Morgunblaðið - 07.12.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samtakamáttur sást í verki á laugar-
dag þegar flutt var inn í nýjar íbúðir
í fjölbýlishúsi við Austurhóla á Sel-
fossi. Öllum kaupendum voru af-
hentir lyklarnir á sama degi og þá
strax tók fólk til óspilltra málanna
við að bera kassa, borð, stóla, rúm og
annað slíkt. Fjölskyldur hjálpuðust
að og stemningin var góð. Alls eru 35
íbúðir í húsinu nýja, sem er sex hæð-
ir og hæsta bygging á Selfossi.
Verktakafyrirtækið Pálmatré
reisti húsið, en á síðustu árum hefur
á þess vegum verið unnið að mörg-
um verkefnum á Selfossi. „Áhuginn
á íbúðum í þessu húsi var mikill. Ég
trúi því líka að þetta sé góður staður
til að búa á,“ segir Pálmi Pálsson
framkvæmdastjóri.
Framkvæmdir við fjölbýlishúsið
nýja, sem er austast og syðst í nýju
hverfunum á Selfossi, hófust síðla
sumars í fyrra. Í framgangi verksins
gekk allt greiðlega fyrir sig og sam-
kvæmt áætlun. Pálmatré var með
allan sinn mannskap, um 25 manns,
á svæðinu auk þess sem undir-
verktakar, píparar, rafvirkjar, mál-
arar og fleiri slíkir bættust við.
Íbúðir í Austurhólahúsinu eru
2-3ja herbergja, 69-84 fermetrar að
stærð, og voru seldar á 29-39 millj.
kr. Fermetraverð er lægra en á höf-
uðborgarsvæðinu, enda þótt heldur
dragi saman í verði þar og fyrir aust-
an fjall. Eftirspurnin eftir litlum
íbúðum er mikil, að sögn Pálma, sem
er kominn áleiðis með byggingu ann-
ars fjölbýlishúss, sem einnig er við
Austurhóla. Íbúðir í því fara í sölu á
nýju ári og húsið verður frágengið
eftir tæpt ár, héðan í frá.
Festa fyrstu eign
„Fasteignamarkaður á Selfossi er
líflegur. Við hefðum sjálfsagt getað
selt allt í þessari blokk tvisvar,“ seg-
ir Snorri Sigurfinnsson, lögg. fast-
eignasali hjá Bæ. Hann sá um sölu
íbúða í Austurhólum, sem í tals-
verðum mæli voru keyptar af ungu
fólki sem var að kaupa sína fyrstu
eign. Margt af því hefur rætur á
svæðinu, en að öðru leyti er þar mik-
ið aðstreymi fólks, til dæmis af höf-
uðborgarsvæðinu.
Íbúðir í Austurhólum seldust fljótt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölbýlishús Blokkin nýja er sex hæðir og íbúðirnar eru alls 35 talsins. Fjær
á myndinni er annað fjölbýlishús í sama stíl sem Pálmatré byggir einnig.
Athafnamenn Snorri Sigurfinnsson fasteignasali, til vinstri, og Pálmi Páls-
son verktaki. Ánægðir með framkvæmdina og hvernig til tókst í málinu.
- 35 íbúðir í nýju fjölbýlishúsi á Selfossi - Áhugi og mikil eftirspurn - Fólkið var samtaka við flutn-
inga - Litlar og gott verð - Hægt hefði verið að selja allar íbúðirnar tvisvar, segir fasteignasalinn
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Á seinustu fimm árum hafa lands-
menn fengið 256 milljarða króna í arf
samkvæmt skattframtölum einstak-
linga um framtaldar tekjur á þessum
árum. Fjárhæð framtalins arfs hefur
hækkað nærfellt frá ári til árs sam-
kvæmt yfirliti sem fékkst hjá Skatt-
inum en líkja má aukningunni á sein-
asta ári við sprengingu á milli ára því
þá töldu einstaklingar fram 92.381
milljón króna í arf, sem er ríflega tvö-
falt hærri fjárhæð en á árinu á undan.
Framteljendum sem fengu arf
fjölgaði á seinasta ári eða úr 5.250 á
árinu 2019 í 6.916 í fyrra og þeir sem
létu eftir sig arf voru einnig fleiri á
seinasta ári en á árunum á undan eða
1.943 en á árinu 2019 voru arflátar
1.560 talsins, samkvæmt upplýsing-
um sem Skatturinn lét Morgun-
blaðinu í té. Þær byggjast á skatt-
framtölum einstaklinga um arf og
fjölda erfingja á síðasta ári.
Ef litið er yfir lengra tímabil má
sjá að um 48 þúsund einstaklingar
hafa talið fram fenginn arf á seinustu
tíu árum. Ekki liggja fyrir upplýs-
ingar um hversu stór hluti arfsins
sem greiddur var á seinasta ári var
fyrirframgreiddur arfur. Greiða ber
10% erfðafjárskatt af öllum fjár-
hagslegum verðmætum og eignum
sem ganga í arf. Það eru sýslumenn
sem sjá um að leggja erfðafjárskatt á
dánarbú. Lagabreyting sem tók gildi
1. janúar sl. felur í sér að ekki er
greiddur erfðafjárskattur af fyrstu
1.500 þúsund krónunum af dánarbú-
um sem stofnuð voru fyrir seinustu
áramót en skattleysismörkin voru
hækkuð í fimm milljónir í upphafi
yfirstandandi árs.
