Morgunblaðið - 07.12.2021, Side 32
Efni í þætti kvöldsins:
Pálmi V. Jónsson yfirlæknir öldrunarlækningadeildar
Landspítala fjallar um gildi forvarna þegar kemur að
efri árum ævinnar. Að sögn Pálma eru forvarnir eru
að stærstu leyti á ábyrgð hvers einstaklings og um
ævilangt ferðalag er að ræða.
Tómas A. Tómasson er 72ja ára og jafnframt
elsti einstaklingur sem náð hefur kjöri til Alþingis.
Hvernig líst honum á að hefja þingstörf á þessu
hausti og hvað hugsar þessi ókrýndi hamborgara-
kóngur Íslands þegar hann fer í gegnum þessi merku
tímamót.
Díana Óskarsdóttir er forstjóri HSU en á næsta ári
verður tekið í notkun nýtt glæsilegt hjúkrunarheimili
á Selfossi og HSU hefur verið falin umsjón og rekstur
heimilisins. Díana segir nánar frá þessu nýtískulega
heimili ásamt ýmsu öðru er við kemur rekstri
hjúkrunarheimila.
Helgi Ágústsson er fyrrverandi sendiherra Íslands
í Washington, London og Kaupmannahörn. Helgi er
mikill Rótarýmaður og spjallar við þáttastjórnanda um
þann merka félagsskap ásamt búsetu þeirra hjóna
erlendis árum saman.
Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson
Lífið er lag
kl. 21.30 á Hringbraut í kvöld
Fylgstu með!
Í kvöld
á Hringbraut
Helgi Ágústsson
Díana Óskarsdóttir
Jólasýning Listvals var opnuð í nýju sýningarrými fyrir-
tækisins á jarðhæð Hörpu um liðna helgi. Þar eru sýnd
og til sölu verk eftir um 70 myndlistarmenn í fremstu
röð. Listval hefur um skeið verið með sýningar á verk-
um fjölmargra samtímalistamanna á Hólmaslóð og
verður sá salur áfram opinn en Listval sérhæfir sig í
myndlistarráðgjöf fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir.
Jólasýningin verður opin fram á Þorláksmessu en ætl-
unin er að skapa í rýminu í Hörpu „fallega og fágaða
umgjörð í formi myndlistarsýninga og gallerís“.
Listval sýnir verk eftir 70 myndlist-
armenn í nýju sýningarrými í Hörpu
ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Mikið jafnræði er með liðunum í bandarísku NFL-
ruðningsdeildinni í vetur og ekkert lið sem sker sig sér-
staklega úr enn sem komið er. Gunnar Valgeirsson fór á
leik LA Rams og Jacksonville Jaguars um helgina og
skrifar um gang mála í deildinni á íþróttasíðu í dag. »26
Mikið jafnræði í NFL-deildinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
átti ég ekki von á að halda lengi
áfram á tónlistarbrautinni,“ segir
Guðmundur, sem er tækniteiknari
hjá arkitektastofunni Arkís.
Tónlistarmaðurinn hefur reynt
fyrir sér í ýmsum straumum og
stefnum með mismunandi hljóm-
sveitum. Nú er hann meðal annars
í þungarokksbandinu Nykri, sem
hann stofnaði með Davíð Þór
Hlinasyni 2013, og GG Blús með
Guðmundi Gunnlaugssyni. „Ég hef
alltaf farið þangað sem hugurinn
hefur teymt mig,“ segir hann og
vísar meðal annars til áratuganna í
Sálinni hans Jóns míns. „Þá fórum
við út og suður, en ég viðurkenni
að jólalög hafa ekki verið ofarlega
á lista hjá mér fyrr en ég eignaðist
börn, þegar ég var á miðjum aldri.
Áður voru jólin fyrir mér sá tími
þegar koma þurfti út plötum,
stress og hasar, en nú er gaman að
tikka í boxin sem eftir eru og
reyna sig við hluti sem hafa setið á
hakanum.“
Í fyrra komu út, undir merkjum
Jóladraums, söngdúettarnir „Lítil
kerti í myrkum heimi“ og „Ham-
ingjan festir rætur“. Salka Sól og
Jóhann Sigurðarson syngja fyrra
lagið en Margrét Eir og Jóhann
það síðara. Nýju lögin eru síðan að
koma út núna. Jóhann syngur
„Söng samviskunnar“ en Íris Lind
Verudóttir lögin „Jólin þau koma
senn“ og „Heilög jól“. Birgir Þór-
isson spilar á píanó og orgel, Frið-
rik Sturluson á bassa, Eysteinn
Eysteinsson á trommur og Guð-
mundur á gítar og hljómborð auk
þess sem hann syngur bakraddir,
en lögin verða öll aðgengileg á
Spotify.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Gítarleikarinn og lagasmiðurinn
Guðmundur Jónsson hefur komið
víða við í tónlistinni á löngum ferli.
Fyrir jólin í fyrra gaf hann út
fyrstu tvö lög verkefnisins „Jóla-
draumur“ og um þessar mundir
koma út þrjú jólalög til viðbótar,
en til stendur að halda útgáfunni
áfram á næstu árum með um 10 til
12 laga pakka í huga.
Verkefnið á sér um átta ára að-
draganda. Guðmundur segir að
2013 hafi Kristján Hreinsson sent
sér texta upp úr þurru og beðið sig
um að semja lög við þá. „Mér
fannst þetta vera töluverð áskorun
því yfirleitt sem ég fyrst lögin og
síðan koma textarnir seinna.“ Í
grunninn hafi textarnir verið söng-
leikjahugmynd og því hafi hann
fengið Jóhann Sigurðarson leikara
inn í dæmið, en engu að síður hafi
hvorki gengið né rekið í nokkur ár.
„Ég á unga drengi, hef endur-
upplifað jólin með þeim og langaði
að búa til jólamúsík. Ég dustaði því
rykið af lögunum við texta Krist-
jáns í fyrrnefndu áhlaupi og ákvað
að gefa þau út sem jólalög enda
fannst mér einhver áferð á þeim
sem var sérstök, jafnvel jólaleg.“
Andinn úr Jólaævintýri Charles
Dickens svífur yfir vötnum, að
sögn Guðmundar. Í bókinni er
fjallað um Ebeneser Scrooge, ríkan
en nískan mann. Hann þolir ekki
jólin en allt breytist eina jólanótt
og hann sér ljósið. „Lögin eru laus-
lega byggð á sögunni með það að
leiðarljósi að finna gleði jólanna.“
Ástríða frá unga aldri
Tónlist hefur verið ríkur þáttur í
lífi Guðmundar. „Ég ólst upp við
hljóðfæraslátt, pabbi spilaði á gítar
og ég byrjaði á því fyrir fermingu,“
rifjar hann upp. „Ástríðan fyrir
tónlist hefur því alltaf fylgt mér og
aukist með árunum ef eitthvað er.“
Hann er frá Skagaströnd og byrj-
aði þar í skólahljómsveitinni Hörm-
ung. „Við vorum ekki með mikið
sjálfstraust á þeim tíma og í raun
Guðmundur með gleði
jólanna að leiðarljósi
- Þrjú lög bætast við Jóladraum og fleiri væntanleg
Fjölhæfur Gítarleikarinn og lagasmiðurinn Guðmundur Jónsson.