Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.11. 2021
LESBÓK
HARMLEIKUR Fjórir nóbelsverðlaunahafar í bók-
menntum hafa skorað á yfirvöld að leysa úr neyðaástand-
inu á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Elfriede
Jelinek, Herta Müller, Svetlana Alexijevitsj og Olga Tok-
arczuk, sem fengu verðlaunin í bókmenntum, birtu opið
bréf í blaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung á þriðju-
dag þar sem skorað var á ráðamenn að „missa ekki sjónir
af harmleiknum“. Flóttamennirnir á landamærunum
væru aðframkomnir af hungri, þreytu og kulda.
Bréfið var stílað á Charles Michel, forseta leiðtogaráðs
ESB, David Sassoli, forseta Evrópuþingsins, og þingmenn
þess.
Alexijevitsj er frá Hvíta-Rússlandi og Tokarczuk frá
Póllandi.
Áskorun nóbelshafa
Olga Tokarczuk.
SJÓNVARP Hwang Dong-hyuk, leikstjóri suður-
kóresku þáttaraðarinnar „Smokkfiskleikurinn“,
lýsti yfir því í byrjun vikunnar að ráðgert væri
að gera aðra þáttaröð. Viðbrögðin við þáttunum
hefðu verið mjög jákvæð og fjöldi óska borist
um að gera framhald. „Ég hef það nánast á til-
finningunni að við eigum ekki annars kost,“ sagði
Hwang á hátíð, sem efnt var til vegna þáttanna í
Los Angeles á mánudag.
Hwang lét ekki uppi hvenær næsta sería væri
væntanleg. „Við erum að skipuleggja, en ég
get lofað ykkur að Gi-hun snýr aftur og
mun gera eitthvað fyrir heiminn,“ sagði
hann.
Hwang Dong-
hyuk, leikstjóri
„Smokkfisk-
leiksins“.
AFP
Remi Ouvrard ofan á loftbelgnum.
Met á loftbelg
HÁTT UPPI Franskur ofurhugi sló
hæðarmetið í að standa ofan á loft-
belg á miðvikudag. Remi Ouvrard,
sem er 28 ára, stóð ofan á loftbelg á
meðan hann fór upp í 4.016 metra
hæð. Ouvrard var klæddur hvítum
geimbúningi og sagðist ekki hafa
fundið fyrir óþægindum vegna
þunna loftsins og hitinn frá loft-
belgnum hefði yljað honum þrátt
fyrir kuldann. „Mér var funheitt,“
sagði hann.
Metið var sett í Frakklandi og
stýrði faðir Ouvrards loftbelgnum.
Ouvrard sendi út streymi á fé-
lagsmiðla í beinni útsendingu hluta
af fluginu. Fyrra hæðarmetið átti
Ouvrard einnig. Það var 1.217
metrar og setti hann það 2019.
Toronto, Los Angeles. AFP. | Kenneth
Branagh sló fyrst í gegn sem leikari,
en lætur nú meira að sér kveða í hlut-
verki leikstjórans. Nýjasta afkvæmi
hans nefnist „Belfast“ og margir eru
þeirrar skoðunar að hún gæti orðið
fyrsta myndin, sem gerð hefur verið í
kórónuveirufaraldrinum, til að
hreppa Óskarsverðlaun fyrir bestu
myndina.
Þegar myndin var frumsýnd í Los
Angeles í vikunni sagði Branagh að
kveikjan að henni hefði verið „annað
útgöngubann“, tími átaka og rósta á
Norður-Írlandi.
Myndin byggir á æsku Branaghs
og er í svarthvítu. Hún fór í almennar
sýningar vestanhafs á föstudag.
„Hún spratt upp úr þögninni, sem
blasti við mörgum okkar í upphafi út-
göngubannsins og mér var kippt aft-
ur til hins útgöngubannsins, sem við
upplifðum þar sem vígi voru reist við
báða enda götunnar,“ sagði Branagh.
Branagh, sem fyrst gat sér orð sem
sviðsleikari í verkum Shakespears og
varð svo kvikmyndastjarna áður en
hann sneri sér að leikstjórn, flutti frá
Belfast þegar hann var barn að aldri
ásamt fjölskyldu sinni til að flýja vax-
andi ofbeldi á Norður-Írlandi seint á
sjöunda áratug 20. aldar.
Kvikmyndin hefst á ofbeldi á göt-
um úti sumarið 1969 þegar mótmæl-
endur réðust á katólskar fjölskyldur
til að hrekja þær úr götum þar sem
fólk sem tilheyrði báðum trúar-
brögðum hafði áður búið hlið við hlið.
Breskir hermenn eru sendir á vett-
vang.
Frá sjónarhóli barnsins
Sagan er sögð frá sjónarhóli Buddys,
sem er níu ára gamall og leikinn er af
Jude Hill. Faðir hans, sem Jamie
Dornan leikur, þarf að gera upp við
sig hvort hann eigi að taka þá erfiðu
ákvörðun að rífa fjölskylduna upp
með rótum og slíta hana frá því sam-
heldna samfélagi, sem hún býr í í Bel-
fast.
Barnið hefur aðeins takmarkaðan
skilning á því hvað ástandið er alvar-
legt og í myndinni eru mörg fyndin
atriði. Í henni skiptast á húmor og
heitar tilfinningar og hefur sérstöku
lofsorði verið lokið á leik Judi Dench
og Ciaran Hinds, sem leika ömmu og
afa drengsins.
„Ég var 16 ára þegar 1969 rann
upp og ég man eftir spennunni sem
fylgdi því þegar allt sprakk og það
var ekki fyrr en daginn eftir sem ég
gerði mér grein fyrir hvað þetta var
ógnvænlegt,“ sagði Ciaran Hinds,
sem leikur í myndinni og ólst upp í
Belfast líkt og fleiri í leikarahópnum.
„Æska mín á þessum tíma var hljóðin
að næturlagi í borginni og spreng-
ingar í fjarska bergmáluðu af hæðum
Belfast og byssuhvellir gullu í nótt-
inni.“
Vitjar æskuára í Belfast
Kenneth Branagh leitar aftur til uppruna síns í myndinni „Belfast“, sem
hann leikstýrði og skrifaði handritið að. Hún hefur fengið góðar viðtökur og
þegar er farið að spá henni Óskarsverðlaunum.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Caitrona Balfe, Jamie Dornan, Judi Dench og
Jude Hill á bíó í bíómyndinni „Belfast“. Myndin
fjallar um róstusama tíma á Norður-Írlandi.
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Útsölustaðir: Apótek, heilsuhillur stórmarkaða og Heimkaup.is
Háþróað bætiefni sem inniheldur
öflugar jurtir, mikilvæg vítamín
og steinefni sem stuðla að
bættum svefngæðum.
Inniheldur m.a tryptófan, humla,
sítrónumelissu, kamillu, saffran og
magnesíum sem stuðlar að slökun.
Neubria er fáanlegt í
fjórum öðrum tegundum.
Fyrir væran svefn
OFUR
BLANDA
Framhald á „Smokkfisksleiknum“