Morgunblaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2021
Óvenjulegar tölur í knattspyrnuleik
sáust í Doncaster á Englandi í gær-
kvöld þegar enska kvennalands-
liðið rótburstaði lið Lettlands 20:0 í
undankeppni Evrópumótsins. Ellen
White skráði sig í sögubækurnar en
hún skoraði þrennu og er nú
markahæsti leikmaður enska lands-
liðsins frá upphafi með 48 mörk.
Hún fór fram úr Kelly Smith sem
skoraði 46 mörk á árunum 1995 til
2015. Alessia Russo sem kom inn á
fyrir White á 60. mínútu skoraði
líka þrennu í leiknum en Lauren
Hemp skoraði mest, fjögur mörk.
Skoruðu 20 og
markametið féll
AFP
Met Ellen White er orðin marka-
hæst í sögu enska landsliðsins.
Tékkar, sem eru í hörðum slag við
Íslendinga í undankeppni heims-
meistaramóts kvenna í knatt-
spyrnu, gátu ekki spilað gegn Hvít-
Rússum á heimavelli í gær þar sem
þrír leikmenn Hvít-Rússa greindust
með kórónuveiruna á leikdegi.
Ekki var staðfest í gærkvöld hvort
leiknum yrði frestað eða hann spil-
aður í dag en það átti að ráðast af
skimun leikmanna hvítrússneska
liðsins. Til að leikur fari fram þurfa
þrettán leikmenn liðs, þar af einn
markvörður, að vera leikfærir,
samkvæmt reglum UEFA.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Frestun Tékkar gátu ekki spilað
vegna smita hjá mótherjunum.
Reyndust smit-
aðar á leikdegi
KÝPUR– ÍSLAND 0:4
0:1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 7.
beint úr aukaspyrnu.
0:2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 15.
úr vítaspyrnu.
0:3 Sveindís Jane Jónsdóttir 37. með
föstu skoti hægra megin úr vítateignum.
0:4 Guðrún Arnardóttir 62. með skalla
af markteig eftir að aukaspyrna Karól-
ínu var varin í þverslána.
Ísland: (4-3-3) Mark: Sandra Sigurðar-
dóttir. Vörn: Guðný Árnadóttir, Glódís
Perla Viggósdóttir (Natasha Anasi 65),
Guðrún Arnardóttir, Hallbera Guðný
Gísladóttir. Miðja: Dagný Brynjars-
dóttir (Ída Marín Hermannsdóttir 65),
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (Alex-
andra Jóhannsdóttir 46), Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir. Sókn: Sveindís Jane
Jónsdóttir (Amanda Andradóttir 46),
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Svava
Rós Guðmundsdóttir 81), Agla María
Albertsdóttir.
Gul spjöld: Andria Michael og Kry-
styna Freda.
Dómari: Louise Thompson, Norður-Ír-
landi.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
_ Ída Marín Hermannsdóttir kom inn
á í sínum fyrsta A-landsleik. Foreldrar
hennar, Hermann Hreiðarsson og
Ragna Lóa Stefánsdóttir, léku bæði
með A-landsliðum Íslands.
_ Natasha Anasi kom inn á í sínum
fjórða landsleik og spilaði fyrsta móts-
leikinn fyrir Íslands hönd.
_ Berglind Björg Þorvaldsdóttir skor-
aði sitt níunda mark fyrir A-landsliðið,
Sveindís Jane Jónsdóttir sitt sjötta,
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir sitt
fimmta og Guðrún Arnardóttir sitt
fyrsta.
_ Alexandra Jóhannsdóttir, Karólína
Lea Vilhjálmsdóttir, Berglind Björg
Þorvaldsdóttir og Agla María Alberts-
dóttir léku alla níu landsleiki Íslands á
árinu 2021.
_ Karólína og Sveindís Jane eru
markahæstu leikmenn landsliðsins á
árinu 2021 með fjögur mörk hvor.
_ Dagný Brynjarsdóttir og Glódís
Perla Viggósdóttir enda báðar árið
með 97 landsleiki á bakinu og ættu því
báðar að bætast í 100 leikja hópinn áð-
ur en Ísland fer á EM næsta sumar.
HM 2023
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Öruggur sigur, fjögur mörk og þrjú
stig var niðurstaðan úr síðasta leik
íslenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu á árinu 2021 þegar það vann
Kýpur 4:0 í Larnaka í undankeppni
heimsmeistaramótsins í gærkvöld.
Undankeppnin er þar með hálfnuð
hjá íslenska liðinu sem á eftir báða
leikina gegn Hvít-Rússum og síðan
útileikina gegn stóru keppinaut-
unum, Tékklandi og Hollandi. Sem
stendur hefur Ísland tapað fæstum
stigum í riðlinum, er tveimur stigum
á eftir Hollandi en á leik til góða.
