Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
„NÚ ER KÓLESTERÓLIÐ HJÁ
MÉR Í FÍNASTA LAGI, ÞÖKK SÉ
HUNGURVERKFALLINU.“
„VIÐ EIGUM 72 MYNDIR ÚR BRÚÐKAUPINU
OKKAR OG HANN ER EKKI Á EINNI
EINUSTU ÞEIRRA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... fyrir hugrakka!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HANN GLEYMDI ÞVÍ
HVAÐ HANNÆTLAÐI
AÐ SEGJA
VOFF!
TIL HVAÐA RÁÐA EIGUM VIÐ AÐ
GRÍPA ÞEGAR VIÐ ERUMORÐNIR
OF GAMLIROG LASKAÐIR EFTIR
ORUSTUR TIL AÐ RÆNA KASTALA?
ÉG HEF HEYRT AÐ ÞAÐ
MEGI FINNA DÝRGRIPI Á
ÖSKUHAUGUNUM!
inn. „Hér unum við okkur vel, enda
er hún Þuríður mín dugleg við að
finna mér verkefni og það er virki-
lega gott að búa í Kópavoginum.“
Björn er mjög listrænn eins og
ferill hans sýnir. „Ég teikna og mála
og er mikil félagsvera og hef gaman
af æskulýðsstarfi og íþróttum. Við
höfum líka haft mjög gaman af því að
ferðast innanlands alveg frá því vor-
um ung og spræk og áttum alltaf
jeppa sem voru mikið notaðir.“
Fjölskylda
Eiginkona Björns er Þuríður
Backman, hjúkrunarfræðingur og
fv. þingmaður VG, f. 8.1. 1948. For-
eldrar hennar voru hjónin Ernst Fri-
dolf Backman, f. 21.10. 1920, d. 22.2.
2018 og Ragnheiður Jónsdóttir, f.
10.4. 1928, d. 29.7. 2018. Þuríður og
Björn eiga synina 1) Kristleif, mynd-
listamann í Reykjavík, f. 12.11. 1973
og hann á dótturina Ronju Þuríði, f.
12.2. 2002; og 2) Þorbjörn, sviðslista-
mann í Þýskalandi, f. 28.6. 1978 sem
er í sambúð með Júlíu Max. Áður átti
Þuríður dótturina Ragnheiði Sívert-
sen, íþrótta- og leikskólakennara, f.
28.3. 1966. Ragnheiður er gift Hilm-
ari Sigurðssyni vélfræðingi, f. 7.2.
1965, og eiga þau dæturnar Tinnu
Björk, f. 23.3. 1992 og Hildi Sif, f.
26.11. 1996. Tinna Björk er í sambúð
með Vernharði Ríkharðssyni og eiga
þau soninn Frosta. Systkini Björns
eru María Elísabet, f. 13.4. 1939 og
Jens Sigurður, f. 18.11. 1940.
Foreldrar Björns voru hjónin
Kristleifur Jónsson verkstjóri, f.
18.11. 1898, d. 29.1. 1978 og Sigríður
Þóra Jensdóttir húsfreyja, f. 27.8.
1910, d. 11.7. 1995. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Björn Kristleifsson
Margrét Guðmundsdóttir
vinnukona í Litlutungu, Árbæjarsókn, Rang. og síðar
húsfreyja á Bjarnastöðum, Grímsneshr., Árn.
Ólafur Jónsson
bóndi í Litlutungu,
Árbæjarsókn, Rang.
Margrét Ólafsdóttir
húsfreyja á Túni, Stokkseyrarsókn, Árn.
Jens Sigurður Sigurðsson
vegavinnumaður á Túni, Stokkseyrarsókn, Árn.
Sigríður Þóra Jensdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Margrét Eiríksdóttir
var í Tungu, Úlfljótsstaðasókn,
Árn. og síðar vinnukona á
Litlu-Háeyri, Árn.
Sigurður Ásmundsson
vinnumaður á Vaðnesi í Grímsnesi
og síðar sjómaður í Hafnarfirði
Þórunn Ólafsdóttir
húsfreyja á Höfða í Þverárhlíð og víðar
Jón Helgason
bóndi í Höfða,
Norðurtungusókn,Mýr.
María Elísabet Jónsdóttir
húsfreyja í Höfða, Norðurtungusókn, Mýr.
Jón Guðmundsson
bóndi í Höfða í Þverárhlíð, Norðurtungusókn,Mýr.
Helga Brandsdóttir
húsfreyja á Lundi í
Þverárhlíð og víðar
Guðmundur Björnsson
bóndi á Lundi í Þverárhlíð og víðar
Ætt Björns Kristleifssonar
Kristleifur Jónsson
verkstjóri í Reykjavík
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
yrkir í Boðnarmjöð:
Þegar afturförin fín
fer að baga andann
Ætla ég að eiga vín
eða brugga landann.
Hvern mæli aldur mælist á
er misjafnt, eins og gengur.
Menn eru gamlir, ef þeir sjá
ekkert fallegt lengur.
Allir vita hvað ellin er þung
og aldurinn hroðaleg brekka.
Ég lofaði að vera alltaf ung
yrkja, éta og drekka.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar:
„Síðastliðinn föstudag jusu þeir
Óttar Guðmundsson og Einar Kára-
son Sturlungufróðleik sínum yfir
okkur ellihrum gamalmennin. Ég
var svo heppinn að vera þar við-
staddur og skemmti mér kon-
unglega enda mennirnir báðir stór-
snjallir“:
Hér fræðimenn ferskir og snarir
á fróðleikinn lítt eru sparir
en herinn svo grár
og grátlega smár
gapandi hlustar og starir.
Víst ræða þeir Óttar og Einar
um alls konar vísinda greinar
en hin tíræða sveit
tæplega veit
hvað tvístirnið heimsfræga meinar.
Svo ákaft þeir bættu í brímann,
svo brennheit var gleðskaparvíman
að þar hlegið var dátt
þó heyrði ég fátt
enda hraut ég víst mestallan tímann.
Út af stjórnarmyndun yrkir
Magnús Halldórsson og kallar
„Hrókeringar“:
Guðlaugur Þór mun af gætni í skurðina
moka
og glaður út virkjunar hindranir stroka.
En Guðmundur Ingi,
mun ganga i hringi.
Með handónýtt hálendisfrumvarp í
poka.
Jón Jens Kristjánsson yrkir:
Þá er stjórnin þessi klár
þau eru einum fleiri
heldur en fyrri fjögur ár
og fallþunginn er meiri.
Vaknað hafa vonir þær
að vel hún reynast kunni
því stefnan enga stjörnu fær
hjá stjórnarandstöðunni.
Gunnar J. Straumland yrkir:
Þótt tali ég töluvert mikið
og taumlaus ég fari yfir strikið
er sífellda malið
það sorglega galið
að ég segi ekki neitt fyrir vikið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn er ort um Sturlungu