Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 1

Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 1
Landsliðum Íslands í hópfimleikum var boðið á sérstaka móttöku í Safnahúsinu í gær til að fagna glæstum árangri þeirra á Evrópumeist- aramótinu í Portúgal. Eins og alþjóð veit vann kvennalandsliðið til gullverðlauna á mótinu og karlalandsliðið hreppti silfurverðlaun. Þá voru þrír fulltrúar Ís- lands í úrvalsliði Evrópumótsins en Ísland átti auk þess fulltrúa í valinu um efnilegasta kepp- andann í fyrsta sinn í sögunni. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, bauð til móttökunnar í gær en á mælendaskrá var for- seti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem óskaði keppendum, þjálfurum og öðrum sem að liðinu standa innilega til hamingju með árangurinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gull- og silfurverðlaunahafarnir heiðraðir í Safnahúsinu M I Ð V I K U D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 288. tölublað . 109. árgangur . 16 dagar til jóla Búðu til jólakort á jolamjolk.is SKÁLDSKAPUR ER SKILNING- ARVIT VETNI EINN LYKILLINN AÐ ORKUSKIPTUM FAGNA ÞVÍ AÐ NIÐURSTAÐA SÉ KOMIN VIÐSKIPTI 12 SÍÐUR SKÝRSLA UM KSÍ 27NÝ LJÓÐABÓK SOFFÍU 24 20 milljónir lítra af olíu vegna raforkuskerðingar - Skerðingin margfaldar kolefnisspor sjávarútvegsins Baldur Arnarsson Helgi Bjarnason Áætla má að skerðing Landsvirkjun- ar á raforku til fiskimjölsverksmiðja muni kalla á aukna olíunotkun upp á um 20 milljónir lítra, eða sem nemur um 54.400 tonnum af kolefnisígildum, að sögn Gunnþórs Ingvasonar, for- stjóra Síldarvinnslunnar. Gunnþór segir í samtali við Við- skiptaMoggann í dag að ákvörðun Landsvirkjunar á mánudaginn um að hefja skerðingu á raforku strax muni því margfalda kolefnisspor íslensks sjávarútvegs, auk þess sem hún muni kalla á mikinn aukakostnað fyrir bræðslurnar. „Bræðslurnar eru stærsti orkunot- andi á landinu fyrir utan stóriðjuna. Áður notuðum við allt að 50 lítra af ol- íu á tonn í þessum verksmiðjum. Nú eru þær að nota 38-45 lítra á tonnið,“ segir Gunnþór meðal annars, en hann bendir jafnframt á að allar loðnu- bræðslurnar ellefu á landinu muni nú þurfa að vinna á fullum afköstum frá janúar og fram í mars, þar sem fram undan sé ein stærsta loðnuvertíð í manna minnum. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson (Binni), framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar, segir í samtali við Morgunblaðið að ákvörðun Lands- virkjunar sé stórfurðuleg, þar sem all- ar fiskimjölsverksmiðjurnar hafi fjár- fest í rafvæðingu fyrir um eða yfir hálfan milljarð á hverja verksmiðju. „Svo er skrúfað fyrir rafmagnið þegar við þurfum á því að halda,“ segir Binni. Binni segir að ekki verði hægt að keyra verksmiðjurnar af fullu afli á vertíðinni með olíu. „Það þýðir að við munum ekki ná kvótanum og þjóðin verður af útflutningstekjum.“ MSkerðing »4 og ViðskiptaMogginn Teikning/Pétur Grétarsson Endurgerð Bessastaðakirkja gæti litið svona út eftir endurbætur. „Mikið lán og forsjá“ - Innviðir Bessastaða- kirkju varðveist vel „Þessir innviðir sem bjargað var hafa varðveist mjög vel. Við eigum nánast allt sem var í kirkjunni og getum komið þessum innviðum fyr- ir svo hún fái notið sín á ný. Það er mikið lán og forsjá sem býr að baki þessari varðveislu enda hlaut að koma að því einn daginn að kirkjan yrði lagfærð. Hún var byggð glæsi- lega á sínum tíma og stendur á grunni eldri kirkna frá elstu tíð,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður og formaður framkvæmdanefndar um endur- gerð Bessastaðakirkju. Í fjárlaga- frumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 99 milljóna króna framlagi svo hægt sé að hefja endurbætur á innviðum kirkjunnar. Samkvæmt tillögu Minjastofn- unar mun endurgerðin miðast við ártalið 1846. Lagt er til að milli- gerði, altari og altarisgrindur verði sett upp að nýju auk predikunar- stóls frá 1709. Þá verði altaristafla úr Dómkirkjunni, sem var í kirkj- unni 1864-1946, sett yfir altarið en altaristafla frá 1709 fari á kórgafl- inn sunnan altaris og altaristafla eftir Mugg verði sett upp á kórgafl- inn norðan altaris. hdm@mbl.is »6 _ Joe Biden Bandaríkjaforseti ræddi í gærkvöldi við leiðtoga Bretlands, Frakklands, Þýska- lands og Ítalíu um fund sinn með Vladimír Pútín Rússlandsforseta um stöðuna í Úkraínudeilunni. Hafði Biden einnig rætt við leið- toga ríkjanna fjögurra áður en fundurinn hófst til að tryggja samstöðu þeirra. Þá hyggst Bi- den einnig ræða við Volodymyr Zelenskí Úkraínuforseta í vik- unni. Fundur leiðtoganna þótti „hreinskiptinn og fagmannlegur“ að sögn stjórnvalda í Moskvu, en Biden varaði Pútín þar við alvar- legum afleiðingum þess, ef Rúss- ar ákvæðu að ráðast inn í Úkra- ínu. Pútín óskaði hins vegar eftir loforðum þess efnis að Úkraína myndi aldrei ganga í Atlantshafs- bandalagið. » 11 Biden ráðfærir sig við bandamenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.