Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 4

Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 4
Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Íbúar á Patreksfirði hafa verið hvattir til þess að taka það rólega þessa vik- una eftir að hópsmit kom upp í sveit- arfélaginu í síð- ustu viku. Þetta segir Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vest- urbyggðar, í sam- tali við Morgun- blaðið. „Staðan er þokkaleg núna en við megum samt ekki við miklu. Þannig að við er- um að hvetja fólk til þess að taka það rólega út vikuna.“ Þrettán greindust smitaðir á sunnanverðum Vestfjörðum í síðustu viku, flestir á Patreksfirði. Þá greind- ist starfsmaður á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða smitaður á sunnudaginn var og hefur heilbrigðisþjónusta stofnunarinnar verið skert vegna þessa, að sögn Rebekku. „Stofnunin er á óvissustigi út mið- vikudaginn og þangað til er þjónustan í lágmarki. Á heimasíðu stofnunarinn- ar er útlistað hvaða takmarkanir verða á þjónustunni þangað til.“ Þrátt fyrir fjölda smita meðal bæði barna og fullorðinna eru skólarnir áfram opnir, segir Rebekka innt eftir því. „Þetta hefur óneitanlega áhrif í svona litlu samfélagi svo við erum enn á varðbergi gagnvart þessu.“ „Hefur óneitanlega áhrif á svona lítið samfélag“ - Heilbrigðisþjónusta á Vestfjörðum skert vegna hópsmits Morgunblaðið/Sigurður Bogi Patreksfjörður Töluverður fjöldi Covid-smita hefur greinst á Patreksfirði. Rebekka Hilmarsdóttir 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Allt að 500 manns á dag mæta í sýna- tökur sem Heilbrigðisstofnun Suður- lands á Selfossi heldur úti vegna Co- vid-19. Sýni eru tekin í bílakjallara verslunarhúss Krónunnar í mið- bænum, þangað sem má aka inn og beint í sýnatökuna svo fólk þarf aldrei að stíga út úr bíln- um. Oft eru langar bílaraðir nærri sýnatökustaðnum sem er við bakka Ölfusár. „Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel og staðsetningin er góð,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU. Það er milli kl. 9 og 12 á morgnana sem sýnatökurnar fara fram, en þeim er sinnt af starfsmönnum Securitas en undir eftirliti hjúkrunarfræðinga HSU. „Þetta verkefni hefur vissulega verið tímafrekt og tekið krafta frá öðru því sem sinna þarf á heilbrigðis- stofnuninni. Við fengum því liðsinni Securitas,“ segir Díana. Á Selfossi getur fólk farið í hrað- próf og útkoma þeirra liggur fyrir innan klukkustundar. Einnig er hægt fara í PCR-próf sem eru greind á rannsóknarstofu í Reykjavík og líður þá stundum um hálfur sólarhringur þar til neikvætt eða jákvætt svar ligg- ur fyrir. HSU býður einnig upp á sýnatökur á starfsstöðvum í Vest- mannaeyjum og á Höfn í Hornafirði. „Við bjóðum upp á sýnatökur á Sel- fossi frá mánudegi til laugardags. Framan af viku koma gjarnan til okk- ar 250-300 manns á dag, en fleiri þeg- ar helgin nálgast. Þá tengist slíkt gjarnan samkomum sem standa fyrir dyrum,“ segir Díana. Smitum fækkar Smitum af Covid-19 á Suðurlandi hefur fækkað síðustu daga. Í gær voru skráð um 70 smit á öllu Suðurlandi, þar af um 20 á Árborgarsvæðinu. Starfsfólk HSU veitir sjúklingum að- stoð og ráðgjöf en alvarleg veikindi sem kalla á innlögn á sjúkrahús eru oftast meðhöndluð á Landspítalanum. Langar biðraðir við bílakjallarann - Sýnatökur á Selfossi - Góð staðsetning - 500 manns á dag - Covid-smitum á Suðurlandi fækkar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílalest Ekið er eftir bakka Ölfusár inn í kjallara Krónuhússins þar sem sýnatökur vegna kórónuveirunnar eru. Díana Óskarsdóttir Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '* -�-"% ,�rKu!, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Kíktu í heimsókn og prófaðu! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Vinsælu Hvíldarsófarnir væntanlegir aftur í byrjun desember Sjá nánar á patti.is Tryggðu þér eintak 2 sæta sófi 3 sæta sófi Hægindastóll Vandaðir sófar með rafstillanlegum sætum. SX 80532 101 kórónuveirusmit greindist inn- anlands á sunnudaginn síðastliðinn. Þar af voru 39 í sóttkví við greiningu. Þá greindust 9 smit á landamær- unum. 1.366 einstaklingar voru þá í ein- angrun vegna veirunnar og 1.882 í sóttkví. 24 einstaklingar lágu inni á Land- spítalanum vegna veirunnar í gær og var meðalaldur þeirra 65 ár. Fimm voru á gjörgæslu, þar af fjórir í önd- unarvél. Tveir þeirra sem voru á gjörgæslu voru óbólusettir. Þá voru 1.372 sjúklingar á Covid- göngudeild spítalans, þar af 407 börn, að því er greint var frá í til- kynningu Landspítalans. Frá upphafi fjórðu bylgju farald- ursins hafa alls 215 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala. Minnisblað Þórólfs vegna reglu- gerðarinnar sem rennur út núna á miðvikudag er komið á borð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og mun ríkisstjórnin fjalla um það á fundi sínum í dag. unnurfreyja@mbl.is. 175 150 125 100 75 50 25 0 Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí 1.366 erumeð virkt smit og í einangrun1.882 einstaklingar eru í sóttkví 24 einstaklingar eruásjúkrahúsi, þaraffimmágjörgæslu 299 ný innanlandssmit greindust sl. helgi (fös. 3. til sun. 5. desember) júlí ágúst september október nóvember Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra á LSH með Covid-19 smit 154 32 24 117 H ei m ild :c ov id .is des. 110 101 kórónuveirusmit greindist innanlands Einstaklingur sem síðar reyndist smitaður af Covid-19 þreytti staðar- próf í Háskóla Íslands ásamt fimm öðrum nemendum á fimmtudaginn var. Þetta kemur fram í tölvupósti sem sendur var þeim nemendum sem þreyttu umrætt próf þennan dag. „Þið eruð samtals sex sem voruð í sömu stofu og sýktur einstaklingur fimmtudaginn 2. desember,“ segir í tölvupóstinum sem nemendur fengu í gær. Þar segir einnig að nemendurnir þurfi að hafa afar lágan þröskuld fyr- ir veikindum og að þeir eigi að fara í sýnatöku við minnstu einkenni. Þónokkrir nemendur hafa gagn- rýnt ákvörðun skólans um að halda staðarpróf í miðjum heimsfaraldri. Þrátt fyrir tilvikið hyggst skólinn ekki endurskoða fyrirkomulag þeirra prófa sem eftir eru, að sögn Hreins Pálssonar, prófstjóra hjá prófaskrif- stofu kennslusviðs HÍ. Smitaður í staðarprófi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.