Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Síða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021 Á rið er 1999. Honum verður litið á fyrsta farsímann sinn og sér að hann hefur hringt út sautján sinnum í vasanum. Hann hring- ir til baka í móður sína sem svarar grátandi: „Pabbi þinn er dáinn!“ Hann hafði orðið undir fjölskyldubílnum sem hann var að gera við í hraðfrystihúsinu á Tálkna- firði. 46 ára að aldri. Þegar hann skilaði sér ekki heim í kvöldmat fór móðir hans við annan mann að huga að bónda sínum og kom að hon- um látnum. Árið er 2021. Ólafur Sveinn Jóhannesson tekur á móti mér í Tækniskólanum á Skóla- vörðuholtinu, þar sem hann gegnir starfi markaðs- og kynningarstjóra. Hann var við nám í þessu sama húsi, sem þá hét raunar Iðn- skólinn í Reykjavík, þegar hann fékk þessar hræðilegu fréttir á köldum janúardegi 1999. Ólafur Sveinn flaug í skyndi vestur og dvaldist þar næstu tvær vikurnar eða þangað til útför föður hans hafði verið gerð. Eftir komuna aftur til Reykjavíkur var hug- urinn ekki við námið, þannig að Ólafur Sveinn hætti í skólanum og fór að vinna. Sorgin finnur sér margvíslegan farveg og eitt af því sem hann gerði var að yrkja. Um haustið kom fyrsta ljóðið um fráfall föður hans til Ólafs Sveins – og hefur lítið sem ekkert breyst fram á þennan dag. Hringir ekki framar Árið er 2004. Aftur hringir síminn; númer sem Ólafur Sveinn þekkir vel, Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, þar sem móðir hans starfar. En hann finnur á sér að hún er ekki sjálf á hinum enda línunnar, þetta eru slæmar frétt- ir. Það reynist á rökum reist, móðir hans hringir ekki þennan dag – og ekki framar. Hún hefur fengið slag í vinnunni, 44 ára að aldri. 24 ára gamall er Ólafur Sveinn í þeirri stöðu að hafa misst báða foreldra sína og afræður að flytja vestur til að hugsa um tvö yngstu systk- ini sín; Eydísi Huldu sem er í níunda bekk og Gunnar Smára sem er á tólfta ári. „Ég fór vestur um leið og mamma dó ásamt þáverandi kærustu minni; vildi að systkini mín fengju að alast upp á svipuðu heimili og ég ólst upp á. Ég gerði þetta bæði fyrir þau og mig sjálfan,“ seg- ir Ólafur Sveinn sem fékk starf móður sinnar í íþróttahúsinu. Eins og þegar faðir hans féll frá leitaði Ólaf- ur Sveinn í ljóðið eftir andlát móður sinnar. „Eftir fyrsta ljóðið um pabba orti ég ekki mik- ið þangað til mamma dó en eftir það fór ég að punkta meira hjá mér,“ segir hann. „Ég er ekki þetta dæmigerða ljóðskáld; alinn upp af verkafólki og iðnaðarmönnum fyrir vestan og er rafvirkjameistari að mennt og líka með próf í rafeindavirkjun. Undanfarin átta ár hef ég unnið sem markaðsstjóri hérna í Tækniskól- anum. Sá fyrsti í sögu skólans. Ég hef hins vegar lengi haft yndi af ljóðlist og á meira efni í fórum mínum en það sem birtist í þessari bók.