Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.11.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.11. 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
INNFLUTNINGUR AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
Viðræður stjórnarflokkanna
um áframhaldandi samstarf
mölluðu áfram, þrátt fyrir að
nokkur mál stæðu út af, var ritun
stjórnarsáttmála svo gott sem lokið.
Þá var hins vegar eftir að ræða um
skipun ráðuneyta og skiptingu
þeirra milli flokka.
Fyrrverandi starfsmenn leikskólans
Sælukots kröfðust þess að honum
yrði tafarlaust lokað eða gerðar rótt-
tækar breytingar á starfsháttum
hans. Þeir töldu að reksturinn stæð-
ist ekki lög og gagnrýndu tómlæti
Reykjavíkurborgar við aðfinnslum
við hann.
Icelandair vonast til þess að á næsta
ári verði sætaframboð hjá félaginu
um 80% af því sem var fyrir heims-
faraldurinn.
Samkvæmt neytendakönnun, sem
gerð var fyrir Strætó, hafa farþeg-
arnir margvíslegar hugmyndir um
hvernig bæta mætti þjónustuna og
gera almenningsamgöngur betri.
Þar voru aukin ferðatíðni, betra
leiðakerfi og lægra verð algengust.
Borgarlínan var hins vegar aðeins
1,3% efst í huga.
Vegagerðin vinnur að því að koma á
útvarpssambandi í öllum jarð-
göngum á næstu árum. Miðað er við
að þar verði endurvarpar fyrir báðar
rásir Ríkisútvarpsins og Bylgj-
unnar. Ungir ökumenn þurfa að
sætta sig við þögnina.
Varðskipið Týr lauk síðustu ferð
sinni á vegum Landhelgisgæsl-
unnar.
Axel Kristjánsson hæstarétt-
arlögmaður lést 93 ára að aldri.
. . .
Stjórnarliðar töldu fátt því til fyr-
irstöðu að unnt yrði að kynna nýja
ríkisstjórn í vikunni, sem nú er að
hefjast, en sögðu að það ylti nokkuð
á því hversu vel gengi hjá undirbún-
ingskjörbréfanefnd að komast að
niðurstöðu um framkvæmd kosn-
inga í Norðvesturkjördæmi.
Þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að
ráðherralið í nýrri ríkisstjórn verði
nánast óbreytt er vilji til þess meðal
formanna stjórnarflokkanna að
hrista ærlega upp í ríkisstjórninni,
þar á meðal með stofnun nýrra ráðu-
neyta. Auk innviðaráðuneytis er
einnig rætt um þekkingarráðuneyti
og viðskiptaráðuneyti.
Verðbólga hefur meira en látið á sér
kræla í kórónukreppunni og viðbúið
að hún færist frekar í aukana en hitt.
Af vöruflokkum, sem verðlagseftirlit
ASÍ athugaði, hefur allt nema bæk-
ur hækkað í verði, á bilinu 4-13%.
Ísland er meðal fárra Evrópuríkja
þar sem vinnustundum fækkaði á
öðrum fjórðungi þessa árs.
Þrátt fyrir fjárveitingar til nýrra
hágæslurýma hefur ekki verið unnt
að taka þau í gagnið, þar sem illa
hefur gengið að finna sérhæfða
hjúkrunarfræðinga.
Fyrirætlanir um víðtækari heimildir
skattyfirvalda til kyrrsetningar
eigna á rannsóknarstigi voru harð-
lega gagnrýndar, enda á jaðri þess
sem stjórnarskrá leyfir og engin leið
til þess að fá þeirri stjórnvalds-
ákvörðun hnekkt.
Tungudagurinn var haldinn hátíð-
legur, en meðal annars sýndi Mjólk-
ursamsalan bráðsmellna stuttmynd
um skáldið Jónas í nútímasamfélagi.
Honum leist miðlungi vel á bratta
stiga Háskóla Íslands.
Rjúpnaveiði hefur verið misjöfn það
sem af er veiðitímabilinu, rjúpan
ljónstygg og tíðin rysjótt. Mikið mun
því velta á kalkúnaslátrun þessi jól.
Hreindýrastofninn er minni nú en
undanfarin ár, um 4.230 dýr. Nátt-
úrustofa Austurlands leggur því til
að leyft verði að veiða um fjórðung
þeirra.
Landselastofninn er nú í sögulegu
lágmarki, aðeins rúm 10 þúsund dýr,
sem 69% færri en árið 1980 þegar
árlegar stofnáætlanir hófust. Um-
hverfisráðherra varð ekki um sel.
. . .
Fyrstu vetrarveðrin dundu yfir
landið með stormum og fallandi hita,
en snjókoma víða tíð.
Kórónuveirusmit héldu áfram að
gera vart við sig, en 215 greindust
einn og sama daginn í vikunni og
hafa aldrei verið fleiri.
Reykjavíkurborg leggur sem kunn-
ugt er mikla áherslu á almennings-
samgöngur og til þess að undir-
strika það voru
strætisvagnafargjöld eldri borgara
hækkuð um 60%.