8,8 milljarðar í erfðafjárskatt
Alls nam erfðafjárskattur sem
greiddur er til ríkisins á seinasta ári
8.818 milljónum króna vegna arfs
sem framteljendur fengu á árinu
2020, sem er ríflega tvöfalt hærri
upphæð en á árinu á undan. Á sein-
ustu fimm árum hafa tekjur ríkisins
af erfðafjárskatti verið rúmlega 24
milljarðar króna.
Álagður erfðafjárskattur einstaklinga tekjuárin 2005-2020
Erfðafjárskattur Fjöldi arfláta
Heimild: RSK
'05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20
Tekjuár
Fjöldi
framtala
Fjöldi
arfláta
Arfur,
m.kr.
Erfðafjár-
skattur,
m.kr.
2005 3.931 1.320 15.265 692
2006 3.992 1.298 15.530 737
2007 4.462 1.436 24.948 1.196
2008 4.094 1.274 19.114 911
2009 4.941 1.532 27.705 1.336
2010 6.611 2.114 42.658 2.085
2011 3.551 1.006 11.491 994
2012 3.919 1.140 16.415 1.523
2013 3.901 1.219 20.747 1.947
2014 4.168 1.298 21.709 2.026
2015 4.400 1.339 26.323 2.485
2016 4.878 1.532 32.474 3.093
2017 5.379 1.632 38.479 3.692
2018 5.573 1.605 47.144 4.539
2019 5.250 1.560 45.355 4.342
2020 6.916 1.943 92.381 8.818
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
2.500
2.250
2.000
1.750
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
Erfðafjárskattur,milljarðar kr. Fjöldi arfláta Alls var álagður erfðafjárskattur
8.818milljónir kr. fyrir tekjuárið 2020 sem er
103% aukning frá árinu á undan
8.818
milljónir kr.
Móttekinn arfur tvö-
faldaðist á milli ára
- 256 milljarðar í arf á fimm árum
92 milljarða heildarfjárhæð arfs
sem framteljendur töldu fram í
fyrra er svipuð og allt framlag
ríkisins til rekstrar Landspít-
alans í 14 mánuði. Arfurinn jafn-
gildir fasteignamati þriðjungs
allra sumarbústaða og frí-
stundabyggðar í landinu. Upp-
hæðin dygði fyrir tveggja vikna
fríi 140 þúsund fjölskyldna með
tvö börn á Spáni miðað við með-
alverð á tilboði ferðaskrifstofu.
Fjárhæðir
vega þungt
FRAMTALINN ARFUR
Landspítalinn Rekstur hans kostar
tæpa 80 milljarða á þessu ári.
„Við höfum ekki náð sömu álags-
toppum og í fyrra enda er flæðið jafn-
ara í ár, meðal annars vegna skilvirk-
ari flutningaleiða,“ segir Þórhildur
Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslands-
pósts. Miklar annir hafa verið hjá
dreifingarfyrirtækjum síðustu vikur
eftir stóra verslunardaga á borð við
svartan föstudag, dag einhleypra og
netmánudaginn. Kjósa sífellt fleiri að
kaupa inn á netinu, og hefur eftir-
spurn eftir vörusendingum heim til
fólks aukist mjög.
Þórhildur segir að miklar sveiflur
séu í sendingum með pakka innan-
lands, þar sem í fyrra hafi verið 40%
meira af innlendum pökkum en árið
2019. Þá hafi á vertíðinni október-
desember 2020 verið 90% meira
magn af innlendum pökkum en á ver-
tíðinni árið 2019. Í ár eru sveiflurnar
jafnari og magnið í heild fyrir árið
um 2% yfir magninu 2020 en vertíðin
október-desember stefnir í -16%
undir árinu 2020, miðað við væntan-
legt magn í desember.
Hún segir jafnframt að sendingar
til útlanda séu svipað margar í ár og í
fyrra. Hvað varðar sendingar frá út-
löndum er flæðið mun jafnara í ár en
Covid-árið 2020 þegar miklar sveiflur
voru vegna tafa á flutningaleiðum til
landsins. „Á vertíðinni október-
desember er magnið um 30% meira
en aðra mánuði ársins að meðaltali,“
segir hún.
Vel gengið þrátt fyrir magn
Hrólfur Andri Tómasson, fram-
kvæmdastjóri Dropp, segir að vel
hafi gengið að koma sendingum til
skila í nóvember þó magnið hafi verið
mikið. „Það er auðvitað rosalegt þeg-
ar allir þessir útsöludagar eru á sama
tíma en við vissum af þessu og höfð-
um undirbúið okkur allt árið.“
Dropp hóf göngu sína fyrir tveim-
ur árum. Síðasta árið hefur fjölgað til
muna þeim fyrirtækjum sem Dropp
dreifir fyrir, eða um 70%. Í ár stóðu
útsöludagarnir í nóvember lengur
hjá mörgum fyrirtækjum en verið
hefur og því dreifðist álagið betur.
Hrólfur segir þó að jólavertíðin verði
áfram stór. „Við búumst við því að
desember verði jafn stór mánuður og
nóvember en álagið verður eitthvað
jafnara.“ hdm@mbl.is
Jafnara flæði í
pakkasendingum
- Útsöludagar valda auknu álagi