Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021
Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni.
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Þ
egar ég var 14 ára fengum við bræður
ný rúm. Á þeim tíma var það töluverð
fjárfesting og ef ég man rétt hafði ég
unnið fyrir mínu með því að passa litla bróður
minn og gott ef foreldrum mínum tókst ekki
líka að nota þetta sem hluta af fermingargjöf.
En það sem var sérstaklega spennandi var að
við fengum að selja gömlu rúmin.
Þau voru þessi klassísku, í dularfullum lit-
um áttunda áratugarins, með áklæði úr hertu
næloni og sterkum gormum sem létu reglu-
lega vita af sér. Svo voru þau með rúmfata-
geymslu, sem reyndar í mínu tilfelli sá aldrei
rúmföt.
Eldri bróðir minn setti auglýsingu í Dag-
blaðið: Tveir beddar til sölu. Upplýsingar í
síma 82432. Svo biðum við eftir símtali sem
aldrei kom.
Þegar komnar voru tvær vikur, og enginn
hafði hringt, var komið að mér: Tveir vel með
farnir svefnbekkir til sölu. Gott verð. Upplýs-
ingar í síma 82432. Þeir fóru sama dag.
Allt í þessari sögu er gamli skólinn. Að selja
gömul rúm, kaupa smáauglýsingu í dagblaði,
að gefa upp heimasíma og trú bróður míns á
mætti mínimalískra auglýsinga.
En þetta snýst líka um ákveðið viðhorf.
Svona innkaup voru nefnilega aðeins öðruvísi í
gamla daga. Þá var ekið með alla fjölskylduna
búða á milli og vörur bornar saman. Verð og
gæði. Ég man eftir húsgagnasala að tala um
að þetta væri gott verð á gamla genginu og
mömmu að reyna að fá staðgreiðsluafslátt. Og
það var alltaf spurt um endingu. Alltaf.
En ekki síst er þetta minning um tíma þeg-
ar fólk átti allt miklu lengur. Safnaði fyrir því
og allt var svo miklu dýrara. Í könnun sem ég
sá um daginn kom fram að fyrir 24 árum tók
það fólk á meðallaunum 85 vinnustundir að
safna fyrir þvottavél. Núna tekur það ekki
nema 27 stundir. Skýringin er meðal annars
sú að nú borgum við ekki lengur háa tolla og
vörugjöld eins og við gerðum árum saman. Og
það saknar þeirra enginn.
Þegar ég kynntist eiginkonu minni, sem er
vel að merkja nokkuð yngri en ég, komst ég
að því að nokkuð mörg heimilistæki hjá
tengdaforeldrum mínum voru nær mér í aldri
en hún. Þannig var það bara hér í eina tíð.
Kannski entust hlutir lengur eða fólk gekk
betur um þá og lét gera við þá þegar þeir
biluðu í stað þess að fá sér bara nýja.
Mögulega er of auðvelt að kaupa bara nýtt
þegar eitthvað bilar. Það getur til dæmis verið
álíka dýrt að kaupa blek í prentara og að
kaupa nýjan prentara. Með bleki. Það dettur
fæstum í hug að fara með prentara í viðgerð.
Fyrir utan þá staðreynd að fæstir nota svo-
leiðis tæki leng-
ur.
Við erum allt-
af að bíða eftir
næstu gerð af
símum sem eru
aðeins betri en
sá sem við erum
með og alltaf
með einhverja
nýja tækni sem við bara verðum að fá. Jafnvel
þó að gamli síminn sé bara fínn og alls ekki
gamall.
Það er nefnilega umhugsunarefni að þrátt
fyrir að flest sem við gerum tengist raftækj-
um á einhvern hátt, þó að við kaupum svo
miklu meira en við gerðum fyrir tuttugu árum
og tækninni hafi fleygt fram, þá hefur verk-
stæðum ekkert fjölgað. Það er ekki eins og í
hverju hverfi sé bólstrari, saumastofa eða raf-
eindaverkstæði.
Kannski er þetta eitt af því sem við gleym-
um þegar við tölum um umhverfismál. Þessi
endalausa þörf fyrir að fá eitthvað nýtt og
betra. Og kannski voru foreldrar okkar, með
þrjátíu ára gamla þvottavél og fimmtugan ís-
skáp, ekki svo galin eftir allt saman.
’
Ég man eftir húsgagnasala að
tala um að þetta væri gott
verð á gamla genginu og mömmu
að reyna að fá staðgreiðslu-
afslátt. Og það var alltaf spurt
um endingu. Alltaf.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Bræður selja rúm
F
ordómar gagnvart minni-
hlutahópum eru óþolandi
meinsemd í okkar vestræna
samfélagi, sem þykist þó vera þróað
og siðmenntað. Það hefur reynst
þrautin þyngri að uppræta hana.
Kannski mætti líkja henni við olíu-
skip sem er bæði erfitt og tímafrekt
að snúa af rangri braut. Og þá grípa
sumir til þess ráðs að þrífa harkalega
í stýrið og snúa því alveg í botn í hina
áttina. Skiljanlega, og langflestir af
göfugri hugsjón. Þá hrökkva aðrir í
kút og finnst of langt gengið. Eitt af
stóru viðfangsefnum samtímans er að
sætta þessi sjónarmið.
Tjáningarfrelsið
Bandaríski grínistinn Dave Chapelle
setti nýlega allt á annan endann,
einkum í Bandaríkjunum, þegar nýj-
asta uppistand hans var birt á Net-
flix. Hann ver þar stórum hluta tím-
ans í að svara ásökunum um að hafa
níðst á transfólki
með gríni sínu.
