Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021 LÍFSSTÍLL Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Í allri umræðu um læsi barna gleymist oft að læsið, hið risa- vaxna verkefni á yngsta stigi grunnskólans, byggir á grunni mál- þroskans. Sá grunnur er lagður heima hjá fjölskyldum hvers barns og síðar í leikskólum sem nánast öll börn á Íslandi sækja á aldrinum 1-5 ára. Málþroskinn er langtímaferli sem tengist öllum öðrum þroskaþáttum þannig að læsi í grunnskóla tengist líka tilfinninga- og félagsfærni, hreyfifærni, einbeitingarhæfni á fyrstu árunum svo dæmi séu tekin. Málþroskinn tengist m.a. samspili gena og umhverfis þar sem örvun tengd tungumálinu frá umhverfi, foreldrum, fjölskyldum og kenn- urum er í lykilhlutverki. Áskoranir Einbeiting og athygli barna hefur minnkað nema þegar þau eru í leik og námi tengt þeirra áhugasviði. Kannanir sýna einnig að stöðugt fleiri þriggja ára börn eru í áhættu- hópi hvað varðar málþróun og orða- forða. Stöðugt fleiri börn ná ekki að lesa eftir 2. bekk (ca. 40% í Reykja- vík á árunum 2002-2019). Árangur í PISA fer stöðugt niður á við í mik- ilvægum fögum eins og lesskilningi þar sem 19% stúlkna og 34% drengja 15 ára lesa sér ekki til gagns (PISA 2018). Svo er það hóp- ur sem dettur út úr framhaldsskóla. 31% drengja, 22% stúlkna og 62% innflytjenda. Oft má rekja þeirra áskoranir til að grunnskólanámið gekk ekki vel hjá þeim. Margar ástæður geta hafa valdið því og þar má nefna slæma lestrarkunnáttu, vöntun á áskorunum miðað við færni þannig að flæði næst ekki, kvíða, leiða, vöntun á þjálfun og/eða vöntun á eftirfylgni sem getur verið bæði frá foreldrum/forráðamönnum og kennurum. Norskar rannsóknir sýna fram á sterkt samband milli árangurs í grunnskóla og hverjir ljúka framhaldsskóla. Stöðugt fleiri börn mælast of þung. Stöðugt fleirri börn taka svefnlyf, róandi lyf og eru greind með ADHD. Einnig mælast stöðugt fleiri börn með skerta félagsfærni. Þetta er stór samfélagsleg áskorun sem við verð- um að taka á. Stjórnmálamenn verða að fara að taka á þessari al- varlegu stöðu og vinna að fyr- irbyggjandi aðgerðum en ekki ein- göngu plástra með átaksverkefnum. Foreldrar verða að fara að skoða forgangsröðun sína og gefa börnum meiri tíma og stuðning. Vísindi Rannsóknir sýna klárlega mik- ilvægi þess að lítil börn búi við örv- andi umhverfi sem er úthugsað af fagmennsku (ekki Sensory Over- load eða kaffæra skilningarvitin). Bæði hefur það jákvæð áhrif á færni hvað viðkemur fjölmörgum þáttum eins og tungumáli, orða- forða og málskilningi auk þess að efla vitsmunafærni og efla tengsl og félagsfærni. Kenning Gilberts Gott- liebs sýnir okkur að þróun ein- staklinga er alltaf samspil milli gena, taugakerfis, atferlis og um- hverfis. Bæði Esther Thelen, Karen Adolph, Minja Hadders-Algra og við höfum með verklegum rann- sóknum sýnt fram mikilvægi örv- andi umhverfis til að efla færni, þekkingu og þróun. Einnig sýna nýjar rannsóknir að aukin örvun í umhverfi barna á aldrinum 3 til 21 viku til 5 ára aldurs gefur stærri heila sem þýðir stærra taugakerfi með meiri möguleikum á öllum sviðum. Rannsóknir dr. Valdísar Jónsdóttur benda til þess að hávaði sé alltof mikill í leik- og grunn- skólum og að hátt hlutfall barna heyri ekki nógu vel í kennara. Þetta telur hún vera eina af rótum lélegs árangurs í PISA, en hávaði dragi úr les- og málskilningi barna. Möguleikar Við sem foreldrar, afar, ömmur, leikskólakennarar og aðrir sem vinnum með börn höfum mikilvægt hlutverk með að gefa börnum bæði örvandi og ögrandi umhverfi. Einn- ig þurfum við að gefa börnum rétt- ar áskoranir. Bíðum með að láta