Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Page 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 25 ára 1996-2021 M ikið rosalega er ég orðin leið á fréttum (skrifar blaðamaðurinn sjálfur). Ég ætti kannski að umorða þetta. Mikið rosalega er ég leið á neikvæðum fréttum! Þessir tímar sem við lifum á reyna sannarlega á mannkynið, svo ekki sé meira sagt. Smittölur eru himinháar, sóttvarnareglur æ strangari, Landspítalinn fúnkerar ekki, heilbrigðisstarfs- fólk margt á barmi taugaáfalls og lái ég þeim það ekki. Ekki vildi ég vilja vera læknir eða hjúkrunarfræðingur í dag. Það er líkt og að vinna á sprengjusvæði; það þarf bara ein lítil mistök til þess að sjúklingar skaðist eða hreinlega láti lífið. Hver vill hafa það á samviskunni? Annað sem brennur á þjóðinni eru mál tengd gerendum og þolendum ofbeldis, kynferðisofbeldis, áreitni og eineltis. Vissulega þarf að ræða þessi mál og breyta hugsunarhætt- inum í þjóðfélaginu. Þetta eru þó oft ekkert jákvæðar fréttir, enda ekkert jákvætt við ofbeldi af neinu tagi. Eitthvað gott mun þó koma út úr þessu að lokum; ég vona það sann- arlega. En aftur að kórónuveirunni. Ég sveiflast til og frá í mínum skoð- unum á sóttvarnareglum. Stundum finnst mér þær of harðar, stundum of linar, stundum veit ég ekki hvort þjóð- in á að leyfa þegnum sínum að passa sig sjálfir eða hvort stjórnvöld eigi að hafa vit fyrir þeim, eins og nú er gert. Þetta er snúin staða og sem betur fer er ég ekki stjórnmálamaður á tímum kórónuveirunnar. Ég ætla samt að draga andann djúpt, vera löghlýðin og reyna að ganga með grímu, þótt ég þoli hana ekki og sé illa haldin af grímupirringi (nýtt orð?). Þar sem ég er komin í pirring mætti nefna annað. Enn einu sinni birtist á Smartlandinu listi yfir eftirsóknarverðustu einhleypu skvísur landsins. Enn á ný kemst ég ekki þar á blað! Marta María, sérðu ekki mannkosti mína eða á ég bara engan séns lengur? Manni getur nú sárnað. Þessi pistill átti að snúast um jákvæðni, en það er bara ekkert jákvætt í honum! Ég skal reyna að bæta úr því og hætta að tuða. Skammdegið er komið og mál að kveikja á kertum, hlusta á ljúf jólalög og liggja undir teppi og hugleiða allt hið góða í lífinu. Jólin eru á næsta leiti og um að gera að nota vikurnar fram að jólum til að reyna að njóta, hætta að rýna í smittölur, vera góð við náungann og íhuga hvort framkoma manns sé til fyrirmyndar í samskiptum við hitt kynið, og alla ef því er að skipta. Það má alltaf bæta sig og best að byrja bara strax í dag. Grímupirringur og aðrar fréttir Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Enn á ný kemst ég ekki þar á blað! Marta María, sérðu ekki mannkosti mína eða á ég bara engan séns lengur? Manni getur nú sárnað. Grétar Þór Magnússon Bara það sem maður heyrir í útvarpinu. SPURNING DAGSINS Ertu farin(n) að hlusta á jólalög? Sandra Dís Káradóttir Já, ég stelst til að setja á jólarásina í bílnum. Þorgeir Óðinsson Nei, það er of snemmt. Anna Margrét Hrólfsdóttir Já, ég er löngu byrjuð. Ég vil taka góða skorpu fram að jólum og slökkva svo á þeim. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/Unnur Karen RAGNHEIÐUR GRÖNDAL SITUR FYRIR SVÖRUM Að fagna vetrinum Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Hinir árlegu Vetrarljóðatónleikar Ragnheiðar Gröndal verða haldnir í Iðnó 25. nóvember. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en húsið verður opnað kl. 19. Miðar fást á tix.is. Hvaða lög ætlarðu að syngja á tónleikunum? Tónleikarnir byggjast á disknum Vetrarljóð frá árinu 2004 en á honum er sungið um veturinn. Ég er líka að senda frá mér nýtt jólalag sem kemur út samhliða tónleikunum og fær að sjálfsögðu að heyrast í fyrsta skipti opinberlega í lifandi flutningi. Ég elska þennan árstíma og finnst tilvalið að fagna honum. Vetrarljóð er orðin 17 ára og sló í gegn á sínum tíma, veistu af hverju? Ég held hún hafi snert einhvern streng hjá fólki. Á henni eru lög við gömul og ný ljóð sem öll tengjast vetrinum. Ég og Magnús Þór Sigmundsson lögðum til lög sem og Jón Ólafsson sem stýrði líka upptökum. Til að fullkomna afurðina fengu svo vel valin tökulög að fljóta með. Ég fann fyrir nokkrum árum að það væri kominn tími til að heiðra Vetrarljóðin á tónleikum vegna þess að margir aðdáendur mínir spila hana ennþá grimmt á þessum árs- tíma. Hugmyndin kviknar því þaðan. Ég hins vegar legg alls ekki upp með að lögin eigi að hljóma eins og á disknum – heldur er tilgangurinn að blása nýju lífi í þau – þannig að þau fái að lifa og gleðja sem lengst. Ertu alltaf að semja og spila tónlist? Já, ég er hvergi nærri hætt og er alltaf að búa til og senda frá mér alls konar tónlist. Mér líður ennþá eins og ég sé rétt að byrja. Ég „gigga“ líka víða og er sannkallað skóla- bókardæmi um íslenskan, úrræðagóðan listamann. Um hvað fjallar nýja jólalagið? Í nýja laginu langar mig að fanga þessa sérstöku tilfinn- ingu sem maður finnur bara á jólunum þegar maður er í faðmi fjölskyldunnar og tíminn virðist standa í stað.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.