Morgunblaðið - 07.12.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.12.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF BARRY KEOGHAN DON LEE WITH KIT HARINGTON WITH SALMA HAYEK AND ANGELINA JOLIE O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T 94% Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney sýnd með Íslensku og Ensku tali Breski huldulistamaðurinn vinsæli Banksy hefur boðist til að safna allt að 10 milljónum punda með sölu verka, um 1,7 milljörðum króna, til að aðstoða við að kaupa fyrrver- andi fangelsisbyggingu í Reading á Englandi og breyta henni í lista- miðstöð. Verktakar ásælast lóðina til að reisa á henni nýbyggingar. Fangelsið er einkum frægt fyrir að þar afplánaði rithöfundurinn Oscar Wilde seinni hluta tveggja ára dóms á árunum 1896-97 fyrir samkynhneigð. Í fangavistinni skrifaði Wilde hið langa bréf De Profundis. Á síðustu árum hafa margir listamenn komið fram í hinu fyrrverandi fangelsi, þar á meðal Ralph Fiennes, Ragnar Kjartans- son, Patti Smith og Colm Tóibín, og aðstoðað við að safna fé fyrir kaup- unum. Flótti Myndverk eftir listamanninn Banksy á vegg hins fyrrverandi fangelsis í Reading. Banksy vill styrkja kaup á fangelsi Bassasöngvarinn Kristinn Sig- mundsson kemur fram á hádegis- tónleikum í safn- aðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ á morg- un, miðvikudag, kl. 12.15 og „syngur uppá- haldslögin sín fyrir gesti“ eins og segir í tilkynn- ingu. Gestir verða að framvísa vott- orði um hraðpróf og bera grímu. Kristinn ætlar að eftirláta öðrum að syngja jólalög þessa dagana en flytur þess í stað lög eftir íslenska og erlenda höfunda. Með honum leikur Matthildur Anna Gísladóttir á píanó. Aðgangur er ókeypis. Kristinn syngur eftirlætislög sín Kristinn Sigmundsson AF VEIÐISKRIFUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nú þegar tekið er að fenna yfir upplifanir veiðimanna á bökkum vatnanna í sumar sem leið, er kominn tími til að und- irbúa ný ævintýri. Á veturna láta ástríðufullir veiðimenn sig dreyma um ferðir að ám og vötnum, ný köst og tökur sem í mörgum tilfellum verða ógleymanlegar. Margir eru teknir að skipuleggja veiði komandi sumars, í skammdeginu byrja sumir líka að hnýta árlegan fluguskammt- inn – og nú er líka kominn tími á sófaveiðina. Sá veiðiskapur getur verið stórskemmtilegur; að halda út í náttúruna með góðum sögumönnum og skynja lífið við veiðar með þeim, án þess að fara út fyrir hússins dyr. Gegnum tíðina hafa mörg forlög gert út á sófaveiðimennsku og skilj- anlega, enda hefur stór hluti þjóð- arinnar gleði af stangveiði. Hinn snjalli fluguhnýtari og margreyndi leiðsögumaður veiðimanna, Sigurður Héðinn, steig inn á þann markað fyr- ir tveimur árum með sína fyrstu bók, Af flugum, löxum og mönnum (2019), og var þar með sýnilega kominn á skrið við skrifin því í fyrra sendi hann frá sér bókina Sá stóri, sá missti og sá landaði (2020) og nú er komin sú þriðja, Veiði, von og vænt- ingar. Rabbað við lesendur Í nýju bókinni heldur Sigurður Héðinn sig við þá uppbyggingu sem hann kynnti strax í þeirri fyrstu – með vísun í hina klassísku Roð- skinnu Stefáns Jónssonar frétta- manns – og segja má að hann rabbi á afslappaðan hátt við lesendur. Sig- urður segir sögur, sýnir flugur, rabbar um ástand og horfur, kennir aðferðir og gefur góð ráð sem eiga að geta nýst veiðimönnum við lax- veiðar – því áherslan er fyrst og fremst á veiði á laxi. Bókinni er skipt í fjóra hluta. Sá fyrsti er „Veiði- tækni“, þar er í mörgum og oft stutt- um köflum, sem studdir eru skýring- armyndum eftir Sól Hilmarsdóttur, fjallað um þætti eins og hvenær sé gott að veiða á gárutúbu, um and- Dásamlegt þetta veiðimannalíf Teikning/Sól Hilmarsdóttir