Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 18

Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021 ✝ Guðrún Ólafs- dóttir fæddist 12. maí 1967 í Cleveland, Ohio og bjó þar fyrstu þrjú ár ævi sinnar. Hún lést á Landspítala 21. nóvember 2021. Foreldrar Guðrúnar eru Ólaf- ur Friðrik Bjarna- son, f. 27. október 1933, og Hjördís Dürr, f. 22. janúar 1934, d. 8. október 2020. Bræður Guðrúnar eru Hinrik Gústaf Ólafsson, f. 10. október 1963, og Gunnar Bjarni Ólafsson, f. 20. október 1970. Fjölskyldan flutti heim til Ís- lands og átti Guðrún ljúf upp- vaxtarár í Fossvogi og bjó þar lengst af sína ævi. Sumartíma æskuára Guðrúnar dvaldi fjöl- skyldan að stórum hluta á Stokkseyri í faðmi og gleði stór- fjölskyldunnar. Guðrún lauk stúdentsprófi frá MR árið 1987, námi í hjúkrunar- fræði frá HÍ lauk hún árið 1991 og framhaldsnámi í hjúkrun bráðveikra sjúklinga árið 2005. Guðrún vann hjúkr- unarstarf frá út- skrift á nokkrum deildum Landspít- alans, en einnig há- skólasjúkrahúsinu í Lundi, Svíþjóð og Akershus í Noregi. Frá árinu 2007 vann Guðrún hjá fyrirtækinu Heilsuvernd. Guðrún giftist Jóni Stein- grímssyni svæfingalækni og eignuðust þau þrjú börn, Hjör- dísi, f. 31. ágúst 1993, Steingrím Karl, f. 2. október 1997, og Ólaf Stein, f. 2. janúar 2003. Útför Guðrúnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 7. desem- ber 2021, klukkan 13. Vegna sóttvarna þurfa kirkju- gestir að sýna fram á neikvætt Covid-hraðpróf eða PCR-próf sem er ekki eldra en 48 klst. við komu í kirkju. Þótt 33 ára aldursmunur væri á þeim mæðgum, Guðrúnu og mömmu, kvöddu þær með aðeins árs millibili. Hvernig má það vera að kona sem alltaf hefur sett aðra í forgang í sínu lífi fær ekki lengri tíma til að njóta sjálf? Hún sem hefur elskað og gætt fjölskyldu sinnar, annast veika, huggað og hlúð að öllum þeim sem á þurftu að halda – og setti sjálfa sig æv- inlega neðst á forgangslistann. Guðrún systir mín hefur alltaf ver- ið kletturinn í lífi okkar allra í stór- fjölskyldunni. Hvað gerum við nú? Hæglát, traust, úrræðagóð, röggsöm og óendanlega góðhjört- uð. Þannig var hún systir mín og því ekki að furða að við reiddum okkur öll á hana. Það var sárt að horfa á eftir mömmu inn í þoku og algleymi alzheimer-sjúkdómsins en Guðrún tók þeim mun þéttar utan um okkur hin og leiddi okkur eins fallega og hægt var í gegnum þá raun. Heimsótti mömmu dag- lega ef hún gat og hugsaði á sama tíma vel um pabba. Ég hef búið lengi erlendis og er farinn að ryðga í íslenskunni en mig langar að nota heimasmíðaða orðið „stórhjörtuð“ um systur mína því hún var bæði góðhjörtuð og með svo stórt hjarta að þar var pláss fyrir miklu fleiri en hennar nánustu. Guðrún valdi sér nefni- lega hjúkrun sem starfsgrein og annaðist um ævina hundruð, ef ekki þúsundir sjúklinga. Guðrún og eiginmaður hennar, Jón, bjuggu sér heimili á æsku- slóðum okkar systkinanna í Foss- voginum og eignuðust síðar annað heimili í Osló. Þau áttu einnig at- hvarf að Laugum í Þingeyjarsýslu og gamlan bústað í fallegu um- hverfi við Hreðavatn. Enn einn staðurinn sem átti sterk ítök í Guðrúnu var gamla sumarhúsið sem mamma og pabbi áttu á Stokkseyri. Þar undi Guðrún sér alltaf mjög vel, elskaði