Þrátt fyrir að velflestir bankar
landsins dragi saman seglin í húsa-
kosti og starfsmannafjölda (ef gím-
ald Landsbankans við Hörpu er
undanskilið), þá vex fjármálaeftirlit
Seðlabanka Íslands ár frá ári og
naga þar 120 manns blýanta, einn
eftirlitsmaður með hverjum 20
starfsmönnum viðskiptabankanna.
Velmegun í landinu má einnig rekja
af því að það sem af er árinu hafa
selst fjórar flöskur af koníakinu
Lúðvík XIII, en hver kostar hálfa
milljón. Það hefur orð á sér að renna
jafnljúflega ofan í fólk og upp úr því.
Tillaga sjálfstæðismanna um neyð-
arathvarf fyrir heimilslausar konur í
Reykjavíkurborg náði ekki fram að
ganga, heldur var málið sett í nefnd.
Arnaldur Indriðason og Vera Ill-
ugadóttir fengu verðlaun fyrir ís-
lenska tungulipurð.
Einar Elíasson, iðnrekandi á Sel-
fossi, lést 86 ára að aldri.
. . .
Seðlabankinn telur fráleitt að fyrir
dyrum sé útgreiðsla „hagvaxt-
arauka“ samkvæmt kjarasamn-
ingum, nú þegar hagvöxtur eykst á
ný eftir 6,5% samdrátt landsfram-
leiðslu í kórónukreppunni.
Forystumenn verkalýðshreyfingar
tóku þær ábendingar ákaflega
óstinnt upp.
Peningastefnunefnd kynnti 50
punkta hækkun stýrivaxta, fjórðu
hækkunina síðan í vor, en meg-
invextir bankans eru þá í 2%. Merki
um aukna verðbólgu eru enn fyrir
hendi.
Mælingar á athygli umheimsins á
eldgosinu á Reykjanesskaga gefa til
kynna að auglýsingagildið jafnist á
við 50 milljarða króna landkynning-
arherferð.
Stjórnmál á Akureyri eru í uppnámi
vegna banns við lausagöngu katta í
bænum, sem mörgum þykir út í
kött. Kattavinir hyggja nú á fram-
boð í sveitarstjórnarkosningunum til
þess að hrinda banninu.
Settur forstjóri Landspítalans segir
álag á bráðamóttöku spítalans í
Fossvogi birtingarmynd langvinnari
og djúpstæðari vanda innan spít-
alans.
Fregnir bárust af því að grænlensk-
ar rjúpur hafi komið til landsins í sí-
auknum mæli, en áhyggjur fólks af
jólamáltíðinni sefuðust lítt við það.
Útvarpsstjóri vill engar skýringar
gefa á því af hverju beðið verður
með að auglýsa eftir nýjum frétta-
stjóra Ríkisútvarpsins þar til ein-
hvern tímann eftir að sá gamli lætur
af störfum. Á meðan mun einn vænt-
anlegra umsækjenda viða að sér
starfsreynslu sem staðgengill.
Halldóra Sigríður Sveinsdóttir var
kjörinn 3. varaformaður Alþýðu-
sambandsins í stað Sólveigar Önnu
Jónsdóttur, fráfarins formanns Efl-
ingar. Sólveig Anna beið ekki boð-
anna með að fordæma eftirmanninn
fyrir að vera endurskoðunarsinni.
Vonir jukust við að undirbúnings-
kjörbréfanefnd lyki störfum í lok
vikunnar, en þá bárust af því fregnir
að Svandís Svavarsdóttir teldi kosn-
inguna svo spillta að uppkosning
yrði að fara fram. Um það hefur hún
vafalaust fengið góð ráð Ástráðs
Haraldssonar, sem er sérfræðingur í
spilltum kosningum.
. . .
Þingsetning Alþingis var boðuð
næsta þriðjudag en fundi verður
frestað þegar eftir kosningu kjör-
bréfanefndar. Fundir hefjast aftur
næstkomandi fimmtudag þegar kos-
ið verður um hvort kosningin í Norð-
vesturkjördæmi skuli standa eða
uppkosning fara fram.
Stjórnarflokkarnir héldu áfram að
ræða um verkaskiptingu í stjórn-
arráðinu og þreifa hver á öðrum um
skiptingu ráðuneyta milli flokkanna.
Skjálftavirkni við Heklurætur hefur
haldið áfram.
Ekki verður aðeins kosið í sveit-
arstjórnir á næsta ári, því stefnt er
að atkvæðagreiðslum um samein-
ingar sveitarfélaga á 3-4 svæðum í
febrúar.
Tökur á áramótaskaupinu eru hafn-
ar, sem eru jafnárviss vetrarboði og
fjárlagafrumvarpið.
Örvandi efni
og uppörvandi
Þúsundir manna voru boðaðar í Laugardalshöll í vikunni til þess að þiggja þar þriðja bóluefnisskammt sér til uppörvunar
nú þegar kórónuveiran og skammdegið taka að grúfast yfir. Af þegunum var þó hvorki að merkja uppörvun né grúv.
Morgunblaðið/Eggert
14.11.-19.11.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is