“ Grípum niður í bókinni. Þetta ljóð heitir Villa: Þegar kirkjan rúmar ekki allt það fólk sem vill mæta í jarðarför er nauðsynlegt að hugsa út fyrir boxið Jarðsyngja út fyrir boxið Prestar í sveitinni eru ekki bara þjónar guðs ekki bara starfsfólk þjóðkirkjunnar prestar í sveitinni eru vinir – nágrannar – foreldrar Tveir prestar jarðsyngja pabba báðir voru þeir nágrannar, vinir, foreldrar þeir kunna að hugsa út fyrir boxið Pabbi er jarðsunginn í íþróttamiðstöðinni þar sem hann spilaði körfubolta með prestum þar sem hann spilaði á gítar með prestum söng í sunnudagaskólanum Á sama stað og Svenni prestur hafði kallað villa stendur nú líkkista hann langar að kalla villa en röddin brestur á vítapunktinum Af guðhræddu fólki Það var langamma Ólafs Sveins, Guðný Krist- jana á Sellátranesi, sem kenndi honum fyrstu vísurnar þegar hann var barn. „Seinna komst ég að því að það voru drykkjuvísur,“ upplýsir hann hlæjandi. „Hún kenndi mér líka að fara með bænirnar mínar enda af guðhræddu sveitafólki komin. Merkileg kona, hún langamma mín.“ Það var líka listræn taug í föður hans, Stef- áni Jóhannesi Sigurðssyni, sem spilaði vel á gítar, bassa og píanó og samdi meðal annars söngleik ásamt bróður sínum. Hann var líka metnaðarfullur plötusafnari og rak um tíma myndbandaleigu í forstofunni heima, þá einu í plássinu. „Allt veitti þetta mér innblástur og hafði áhrif á mig meðan ég var að vaxa úr grasi. Mamma, Kristín Ólafsdóttir, var á hinn bóginn náttúrubarnið, frá Rauðasands- hreppi hinum forna, og með henni fór ég í sveitaferðir; það var eins og að koma aftur á 19. öld.“ Hann brosir. Ljóðið Hvíldarstaður er í kaflanum um móð- ur Ólafs Sveins: Útsýnið er fallegt í allar áttir en flestir horfa á fjörðinn þar sem sólin sest handan við fjöllin í vestri Nú hvíla þau tvö í garðinum við Fagramúla með útsýni yfir fjörðinn og tignarleg fjöll Norðurljósin dansa fyrir þau á veturna Fuglarnir syngja fyrir þau á vorin Sólsetrið eiga þau saman á hverju kvöldi Faðir hans var á hinn bóginn úr Kópavogi en kynntist móður hans í Reykjavík. „Eftir það fór hann vestur á vertíð og sneri aldrei til baka.“ Hvatning frá eiginkonunni Flest ljóðin í Kletti – ljóðum úr sprungu eru samin á árunum 2004 til 2006 en höfnuðu niðri í skúffu. „Ég sýndi ekki nokkrum manni þetta svo árum skipti. Það var ekki fyrr en 2018 að ég treysti eiginkonu minni, Nönnu Kristjönu Traustadóttur, fyrir ljóðunum. Það kom þann- ig til að ég hafði verið að semja til hennar ást- arljóð og hún spurði hvort ég ætti meira efni. Eftir að hafa séð það hvatti hún mig óspart til dáða og til að gefa ljóðin út.“ Ólafur Sveinn kveðst hafa verið feiminn við það enda efnið afar persónulegt. Félagi hans að vestan, Bergsteinn Sigurðsson, sem vinnur hjá Ríkisútvarpinu, las efnið því næst yfir og hvatti hann einnig til að hafa samband við bókaútgefendur. „Það varð til þess að Páll Valsson hjá Bjarti fékk efnið í hendur og hafði trú á því. Það var fyrir hvatningu hans að þriðji kaflinn var skrifaður og boginn klár- aðist, það er Eftirleikurinn, til viðbótar við hina tvo, sem heita einfaldlega Pabbi og Mamma. Það bættust líka nokkur ljóð við fyrri kaflana tvo að beiðni Páls, auk þess sem hann taldi mig á að birta ljóð sem ég hafði upp- haflega aldrei ætlað að hafa í bókinni,“ segir Ólafur Sveinn. Bókin er ekki bara saga fjölskyldu hans heldur um leið saga litlu sjávarplássanna fyrir vestan, þar sem fólki hefur jafnt og þétt verið að fækka. „Drifkrafturinn hefur verið að hverfa og þessi samfélög þurfa á áfallahjálp að halda. Ég upplifði þetta sterkt þegar haldið var útgáfuhóf á Tálknafirði um daginn. Það mættu hátt í 70 manns, ættingjar og vinir úr þorpinu og nálægum sveitarfélögum. Þar kom maður að máli við mig og sagði að þessi bók væri ekki aðeins uppgjör fyrir mig, heldur fyr- ir samfélagið allt. Það þekkja allir á Tálkna- firði sögu foreldra minna og þessi dauðsföll sitja í mörgum.