 14.30 Young Rock 14.55 The Moodys 15.20 The Good Place 15.45 Það er komin Helgi 17.00 The King of Queens 17.20 Everybody Loves Ray- mond 17.45 Framing Britney Spears 19.00 Heil og sæl? 19.35 Missir 20.15 Extreme Makeover: Home Edition 21.05 The Equalizer 21.55 Stella Blómkvist 22.35 Yellowstone 23.20 The Handmaid’s Tale 00.10 Agents of S.H.I.E.L.D. 00.55 Dexter 01.45 The Rookie 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Sankti María, sestu á stein. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir og veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Akureyr- arkirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Reyk- holtshátíð 2022 – I. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Kventónskáld í karla- veldi. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Á ferð um landið: Á Ströndum, seinni hluti. 20.30 Kynstrin öll. 21.20 Nóvember ’21. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Þögnin rofin – Mel Bon- is. 23.10 Frjálsar hendur. 08.07 Stuðboltarnir 08.18 Konráð og Baldur 08.31 Hvolpasveitin – Hvolpar bjarga bráðnandi bæ/ Hvolpar og leynd- ardómur týndu farsím- anna 08.54 Skotti og Fló 09.01 Unnar og vinur 09.24 Múmínálfarnir 09.46 Eldhugar – Annette Kellermann – hafmeyja 09.50 Sammi brunavörður 10.00 Attenborough: Furðudýr í náttúrunni 10.25 Danskt háhýsi í New York 11.00 Silfrið 12.10 Nábýli við rándýr 13.05 Verðlaunahátíð Norð- urlandaráðs 2021 14.05 Eitt stykki hönnun, takk 14.30 Jóhanna 15.40 Eigi skal höggva 16.05 Tónatal 17.05 Hagamús: með lífið í lúkunum 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Menningin – samantekt 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Landinn 20.20 Dagur í lífi 21.05 Ófærð 22.00 Snilligáfa Picassos 22.50 Eldfim ást 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. Daði Freyr Eurovision- stjarna okkar Íslendinga er duglegur að deila skemmtilegum stuttum tónlistarmyndböndum á TikTok-síðu sína þar sem yfir 170 þúsund manns fylgjast með honum. Á dögunum deildi kappinn bráðfyndnu myndbandi sem hefur kitlað hláturtaugarnar hjá mörgum þar sem hann syngur um krummafót. Daði Freyr hefur deilt fleiri skemmtilegum mynd- böndum sem hafa vakið athygli en á dögunum söng hann meðal annars um undarlega uppskrift að ristuðu brauði með vatnsmelónu. Myndböndin má sjá á K100.is og á Tiktok-reikningi Daða Freys, dadimakesmusic. Daði Freyr vekur athygli í krummafæti L istasafn falsana nefnist hugar- fóstur listasmiðjunnar MSCHF, sem hefur aðsetur í Brooklyn í New York. Nýjasta uppá- tæki MSCHF var að selja 999 eft- irlíkingar af teikningu eftir lista- manninn Andy Warhol ásamt upprunalegu teikningunni án þess að kaupandinn vissi hvað hann hefði í höndunum. MSCHF er vitaskuld borið fram „mischief“ og mætti þýða bellibrögð. Á vefsíðunni museumofforgeries.