að hlusta á brimið skella á hvössu hrauninu í einstakri fjörunni þar. Þar nutu sín líka vel börn þeirra Jóns, Hjör- dís, Steingrímur Karl og Ólafur Steinn. Við Marianne og krakkarnir reyndum að hitta Guðrúnu og hópinn hennar sem oftast þegar við vorum á landinu; héldum stundum jólin saman og eltum þau jafnvel uppi ef þau voru úti á landi. Alltaf var vel tekið á móti okkur þegar við renndum í hlað – stund- um með uppáhaldsréttunum mín- um: rjúkandi kjötbollum í brúnni sósu eða vöfflum með rjóma! Guð- rún þekkti bróður sinn svo sann- arlega vel. Hún var góð systir og var stoð pabba og stytta. Það var því mikið áfall þegar hún fékk það nöturlega verkefni að glíma sjálf við krabba- mein. Hún talaði ekki mikið um þessa baráttu en barðist við sinn andstæðing með kjafti og klóm fram á síðustu stundu. Það var ekki í hennar anda að gefast upp. Aldrei. Þetta er svo óbærilega ósann- gjarnt. Fyrst og fremst auðvitað fyrir Jón og börnin sem hún lifði fyrir. En við hin – ættingjar og vinir Guðrúnar – erum líka hnípin og kveðjum hana með miklum söknuði. Fyrst og síðast þó með innilegri þökk fyrir það líf sem hún kaus að lifa, fyrir alúðina og kærleikann sem hún sýndi okkur öllum. Ég trúi því að aðskilnaður- inn sé aðeins um stundarsakir; trúi því að við „… hittumst fyrir hinum megin“ þegar okkar stund rennur upp. Farðu í friði, elsku Guðrún. Þinn bróðir. Gústaf (Gústi). Elsku fallega, klára og skemmtilega vinkona mín. Mikið var ég heppin að við skyldum lenda saman í bekk á þriðja árinu í menntó, þar sem dýrmæt vinátta okkar hófst. Síðan lá leið okkar í hjúkrunarfræði ásamt Þóru bekkjarsystur okkar og þá varð til klanið okkar þriggja. Vinskapur- inn var æ síðan sterkur og þið Þóra urðuð í framhaldinu bestu vinkonur. Af mörgu er að taka. En það sem stendur þó upp úr er gleðin yfir öllum samverustund- unum. Byrjum á ógleymanlegri útskriftarferð til Mexíkó sem varð uppspretta fjölmargra frásagna og minninga sem ég geymi með mér. Eftir heimkomu þaðan lögð- um við land undir fót og unnum sumarlangt á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Sambúð okkar þriggja á Króknum var ævintýri líkust og minningin um hana er umvafin gleði, hlátri og miklum mat. Suður komnar fórum við tvær að vinna á gjörgæslunni á Landspítalanum og það reyndist örlagaríkt; þar hittir þú hann Jón þinn. Í framhaldinu stofnuðum við fjölskyldur og börnin komu eitt af öðru. Það einkenndi þig hvað þú hafðir ótrúlegan hæfileika til að segja frá. Það var sama hvað gerð- ist í hversdagsleikanum, gott eða slæmt, alltaf gastu snúið því í ótrúlega sögu. Og ekki bara voru sögurnar ótrúlegar, þær voru yf- irmáta fyndnar. Ég skildi aldrei hvernig þér tókst að segja svona skemmtilega frá en naut hverrar frásagnar. Sennilega var það vegna þess hversu frásögnin var alltaf afslappandi og eðlileg. Húm- or var þér eðlislægur og af honum hafðir þú umfram aðra. Margar af þessum sögum hafa fylgt okkur lengi og ég mun geyma þær í hjarta mínu og segja áfram þó aldrei muni ég ná að gera það á þinn einstaka hátt. Fleira fékk ég frá þér sem ég mun geyma með mér alla tíð. Nefna má kökuupp- skriftir sem komu frá móður þinni og hafa fylgt mér síðan við kynnt- umst fyrst. Er „Baby Ruth“ þar efst á blaði en hún hefur glatt margan í yfir 30 ár og mun gera áfram. Framvegis verður ekki hrært í þessa köku án þess að ég minnist þín. Manngæska var eitt af því sem þú hafðir á valdi þínu. Það var allt- af svo gott og nærandi að hitta þig og þú hafðir alltaf einlægan áhuga og skoðun á því sem maður var að fást við hverju sinni og svo ótrú- lega úrræðagóð. Þú varst líka svo dugleg, stundum aðeins of dugleg, og það var fátt eitt sem þú gast ekki gert. Að mála íbúð eða flísa- leggja var nú ekkert til að tala um og óþarfi að ræsa út aðstoð. Minningarnar eru óteljandi og margar svo skemmtilegar og mik- ilvægar. Minningar um samveru á skíðum, á hlaupum, í heimsókn hjá ykkur fyrir norðan, á Stokkseyri, í berjamó við Hreðavatn, í göngu- túrum, saumklúbbshittingarnir og ferðirnar okkar skemmtilegu og svo ótal margt fleira. Mér þykir ótrúlega vænt um ferðir okkar ár- ið 2019 þegar við fórum fyrst í gönguskíðaferð til Noregs og um sumarið í hjólaferð til Ítalíu. Allt þetta rifjast nú upp fyrir mér. Þegar þú veiktist kom ekki annað til greina en að halda áfram og berjast. Þú vildir ekki dvelja í hlutverki sjúklingsins. Þú sýndir svo mikla seiglu og tókst á við veikindi þín með ótrúlegu æðru- leysi og innri styrk. Þú vildir alltaf vera til staðar, fyrir alla sem á þig treystu. Elsku Ólafur, Jón, Hjördís, Steini og Óli og fjölskyldan öll, missir ykkar er mikill og hugur minn er hjá ykkur. Vinátta þín skipti mig svo miklu máli og ég er og verð ævinlega ótrúlega þakklát fyrir hana. Dagný Baldvinsdóttir. Það sem þú gafst mér, elsku besta Guðrún mín, í lífinu er ekki lítið. Við deildum lífsins dýrmæt- ustu og hamingjuríkustu stundum og einnig þeim erfiðu og sorglegu. Við kynntumst fyrst í MR og urðum góðar vinkonur í Háskól- anum þegar leið okkar beggja lá í hjúkrunarfræðinám. Háskólaárin okkar voru við- burðarík og skemmtileg. Við fjór- ar vinkonurnar, Anna, Bryndís, þú og ég, bjuggum til fullt af frá- bærum minningum. Með þér var alltaf gaman, enda höfum við djammað saman, farið á böll, bari, í bíó, á rúntinn, í líkams- rækt, jóga, á skauta, skíði og hjól og hestbak, unnið saman úti á landi, ferðast innan- og utanlands, gist á Stokkseyri, Laugafelli, fór- um oftsinnis í Borgarfjörðinn fagra, gistum í húsunum „okkar“ og tókum langa göngutúra um skóga, fjöll og dali svo fátt eitt sé nefnt. Lífið og tækifærin voru á hverju horni. Java-hjúkrunarsyst- ur okkar, aldeilis gæfa að lenda í þeim góða félagsskap. Útskriftar- ferðin til Cancún í Mexíkó og svo ferð okkar norður á Sauðárkrók í framhaldinu, þar sem við vinkon- urnar, þríeykið þú, ég og Dagný, unnum yfir sumartímann, ógleymanlegt. Þú hafðir þetta rólynda yfir- bragð, Guðrún, en undir leyndist mikill húmoristi og sagnasnilling- ur. Þú gast nefnilega sagt sögur og breytt hversdagslegustu at- burðum úr lífinu, jafnvel atburð- um sem voru erfiðir eða óheppi- legir, í bráðfyndnar og stór- skemmtilegar sögur. Þú færðir eilítið í stílinn, settir þær mynd- rænt fram svo hver og einn gat séð fyrir sér aðstæðurnar og fólk kútveltist úr hlátri yfir hlutum sem jafnvel voru alls ekki hlægi- legir en það gerði bara allt betra. Dásamleg lífsgleði þín með inni- byggðan