Morgunblaðið - 01.12.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.12.2021, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 ✝ Björg Ragn- heiður Árna- dóttir fæddist 24. júlí 1931 á bænum Hjallabúð í Fróð- árhreppi á Snæ- fellsnesi. Hún lést 18. nóvember 2021 á Hrafnistu í Kópa- vogi. Foreldrar henn- ar voru Árni Kr. Hansson húsa- smíðameistari, f. 5. desember 1907, d. 24. ágúst 2006 og Helga Kristín Tómasdóttir húsmóðir, f. 24. september 1908, d. 15. júní 1990. Systur hennar voru Ingi- björg Árnadóttir, f. 26. sept- ember, d. 6. maí 2018 og Ragn- heiður Dóróthea, f. 1. september 1939, d. 23. maí 2013. Björg giftist Ármanni J. Lár- ussyni, glímukappa og bygg- ingaverkamanni, f. 15. mars 1932, d. 14. nóvember 2012, 24. júlí 1953. Foreldrar hans voru Lárus Salómonsson, f. 11. sept- til sex ára aldurs. Hún flutti með foreldrum sínum og systur, Ingibjörgu, til Reykjavíkur 1937 og svo til Ólafsvíkur 1940 en þá hafði þriðja systirin, Ragnheið- ur Dóróthea, bæst í hópinn. Þar bjó fjölskyldan til ársins 1947 en þá fluttu þau til Kópavogs og voru meðal frumbyggja bæj- arins. Björg bjó síðan alla tíð í Kópavogi og lengst af á Digra- nesvegi 64, síðan á sama vegi í húsi nr. 20, þá hjá syni sínum, Sverri, og lauk svo ævidögum sínum á Hrafnistu í Kópavogi. Björg stundaði nám við Hér- aðsskólann á Laugarvatni og gerðist síðan verslunarstjóri fram til ársins 1969 auk þess sem hún stundaði önnur störf. Árið 1971 fékk hún löggildingu sem fiskimatsmaður og hóf störf hjá Útgerðarfélaginu Barðanum í Kópavogi og vann þar sem slík og sem verkstjóri í 18 ár. Hún tók alla tíð mikinn þátt í félags- og kirkjustarfi og var einn af stofnendum Frí- kirkjunnar Kefas og fór í far- arbroddi fyrir uppbyggingu hennar og starfsemi til margra ára. Útför Bjargar fer fram frá Fríkirkjunni Kefas í dag, 1. des- ember 2021, klukkan 13. ember 1905, d. 24. mars 1987 og Krist- ín Gísladóttir, f. 18. júní 1908, d. 20. apríl 1983. Börn Bjargar og Ár- manns eru Sverrir Gaukur, f. 9. febr- úar 1952 og Helga Ragna Ármanns- dóttir, f. 9. apríl 1955. Eiginmaður Helgu var Páll Ey- vindsson, f. 4. júlí 1951, d. 29. maí 2015. Börn þeirra eru: 1) Björg Ragnheiður, f. 17. mars 1977. Fyrrverandi eiginmaður hennar er Benjamín Ingi Böðv- arsson og þeirra börn eru Lúkas Páll og Elías Logi. 2) Ármann Jakob, f. 28. febrúar 1980. Eig- inkona hans er Áslaug Guð- mundsdóttir og þeirra börn eru Jakob Dagur, Arney Helga og Rakel Birta. 3) Sverrir Gaukur, f. 5. apríl 1981, d. 5. nóvember 2018. Björg ólst upp í Fróðárhreppi Blessuð móðir mín hefur nú kvatt þetta jarðlíf rúmlega níræð. Þessi missir tekur nokkuð í sál- artetrið og einstaka tár rennur niður á kinn þegar ýmsar minn- ingar úr lífsins ferð fara í gegnum hugann. Ég minnist þess oft að það var fastur liður þegar fund- um okkar bar saman að hennar fyrsta spurning var hvort ég hefði fengið eitthvað að borða. Þessi ábyrgðartilfinning, að eng- inn í fjölskyldunni liði skort, var rótgróin í fasi hennar. Við áttum ekki sterk vinabönd á uppvaxtar- árum mínum en það breyttist þegar árin tóku að líða. Það er hægt að segja að þegar ég kom í heimsókn til hennar undir lokin og tjáning með orðum var farin að