Morgunblaðið - 07.12.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 2021
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MIYABI FRÁ ZWILLING
VANDAÐIR JAPANSKIR HNÍFAR
Fullkomin blanda af japönsku handverki og þýskum áreiðanleika.
„ÞÚ ERT SEINN. HVERJU ER UM AÐ KENNA
Í ÞETTA SINN – HÖFUÐVERK?“
„FÖRUM Á NÝJA VEITINGASTAÐINN
MEÐ VERÖNDINNI OG FÁUM OKKUR
FRANSKAR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að leggja sig saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
AÐ SÖGN MÖMMU Á AÐ
TYGGJA 32 SINNUM
HVAR ER
MATURINN MINN?
KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
KJAMS KJAMS
HANN HVARF
FYRIR 31
KJAMSI SÍÐAN
ÉG ER AÐ LESA
ENN EINA
BÓKINA!
ÞETTA ER RÁÐGÁTA! JÁ, ÉG VAR EINMITT AÐ VELTA
ÞVÍ FYRIR MÉR HVERS VEGNA!
hvað fleira er betra tóm til þess að
sinna sínum hugðarefnum. Áhuga-
málin eru fyrst og fremst hreyfing
og útivist þó að bókalestur detti
aldrei niður. Ég hef reynt ýmislegt
nýtt á undanförnum árum. Ég er
farinn að hlaupa töluvert og hef tek-
ið þátt í flestum götuhlaupum í
Reykjavík og nokkrum utanvega-
hlaupum hér á landi ásamt því sem
ég er á góðri leið með að verða for-
fallinn gönguskíðamaður.“ Snorri
hefur meðal annars keppt í Hvíta-
sunnuhlaupinu og Puffin-hlaupinu í
Vestmannaeyjum. „Ég hef hingað til
ekki skráð mig í mikið lengri hlaup
en 20 kílómetra. Aðallega af því að
skrokkurinn hefur ekki viljað meira.
Við erum svo frekar dugleg við að
sækja listasýningar og missum yfir-
leitt ekki af því sem er að gerast á
þeim vettvangi.“
Fjölskylda
Sambýliskona Snorra er Líf
Magneudóttir, f. 13.8. 1974, borgar-
fulltrúi. Þau eru búsett í Vesturbæ
Reykjavíkur. Foreldrar Lífar eru
Magnea J. Matthíasdóttir, f. 13.1.
1953, þýðandi í Reykjavík, og Bárð-
ur R. Jónsson, f. 26.8. 1953, þýðandi
í Reykjavík.
Börn Snorra og og Lífar eru
Styrkár Flóki, f. 26.2. 2009; Bríet
Magnea, f. 27.7. 2010, og Hólmfríður
Helga, f. 6.9. 2012. Fyrir átti Líf
Dag Ara Kristjánsson, f. 24.8. 2000.
Systkini Snorra eru Guðrún Stef-
ánsdóttir, f. 20.1. 1983, lyfjafræð-
ingur, búsett í Vesturbæ Reykjavík-
ur; Ottó Stefán Michelsen, f. 29.4.
1986, fjármálaverkfræðingur, bú-
settur í Vesturbæ Reykjavíkur, og
Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir, f.
20.11. 1990, lögfræðingur, búsett í
Urriðaholti í Garðabæ.
Foreldrar Snorra eru hjónin
Stefán Sigurður Guðjónsson, f. 5.12.
1957, viðskiptafræðingur og Helga
Ragnheiður Ottósdóttir, f. 14.3.
1957, hjúkrunarfræðingur. Þau eru
búsett í Vesturbæ Reykjavíkur.
Snorri Stefánsson
Geirlaug Jóhannsdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki
Jón Þ. Björnsson
kennari á Sauðárkróki
Gyða Jónsdóttir
heimilisiðnaðarkennari og
húsfreyja í Reykjavík
Ottó A. Michelsen
forstjóri í Reykjavík
Helga R. Ottósdóttir
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík
Guðrún Pálsdóttir Michelsen
húsfreyja á Sauðárkróki
Jörgen Michelsen
úrsmíðameistari á Sauðárkróki
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Stefán Halldórsson
útgerðarmaður og verslunar-
stjóri í Neskaupstað
Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðjón Hólm Sigvaldason
lögmaður og forstjóri í Reykjavík
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Litla-Ási,
síðar búsett í Reykjavík
Sigvaldi Þorkelsson
bóndi á Litla-Ási á Kjalarnesi, síðar iðnverkamaður í Reykjavík
Ætt Snorra Stefánssonar
Stefán S. Guðjónsson
framkvæmdastjóri í Reykjavík
Indriði Aðalsteinsson á Skjald-
fönn rifjar á netinu upp tvær
limrur eftir Hólmfríði Bjartmars-
dóttur:
EINAR.
Hann Einar var útigangsróni
og yfirleitt hálfgerður dóni
en vorkvöldin löng
var hann ljúfur og söng
lof sínu farsældarfróni.
Hann Einar var alltaf á róli
ágjarn brennivíns drjóli.
Í fyrradag fór
hann að finna sér bjór,
og varð úti á Arnarhóli.
Hér rifjar Indriði upp limruna
„Ráðgáta“ eftir ókunnan höfund:
Í upphafi allt var skapað
og ekki að neinu hrapað.
Rauða hafið er rautt
og það dauða dautt,
en enginn veit ennþá hver drap það.
Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur
Arnfinnsson oddhenduna „Rok“ af
því að það er rok:
Hýðir vindur lagar lind
logn af strindi rekur
Æðir blindhríð yfir tind
ugg í lyndi vekur.
Friðrik Steingrímsson rifjar upp
tvær gamlar vísur og skýrir þær
svo:
„Þegar móðir mín varð áttræð
ákvað hún að vera að heiman á af-
mælisdaginn. Egill bróðir minn
bauð henni því í bíltúr.
En þegar sú gamla gekk út úr
húsinu þá hrundi klakastykki af
þakskegginu í hausinn á henni svo
hún fékk gat á hausinn og mátti
hætta við bíltúrinn. Ég notaði tæki-
færið og færði henni þessar vísur:
Á svo verði eitthvert lag
allri heilsu þinni,
hafa skaltu hjálm í dag
og helst að vera inni.
Margra lánið mjög er valt
mamma, því ég segi,
út að keyra ekki skalt
með Agli á þessum degi.“
Ljótt er ef satt er, – Eiríkur Jóns-
son yrkir:
„Covidarnir“ Kára hræðast
og kunna fátt um meinsemdir
þeir virðast hvorki vilja fræðast
né viðurkenna staðreyndir.
„Fótboltinn“ heitir þessi limra
Kristjáns H. Theódórssonar:
Vinsælt um heiminn er hark það,
sé hamast með bolta og sparkað,
fá menn sér á móti,
á markið svo skjóti,
svo lýst er og þrasað og þjarkað.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er víða komið við