Veiðigarpur Teikning af Sigurði Héðni með höfðingja úr Hnausastreng Vatnsdalsár en hann rifjar í bókinni upp ævintýri þaðan síðan í haust. streymisveiði, hvernig rétt sé að landa laxi og að hverju skuli huga þegar veitt er í miklu vatni. Frá- sögnin er krydduð reynslusögum höfundar, sem getur sýnilega bæði verið þrjóskur og ögrandi, jafnvel við þá sem eru að kaupa af honum þjónustu við leiðsögn. Annar hluti bókarinnar, „Flug- ur“, er sá viðamesti en fjallað er um nær sextíu flugur í bókinni. Birtar eru af þeim stórar myndir og fyrir þá sem hnýta er birt uppskrift, sem fengur er að. Þá eru sagðar sögur um sumar flugnanna, til að mynda um Zeldu sem Kjartan Antonsson hannaði og hina fáséðu Cirillo Yel- low Grub sem sagnameistarinn Björn J. Blöndal minnist nokkrum sinnum á í bókum sínum og kallaði aðra af tveimur eftirlætisflugum sín- um. Líka er sagt frá hinum fræga af- burðahnýtara Megan Boyd sem fæddist fyrir rúmri öld í Skotlandi. Margir innvígðir fluguveiðimenn hafa lesið um Boyd og þekkja til flugna hennar en það er vel til fundið að minna á hana hér. Í þriðja hluta bókarinnar, „Það er dásamlegt þetta veiðimannalíf“ segir höfundurinn nokkrar sögur og veltir fyrir sér kjarna veiðigleðinnar: „Hvað er betra en að vera við bakk- ann og gera það sem manni þykir skemmtilegast? Nákvæmlega EKK- ERT,“ skrifar hann (103). Minnst er á mikilvægi góðra veiðifélaga, glaðst yfir því að konur verði sífellt virkari við veiðina, og svo eru sagðar sögur, bæði persónulegar upplifanir og flökkusögur af veiðislóð, sem er gaman að lesa og hefði þessi kafli vel mátt vera viðameiri og lengri. Bók- inni lýkur svo með „Að hausti“, þar sem Sigurður Héðinn veltir til að mynda fyrir sér framtíð íslenskra laxastofna. Í þessum hluta er líka fjallað um flugur hnýttar á gull- króka, sem Sigurður hefur meiri trú á en sumir aðrir, og þarna er ein bestu veiðisagna bókarinnar, fersk upprifjun á veiðiferð höfundar í Vatnsdalsá í haust sem leið þar sem hann, illa bakveikur, landaði sínum fyrsta laxi sem var yfir 100 cm lang- ur. Og fékk annan 94 cm sama dag. Ekki er furða að Sigurður segi um þá upplifun: „Dásamlegt, þetta veiði- mannalíf. Kynt undir væntingum Veiðibækur eru á sinn hátt sér- stök bókmenntagrein, rétt eins og til dæmis ferðabækur. Í veiðibókum mætast ferðafrásagnir og ævintýri – og stundum ýkjusögur, fræðsla, landafræði og vísindi um lifnaðar- hætti dýra, um gróður og vatna- svæði. Líftími bóka er lengri en til að mynda tímarita og dagblaða og fyrir vikið er mikilvægt að taka heim- ildagildi þeirra alvarlega. Stundum vantar upp á það hjá Sigurði, hvað varðar að sannreyna og staðfesta sitthvað sem haldið er fram. Til dæmis segir um fyrrnefnda flugu Ci- rillio Yellow Grub að Björn J. Blön- dal minnist á hana „í einhverjum bókum sínum“. Ekki tók langan tíma við að fletta upp í bókum Björns til að sjá að hann talar til dæmis um fluguna í meistarsverkinu Hamingjudögum og Að kvöldi dags. Og í umfjöllun um Snældu, hina vin- sælu flugu Gríms Jónssonar, segir: „Eins og ég skil þetta var svarta Snældan fyrst í röðinni.“ Auðvelt er að finna viðtöl við Grím, til að mynda hér í blaðinu árið 2006 (það birtist líka í bókinni Í fyrsta kasti) þar sem hann sagði undirrituðum að „þýska“ Snældan hafi fyrst orðið til. Annars tekst Sigurði Héðni vel það sem eflaust er uppleggið með bókinni, að kynda undir vonum og væntingum annarra veiðimanna, og stytta bið okkar eftir nýju veiði- sumri. » … tekst Sigurði Héðni vel það sem eflaust er uppleggið með bókinni, að kynda undir vonum og væntingum annarra veiðimanna. Ljósmynd/Sigurður Héðinn Fáséð Flugan Cirillo Yellow Grub, hnýtt af Sveinbirni Blöndal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.