Chapelle hefur orð
á sér fyrir að vera
bráðgreindur og
eitursnjall. (Verð-
skuldað orðspor að
mínu mati.) Í máls-
vörn sinni slær hann hvergi af í grín-
inu, gefur þvert á móti í ef eitthvað er
og heldur þannig áfram að móðga
marga. Engu að síður er nær ómögu-
legt að horfa á þáttinn og komast að
þeirri niðurstöðu að hann sé fordóma-
fullur eða standi á sama um réttinda-
baráttu minnihlutahópa á borð við
transfólk. Ekki eru þó allir sann-
færðir.
Grínistar standa eðli málsins sam-
kvæmt á víglínu tjáningarfrelsisins.
Starf þeirra gengur að miklu leyti út
á að vera á mörkum hins viðeigandi
og oft handan markanna. Margir
þekktir grínistar telja nú að við-
kvæmni samtímans gagnvart gríni
sem kunni að móðga einhverja hópa
sé komin út í öfgar. Tvö fræg dæmi
eru fyrrnefndur Dave Chapelle og
Chris Rock, en báðir eru þeir þel-
dökkir og því væntanlega ágætlega
meðvitaðir um stöðu þeirra sem sæta
fordómum, þótt sjálfir séu þeir líka á
vissan hátt í forréttindastöðu sem
vinsælir listamenn.
Herská nálgun og
aðgreining hópa
Svar grínistanna má draga saman í
þrjú orð: „Samhengið skiptir öllu.“
Tilhneigingin hjá mörgum er hins
vegar að láta samhengið lönd og leið
og fordæma tafarlaust og mjög
harkalega allt sem þau upplifa sem
fordóma eða ónærgætni – nálgun sem
raunar býður heim fordómum ef út í
það er farið. Gagnrýni á þessa harka-
legu baráttuaðferð fyrir umbótum fer
mjög vaxandi.
Og hún ristir í mörgum tilfellum
margfalt dýpra en spurningin um rétt
grínista til að móðga. Hún snýst þá
líka um réttinn til að hugsa sjálfstætt,
réttinn til að segja skoðun sína (ekki
með beittu gríni heldur á kurteisan
hátt), og réttinn til að sýna þeim um-
burðarlyndi sem eru ekki sammála
okkur án þess að hópurinn „okkar“
refsi okkur fyrir það. Síðast en ekki
síst snýst hún að miklu leyti um það
hvort við mannfólkið séum fyrst og
fremst einstaklingar eða fyrst og
fremst hópar.
Tvær ungar konur
Africa Brooke er ung, bresk, þeldökk
kona sem ólst upp í Simbabve. Hún
skrifaði fyrir nokkru langa ritgerð
um hvers vegna hún sagði skilið við
hina harkalegu nálgun margra um-
bótasinna sem kenna sig við hugtakið
„woke“. Hún fór fyrst að efast þegar
ókunnugur maður sendi henni skila-
boð og spurði hvort hún teldi að
harkalegur talsmáti hennar á netinu
væri endilega besta baráttuaðferðin.
Í stað þess að svara honum tók hún
skjámynd af skilaboðunum og birti
þau á samfélagsmiðlum, í þeim eina
tilgangi að smána
þennan mann.
Skrifaði undir eitt-
hvað á borð við:
„Hver heldur
þessi karl að hann
sé, að segja mér
hvað sé best fyrir
mig?!“ Hún fékk þúsundir „læka“ á
færsluna en eftir á að hyggja ofbauð
henni hversu herská hún var orðin.
Önnur ung þeldökk kona, Brittany
King, hefur svipaða sögu að segja.
Hún sagði skilið við Black Lives Mat-
ter-hreyfinguna eftir að hafa verið
þar í forystuhlutverki. Henni fannst
hreyfingin ekki gefa sér svigrúm til
að hugsa sjálfstætt og nálgast þá sem
voru henni ósammála með opnum
huga og samtali. Henni ofbauð hóp-
þrýstingurinn og krafan um að hvorki
gera né segja neitt sem hópnum gæti
mislíkað.
Dýpra samtal
Báðar þessar konur eru virkar á You-
Tube og ræða þar meðal annars við
einstaklinga sem þær voru áður
ósammála og jafnvel fyrirlitu, m.a.
hinn umdeilda Jordan Peterson.
Þessi merkilegu samtöl hljóta að
vekja með okkur von – von um að
samtal sé ennþá möguleiki. Því miður
dregur orðræðan á samfélagsmiðlum
ekki alltaf fram það besta í fólki;
„samtalið“ þar hefur einhverra hluta
vegna tilhneigingu til að sundra okk-
ur í hópa sem varla geta talast við.
Mér kæmi ekki á óvart ef við
heyrðum á næstunni meira af þessum
ungu konum og fleirum í þeirra spor-
um. Hugsanlega er verið að snúa
stýrinu á olíuskipinu aðeins til baka.
Það þarf ekki að fela í sér neinn af-
slátt af réttmætum kröfum um betra
samfélag.
AFP
Baráttuaðferðir
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’
Hún fékk þúsundir
„læka“ á færsluna,
en eftir á að hyggja of-
bauð henni hversu
herská hún var orðin.
„Grínistar standa eðli
málsins samkvæmt á víg-
línu tjáningarfrelsisins,“
segir höfundur. Hér er
Dave Chappelle á sviði.
Matur