Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.11.2021, Side 29
Rósturnar á Norður-Írlandi áttu eftir að setja mark sitt á næstu þrjá áratugi og reka fleyg á milli hópa eftir markalínum trúarbragða og uppruna. Árið 1998 var gert friðarsamkomu- lag, sem kennt hefur verið við föstu- daginn langa, en vegna ágreiningsins um landamærin milli Norður-Írlands og Írlands út af útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu hefur aftur hitn- að í kolunum. „Ótti við sprengjutilræði um hverja helgi þegar maður fór að hitta félag- ana í bænum – þannig hlutir urðu eig- inlega hversdagslegir fyrir okkur […] nú þegar maður horfir til baka er það galið,“ sagði Dornan, sem einnig sótti í uppvaxtarár sín í Belfast fyrir leik sinn í myndinni. „Það verður alltaf órói á Norður-Írlandi, þannig er það því miður. En fólk hefur að mestu leyti lifað í sátt og samlyndi – að mestu leyti – í 23 ár,“ bætti hann við og kvaðst hafa áhyggjur af að Brexit ógnaði stöðugleikanum eftir 1998. Gekk lengi með hugmyndina Branagh kveðst hafa haft í huga að gera „Belfast“ í marga áratugi, en hófst ekki handa við að skrifa handrit að myndinni fyrr en í fyrsta útgöngu- banninnu vegna kórónuveirunnar á Bretlandi. „Mér fannst eins og fyrir 18 mán- uðum værum við að byrja að skilja hvernig svona hlutir gætu ruglað menn í ríminu […] ekki vegna ofbeld- is heldur ógnarinnar af þessari graf- alvarlegu veiru, sem læsti okkur öll inn og vakti okkur öll að ég held til mikillar umhugsunar.“ Hafist var handa við gerð myndarinnar í ágúst í fyrra. Meðan á henni stóð var daglega prófað fyrir smitum og leikmunadeildin starfaði í algerri einangrun innan skýrt afmarkaðs tímaramma. Myndin fékk mjög góðar viðtökur þegar hún var sýnd í Toronto fyrir viku og Los Angeles í vikunni. Fái hann Óskarsverðlaun fyrir hana yrðu þau hans fyrstu því þótt hann hafi fimm sinnum verið tilnefndur hefur hann aldrei hreppt styttuna. Hann var fyrst tilnefndur bæði fyr- ir leik og leikstjórn „Hinriks V.“ eftir Shakspeare árið 1990. Þremur árum síðar var hann tilnefndur fyrir stutt- myndina „Swan Song“. Fjórða til- nefningin var fyrir vinnu við handrit að öðru verki Shakespeares, „Ham- let“, árið 1997. Árið 2012 var hann svo tilnefndur fyrir bestan leik í auka- hlutverki í myndinni „My Week With Marilyn“. Þar lék hann Laurence Oli- vier lávarð, annan annálaðan Shake- speare-leikara, sem hann var borinn saman við þegar hann lék Hinrik V á sínum tíma. Branagh hefur því verið tilnefndur til Óskarsverðlauna í fimm mismunandi flokkum. Branagh er nú sextugur. Hann vakti mikla athygli þegar hann spratt fram á sjónarsviðið fyrir um 30 árum ásamt þáverandi konu sinni, Emmu Thompson, sem unnið hefur margan sigur á leiklistarsviðinu. Ekki er mikið eftir af írska hreimn- um hjá Branagh frá æskuárunum á Norður-Írlandi, en hann hefur sagt að Belfast muni aldrei nást úr strákn- um. Hann hefur sagt að framburður hafi verið kenndur í skóla eftir að hann fluttist til Reading á Englandi með fjölskyldunni, en ekki hafi verið reynt að berja írska framburðinn úr honum. Nú hefur hann horfið aftur til róta sinna. „Mig langaði að taka í höndina á þessum níu ára strák og líka að skilja hvað foreldrar mínir gengu í gegn- um,“ sagði Branagh þegar „Belfast“ var sýnd í Los Angeles. Kenneth Branagh leikstjóri og leikararnir Ciaran Hinds, Caitiona Balfe, Jude Hill og Jamie Dornan við frumsýninguna á „Belfast“ í Los Angeles 8. nóvember. AFP 14.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Ýmsar gerðir af heyrnar- tækjum í mismunandi litum og stærðum. Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA 2007 HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600 HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu UMMÆLI Robin Schwann, heilbrigðisráðherra Norður-Írlands, hefur höfðað mál gegn norðurírska söngvaranum Van Morrison fyrir meiðyrði. Morrison sagði að Schwann væri stórhættulegur eftir að tónleikum hans var aflýst með skömmum fyrirvara vegna kórónu- veirunnar. Birtust ummælin í mynd- skeiði, sem breiddist hratt út á net- inu. Hann sagði einnig að ráðherrann væri svikahrappur í við- tali og söng síðan um hvað hann væri hættulegur í lagi, sem hann gaf út. Morrison stefnt fyrir meiðyrði Van Morrison. Morgunblaðið/Golli BÓKSALA 3.-9. NÓVEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Heima hjá lækninum í eldhúsinu Ragnar Freyr Ingvarsson 2 Sigurverkið Arnaldur Indriðason 3 Þú sérð mig ekki Eva Björg Ægisdóttir 4 Læknirinn í Englaverksmiðjunni Ásdís Halla Bragadóttir 5 Kolbeinsey Bergsveinn Birgisson 6 Tilfinningar eru fyrir aumingja Kamilla Einarsdóttir 7 Sextíu kíló af kjaftshöggum Hallgrímur Helgason 8 Meinsemd Kim Faber/Janni Pedersen 9 Guðni á ferð og flugi Guðjón Ragnar Jónasson 10 Þín eigin ráðgáta Ævar Þór Benediktsson 1 Þín eigin ráðgáta Ævar Þór Benediktsson 2 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir 3 Reykjavík barnanna Margrét Tryggvadóttir/ Linda Ólafsdóttir 4 Nú er nóg komið! Hildur Knútsdóttir/ Þórdís Gísladóttir 5 Ótemjur Kristín Helga Gunnarsdóttir 6 Jólasvínið J.K. Rowling 7 Saga finnur fjársjóð Sirrý Arnardóttir 8 Vala Víkingur og epli Iðunnar Kristján Már Gunnarsson/ Sól Hilmarsdóttir 9 Dýrasinfónían Dan Brown 10 Sólkerfið okkar – vísindalæsi Sævar Helgi Bragason Allar bækur Barnabækur Mér þykir ekki verra að lesefnið beri mig burt úr hversdagslífi líðandi stundar til annarra landa og annarra tíma. Þess vegna kunni ég vel að meta Kvinde set fra ryggen eftir Jesper Wung-Sung sem ég las ný- útkomna fyrr á þessu ári. Bókin segir sögu Idu Ilsted, sem varð eiginkona eins virtasta listmálara Dana, Vilhelms Hammershøi, og helsta fyrirsæta hans frá árinu 1890. Danir (og aðrir) þekkja einkum þöglan baksvip þeirrar konu af málverkum en höfundi tekst afar vel að gæða hana lífi, ljá henni rödd og líkama sem kvelst undan þeirri raun að sitja fyrir hjá vandvirkum og kröfu- hörðum listamanni. Einnig las ég nýlega skáldsög- una Hamnet eftir Maggie O‘Farrell. Titill- inn er nafn son- ar Williams Shakespeare sem lést í bernsku. Eigin- konan Agnes (eða Anne) er þó aðalpersón- an og barns- missirinn og sorgin meginviðfangsefnið. Heimabærinn Stratford upon Avon í lok 16. aldar lifnar við og persónurnar standa manni nær eftir lesturinn. Hvernig atvik- aðist það að Will og Agnes tóku saman? Hvers vegna yfirgaf Will konu og börn og fór að leika í Lundúnum? O‘Farrell skáldar í hinar mörgu eyður í heimildum um Shakespeare-fjölskylduna af mikilli hugkvæmni og ritfimi og skýrir á sinn hátt hvers vegna leikritið Hamlet heitir því nafni og er eins og það er. Þjáðar eiginkonur snillinga leiða svo hugann að raunalega misheppnuðu hjónabandi Doro- theu og séra Casaubons í Midd- lemarch eftir George Eliot (dul- nefni Mary Ann Evans) þar sem sögusviðið er sveit og borg á Englandi á tím- um iðnbylting- arinnar. Þetta er mikill doðr- antur, enda mun höfund- urinn hafa lagt drög að tveimur skáldsögum en ákveðið að steypa þeim saman. Úr verður líflega skrifuð aldar- lýsing og þjóðfélagsrýni með fjölbreyttum og skemmtilegum persónum. Mary Ann Evans hef- ur verið mikill mannþekkjari því að hugsunum og gjörðum per- sónanna er lýst af einstöku innsæi og mannskilningi þegar sögumaður talar. Síðasta efnis- grein bókarinnar er perla og hefur verið sett í flokk tíu bestu lokaorða bókmenntanna. Ég þurfti ekki að lesa þá samantekt í Guardian til að tárast yfir þeim. GUÐRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR ER AÐ LESA Þjáðar eiginkonur snillinga Guðrún Þór- hallsdóttir er málfræðingur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.