Morgunblaðið - 01.12.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 01.12.2021, Síða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170Verið velkomin Vinsælu velúrgallarnir fyrir konur á öllum aldri Einnig stakar svartar velúrbuxur Margir litir • Stærðir S-4XL Ný sending Vörður tryggingafélag og Samkaup hlutu Hvatningarverðlaun jafnrétt- ismála við athöfn sem fram fór í há- tíðarsal Háskóla Íslands í gær. Verðlaun voru afhent í þremur flokkum en Vörður hlaut viðurkenn- ingu á sviði kynjajafnréttis og Sam- kaup hlaut tvær viðurkenningar, annars vegar á sviði fjölmenningar og hins vegar á sviði atvinnumála starfsmanna með skerta starfsorku. Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands standa að verðlaununum en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vís- inda-, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra afhenti þau. Þetta er í áttunda sinn sem hvatningarverðlauin eru veitt en markmið þeirra er að hampa þeim sem vel hafa staðið að jafnréttismálum og hvetja önnur fyrirtæki til að feta í fótspor þeirra. Í máli þeirra er töluðu við athöfn- ina í gærmorgun mátti greina mikla áherslu á að horft yrði á jafnrétti á vinnumarkaðnum í víðu samhengi. Sagði Jón Atli Benediktsson rektor HÍ m.a. mikilvægt að fjölbreyttar raddir fengju að heyrast og að hlustað væri á ungt fólk. hmr@mbl.is Fjölbreyttar raddir þurfa að koma fram - Hvatningarverðlaun jafnréttismála afhent Hvatningarverðlaun Fulltrúar verðlaunahafa ásamt Áslaugu Örnu Sigur- björnsdóttur, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. leiða fjölbreyttari mælikvarða en eingöngu hagvöxt. Svo það hefur verið hjartans mál okkar í Vinstri grænum að skilgreina vöxtinn upp á nýtt. Það er til lítils að hafa hagvöxt ef allir eru óhamingjusamir. Það er mikilvægt að við horfum líka á hina samfélagslegu þætti og umhverfis- þætti, því það er líka til lítils að hafa hagvöxt ef umhverfið stefnir í algera auðn.“ Verkefnin réðu ferðinni Hinn langi stjórnarsáttmáli er nokkuð almennur, svo að sjálf stjórnarmyndunin virtist snúast um nöfn og málaflokka ráðuneyta sem ráðherra. Er það ekki mest pólitísk hentisemi og sýndarmennska? „Það er nú ekki þannig. Síðasti stjórnarsáttmáli snerist mikið um uppbyggingu innviða, að nýta góða stöðu ríkissjóðs til þess að ráðast í það. Í þessum stjórnarsáttmála erum við frekar að fjalla um þessar miklu áskoranir. Auðvitað eru efnahags- og ríkisfjármálin þar stærst og næst okkur í tíma. Það er gríðarlega mik- ilvægt að okkur farnist vel í því að leysa úr þeim viðfangsefnum; að tryggja að við komumst upp úr dýf- unni, að við vinnum á halla ríkis- sjóðs, að við viðhöldum ákveðnum stöðugleika í vöxtum og verðlagi. Þetta eru risastórar áskoranir. Svo eru loftslagsmálin, vinnumarkaðs- málin sem eru nátengd efnahags- og ríkisfjármálum, heilbrigðismálin og öldrun þjóðarinnar, og loks tækni- breytingar.“ Varla lög á sjómannaverkfall Af fjárlagafrumvarpinu sést að það er svo sem ekki mikið til skipt- anna, en innviðaframkvæmdir á t.d. að fjármagna með þeirri frábæru loðnuvertíð, sem er að bresta á. Ekki er það í hendi ef það brestur á sjó- mannaverkfall eftir áramót? „Nei, en við verðum að gera ráð fyrir að samningsaðilar geri sitt ýtr- asta til að ná samningum við það borð, sem samningar eiga að nást við. Það hafa reglulega verið vinnu- deilur á Íslandi og þær geta endað í verkföllum.“ Kæmi til greina að setja lög á sjó- mannaverkfall? „Nú erum við komin inn á árið 2022, en ég lít alltaf svo á að það eigi að reyna til þrautar að ná samning- um við samningaborðið. Raunar voru sett lög á eina vinnudeilu á síð- asta kjörtímabili, vinnudeilu flug- virkja, en það var vegna ógnar við almannaöryggi. Það var hins vegar oft gerð sú krafa að lög væru sett á önnur verkföll. Það lít ég alltaf á sem ýtrasta neyðarúrræði og það þurfa að vera mjög rík rök fyrir slíku.