Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 2
Hvað er tónleikhús? Tónleikhús er verk sem dansar á mörkum leiksýningar og tónleika. Það er opið form og talsvert skilið eftir fyrir ímyndunaraflið og persónulega túlkun áhorfandans. Í DAY 3578 er þó rauður þráður. Um hvað fjallar DAY 3578? Verkið fjallar um Maloru sem hefur lokað sig inni í ímyndunarheimi. Hún drattast á fætur á hverjum morgni og svo hefur hún leikinn, leik sem hún hefur leikið í 3.578 daga. Smátt og smátt skiljum við hvers vegna hún er föst þarna. Hvaða þemu koma helst fyrir í verkinu? Ég myndi nefna tengsl og tengslarof, þessa sífelldu þrá eftir einhverju meira, missi, höfnun, söknuð. Hvernig lýsirðu tónlistinni? Þarna er fjölbreytt lagaval, allt frá lögum af fyrstu plötunni minni til nýrri verka sem hafa ekki komið út. Einhvern tíma var tónlistinni minni lýst sem teknó-rómantísku-leikhús-djass-poppi og það er lýsing sem mér finnst skemmtileg. Hverjir hafa unnið með þér að verkinu? Guðmundur Elías Knudsen leikur ástmann Maloru, Unnur Birna Björnsdóttir leikur hliðarsjálf hennar. Jökull Jörg- ensen, Jón Geir Jóhannsson og Björn Thoroddsen skipa hljómsveit. Sara Martí Guðmundsdóttir og Vala Óm- arsdóttir sviðsetja verkið. Auður Ösp Guðmunds- dóttir hannar leikmynd og búninga og Egill Ingi- bergsson ljós og kvikmyndir. MARGRÉT KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Innilokuð í 3.578 daga Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 & "!(%'$# "$&'%#! "-+ ! !" &,'*)%(!$# Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Gjafakort Einstök jólagjöf T ónskáldið Inki, Ingibjörg Friðriksdóttir, ræðir í viðtali hér í Sunnudagsblaðinu um marglaga listaverk sitt sem ber titilinn Meira ástandið, og er allt í senn bókverk, tónverk og innsetning. Þar urðu henni að efnivið bréfaskriftir Íslendinga á hernámsárunum um „ástandið“ svokallaða. Þær vonast hún til að varpi vissu ljósi á samtal samtímans. Ég hef verið að vinna að þessu viðtali jafnt og þétt síðustu daga og hef greinilega verið með hugann við það því ég hef verið alveg sér- staklega vakandi fyrir því hvað fólk á það oft til að segja: „Þetta er nú meira ástandið“ og dæsa hressilega. Þá er yfirleitt einhver uppgjafartónn í röddinni en þó má oftar en ekki greina ofurlitla kald- hæðni í henni líka. Það er auðvitað oft í sambandi við blessað kófið sem þessi orð heyrast og það hefur auðvitað aukist síðustu daga eftir að nýj- ustu samkomutakmarkanirnar tóku gildi. Við erum öll orðin þreytt á ástandinu og við gætum allt eins farið að kalla þetta ástand „ástandið“ með greini væri sá titill ekki frátekinn. „Þetta er nú meira ástandið,“ heyrðist þó í öðru samhengi hér í höfuð- stöðvum Morgunblaðsins í Hádegismóum um daginn. Umræðurnar í há- degismatarhléinu geta verið fjörlegar og að þessu sinni snerust þær um að undanfarnar vikur hafa blaðamenn Smartlands verið að taka saman afar mikilvægan lista yfir einhleypa og eftirsótta íslenska karlmenn. Það virtist þó ganga ofurlítið á afturfótunum, erfiðlega gekk að finna tíu karlmenn til þess að fylla þennan lista. Flestir frambærilegir íslenskir karlmenn virtust annaðhvort lofaðir góðri konu eða þá hafa skand- alíserað eitthvað upp á síðkastið, að minnsta kosti nóg til þess að ekki þótti verjandi að auglýsa þá sem góð mannsefni. Þetta þóttust þær einhleypu blaðakonur, sem þarna voru staddar, kannast við af eigin raun og tóku undir þá fullyrðingu að úrvalið væri ekki upp á marga fiska. Nema þá kannski alla nýveiddu fiskana sem ein- hleypir karlmenn þjóðarinnar skreyta sig með á Tinder. Þá dæsti ein- hver hinu kunnuglega dæsi og sagði að þetta væri „meira ástandið“ og aðrir tóku undir. Kannski ættum við að vonast til að hingað kæmi stór hópur erlendra hermanna til þess að bæta ástandið? Nei, ég segi nú bara svona. Þetta er nú meira ástandið! Pistill Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is ’ Þá er yfirleitt einhver uppgjafartónn í rödd- inni en þó má oftar en ekki greina ofurlitla kald- hæðni í henni líka. Tómas Gauti Óttarsson Mér finnst þær í rauninni ömurlegar en ég skil hugsunina á bak við þær. SPURNING DAGSINS Hvað finnst þér um nýjustu takmark- anirnar? Brynja Guðmundsdóttir Ég er hlynnt takmörkunum upp að vissu marki. Kristín Tryggvadóttir Ég er mjög sátt við þær eins og staðan er í dag. Smitin eru of mörg. Ellert Baldursson Ég held að þær séu af hinu góða. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Margrét, sem einnig er þekkt undir nafninu Fabúla, frumsýnir nýtt tónleikhúsverk byggt á tónlist sinni í Gamla bíói miðvikudaginn 17. nóvember.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.