vefjast fyrir henni að þá hafi hún oft talað með höndunum. Þegar ég settist við hlið hennar í heimsóknartímum dró hún annan framhandlegg minn til sín og strauk yfir hann löngum stund- um. Hún bjó hjá mér í nokkur ár eftir andlát pabba sem lést fyrir níu árum. Fyrir þremur árum lauk hún vistinni hjá mér og flutt- ist á Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi. Þá var svo komið að hún vildi fá meiri reglusemi á hvenær hún fengi að borða og að- stoð við að klæða sig. Hér voru matartímar ekki reglulegir en keypt var tveggja hellu eldavél svo hún gæti bjargað sér sjálf ef ég var ekki heima því henni leist ekki neitt á þá eldavél sem ég bauð upp á til að hita matinn. Mér þótti mjög vænt um að geta gold- ið henni eitthvað með dvölinni hérna hjá mér upp í allt sem þau pabbi höfðu gert fyrir mig um ævina. Það var svo tveimur dög- um fyrir andlát mömmu og ljóst var hvert stefndi að ég fór með nöfnu hennar að hitta starfsfólk Hrafnistu til að ræða málin hvað ætti að gera eftir þróun mála. Deildin sem mamma var á var þá lokuð vegna Covidsmits. Að fund- inum loknum fengum við undan- þágu til að líta inn til hennar. Hún var lítil að burðum og mókti mest. Við ávörpuðum hana og hún gjó- aði á okkur augunum og herti handtakið á sitt hvorri hendinni sem við héldum í. Svo var það að nafna hennar fór að syngja: „Sigga, Vigga, Sunneva …“ að mamma reisti sig upp í rúminu og tók undir af miklum krafti og leiddi sönginn upp á punkt og prik. Síðan sungum við „Alpar- ósina“ með mömmu í aðalhlut- verki þar sem hún raddaði. Eftir það voru kraftarnir búnir og hún lagðist aftur á koddann. Þarna er nú góð kona fallin frá sem gat verið svo blíð að stærsta öldu- gang lægði en einnig svo ákveðin að engu varð haggað. Lífið með foreldrum mínum spannaði margan skalann bæði hátt og lágt en ég þakka þeirra umhyggju og kærleika í minn garð. Ég þakka þér samfylgdina, elsku mamma. Það er fullvissa mín að Lausnari þinn tekur þér opnum örmum. Þinn sonur, Sverrir Gaukur Ármannsson. Elsku amma mín. Það er svo augljóslega mitt lán og gæfa að hafa fengið að vera þín og að eiga þig. Þvílík amma og þvílík kona sem þú varst. Þegar ég var lítil snerust þið öll á Digranesvegi 64 um mig en einkum þú. Ég er svo þakklát fyrir atlætið og kærleik- ann. Þú hafðir einlægan áhuga á samverunni með manni, – hafðir mig hjá þér uppi á eldhúsborði þegar þú varst að elda, leyfðir mér að „stjórna eldamennsk- unni“, talaðir við mig, hlustaðir og söngst. Þú tókst sumar þess- ara stunda upp á segulband og það er ótrúlegt að heyra hve nat- in þú varst við mig. Svo fékk ég líka að sitja við snyrtiborðið þitt og raða á mig öllum skartgripun- um sem þú áttir, fara í kjóla og skó, setja á mig slæður og svo tókst þú mynd af mér. Okkur lynti vel og alla tíð gátum við leik- ið okkur. Þú varst örugg, skap- andi, yndisleg amma fyrir mig og bræður mína. Í félags- og kirkju- starfinu döfnuðu þessir sömu eig- inleikar. Þér var einlæglega annt um fólk og þú skapaðir innihalds- ríkar stundir með fólki og djúp tengsl. Ég sé það á viðbrögðum fólks núna hve fallega og mikla arfleifð þú skilur eftir þig um víð- an völl. Allir minnast þín sem kraftmikillar og réttsýnnar konu sem