Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Qupperneq 17
ur eftir sér að ferðast á milli funda í einkaþotum. Gore hefur jafnan bent á efnislega að alvaran blasi við sér og öllum öðrum og sífellt fleiri geri sér ljóst að verði ekki brugðist við, ekki seinna en í gær, væru það mestu svikráð sem jörðin hefði orðið fyrir frá öndverðu. Það hefur einkennt lokapunkt allra þess- ara ráðstefna í þá áratugi sem engan tíma hefur mátt missa, að við lok þeirra hafa fréttir borist um að aldrei áður hafi staðið jafn tæpt og nú að menn næðu saman. En einmitt á síðustu mínútunum hafi komið útspil sem hafi breytt miklu að sögn þeirra „sem best þekkja til“. Og útspilið kom Nú síðast var sagt í fréttum að forsetar Kína og Bandaríkjanna hefðu átt samskipti og komið sér saman um að sökkva sér dýpra niður í málið en áður. Fylgdi sú skýring þessari frétt að þessi yfirlýsing gæti haft mikla þýðingu. Það er ekki síst athyglis- vert vegna þess að Joe Biden lúllaði á ráðstefnunni og Xi forseti Kína taldi ráðstefnuna ekki rísa undir því að hann gægðist þar inn. Og Pútín hafði öðrum hnöppum að hneppa. Skrítin þróun En nú eru nýir þættir komnir til sögunnar sem munu gera stjórnendum heimsins erfitt um vik. Nú eru ákafamenn um hamfarahlýnun teknir að beita nýjum aðferðum, sem geta gert mikinn skaða. Ríkin í okkar heimshluta hafa hvert af öðru tekið að týna fullveldi sínu hvað dómstólana varðar. Ísland ætti þó að vera varið fyrir því sem er að gerast. En er það öruggt? Það sést æ oftar, að íslenskir dómarar telja sig, þvert á lög sem voru sett til að tryggja vilja stjórnarskrárinnar, þurfa að leita álits erlendra dómstóla, sem sérstaklega liggur fyrir að binda ekki Ísland. En þegar álitsins er leitað eru dómstólarnir komnir í hreinar ógöngur. Af hverju að leita álitsins ef þeim er óheimilt að lögum að láta það hafa áhrif á úrslit máls hér! En með atburðarásinni erlendis, þar sem ákvæði stjórnarskrár nýtur ekki við eins og hér, auk settra laga því til áréttingar, er skrítin þróun hafin. Má í því sambandi benda á mjög athyglisverða grein Ambrose Evans-Pritchards í Daily Telegraph. Hann bendir á að þrýstihópar sem tengjast kröf- unum um lok og læs í stíl veiruslagsins segi að sömu aðferðum verði að beita gegn hamfarahlýnuninni ógurlegu og ekki verður betur séð en þeim sé að verða ágengt! Má jafnvel horfa til stjórnlagadóm- stóls Þýskalands, Mannréttindadómstólsins, alþjóð- legra dómstóla tengdra SÞ, sem nú seinast eru tekn- ir að horfa til niðurstaðna á fjöldasamkundum um loftslagsmál. Bendir Pritchard á fleiri dæmi um að dómstólar séu teknir að dansa með. Hann segist sjálfur geta haft tilfinningatengsl við það sem er að gerast, en heilabúið vari sig alvarlega við. Og hann gengur reyndar lengra þegar hann hugs- ar um þróunina upphátt. Það verður ekki aðeins miklu líklegra að hans mati að Trump komi aftur, heldur spáir hann því að fjöldi annarra trumpara muni fygja í kjölfarið verði þetta þróunin. En hvað segja mælarnir En hvað er annars að frétta úr raunheimi staðreynd- anna sem verða svo illa úti upp á síðkastið? Hvernig var veðrið t.d. hið næsta okkur í tíma og rúmi? Trausti Jónsson veðurfræðingur, sem er dálítið veikur fyrir staðreyndum, hefur þennan fróðleik nú allra síðast: „Fyrstu 10 dagar nóvembermánaðar. Meðalhiti fyrstu tíu daga nóvembermánaðar í Reykjavík er +2,5 stig. Það er -0,6 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn rað- ast í 15. hlýjasta sæti (af 21) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2004, meðalhiti þá 6,1 stig, kaldastir voru dagarnir tíu árið 2010, meðalhiti +0,1 stig. Á langa listanum er hiti nú í 62. hlýjasta sæti (af 146). Hlýjast var 1945, meðalhiti +8,2 stig, en kaldast 1899, meðalhiti þá -4,0 stig (og 1996 var meðalhiti -3,6 stig). Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðar- ins +1,2 stig, -0,2 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, en -0,4 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Einna svalast (að tiltölu) hefur verið við Faxaflóa, þar er hiti í 15. hlýjasta sæti aldarinnar, en hlýjast hefur verið á Suðausturlandi og miðhálendinu, þar raðast hiti í 12. hlýjasta sætið. Á einstökum veðurstöðvum hefur verið hlýjast að tiltölu í Papey, þar er hiti +0,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára, en kaldast hefur verið í Grímsey, þar sem hiti er -1,9 stigum neðan meðallags tíu ára.“ Mælarnir virðast vita sínu viti. Morgunblaðið/Eggert ’ Satt best að segja taka heimsleiðtogar þessar ráðstefnur ekki mjög alvarlega og hafa sennilega aldrei gert. En þeim þykir við hæfi að vera með nokkur látalæti í kringum þessar uppsetningar, um minna en ekkert, á nokkurra ára fresti. 14.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.