“ Nú er verkalýðshreyfingin mjög vígreif en vinnuveitendur barma sér sem aldei fyrr. „Já, þetta er allt kunnuglegt. En þannig er það og stjórnvöld hafa það hlutverk að liðka fyrir. Við eigum líka að velta fyrir okkur hvort það sé eðlilegt að samningar séu lausir mánuðum saman og jafnvel ekki sest við samningaborðið fyrr en þeir losna, sem hefur tíðkast hér á landi. Þetta finnst mér t.d. vera eitthvað sem við hljótum að geta sameinast um að bæta. Það hafa allir sínu hlutverki að gegna og ástæðan fyrir því að lífs- kjör á Íslandi eru góð er m.a. vegna þess að verkalýðshreyfingin er sterk. Það ber ekki að vanmeta það.“ Hvorki skatthækkanir né niðurskurður En er einhver von á kjarabót með skattalækkunum? „Við tölum um eflingu almanna- þjónustu og skattalækkanir ef þróun ríkisfjármála leyfir. Þar er undir- strikað að við erum ekki að fara að skera niður, en við erum ekki heldur að fara að hækka skatta. Þetta gæti hvort tveggja verið viðbrögð rík- isstjórna til að fást við þunga stöðu ríkissjóðs. Við horfum fremur til þess – ef þessar áætlanir ganga eft- ir, að við vöxum til aukinnar vel- sældar – þá séu tök á því að efla al- mannaþjónustu annars vegar og hins vegar að lækka skatta, þannig að það nýtist þeim tekjulægstu og minnstu fyrirtækjunum,“ Sem vill svo til að gerist rétt fyrir næstu kosningar! „Það er gott fyrir samfélagið ef við erum komin á þann stað, segi ég nú bara. Alveg óháð kosningum, þá skiptir gríðarlegu máli hvernig okk- ur gengur að rísa aftur á fætur eftir þetta áfall sem hefur dunið yfir.“ Risastórar áskoranir fram undan - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtali - Stjórnarmyndun hefði getað tekið minni tíma - Lausn fundin á mörgum erfiðum málum - Vinnumarkaðsmál krefjandi á nýhöfnu kjörtímabili Morgunblaðið/Hallur Dagmál Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ræðir um stjórnarmyndun og stjórnarsáttmála í Dagmálum í dag. DAGMÁL Andrés Magnússon andres@mbl.is „Auðvitað hefðum við getað gert þetta hraðar, það er ekki vafi á því,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra um stjórnarmyndunar- viðræðurnar. Hún segir formenn stjórnarflokkanna hafa snemma ákveðið að mynda ekki nýja ríkis- stjórn fyrr en kjörbréfamálið væri útkljáð. „Um leið og sú niðurstaða lá fyrir vorum við snögg að ljúka verk- inu. Síðan nýttum við tímann ágæt- lega, finnst mér. Það var farið yfir alla málaflokka, rætt hvað hefði gengið vel og hvað hefði gengið illa á síðasta kjörtímabili.“ Katrín segir að ástæðuna fyrir töluverðum breytingum á stjórnar- ráðinu megi einmitt rekja til þess að þau hafi haft rúman tíma til þess að ræða málin í þaula, fara yfir reynsl- una af stjórnarsamstarfinu og hvað mætti betur fara. „Svo ég held þessi tími hafi nýst vel,“ segir Katrín í við- tali við Dagmál, streymi Morgun- blaðsins, sem er opið öllum áskrif- endum. Erfiðu málin þokuðust áfram Katrín tekur undir að töluverður tími hafi farið að ræða „erfiðu málin“ frá fyrra kjörtímabili og telur að þar hafi þokast vel áfram. „Þar er t.d. fjallað um hófstilltari útgáfu af miðhálendisþjóðgarði, hvernig við ætlum að samþætta þjónustu fyrir innflytjendur og flóttamenn, rammaáætlun þar sem biðflokkur- inn verður stækkaður í þriðja áfang- anum, svo það er nú ýmislegt af þessum málum, sem er tekið á.“ Stjórnarsáttmála hins endurnýj- aða stjórnarsamstarfs var fylgt úr hlaði með kjörorðunum Vöxtur til velsældar, en flokksmenn Vinstri grænna hafa ekki allir verið vissir um að hagvöxtur sé svarið. Er komið nýtt hljóð í strokkinn? „Það er ekki sama hvernig vöxtur- inn er og við í ríkisstjórninni höfum undanfarin fjögur ár verið að inn-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.