Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Page 18
K
olbrún er fædd og
uppalin í Vestur-
bænum og leggur nú
stund á meistaranám í lög-
fræði við Háskóla Íslands.
Hún er líka sjálfboðaliði hjá Frú
Ragnheiði og sinnir ýmsum verk-
efnum og aktívisma samhliða því.
Smartland fékk að skyggnast inn í
fataskáp Kolbrúnar.
Hvernig föt klæða þig best?
„Fyrst og fremst föt sem mér líð-
ur vel í, ég labba mikið á milli staða
og er oft að heiman allan sólar-
hringinn þannig að það skiptir mig
mestu máli að fötin séu þægileg. Ég
fer líka mjög mikið í sund þannig að
ég hef takmarkaðan húmor fyrir
einhverjum þröngum gallabuxum
eða óþægilegum flíkum eftir það,“
segir Kolbrún.
Hún fellur oftast fyrir blazer-
jökkum. „Ég elska góða þægilega
blazera og þá helst frekar „oversi-
zed“. Svo ná svört „chunky boots“
mér líka alltaf, sama hvað, og mér
finnst ég aldrei eiga nóg af þeim,“
segir Kolbrún.
Hún lýsir fatastíl sínum sem ein-
földum og þægilegum. „Einföld
klæðileg föt og nokkrir „state-
ment“-skartgripir eða fylgihlutir.
Flestallt eitthvað sem er auðvelt að
klæða upp og niður og virkar vel
saman.“
Hvernig klæðir þú þig dags-
daglega?
„Dagarnir mínir eru svo fjöl-
breytilegir að ég er oftast með ein-
hvern grunn sem ég get klætt upp
og niður eftir því sem líður á dag-
inn. Grunnurinn samanstendur oft-
ast af svörtum buxum og blazer eða
kápu og svo eru það rúllukragar,
skyrtur, hlýrabolir og hettupeysur
sem rótera smá yfir daginn þegar
ég flandra á milli funda, bókasafna,
kaffihúsa og tónleika.“
Hvernig klæðirðu þig þegar þú
ert að fara eitthvað fínt?
„Ég fer í einhverjar fínni blússur
eða pallíettutoppa og hvíta (gervi)
loðfeldinn minn, hann er „must“.“
Gert ótal tilraunir til að
innleiða meiri litagleði
Þegar Kolbrún er spurð hvort hún
hafi gert einhver slæm fatakaup á
ævinni nefnir hún appelsínugulan
samfesting. „Ég hef gert ótal til-
raunir til að innleiða meiri litagleði í
fataskápinn með mismiklum ár-
angri. Fyrsta sem mér dettur í hug
er appelsínugulur samfestingur,
Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bach-
mann er upptekin kona og kemur
oft ekki heim fyrr en síðla kvölds
eftir langa daga. Því velur hún sér
föt sem eru ekki bara töff heldur líka
þægileg. Hún segist vera með
takmarkaðan húmor fyrir þröngum galla-
buxum og leggur mikið upp úr því að vera í
þægilegum fötum.
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is
Kolbrún er oft að heim-
an allan sólarhringinn
og leggur því mikið upp
úr því að velja föt sem
hún getur klætt upp og
niður eftir tilefninu.
Kolbrún er
mikill sökker
fyrir blazer-
um. Hún er
einstaklega
hrifin af sídd-
inni á þessum
jakka sem hún
fékk í Verzl-
anahöllinni á
Laugavegi.
Kápan er ein af eftirlætis
flíkum Kolbrúnar. Hana
fékk hún í Spúútnik.
Með takmark-
aðan húmor
fyrir þröngum
gallabuxum
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021
TÍSKA
SIRIUS
Aðventukerti, LED.
Hvít með gylltum tölum.
13×7,5 cm. 8.990 kr.
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
www.husgagnahollin.is
558 1100
11 – 18 virka daga
11 – 17 laugardaga
13 – 17 sunnudaga
11 – 18 virka daga
11 – 16 laugardaga
Ísafjörður
Skeiði 1
ÞAÐ ER AÐ
STYTTAST
Í AÐVENTUNA