Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 6

Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 116 tilfelli kórónuveirunnar greind- ust innanlands í fyrradag, þar af voru 53 í sóttkví við greiningu. Rík- isstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að halda núverandi sóttvarnaað- gerðum óbreyttum í tvær vikur í við- bót, en þær áttu að renna út í dag. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að ástæðan væri skortur á gögnum um Ómíkron-afbrigðið og áhrif þess. Í gær höfðu minnst 16 ein- staklingar hér á landi greinst með Ómíkron-afbrigðið, en enn er óvíst hvort það er meira smitandi en fyrri afbrigði eða sjúkdómseinkenni þess verri. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir í minnisblaði sínu til ríkisstjórnarinnar að ef sýnt þyki að afbrigðið valdi ekki skæðum sjúk- dómi og að bólusetningar og fyrra smit af Covid-19 verndi fólk fyrir því verði komnar faglegar forsendur til að endurskoða þær aðgerðir sem nú eru í gildi. Þar á meðal megi skoða að undanskilja þá sem hafi fengið örvunarskammt frá fjöldatakmörk- um og prófaskyldu fyrir viðburði. Staðfest Covid-19 smit á Norðurlöndunum Fjöldi smita á hverja milljón íbúa, 14 daga meðaltal 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 17. júlí 23. ágúst 12. sept. 2. okt. 22. okt. 11. nóv. 6. des. Heimild: Johns Hopkins Danmörk Noregur Ísland Finnland Svíþjóð 16 með Ómíkron - Óbreyttar ráðstafanir næstu tvær vikur - Staðan endurmetin bráðum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ánægjulegt að nú standi til að ráðast í endurbætur á innra byrði Bessastaðakirkju sem er meðal okk- ar merkustu bygginga. Markmiðið er að taka mið af byggingarsögulegu og listrænu gildi kirkjunnar svo hún fái notið sín og að hún verði aðgengi- leg fyrir alla, gesti Bessastaða og kirkjugesti. Það vinnur ávallt með varðveislu sögu- legra bygginga að samhliða verndun hafi húsið viðeig- andi hlutverk í samtímanum. Markmiðið er að þar fari fram kirkjulegar at- hafnir auk þess að vera verðugur áfangastaður gesta,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminja- vörður. Margrét er formaður fram- kvæmdanefndar um endurgerð Bessastaðakirkju. Í fjárlaga- frumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 99 milljóna króna framlagi svo hægt sé að hefja endurbætur á innviðum kirkjunnar. Auk Margrétar sitja í nefndinni Pétur Ármannsson, arki- tekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, og Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu. Starfsmaður nefndarinnar er Sveinn Bragason, verkefnastjóri í forsætisráðuneytinu. Sveinn segir í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að Bessastaða- kirkja eigi sitt sérstaka sæti í byggingarlistarlegri sögu 18. aldar steinhúsa og sögulegra kirkna á Ís- landi þar sem Hóladómkirkja er elst og er í barokkstíl, Viðeyjarkirkja næst í rókókóstíl, Dómkirkjan í Reykjavík í síðklassískum stíl og Bessastaðakirkja þannig í sæti ný- klassíska stílsins, einföld í formi sínu, klassísk hlutföll. „Hana vantar því í annars heilsteypta röð íslenskra steinhúsa frá 18. öld,“ segir hann. Áður hafa Viðeyjarstofa, Nesstofa og Stjórnarráðið verði endurbyggð í samræmi við menningarsögulegt gildi húsanna og fengið viðeigandi hlutverk. Fyrirhuguð endurgerð á sér nokk- urn aðdraganda að sögn Sveins. Í til- efni þess að öld var liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns forseta Ís- lands í desember 2016 ákvað Minja- stofnun Íslands, í samráði við húsa- friðunarnefnd, að kosta byggingar- sögulega rannsókn á þeim innviðum Bessastaðakirkju sem fjarlægðir voru úr kirkjunni um 1946 og hafa síðan verið í vörslu Þjóðminjasafns Íslands sem mun annast forvörslu viðanna. Þar á meðal eru altaris- töflur, predikunarstóll, altari, kirkjubekkir og fleira sem prýddi áður kirkjuna. Þorsteinn Gunn- arsson arkitekt og Argos arkitektar, þeir Stefán Örn Stefánsson og Grét- ar Markússon arkitektar, unnu að þessari rannsókn. Á grundvelli hennar var unnin tillaga að end- urgerð kirkjunnar sem skoða má á Youtube með því að slá inn Bessa- staðakirkja. Búast má við því að skriður komist á verkið á nýju ári. Á vegum Fram- kvæmdasýslunnar – ríkiseigna er nú unnið að frumáætlun um verkefnið sem byggist á þeim rannsóknar- gögnum sem áður er getið. Segir Sveinn að gögn sem Framkvæmda- sýslan – ríkiseignir mun skila af sér verði lögð fyrir samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir með ósk um að hefja áætlanagerð. Margrét segir í samtali við Morg- unblaðið að allar forsendur séu fyrir hendi til vandaðra endurbóta Bessa- staðakirkju í samræmi við listrænt gildi með það að markmiði að tryggja örugga varðveislu til fram- tíðar, gott aðgengi og aðstöðu til notkunar. „Þessir innviðir sem bjargað var hafa varðveist mjög vel. Við eigum nánast allt sem var í kirkj- unni og getum komið þessum inn- viðum fyrir svo hún fái notið sín á ný. Það er mikið lán og forsjá sem býr að baki þessari varðveislu enda hlaut að koma að því einn daginn að kirkjan yrði lagfærð. Hún var byggð glæsi- lega á sínum tíma og stendur á grunni eldri kirkna frá elstu tíð.“ Hún segir að við endurgerð Bessastaðakirkju verði ekki bara horft til þess að koma henni í fyrra horf. Einnig verði aðgengi fatlaðra bætt, lýsing, brunavarnir og loft- ræsting bætt og snyrting fyrir gesti og þannig mætti áfram telja. Í tillögu Minjastofnunar að endur- gerð Bessastaðakirkju segir að ekki sé fýsilegur kostur að færa kirkjuna í upphaflegan búning sinn frá 1795. Rétt sé að miða við ártalið 1846 en lunginn af innviðum kirkjunnar frá þeim tíma hafi verið ósnertur fram að breytingum um miðja 20. öld. Lagt er til að milligerði, altari og alt- arisgrindur verði sett upp að nýju auk predikunarstóls frá 1709. Þá verði altaristafla úr Dómkirkjunni, sem var í kirkjunni 1864-1946, sett yfir altarið en altaristafla frá 1709 fari á kórgaflinn sunnan altaris og altaristafla eftir Mugg, sem verið hefur í kirkjunni frá 1957, verði sett upp á kórgaflinn norðan altaris. „Meðal okkar merkustu bygginga“ - Endurbætur á innviðum Bessastaðakirkju hefjast á næsta ári - Kirkjan fái viðeigandi hlutverk Teikningar/Pétur Grétarsson Endurgerð Milligerði, altari og altarisgrindur verða sett upp að nýju. Ekki verður hróflað við steindu gluggunum. Breytingar Á vinstri myndinni má sjá að gangur milli bekkja verður lagður tigulsteinum í skásettu tiglamunstri. Altaristaflan sést hægra megin. Margrét Hallgrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.