galsa og húmoristi mikill. Þú varst alltaf svo full af lífskrafti og fjöri, til í allt, dansa, lifa og njóta. Í grunninn varstu samt jarðbundin og traust, rólynd og stöðug, mjög mikilvægir eiginleik- ar. Svo kom tilhugalíf, byrja að búa, barneignir, hittast niðri í dal með barnavagnana, þannig hófust okkar einstæðu göngutúrar. Vor- um heppnar að hafa bara Foss- vogsdalinn á milli okkar, auðvelt að hittast og við gerðum mikið af því. Göngutúrarnir í dalnum góða voru óteljandi margir, þar sem rætt var allt milli himins og jarðar. Þú varst ráðagóð vinkona, mikil rökhugsun og samkennd og áttir auðvelt með að setja þig í spor annarra. Við byggðum alls konar fyrir- tæki, hönnuðum ýmislegt þarflegt og gerðum fjöldamörg framtíðar- plön í þessum dýrmætu göngu- túrum, auk þess nærðum við sál- ina með því að ræða allt sem ræða þurfti og hlæja saman. Elsku Guðrún mín, þú varst og ert mér einstaklega dýrmæt og mikilvæg manneskja. Þú barðist af þvílíkum krafti við óvininn, krabbameinið, enginn hefði getað betur enda hafðirðu margt til að lifa fyrir og varst tekin frá okkur allt of snemma. Það hryggir mig endalaust mikið og ég mun ávallt sakna þín en fagna um leið öllu því sem þú hefur gefið mér í lífinu. Ég votta fjölskyldu Guðrúnar og vinum innilega samúð, elsku Jón, Hjördís, Steingrímur Karl, Ólafur Steinn, faðir hennar og bræður, megi guð og englar vaka yfir ykkur og hjálpa á þessum erf- iðu tímum. Þóra Sigurðardóttir. Fyrstu minningar um vinskap okkar Gunnu ná aftur til ársins 1972, tvær saman í dekkjarólu á Kvistaborg að ræða þau mikil- vægu málefni sem brenna á fimm ára stelpum. En samverustund- irnar urðu svo margar í gegnum nærri 50 ára samfylgd að erfitt er að velja úr nú á kveðjustundu. Hláturskastanna, mjög svo frægu, verður að minnast, því ósjaldan duttum við í kast þannig að aðrir í kringum okkur ranghvolfdu aug- unum og sögðu: „Byrja þær“ og þá var algjörlega óljóst hvenær hláturskastinu lyki. Samveru- stundir við bókalestur voru marg- ar. Farið var á Bústaðabókasafnið og hvor okkar tók 10 bækur. Síðan var haldið heim og lesið hvor í sínu horni í rúmunum okkar, ýmist heima hjá Gunnu í Geitlandinu eða mér í Giljalandinu. Að loknum lestri 20 bóka var sagan endurtek- in þar til að við höfðum nánast ryksugað upp alla barnabóka- deildina. Gunna var mikill náms- maður og er algjörlega óvíst hvort mér hefði tekist að klára eðlis- og efnafræði í Réttó nema fyrir kennslu hennar. Unglingsárin þar sem við störfuðum við humar- vinnslu á Stokkseyri voru dásam- leg lífsreynsla. Heddý heitin, mamma Gunnu, tilbúin með ynd- islegan hádegis- og kvöldmat fyrir frystihúspíurnar. Algjörlega ógleymanleg sumur. Sumarstarf okkar vinkvenna á Hótel Valhöll þar sem við 18 ára unnum mikið en skemmtum okkur jafnframt konunglega. Ferðir okkar saman í Kerlingarfjöll og til Vestmanna- eyja að loknum sumarstörfum voru frábærar og gleymast seint. Svo mætti lengi telja en umfram allt lifir áfram minning um æsku- vinkonu sem var mikill húmoristi, með eindæmum vel gerð mann- eskja, traustur vinur og yndisleg sál. Söknuðurinn er sár og ekki síst fyrir fjölskylduna sem hugur minn dvelur hjá. Takk fyrir sam- fylgdina elsku vinkona. Hildur Elín. Árið