var klár, hlý og skemmtileg. Þú hafðir svo víða áhrif og vildir byggja upp, breyta og bæta hag fólks. Tónlistin var þér alltaf svo kær. Ég dáist að þér fyrir að hafa ekki gefist upp á að læra á orgelið hjá kennaranum í Ólafsvík sem sló á hendur ykkar nemendanna með reglustiku ef þið gerðuð mis- tök. Þú æfðir þig og æfðir svo hún myndi ekki gera það. Svo lærðir þú líka á gítar og söngst og spil- aðir svo fallega með systrum þín- um. Í kirkjunni okkar, Kefas, sem væri ekki til hefði ekki verið fyrir þig og fleiri eldhuga, byggðir þú upp tónlistarstarfið. Keyptir hljóðfæri og hvattir fólk til að læra á þau, græjur og skapaðir afbragðs aðstæður fyrir tónlist- ina til að dafna. Þið pabbi kennd- uð mér á gítar og þótt ég sé ekki fyrirtaks gítarleikari er tónlistin mínar ær og kýr. Heilabilunin hafði alltaf aukin áhrif á þig síð- astliðin ár og þú spurðir mig oft að því við hvað ég ynni og þegar ég svaraði því að ég kenndi börn- um tónlist við Tónlistarskóla Kópavogs og á leikskólanum Kópasteini ljómaðir þú af gleði, varst ánægð með mig, og ég sá að Kópavogs- og tónlistarhjartað tók kipp. Þú hafðir svo mikil áhrif á mig, amma. Ég vissi það en sé það enn skýrar núna. Ég er þakk- lát fyrir allar okkar stundir og samveru í gegnum tíðina og hvernig þú snertir líf mitt og fjöl- skyldunnar minnar. Við Benni vorum lánsöm að eiga ykkur afa að og drengirnir mínir sömuleið- is, – að eiga langömmu sem klór- aði þeim á bakinu eins og mér með sínum hlýju, mjúku höndum. Ég er þakklát fyrir söngstundirn- ar sem við áttum saman á Hrafn- istu, þar sem tónlistin dró fram persónuleika þinn og mynd þín skýrðist öll þrátt fyrir veikindin. Þau myndbrot glöddu fleiri en mig enda þótti mörgum vænt um þig. Minning þín lifir, elsku amma, og ég veit að Guð blessar hana og tekur þér að sjálfsögðu opnum örmum. Takk fyrir allt og allt. Við finnumst svo seinna. Björg Ragnheiður Pálsdóttir. Elsku mamma mín. Það var gott að vera í örmum þínum sem barn og þótt stundum hafi reynt á í gamla daga voru þetta yndisleg ár. Ég vil kveðja þig að lokum með fáum þakklætisorðum og segja þér að ég elska þig. Engin mamma var betri en þú. Þín ávallt, Helga Ragna Ármannsdóttir. Amma Björg, margar eru minningarnar. Hverja skal velja og hvað skal segja um einstakling sem spilaði svona litríkt og stórt hlutverk í mínu lífi. Þú keyptir fyrsta gítarinn minn, kenndir mér fyrstu gripin mín, kenndir mér að tína orma í kirkjugarði um miðja nótt og margt annað mætti telja upp. Ást þín á tónlist var smitandi, gleði þín og hlátur var smitandi. Fyrir mig þá varstu alltaf örugg, ímynd öryggis. Það var aldrei spurning um það hvernig þú kæmir fram við mig eða hvernig þú myndir bregðast við. Þú varst traust bjarg sem hægt var að reiða sig á. Ófá kvöldin svaf ég uppi í rúminu þínu og reyndi að halda mér vak- andi meðan þú klóraðir mér á bakinu því ég vildi ekki sofna og missa af því að vera prinsinn á bauninni meðan greyið Ármann afi þurfti að sofa á sófanum. Ást ykkar beggja til fjölskyldunnar var án takmarkana. Þú sýndir mér að fólk þarf ekki að vera stórt líkamlega til að vera sterkt og afreka mikið. Þú hafðir þann sjaldgæfa eiginleika að horfa í augun á fólki og láta því líða eins og það skipti máli, þú sagðir svo margt án orða og hvaða orð skal velja til að lýsa ólýsanlegum ein- staklingi. Kraftur, hugrekki, ákveðni, staðfesta, hlýja, húmor, leiðtogi. Þegar þessi orð koma upp í hugann sé ég þig fyrir mér, kreppa hnefann og segja: „Já, drífum bara í þessu.