- org segir að MSCHF hafi keypt kúlupennateikningu eftir Warhol frá 1954 á 20 þúsund dollara (2,5 millj- ónir króna). Myndin er einföld, sýnir þrjár kvenverur dansa og heitir „Álf- ar“. Fyrir nokkrum árum var sama mynd seld hjá uppboðshúsinu Chris- tie’s og fór á 8.000 dollara. Kaupend- urnir forrituðu róbóta til að teikna myndina aftur og aftur á blað af sömu stærð og listamaðurinn notaði með sams konar bleki. Pappírinn var síðan meðhöndlaður þannig að ekki sæist munur á honum og pappírnum með upprunalega listaverkinu. Á vefsíðu þeirra má sjá myndskeið af því hvernig þjarkinn teiknar myndirnar og notast er við ljós, hita, þrýsting og raka til að gera pappírinn ellilegan. Alls voru gerð 999 eintök. Upprunalega verkinu var síðan stungið í bunkann og segjast þeir, sem að gerningnum stóðu, ekki vita hvar það endaði. „Ég held að gæti forvörður skoðað teikningarnar hlið við hlið gæti hann að lokum fundið upprunalegu teikn- inguna,“ sagði Kevin Wiesner, félagi í MSCHF, í tölvupósti til AFP. „En það er ólíklegt að það muni nokkurn tímann gerast.“ Teikningarnar þúsund voru síðan seldar á netinu á 250 dollara hver undir yfirskriftinni „Mögulega raun- verulegt afrit af „Álfum“ eftir Andy Warhol“ og seldust upp á auga- bragði. Kaupandinn á mynd, sem gæti verið eftir Warhol, en er þó lík- ast til eftirmynd. Á heimasíðu MSCHF segir að til- gangurinn með þessu sé að gagnrýna hugmyndir sem gegnsýri markaðinn um að allt þurfi að vera „upp- runalegt“ og „einstakt“. Afrakstur seljendanna eftir gjörninginn er 250.000 dollarar fyrir verk, sem kost- aði þá 20.000 dollara. „Markmið okkar er að „eyði- leggja“ teikninguna með því að eyði- leggja ábyrgðarkeðjuna,“ sagði Wiesner. Á heimasíðunni segir að listaheim- urinn með stóru A-i sé mun upptekn- ari af upprunavottunum en fag- urfræði. Það hafi ítrekað sannað sig með sölu á hugmynda-, eða kons- eptverkum, sem séu seld fyrst og fremst sem skjöl og skrásetning. Sem dæmi um það er salan á staf- ræna verkinu „Hvunndagar“ eftir listamanninn Bleeper eða Michael Winkelman sem seldist á 60 milljónir dollara fyrr á árinu og kaupandinn fékk í hendur vottorð í bálkakeðjunni um að hann ætti hið upprunalega verk. Hver sem er getur hins vegar prentað verkið út þótt ekki eigi hann upprunavottorð. Á heimasíðunni segir enn fremur að með upprunavottun séu líf og tímar tiltekins verks skrásett, hver hafi átt það, hvar það hafi verið sýnt og hverjum selt. Þetta hafi getið af sér heila atvinnugrein forvarða og rannsakenda. „Með því að falsa „Álfana“ í bunk- um höfum við rústað slóð upp- runavottunarinnar,“ stendur þar. „Þótt það sé óskemmt höfum við komið í veg fyrir að í framtíðinni megi treysta á sannleiksgildi verks- ins. Með því að grafa nálina í nála- hrúguna höfum við gert frummynd- ina að jafnmikilli fölsun og allar eftirlíkingarnar okkar.“ Listasmiðjan MSCHF var stofnuð árið 2016 og hún tekur iðulega fyrir listaverk eða söluvöru. Í vor gerði hún „Satansskóinn“ í samstarfi við rapparann Lil Nas X. Sett voru í sölu 666 sérhönnuð pör af svörtum Nike Air Max 97-skóm. Á þeim var fimm arma stjarna úr bronsi, vers úr Biblí- unni um fall Satans og dropi af mannablóði, sem blandað hafði verið saman við rautt blek í sólanum. Nike höfðaði mál vegna brots á vörumerkjarétti. MSCHF gerði sátt við íþróttavöruframleiðandann og kallaði inn skóna, sem seldir höfðu verið. Mynd af verkinu „Álfar“ eftir Andy Warhol með merki Listasafns falsana yf- ir. Eða kannski mynd af afriti af verkinu. AFP FRUMMYND EFTIR WARHOL SELD MEÐ FÖLSUNUM Mögulega raun- verulegt afrit

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.