er 1987. Nýnemar í hjúkr- unarfræði við Háskóla Íslands að stíga sín fyrstu skref í námi sem hjá mörgum verður grunnurinn að ævistarfinu. Guðrún Ólafsdótt- ir er í þessum hópi. Fram undan skemmtileg og krefjandi fjögur ár. Við undirritaðar heppnar að verða samferða henni í hjúkrunar- náminu og allar götur síðan. Ým- islegt brallað í náminu. Hvort sem er í Eirbergi við Eiríksgötu, í verklegu námi á Landspítalanum eða nemendaferð til Akureyrar. Útskriftarferðin var til Cancún í Mexíkó. Saumaklúbburinn Stung- ið í Javann varð til eftir það. Við Javasystur, eins og við köllum okkur, höfum síðan haldið hópinn. Minningarnar hrannast upp. Guðrún, Þóra og Dagný úti á landi, nýútskrifaðir hjúkrunar- fræðingar. Guðrún kynntist ungum lækni í gegnum starf sitt á Landspítalan- um, honum Jóni sem bræddi hennar hjarta. Þau stofnuðu fjöl- skyldu og fallegt heimili í Foss- voginum. Gullmolarnir þrír fædd- ust, Hjördís, Steingrímur Karl og Ólafur Steinn. Guðrún starfaði við hjúkrun á Íslandi, einnig um tíma í Noregi. Síðustu árin hjá Heilsu- vernd. Fjölskyldan dvaldi oft í Þingeyjarsýslunni. Jón og Guðrún ráku þar um tíma ferðaþjónustu. Við eigum erfitt með að trúa að Guðrún okkar sé farin. Velvild, þrautseigja, nægjusemi og húmor eru eiginleikar sem koma upp í hugann þegar við hugsum til hennar. Hún var ekki tilbúin að tapa sex ára baráttu við krabba- meinið. Lífsþorstinn, seiglan og dugnaðurinn var magnaður. Hún var dul varðandi sjúkdóminn. Vildi frekar tala um eitthvað skemmtilegt og vita hvernig við hefðum það heldur en að vera í hlutverki sjúklings. Fyrir utan mánaðarlega klúbba í yfir 30 ár höfum við gert margt annað skemmtilegt saman. Edin- borgarferðir árin 2017 og 2018. Jóla-Javinn, árshátíðar-Javinn, alls kyns tímamótum fagnað, s.s. brúðkaupum eða stórafmælum þar sem við sömdum og fluttum atriði. Hefðbundnir Javaklúbbar duttu niður um tíma út af Covid. Það þýddi samt ekki að við gætum ekki hist. Við nýttum tækifærin inn á milli. Guðrún og Þóra skipu- lögðu t.d. zoom-bingó. Keyrðu óvæntan glaðning heim til hverrar og bingóvinninga. Dásemdin ein. Guðrún gat verið svo fyndin. Hún var snillingur í að segja skemmti- lega frá. Hún hikaði ekki við að gera grín að sjálfri sér. Mikið er- um við þakklátar hópmyndinni sem tekin var hjá ljósmyndara. Þetta ár var Guðrúnu erfitt. Uppgjöf var ekki til í hennar orða- bók. Fjölskyldan stóð við bakið á henni eins og klettur. Dagný og Þóra sýndu hvað vinátta þeirra Guðrún Ólafsdóttir Hjartans afmæl- is- og jóladrengur- inn minn og besti vinur hefði orðið 43 ára í dag, 7. desem- ber. Ég man svo vel stundina þeg- ar hann fæddist, ég leit upp og sá að klukkan var 12.05 á fallegum vetrardegi. Bjössa þótti alltaf gaman að vita nákvæmlega hve- nær hann var fæddur. Með okkar góða heilbrigðis- kerfi virðist vera að þessi hópur, hinir svokölluðu útigangsmenn, þ.e manneskjur, fólk sem hefur misst heimili sín eða athvarf vegna veikinda sinna, þeir eru verst settir í okkar fallega en harðbýla landi. Því miður er ekki von til að miklar breytingar verði með sama áframhaldi en mikið er ég hrædd um að margir muni bíða Björn Ágúst Magnússon ✝ Björn Ágúst Magnússon fæddist 7. desem- ber 1978. Hann