“ Svo hlæ ég og knúsa litlu ömmu mína sem sýndi mér á svo marga vegu hvernig skal lifa lífinu. Að skrifa þessi orð skapar söknuð í hjarta mínu en svo miklu meiri en sökn- uðurinn er fögnuðurinn yfir fal- legu lífi sem var vel lifað. Þú skil- ur eftir stórt skarð í okkar litlu fjölskyldu og það er mikil blessun að hafa þekkt þig og forréttindi að fá að kalla þig ömmu, amma Björg. Ármann Jakob Pálsson. Amma Björg. Sorgmæddur ég var þegar langamma mín fór en samt gat ég sagt bæ við hana samt fór hún í himnaríki að hitta manninn sinn. Hún var blíðleg, fyndin, klár, skemmtileg og besti klórari sem ég vissi. Endir. Elías Logi Benjamínsson. Björg Ragnheiður Árnadóttir ✝ Ósk Brynja Hannesdóttir fæddist í Björk á Djúpavogi 11. apríl 1950. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 22. nóvember 2021. Móðir hennar var Guðný Krist- ófersdóttir, f. 11.11. 1917, d. 14.4. 2012. Faðir hennar var Hannes Jónsson, f. 31.1. 1917, d. 26.10. 1983. Systkini hennar eru Erla Ingibjörg Guð- mundsdóttir, f. 1.9. 1938 og Jón Kristinn Antoníusson, f. 18.8. 1942. 11. apríl 1970 giftist Brynja þeirra börn eru Ólöf Ósk, f. 2004 og Hannes Þór, f. 2008. Árið 2006 flutti í Grænahraun Janine Arens, sem Brynja leit á sem fósturdóttur sína. Brynja ólst upp á Djúpavogi til 16 ára aldurs. Hún fór ung til Hornafjarðar á vertíð þar sem hún kynntist eiginmanni sínum og flutti í Grænahraun á heimili Valþórs þar sem þau síðar byggðu sér hús sem var þeirra heimili alla tíð. Brynja og Valþór voru bænd- ur í Grænahrauni þar sem þau bjuggu félagsbúi með foreldrum Valþórs. Brynja var mikið náttúrubarn og hafði gaman af allri ræktun. Eftir hana liggur líka mikið af fallegu handverki, sér í lagi jóla- skreytingum. Útförin fer fram frá Hafn- arkirkju í dag, 1. desember 2021, kl. 11. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Valþóri Ingólfs- syni, f. 19.12. 1950. Börn þeirra eru: 1) Hansína, f. 1969, gift Bjartmari Ágústssyni, f. 1967, hennar dóttir er Brynja Ósk Ragn- arsdóttir, f. 1990, faðir hennar er Ragnar Logi Björnsson, f. 1966, fyrir átti Bjartmar dótturina Nönnu Þóreyju, f. 1988, hennar maki er Vil- hjálmur Þengill Jónsson, f. 1983, þeirra synir eru Bjartmar Darri og Alexander Örn. 2) Guðni Þór, f. 13.7. 1976, hans kona er Lilja Björg Jónsdóttir, f. 14.12. 1977, Öllum er skammtaður tími hér á jörð og nú er komið að því að kveðja hana elsku Brynju, sem var einn hlekkurinn í fjöl- skyldunni okkar í Grænahrauni, en hún kvaddi okkur svo skyndilega 22. nóv. sl. Brynja kom í Grænahraun með Valþóri bróður mínum vor- ið 1967, þá 17 ára. Hún varð fljótt hluti af stóru fjölskyld- unni okkar. Þau bjuggu í litlu íbúðinni á loftinu í Græna- hrauni fyrstu árin þar sem frumburðurinn þeirra fæddist, en byggðu sér síðar hús í Grænahrauni þar sem þau áttu heimili alla tíð. Fljótlega hófu þau búskap í Grænahrauni í samvinnu við foreldra okkar og bjuggu í félagi