Morgunblaðið - 01.12.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 01.12.2021, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heilsa &útivist –– Meira fyrir lesendur Nú er tíminn til að huga að betri heilsu og bættum lífstíl. Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl. PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 23. desember. fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. janúar SÉRBLAÐ 30 ÁRA Inga Lára fæddist í Reykjavík og ólst upp í Breiðholti. Hún gekk í Fellaskóla og fór þaðan í Fjölbraut í Breiðholti og útskrifaðist þaðan árið 2011. Hún fór að vinna eftir stúdents- prófið og örlögin drógu hana til Víkur í Mýrdal. „Þar kynntist ég manninum mín- um sem er frá Hellu og ég flutti þangað í október 2019.“ Inga Lára vinnur hjá Al- mari bakara á Hellu, en er núna í fæð- ingarorlofi. Helstu áhugamál hennar eru fjölskyldan, útivist að ógleymdri hesta- mennskunni. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Ingu Láru er Jón Páll Viðarsson, starfsmaður í Samverki, f. 1985. Þau eiga synina Hinrik Þór, f. 2014, Eið Atla, f. 2016, og Óttar Inga, f. 2021. Áður átti Jón Páll dótturina Ísabellu Margréti, f. 18.11. 2003. Foreldrar Ingu Láru eru Ása Valdís Ásgeirsdóttir bókari, f. 1964, og Ragnar Hinrik Einarsson smiður, f. 1960. Þau búa í Reykjavík. Inga Lára Ragnarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Tækifærin bíða þín í hrönnum ef þú ert tilbúinn til þess að vinna með öðrum. Fyrir vikið gætir þú haft áhrif á aðra, en mundu að þeir verða að átta sig sjálfir. 20. apríl - 20. maí + Naut Nú þarf að hefja viðræður og komast að samkomulagi. Þú hefur náð töluverðum árangri en þú þarft að leggja enn harðar að þér til að ná enn lengra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt á hættu að missa stjórn á þér í dag en mundu að það er ekki þess virði. Skipuleggðu vinnutímann betur og leitaðu aðstoðar með það sem þarf. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ef þú vilt ekki staðna verður þú að vera opinn fyrir þeim möguleikum sem bjóðast til endurmenntunar. Segðu fólki að þú þurfir að fá að hugsa málin í ró og næði. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert ekki nógu harður í samskiptum og þyrftir að taka þig á og vera fastari fyrir. Settu mörk, annars sogast þú bara inn í tóm hinna óleysanlegu vandamála. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er gaman að njóta augnabliks- ins þegar allar aðstæður eru réttar. Varastu hörð viðbrögð en taktu þess í stað á málinu með rósemd og festu. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er eðlilegt að gera áætlanir fram í tímann, þótt enginn geti séð allt fyrir. Gefðu þér tíma til þess að kanna málin og taktu svo til þinna ráða. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Gerðu þér glaðan dag í dag. Einhver sem þú hélst að væri horfinn úr lífi þínu kemur fyrirvaralaust inn í það aftur. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Hamingjan bíður þín á næsta leiti en þú þarft að sýna dirfsku til þess að finna hana. Reyndu að senda fólkinu í kringum þig skýr skilaboð. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert að hugsa um of mörg mál í einu og missir við það alla starfsorku. Sá sem nú fer mest í taugarnar á þér veit hreinlega ekkert af því. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Líttu á björtu hliðarnar; þær gefa lífinu lit. Án þess að þú þurfir að leggja nokkuð á þig færðu alla á þitt band. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sumir þrífast á missætti. Komdu sjónarmiðum þínum á framfæri í sam- tölum, það gengur vel því þú útskýrir mál þitt skilmerkilega. skap.“ Björn hóf störf sem arkitekt hjá stofu Jes Einars Þorsteinssonar og var þar í fimm ár og síðan var hann önnur fimm ár hjá Húsameist- ara ríkisins. „En sólríka sumarið fyrir átti Þuríður eina dóttur, Ragn- heiði Sívertsen. Við áttum fyrri son- inn, Kristleif, 1973 og síðan Þorbjörn 1978 og vorum frumbyggjar í Engja- selinu þar sem við hófum okkar bú- B jörn Kristleifsson fædd- ist 1. desember 1946 á Barónsstíg 10 í Reykja- vík og var yngstur þriggja systkina. „Við fluttum þegar ég var 10 ára inn á Laugalæk 3 sem var nýbygging á vegum Samvinnufélags vegagerðar- manna. Það var svolítið eins og að koma út í sveit, en á þessum árum var mikil þensla og uppbygging í Reykjavík og krakkar í hverju horni og úti í leikjum.