lést 11. ágúst 2021. Útförin fór fram 20. ágúst 2021. sömu örlög og sonur minn, því miður. Eitt af því erf- iðasta sem ég upp- lifði í sumar var þeg- ar Bjössi minn missti íbúðina sína sem honum þótti svo vænt um og var stoltur af. Þegar hann missti íbúðina sl sumar þá horfði ég á Bjössa minn gefast upp og vonleysið taka við, hann grét þegar ég hafði leitaði hann uppi og fundið á einu af athvörf- unum sem þeim, sem minnst mega sín í okkar landi, er boðið upp á. Guði sé lof að athvörfin og sjúkrastofnanir eru til með öllu sínu yndislega duglega fólki. En er þetta boðlegt, er ekki hægt að gera betur? Við skulum ekki gleyma að alkóhólismi er sjúk- dómur og einn af þeim sjúkdóm- um sem hvað erfiðast er að hjálpa sjúklingum og aðstandendum þeirra. Elsku Bjössi, það líður ekki sú stund eða dagur að ég hugsi til þín og ég sakna þín. Sársaukinn, söknuðurinn og sorgin eru ólýs- anleg, við sem töluðum nánast saman á hverjum degi. Ferðirnar sem við fórum saman með Guðrún Elínu, hjartagullinu okkar, að ég tali ekki um 39 ferðir í heimsókn til okkar í Køben og þaðan um Evrópu, allar ferðirnar skrifaðar niður að hætti Bjössa. Já, það er mikill sannleikur í að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. 18. desember næstkomandi út- skrifast Guðrún Elín, einkabarn Bjössa, sem stúdent og 28. desem- ber verður hún tvítug. Það veit ég að mikið hefði hann pabbi hennar verið stoltur af fallegu, duglegu stúlkunni sinni sem hann sá ekki sólina fyrir, þau feðgin voru mjög samrýnd og yndislegt að vera með þeim. Síðasta afmæliskveðjan til mín frá Bjössa mínum er mér kær og minnisstæð, hann hringdi og bað mig grafalvarlegur að koma til sín, hann þyrfti að tala við mig. Þegar ég kom var hann búinn að dekka borð, baka og allt hreint og fínt að hætti Bjössa. Afmæli þýddi líka pakki fyrir mömmu. Hann var ekki sá ríkasti í bænum en af- mæliskaffi fékk ég og Kindle-raf- bók og Bjössi skrifaði fallegt kort með aðeins „Mamma“ utan á en innan í kortið hafði hann skrifað: „Líkt og hringarnir framan á kortinu þá eru líf okkar bundin saman og er ég þakklátur fyrir það. Elsku mamma, innilega til hamingju með afmælisdaginn. Megi hann og aðrir þínir dagar vera til blessunar. Þinn sonur, Bjössi.“ Margar eru minningarnar um ljúfan, góðan dreng sem öllum vildi vel og var alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum þegar hann gat, en hann gleymdi oft sjálfum sér. Hann átti við þunglyndi og kvíða að glíma nánast frá unga aldri. Bjössi minn fór að nota áfengi til að deyfa sársaukann og vanlíðan sem því miður varð að stjórnlausri fíkn sem endaði með dauða hans. Ég fæ ekki Bjössa minn aftur, til- gangsleysið er algjört. Stuttu áður en Bjössi minn kvaddi hafði vaknað von. Von um hjálp fyrir hann á Bjargey, heimili sem var verið að koma af stað fyr- ir manneskjur með fíknsjúkdóm. Bjössi var að flytja inn, svo von- góður og ánægður, en honum var ætlað annað. Blessuð sé minning hans. Elsku Bjössi minn, ég elskaði spriklið þitt í móðurkviði, ég elsk- aði þig þegar þú komst í heiminn og fórst að gera hann fallegri, ég elska þig nú og ég mun alltaf elska þig, hjartagullið mitt. Mamma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.