börn hafa snjallsíma fyrr en eftir barnaskólann og minnkum notkun á tækjum sem tengjast neti. Við eig- um að skammta tímann í net- heimum og vera þar með börnunum okkar við sjónvarp eða í símanum, fylgjumst með, tökum þátt og ræð- um það sem er að gerast. Gefum þeim áskoranir sem tengjast málþróun, hreyfingu, félagsfærni eða að læra nýja hluti. Í stað þess að láta barn fá ipad í hendurnar, getum við boðið upp á samskipti og þátttöku í fullorðinsstörfum, opinn og þroskandi efnivið og kubba, blað og liti, leir o.fl. Barnið þarf að vera virkt og skapandi í leik og vinna með áskoranir og nota til þess huga, hjarta og hönd þannig að víð- tækur þroski eigi sér stað. Eflum: Málþróun/orðaforða: eflum málþróun og orðaforða með ríku- legum samskiptum. Tölum við börnin frá fyrsta degi með hjali og hljóðum, orðum og setningum, svipbrigðum og líkamstjáningu, hreyfingu, leikjum, söngvum og þulum. Rannsóknir sýna að við tölum meira við stúlkur frá fæð- ingu þannig að aldrei má gleyma drengjunum. Lesum fyrir öll börn og sýnum þeim myndabæk- ur með myndum af ólíkum hlut- um eins og bílum, dýrum, fuglum og notum fjölbreytt og stór orð. Það má segja að við þurfum að baða börnin í tungumálinu. Tengsl/félagsfærni: eflum tengsl og félagsfærni hjá börnum. Sköp- um jákvæðar aðstæður þar sem börn fá möguleika til að upplifa góða samveru, vingjarnleika og samtöl. Sem hefur sýnt sig að vera mjög mikilvæg fyrir heila- starfsemi. Rannsóknir Pauls Gil- berts hafa ótvírætt leitt í ljós að kærleiksrík samvera hefur áhrif á hormónastarfsemi. þar sem hormónið oxytósín hefur mikil áhrif á okkar vellíðunartilfinn- ingu. Gilbert bendir á að upplifa góðvild, hógværð, hlýju og samúð hefur jákvæð áhrif á alla líkams- starfsemi okkar og er eins konar vítamín fyrir heilastarfsemi okk- ar. Hreyfingu: eflum hreyfingu barna á leikskólaaldri þannig að börn séu að lágmarki að stunda hreyf- ingu í einn tíma á dag. Gefum þeim kost á leik, bæði inni og úti, þar sem efldar eru bæði fínhreyf- ingar og grófhreyfingar. Hreyf- ing er einnig mikilvæg fyrir sjálfsmynd og hreysti. Snemmtæka íhlutun: búum leik- skólaumhverfið þannig úr garði að hægt sé að grípa barn með málþroskaröskun eins fljótt og þarf, t.d. með aðkomu talmeina- fræðinga. Einbeitingu og athygli: minnkum hávaða sem og sjónrænan hávaða (e. visual noise) í umhverfinu. Hlustun og skilningur byggir á að barn heyri skýrt. Tíma fullorðinna til að vera með börnum. Tölum við þau en ekki til þeirra, spyrjum þau meira og svörum minnu sjálf. Verum í augnsambandi til að barnið hlusti og skilji betur. Hvílum símann. Þar að auki væri mikilvægt að vinna að því að efla gróskuhugarfar hjá foreldrum og starfsfólki leik- skóla. Sjáum alltaf möguleikana hjá hverju barni og hvernig það getur vaxið þegar áhugi og hvatning er fyrir hendi. Notum jákvæða styrk- ingu í anda Csikszentmihalyi og í stað þess að einblína á útkomuna, skulum við beina athyglinni að ferl- inu og framförunum hjá hverju barni. Hlúum að börnunum okkar og eflum mannauð! Fyrstu árin Börn í Vesturbæjarskóla hlusta á upplestur. Höfundar greinarinnar segja að læsi sé nátengt málþroska barna. Morgunblaðið/Unnur Karen Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is Svava Þ. Hjaltalín Margrét Pála Ólafsdóttir Hermundur er prófessor við Norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og við Rannsóknasetur um menntun og hugarfar við Háskóla Íslands. Svava er grunnskólakennari og verkefnastjóri við Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar. Margrét Pála er kennari og höfundur Hjallastefnunnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.