“ Eftir grunnskólann gekk Björn í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist 1966. Hann var virkur í félagsmálastörfum í skólanum og ekki síst í íþróttum. „Mitt líf til 20 ára aldurs ein- kenndst af því að faðir minn var vegaverkstjóri og móðir mín ráðs- kona hans við vegavinnu vestur á fjörðum í 20 sumur. Minn uppvöxtur markaðist af þessum 20 sumrum í vegavinnunni, þar sem ég var 4 mán- uði á hverju ári með foreldrum mín- um og fór áður en skólanum lauk og kom ekki heim fyrr en skólinn var hafinn. Því fóru fótboltaæfingar að mestu framhjá mér þar til ég stóð í marki íslensku stúdentanna í Berl- ín.“ Eftir stúdentsprófið starfaði Björn í eitt ár sem leiktjaldahönn- uður hjá Sjónvarpinu. Þegar því var lokið fór hann út til Þýskalands 1967 og lærði arkitektúr við Tækniháskól- ann í Vestur-Berlín og útskrifaðist árið 1972. „Berlínarárin voru ein- staklega fjölbreytt og skemmtileg. Það var mikil uppbygging í Berlín eftir stríðið, en þetta voru róstusöm ár, sérstaklega „heita“ sumarið 1968 þegar allt logaði í mótmælum, sem setti óneitanlega svip á námið. Einn- ig var sérstakt að búa við andrúms- loft Berlínarmúrsins.“ Íslending- arnir í Berlín héldu mjög vel hópinn og gerðu margt skemmtilegt saman, eins og að taka upp tvær kvikmynd- ir. Það var verið að halda upp á það um daginn að hálftíma kvikmyndin Skugga-Sveinn eftir leikriti Matt- híasar Jochumson var frumsýnd í Berlín. „Ég lauk náminu 1972 og þá var ég trúlofaður Þuríði Backman og við gengum í hjónaband 6. janúar 1973. Við það stækkaði fjölskyldan, því 1983 fluttum við austur á Hérað og ég stofnaði mína eigin stofu, Ark- Aust, sem ég rak í 25 ár. Það var yndislegt að búa á Egilsstöðum. Ég hafði nóg að gera við fjölbreytt verk- efni og tel mig farsælan í starfi. Ég teiknaði kirkjubyggingar, íbúðarhús af öllum gerðum auk fjölbreyttra verkefna sem þörfnuðust úrlausn- ar.“ Fjölskyldan kunni vel við sig fyrir austan og Björn varð stórtækur í æskulýðsmálum og íþróttum á svæð- inu og varð formaður Íþróttafélags- ins Hattar. „Ég hef gaman af líflegu félagsstarfi og fór fljótlega inn í æskulýðs- og unglingastarfið hjá Hetti á Egilsstöðum, einkum í kring- um körfuboltann og fylgdist þar með yngri syni mínum.“ Höttur aflaði m.a. tekna með sölu og útburði jóla- korta sem Björn hannaði og mynd- skreytti. „Þá var nú fjörugt á teikni- stofunni. Auk þess var ég Gáttaþefur í 20 ár, og er það kannski enn,“ bætir hann við kíminn. Ekki er þá allt upp- talið því í nokkur sumur voru settar upp óperur á Eiðum undir stjórn Keith Reed. „Það var mikil bjartsýni að setja upp fullbúnar sýningar í íþróttahúsi, en það gekk allt eftir með mikilli vinnu og útsjónarsemi allra þeirra sem að komu. Það voru ekki mikil umsvif á arkitektastofunni þessi sumur.“ Sonur Björns, Þor- björn, var í söngnámi og hann söng titilhlutverk í fjórum óperum á Eið- um. Síðan var Björn frumkvöðull í stofnun brúðuleikhúss og Myndlist- arfélags Fljótsdalshéraðs. Árið 1999 var Þuríður kosin á þing fyrir Vinstri græna og var þar í 14 ár og setti það svolítinn svip á heim- ilislífið þar sem hún var mikið fjar- verandi fyrir sunnan. Þá voru börnin farin að heiman, nema sá yngsti. „Undir það síðasta voru krakkarnir farnir að heiman og hundurinn dauð- ur og þá fórum við að hugsa okkur til hreyfings þegar ég var einn eftir í kotinu.“ Árið 2007 lokaði Björn teiknistofunni ArkAust á Egils- stöðum og vann frá þeim tíma hjá byggingarfulltrúa Reykjavíkur- borgar næstu 10 árin fram á lögboð- inn lífeyrisaldur. Þau hjónin fluttu þó ekki alfarin frá Egilsstöðum fyrr en 2013 þegar þau fluttu í Kópavog- Björn Kristleifsson arkitekt – 75 ára Listrænn félagsmálamaður Félagsmálin Björn var formaður Íþróttafélagsins Hattar um árabil. Hjónin Nýleg mynd af Birni og Þuríði í göngutúr í Kaupmannahöfn Til hamingju með daginn Suðurnes Valur Ingi Pálsson fæddist 1. desember 2020 kl. 19:55 á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja og fagnar því eins árs afmælinu í dag. Þyngd Vals Inga var 4.590 g og lengd 54 cm. Foreldrar hans eru Margrét Birna Valdimarsdóttir og Páll Axel Vilbergs- son. Systkini Vals Inga eru Gísli Matt- hías, Ásdís Vala og Páll Valdimar. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.