Morgunblaðið - 01.12.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.12.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is Fjárlagafrumvarp 2022 og fjármálastefna 2022-2026 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ríkissjóður verður rekinn með 168,5 milljarða króna halla á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2022, sem lagt var fram í gær. Af- koman hefur þó batnað og er þetta um 55 milljörðum kr. minni halli en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun sem samþykkt var sl. vor. Batnar af- koman um 120 milljarða frá yfir- standandi ári, þar sem nú er útlit fyrir 288 milljarða kr. halla á rekstri ríkissjóðs á árinu sem er að líða. Tekjur ríkissjóðs verða 955 millj- arðar á næsta ári gangi áætlanir eft- ir en nú er útlit fyrir að tekjurnar verði 66 milljörðum króna meiri en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun- inni og áætlað er að tekjur ríkissjóðs verði um 182 milljörðum króna hærri á næsta ári en í fjárlögum yfirstandandi árs. Komið er í ljós að t.a.m. skilar tekjuskattur lögaðila 16 milljörðum umfram það sem gert var ráð fyrir og virðisaukaskattur skilar um 10 milljarða hærri tekjum en ráð var fyrir gert. Heildargjöld ríkissjóðs á næsta ári eru nú áætluð 1.124 milljónir kr. og lækka að raungildi um 25,7 millj- arða eða 2% frá yfirstandandi ári. Skýrist það að mestu leyti af því að ýmis tímabundin útgjöld vegna mót- vægisaðgerða stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar fjara út og útgjöld vegna atvinnu- leysis dragast saman. Vaxtagjöld eru áætluð nokkru hærri en í fjár- lögum ársins 2021, einkum vegna hærri verðbóta en dregið verður úr fjárfestingum sökum þess að meg- inþungi fjárfestingarátaks vegna heimsfaraldursins var á yfirstand- andi ári að því er fram kemur í greinargerð frumvarpsins. Framlög til fjárfestinga og fjármagns- tilfærslna lækka um 6,3 milljarða milli ára. Stærsta einstaka hækkun út- gjalda ríkisins á næsta ári í fjárlaga- frumvarpinu eru framlög til heil- brigðismála sem aukast um 16,3 milljarða milli ára. Lagt er til 2,6 milljarða kr framlag til að halda áfram að styrkja getu Landspítalans til að bregðast við faraldrinum. Framlög til sjúkratrygginga aukast um 4,6 milljarða og hækka útgjöld til loftslagsmála um einn milljarð, sem verða samtals rúmir 13 milljarðar á næsta ári. Framlög vegna fjölgunar lífeyrisþega aukast um 4,6 milljarða á næsta ári og kostnaður vegna lengingar fæðingarorlofs í tólf mán- uði er áætlaður 1,1 milljarður kr. Þá eiga 5,2 milljarðar að fara í byggingu hjúkrunarheimila á komandi ári. Á næsta ári verða langtímalántök- ur ríkissjóðs upp á rúmlega 300 milljarða kr. gangi áætlanir eftir. Útlit er fyrir að heildarskuldir ríkis- sjóðs verði 1.570 milljarðar í árslok 2022 en hægja mun frekar á skulda- söfnun á næsta ári og þegar inn- stæður hafa verið dregnar frá heild- arskuldum nema þær á þann mælikvarða um 1.201 milljörðum eða 33,7% af landsframleiðslu. 50 ma.kr. Fjárlagafrumvarp 2022 Samsetning tekna ríkisins af sköttum og tryggingagjöldum árið 2022 í milljörðum króna Í þetta fara skattarnir: útgjöld á mann í þúsundum króna árið 2022 Húsnæðisstuðningur Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál Löggæsla Umhverfismál Framhaldsskólar Samgöngur Fjölskyldumál Vaxtakostnaður Háskólar Örorkugreiðslur í alm. tryggingakerfinu Málefni aldraðra Heilbrigðismál 36 47 56 69 109 133 134 140 149 226 274 866 Virðisaukaskattur Tekjuskattar einstaklinga Tryggingagjöld Tekjuskattur lögaðila Gjöld á ökutæki og eldsneyti Aðrir neysluskattar Fjármagnstekjuskattur Áfengis- og tóbaksgjald Launaskattar Aðrir skattar Eignaskattar Bankaskattur 290 218 107 78 40 32 32 30 9 9 9 5 52 milljarðar króna er áætlaður vaxta- kostnaður árið 2022 sem er aukning um 11 ma.kr. frá fjárlögum 2021 14 milljarðar greiddir í barnabætur 2022 1,4 milljarðar í kaup á bóluefni við Covid-19 á næsta ári Veiðigjöld eru áætluð 6,3 milljarðar á árinu 2022 Framlög til lofts- lagsmála hækka um einn milljarð og verða yfir 13 milljarðar á næsta ári 31,5 milljarðar í sam- göngumannvirki Áætlaðar arðgreiðsl- ur banka og Lands- virkjunar eru rúmir 29 milljarðar kr. á næsta ári Frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega fer úr 100 þús. kr. í 200 þús. kr. á mánuði um næstu áramót Bætur örorku- lífeyrisþega hækka um 5,6% 2,3 milljarða kr. lækkun tekjuskatts árið 2022 Mótvægis- aðgerðir vegna Covid-19 á næsta ári Afkomubati ríkissjóða milli 2021 og 2022 -288 ma.kr. -169 ma.kr. 52 ma.kr. 68 ma.kr. Minni þörf fyrir stuðning vegna Covid-19 Bættar efnahags- horfur o.fl. Afkoma 2021 Afkoma 2022 16 milljarða kr. raunaukning útgjalda til heil- brigðismála Heimild: Stjórnarráð Íslands, Frumvarp til fjárlaga 2022 168,5 milljarða halli á næsta ári - Afkoma ríkissjóðs á að batna um 120 milljarða á milli ára samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2022 Greiða á um 14 milljarða í barnabætur á næsta ári sam- kvæmt fjárlaga- frumvarpinu. Skerðingar- mörkum vegna tekjutenginga verður breytt. Frítekjumarkið hjá einstæðu for- eldri verður um 394 þúsund krón- ur og byrja bæturnar að skerðast af mánaðarlaunum sem eru um- fram þau mörk. Fyrir sambúðar- fólk hækka skerðingarmörkin og verða þeir sem hafa allar sínar tekjur af launavinnu ekki fyrir skerðingu á bótum upp að 789 þús. kr. mánaðarlaunum. Fjár- hæðir barnabóta hækka á bilinu 5,5% til 5,8%. Fyrir einstæða for- eldra hækka bætur með fyrsta barni um 22.300 kr. og verða 413.000 kr. Hjá sambúðarfólki hækka þær með fyrsta barni um 13.500 kr. og verða 248.000 kr. 14 milljarðar í barnabætur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.