við þau þar til þau hættu búskap og Valdimar og hans fjölskylda tóku við rekstrinum af foreldrum okkar. Brynja var fædd og uppalin á Djúpavogi og var ákaflega trygg sinni heimabyggð, hún var mikið náttúrubarn og hafði yndi af allri ræktun eins og um- hverfið í kringum heimilið hennar ber vott um, hún var einstaklega natin við að koma blómum og trjám til upp af fræjum eða smágreinum og ræktaði mest af sínum gróðri þannig. Þá hafði hún mikið yndi af að fylgjast með fuglunum í garðinum sínum og var mikill dýravinur. Eftir Brynju liggur fjölbreytt safn ljósmynda, en hún notaði hvert tækifæri sem gafst til að taka myndir í nátt- úrunni, af landslagi á ferðalög- um þeirra um landið og fjöl- skyldunni við hin ýmsu tækifæri bæði í leik og við störf, eftir hana liggur líka mik- ið af fallegri handavinnu, hún hafði gaman af því að prófa ýmsar nýjungar en sér í lagi útbjó hún mikið af fallegu jóla- skrauti svo ég tali nú ekki um góðu vínberjasultuna sem hún útbjó úr berjum sem hún rækt- aði í sólstofunni sinni. Brynja og Valþór voru afar náin og má segja að þau hafi nær alltaf verið nefnd í sama orðinu. Það sem einkenndi Brynju og samskipti hennar við okkur alla tíð var vinátta, góð- mennska, tryggð og þó framar öllu kærleikur og fyrir það vilj- um við þakka nú, sérstaklega þökkum við hennar góð- mennsku, umhyggju og tryggð við foreldra okkar alla tíð. Hún Brynja hafði hljóðlátt og traust viðmót, en var kát og gat slegið á létta strengi á góðum stund- um. Elsku Brynja, við vildum að tíminn hefði orðið lengri en er- um þakklát fyrir allar góðu minningarnar og þann tíma sem við fengum. Takk fyrir allt. Guð geymi þig, elsku Brynja okkar. Elsku Valþór, Hansína, Bjartmar, Brynja Ósk, Guðni Þór, Lilja Björg, Ólöf Ósk, Hannes Þór og aðrir ástvinir, innilegar samúðarkveðjur, hug- ur okkar er hjá ykkur. Jóna, Bjarni Skarphéðinn og Bjarney, Vagnsstöðum. Ósk Brynja Hannesdóttir Ástkær sonur, faðir, tengdafaðir, afi og unnusti, HJÖRTUR EINARSSON, Hallgerðargötu 14, lést af slysförum miðvikudaginn 10. nóvember. Elskum þig og söknum. Hlekkur fyrir jarðarför auglýstur síðar. Helga Lára Jónsdóttir Guðbjörg Hjartardóttir Elvar Már Sigurgíslason Drengur Elvarsson Rakel Svava Einarsdóttir Einar Ágúst Sveinsson Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KARLSDÓTTIR frá Flatey á Skjálfanda, Laugarnesvegi 87, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu Skjóli sunnudaginn 28. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Sigurður Helgi Jóhannsson Steinar Örn Sigurðsson Karen Ósk Óskarsdóttir Karl Jóhann Sigurðsson Dóra Birna Kristinsdóttir Erna Björg Sigurðardóttir Stefán R. Pálsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGER O. TRAUSTADÓTTIR, Þverbrekku, Borgarbyggð, lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi 18. nóvember. Útförin fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 4. desember klukkan 14. Athöfninni verður streymt á snorrastofa.is. Magnús Þór Þórisson Steinunn Magnúsdóttir Páll Vignir Þorbergsson Þ. Trausti Magnússon Sigurlaug Kjartansdóttir Eyjólfur Magnússon Auður M. Ármannsdóttir Andrea Magnúsdóttir Stefán Teitsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.