Leikurinn fer sem slíkur ekki í
sögubækurnar. Yfirburðir Íslands
voru miklir eins og vænta mátti og
úrslitin voru í raun ráðin eftir að
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og
Berglind Björg Þorvaldsdóttir komu
liðinu í 2:0 á fyrstu 15 mínútum
leiksins.
En markaflóðið sem búast hefði
mátt við í kjölfarið kom ekki. Á þeim
75 mínútum sem eftir voru gekk ís-
lenska liðinu illa að brjóta niður
þéttan varnarleik kýpversku
kvennanna sem vörðust af miklum
krafti við eigin vítateig og gáfu fá
opin færi á sér. Maria Matthiaou var
líka örugg í marki Kýpur, varði vel
og greip inn í leikinn. Hún hefði þó
líklega átt að verja aukaspyrnu Kar-
ólínu í fyrsta markinu.
Bestu tækifærin til að skora komu
úr föstum leikatriðum, enda skoraði
íslenska liðið tvö marka sinna úr og
eftir aukaspyrnur og eitt úr víta-
spyrnu.
Aðeins Sveindís Jane Jónsdóttir
náði að brjóta upp leikinn og skora
úr opnum leik, með föstu skoti
hægra megin úr vítateignum, sem er
nánast orðið vörumerki hennar með
íslenska landsliðinu.
Guðrún Arnardóttir innsiglaði svo
sigurinn með hörkuskalla eftir að
markvörður Kýpur varði auka-
spyrnu Karólínu í þverslána og út.
Fyrsta landsliðsmark Guðrúnar,
sem líka kom í veg fyrir að Kýpur
skoraði úr sínu eina umtalsverða
færi í leiknum með því að elta uppi
Krystynu Fredu, sem var sloppin
ein innfyrir vörn Íslands.
Úr þessu varð líklega slakasti
leikur íslenska liðsins í keppninni til
þessa en þetta var þá líka rétti stað-
urinn og stundin til þess að ná sér
ekki almennilega á strik.
Hefur notað 24 leikmenn
Þorsteinn Halldórsson hefur verið
ófeiminn við að gera breytingar á
liðinu. Hann sagði eftir sigurinn
gegn Japan á föstudag að það hefði
verið besti leikurinn undir sinni
stjórn og samt gerði hann sex breyt-
ingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn á
Kýpur. Þorsteinn hefur nú notað 24
leikmenn í fyrstu fjórum leikjunum í
undankeppninni og hann er greini-
lega að vinna í því að vera með sem
breiðastan hóp. Alveg eins og í leikj-
unum við Tékkland og Kýpur í októ-
ber gerði hann miklar breytingar á
milli leikjanna. Það er ekki ólíklegt
að þessi aðferðafræði skili sér á
næsta ári þegar liðið fer í lokakeppni
EM og freistar þess að komast
áfram úr þessum riðli í undankeppni
HM. Það er alla vega mjög hörð
keppni um flestar stöðurnar í liðinu.
Þorsteinn ger-
ir út á breidd-
ina í hópnum
Ljósmynd/Knattspyrnusamband Kýpur
Larnaka Dagný Brynjarsdóttir sem lék sinn 97. landsleik fyrir Íslands hönd
reynir að komast fram hjá Mariu Panagiotou í leiknum á Kýpur í gær.
- Slakasti leikur íslenska liðsins þegar
það vann Kýpur 4:0 í Larnaka
Undankeppni HM kvenna
C-RIÐILL:
Tékkland – Hvíta-Rússland ............. frestað
Kýpur – Ísland.......................................... 0:4
Staðan:
Holland 5 3 2 0 15:3 11
Ísland 4 3 0 1 13:2 9
Tékkland 4 1 2 1 11:7 5
Hvíta-Rússland 3 1 1 1 5:4 4
Kýpur 6 0 1 5 2:30 1
A-RIÐILL:
Svíþjóð – Slóvakía .................................... 3:0
Írland – Georgía ..................................... 11:0
_ Svíþjóð 15, Írland 7, Finnland 6, Slóvakía
4, Georgía 0.
B-RIÐILL:
Ungverjaland – Úkraína.......................... 4:2
Spánn – Skotland...................................... 8:0
_ Spánn 15, Skotland 10, Ungverjaland 6,
Úkraína 4, Færeyjar 0.
D-RIÐILL:
England – Lettland................................ 20:0
Lúxemborg – Austurríki ......................... 0:8
_ England 18, Norður-Írland 13, Austur-
ríki 13, Lúxemborg 3, Norður-Makedónía
3, Lettland 0.
E-RIÐILL:
Bosnía – Malta .......................................... 1:0
Aserbaídsjan – Svartfjallaland ............... 1:0
Danmörk – Rússland ............................... 3:1
_ Danmörk 18, Rússland 15, Svartfjalla-
land 9, Bosnía 4, Malta 4, Aserbaídsjan 3.