“ Skilur sorgina og dauðann Sjálfur kveðst Ólafur Sveinn ekki hafa litið á bókina sem uppgjör en finnur núna að heil- mikið uppgjör er fólgið í ferlinu öllu. „Sem markaðsstjóri er mitt aðalstarf að koma fram en þegar ég byrjaði að lesa upp úr bókinni fyr- ir fólk, bæði hér í Reykjavík og fyrir vestan, fann ég hversu mikið það tók á. Eftir á að hyggja var þetta eitthvað sem ég þurfti að gera.“ Hann hefur lesið upp úr bókinni víða, svo sem í alls konar „leyniklúbbum“ og einnig á Hrafnistu. „Það var gefandi að lesa upp fyrir gamla fólkið; það skilur nefnilega sorgina og dauðann.“ Það er ekki bara mannlífið fyrir vestan sem leikur stórt hlutverk í bókinni, heldur ekki síð- ur náttúran. „Konan mín er líka að vestan, úr Hnífsdal, og við förum mikið vestur, ábyggi- lega tíu sinnum á ári. Við sækjum mikið í teng- inguna við náttúruna og ræturnar.“ Þrátt fyrir alvarleika efnisins er húmorinn ekki langt undan í bókinni. „Við systkinin urð- um snemma sammála um að við yrðum að hafa ákveðinn húmor fyrir aðstæðunum sem við vor- um í – hreinlega til að lifa af. Við misstum ekki bara foreldra okkar, heldur líka móðurafa 2003 og móðurömmu 2007. Þá töluðum við um að fjölskyldan væri í útrýmingarhættu. Það skilja ekki allir svona húmor en þetta hefur komið okkur gegnum þessa þrekraun. Við tölum ennþá mikið um mömmu og pabba og deilum myndum af þeim á afmælis- og tyllidögum.“ Á tali hjá látnum Sem dæmi um húmorinn í bókinni má nefna ljóðið Miðilsfund: Hinir dauðu – skrifa ekki sms hinir dauðu – senda ekki póstkort hinir dauðu – eru utan þjónustusvæðis Nema á miðilsfundum Ekki er þó sjálfgefið að ná sambandi á slík- um fundum. „Miðill brýndi einu sinni fyrir systur minni að ekki mætti hugsa um hina látnu á miðilsfundum – þá væri á tali hjá þeim! Þetta er mögnuð innansveitarkrónika,“ segir Ólafur Sveinn. Sum ljóðin í bókinni eru knöpp en þó ekkert eins og það sem heitir því ágæta nafni Gunni frændi. Það er svona: „Helvítis líf“ „Gunni er föðurbróðir minn og þegar við stóðum saman eftir útför pabba lét hann þessi orð falla. Það er engu við þetta að bæta!“ Margt ber á góma, eins og ákvörðun systkinanna um að gefa líffæri úr móður sinni. „Mamma var flutt með sjúkraflugi hingað suður og dó á Landspítalanum. Fjór- Klettur – ljóð úr sprungum er fyrsta ljóðabók Ólafs Sveins Jóhannessonar. Þar yrkir hann um sviplegt fráfall foreldra sinna, Stefáns Jóhannesar Sigurðssonar og Kristínar Ólafsdóttur, sem létust með fimm ára millibili langt fyrir aldur fram. Það varð til þess að Ólafur Sveinn tók við heimilinu og uppeldi systkina sinna. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Brot af mömmu og pabba ’ Það kom þannig til að ég hafði verið að semja til henn- ar ástarljóð og hún spurði hvort ég ætti meira efni. Eftir að hafa séð það hvatti hún mig óspart til dáða og til að gefa ljóðin út.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.