F-RIÐILL:
Armenía – Noregur ............................... (0:9)
_ Hætt vegna þoku eftir 70 mínútur, leikn-
um verður lokið í dag.
Kósóvó – Albanía ...................................... 1:3
Belgía – Pólland........................................ 4:0
_ Noregur 13, Belgía 13, Pólland 11, Alb-
anía 7, Kósóvó 4, Armenía 0.
G-RIÐILL:
Króatía – Moldóva.................................... 4:0
Rúmenía – Ítalía ....................................... 0:5
Litháen – Sviss ......................................... 0:7
_ Sviss 18, Ítalía 15, Rúmenía 9, Króatía 4,
Litháen 1, Moldóva 0.
H-RIÐILL:
Búlgaría – Serbía...................................... 1:4
Tyrkland – Ísrael...................................... 3:2
Portúgal – Þýskaland............................... 1:3
_ Þýskaland 18, Portúgal 13, Serbía 9,
Tyrkland 7, Búlgaría 0, Ísrael 0.
I-RIÐILL:
Slóvenía – Grikkland................................ 0:0
Frakkland – Wales................................... 2:0
_ Frakkland 18, Wales 13, Slóvenía 11,
Grikkland 7, Kasakstan 0, Eistland 0.
Vináttulandsleikir kvenna
Ástralía – Bandaríkin............................... 1:1
Suður-Kórea – Nýja-Sjáland .................. 0:2
England
Newcastle – Norwich ............................... 1:1
Leeds – Crystal Palace ............................ 1:0
Staða neðstu liða:
Everton 13 4 3 6 16:20 15
Leeds 14 3 6 5 13:20 15
Southampton 13 3 5 5 11:18 14
Watford 13 4 1 8 18:24 13
Norwich City 14 2 4 8 8:28 10
Burnley 12 1 6 5 14:20 9
Newcastle 14 0 7 7 16:30 7
Ítalía
Atalanta – Venezia .................................. 4:0
- Bjarki Steinn Bjarkason var varamaður
hjá Venezia en Arnór Sigurðsson var ekki í
hópnum.
B-deild:
Pisa – Perugia.......................................... 1:1
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa.
SPAL – Lecce........................................... 1:3
- Mikael Egill Ellertsson hjá SPAL og
þeir Brynjar Ingi Bjarnason og Þórir Jó-
hann Helgason hjá Lecce voru varamenn
og komu ekki við sögu.
Tyrkland
Bikarkeppnin, 4. umferð:
Adana Demirspor – S.Belediyespor...... 5:0
- Birkir Bjarnason skoraði tvö marka Ad-
ana Demirspor og lék í 63 mínútur.
4.$--3795.$
Evrópudeild karla
B-RIÐILL:
GOG – Nantes ...................................... 29:29
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 3 skot
(12%) í marki GOG.
Lemgo – Medvedi ................................ 30:27
- Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir
Lemgo.
_ Benfica 8, Lemgo 8, GOG 7, Nantes 7,
Medvedi 0, Cocks 0.
C-RIÐILL:
Magdeburg – La Rioja ........................ 33:31
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson var ekki með.
Sävehof – Aix ....................................... 33:31
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði 7
mörk fyrir Aix.
_ Nexe 8, Magdeburg 7, Sävehof 6, Go-
renje 3, La Rioja 3, Aix 1.
D-RIÐILL:
Kadetten – AEK Aþena ...................... 30:26
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
_ Nimes 7, Sporting 7, Pelister 6, AEK 4,
Kadetten 4, Tatabánya 2.
%$.62)0-#
Leeds lagaði verulega stöðu sína í
botnbaráttu ensku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu í gærkvöld
þegar liðið knúði fram sigur gegn
Crystal Palace, 1:0, með marki frá
Raphinha úr vítaspyrnu í uppbót-
artíma á Elland Road.
Leeds fór þar með upp fyrir
Southampton og Watford og er með
15 stig í fimmtánda sæti deild-
arinnar, fimm stigum fyrir ofan
fallsæti deildarinnar. Palace er í
tólfta sæti með 16 stig.
Newcastle er enn án sigurs á
botninum og náði ekki að leggja
Norwich að velli í uppgjöri neðstu
liðanna á St. James’ Park.
Leikur liðanna endaði 1:1 eftir
mikla baráttu en Newcastle missti
miðvörðinn Ciaran Clark af velli
með rautt spjald strax á 9. mínútu.
Þrátt fyrir það komst Newcastle
yfir á 61. mínútu þegar Clive Wil-
son skoraði úr vítaspyrnu, 1:0. Nor-
wich náði loks að nýta sér liðsmun-
inn á 79. mínútu þegar finnski
framherjinn Teemu Pukki jafnaði
með glæsilegu skoti, 1:1.
AFP
Rautt Ciaran Clark miðvörður Newcastle rekinn af velli eftir aðeins níu
mínútna leik gegn Norwich í úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Sigurmark Raphinha
í uppbótartímanum