Morgunblaðið - 08.12.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.12.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fréttir frá Banda- ríkjunum síðustu misserin gera vini þessa merka og mátt- uga ríkis hugs- andi og leiða. Dómsmál fara fram undir stórbrotnum hótunum, beinum og óbeinum, um að verði úrslit þeirra ekki í takt við vilja samtaka eins og BLM þá verði miðborg þess fylkis sem í hlut á eða sá bær eða borg sem hýsir þennan mikilvæga þátt mannlífsins lögð í rúst. Þegar fáeinir dagar eru í slíka niðurstöðu taka sak- lausir eigendur smærri fyrirtækja að þekja allar dyr og glugga með grind- verkum eða tréverki í þeirri viðleitni að draga úr tjóni sínu og minnka líkur á að reksturinn fari á hliðina í kjölfarið. Má ímynda sér hvaða áhrif „undirbún- ingur“ af þessu tagi getur haft á úrslit mála. Ólíklegt er að ákærður maður telji líklegt að sönnun og rétt- læti sé fyrirferðarmikið við þær aðstæður. Ekki er langt síðan lögreglumaður var dreginn fyrir dóm við slíkar aðstæður. Í margar vikur voru helstu fjölmiðlar ljósvakanna að hrópa upp þau ósköp og skemmdar- verk sem væntanleg væru ef „röng niðurstaða“ kæmi frá dómstólnum. Lög- reglumaðurinn fékk dóm eins og vænta mátti við slíkar aðstæður og átti ekki minnstu glætu um réttláta málsmeðferð undir slíkum hótunum. Núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum telja sig neyðast til að lýsa hótunum um stórfellt of- beldi, sem beinist að al- mennum borgurum sem hvergi hafa komið að máli, eðlileg mótmæli gegn hugs- anlega „rangri niðurstöðu!“ Demókratar kenna gjarn- an vopnaeign Bandaríkja- manna um þessa hrikalegu stöðu. Sá flokkur hefur þó lengi ráðið því sem hann vill í borg eins og Síkakó og yf- irvöld þar segjast vera með hörðustu reglur gegn skot- vopnaeign sem þekkist í Bandaríkjunum. Útkoman þar segir því mikla sögu. Biden forseti gekk út frá því að hann fengi vaxandi álit og stuðning með því að ljúka því sem hann kallaði „lengsta stríð Bandaríkjanna í Afganistan“. En forsetinn stóð með eindæm- um illa að því verkefni og það varð upphaf að miklu fylgishrapi hans sem hefur ekki enn stöðvast. En það sem er athyglisverðast í þessu samhengi er að í stríðinu langa hafði þó eng- inn Bandaríkjamaður fallið síðustu 18 mánuðina. Á sama tíma voru yfir þúsund Bandaríkjamenn myrtir í fyrrnefndri borg einni. Þeir sem fylgjast með fyrrnefndum frétta- stöðvum sjá hins vegar sárasjaldan fréttir eða for- dæmingu á þessum stór- styrjöldum innanlands. Auðvitað eru morð og skot- árásir almennt séð alvar- legust, en 356 manns urðu fyrir skotárásum í Síkakó í október einum. Þegar þær tölur og aðrar eru skoðaðar nánar vekur sérstakan óhug hvað mörg ung börn og unglingar koma þar við sögu. Frá Kaliforníu berast nú fréttir um að stórir hópar manna ræni verslanir og smáfyrir- tæki á degi sem nóttu og þurfi lítt að óttast hand- tökur eða refsingar. Sumir þessara dólga eru vissulega handteknir en látnir lausir aftur innan sólarhrings eða svo vegna stefnu saksókn- ara úr röðum demókrata sem eru að framfylgja per- sónulegri stefnu sinni um vægari refsingar, sem þeg- ar hafa haft öfug áhrif með stórauknum vandræðum. Bandaríkjamenn horfa upp á að sitja uppi með ein- dæma veika leiðsögn alrík- isins eftir síðustu kosn- ingar og það fordæmi skilar sér niður um allar æðar samfélagsins. Á þetta horfa helstu andstæðingar Bandaríkjanna á heimsvísu og eru augljóslega stað- ráðnir í að nýta hin nýju tækifæri sín til fulls. Ótti illa varinna ríkja fer vaxandi í sama hlutfalli og trú á vilja og getu Banda- ríkjanna til andófs eða varna minnkar hratt. Staða Bandaríkj- anna, inn á við sem út á við, ýtir undir áhyggjur þar og um víða veröld} Afleiðingar stjórnleysis og mistaka blasa við Í heimi íþróttanna er stundum talað um mikilvægi þess að hrista upp í liðinu. Jafnvel lið sem fyllt hafa skápa sína af málmi þurfa á því að halda að gerðar séu breytingar. Það gefur ekki bara ferskleika heldur brýnir þau sem fyrir eru, minnir á mikilvægi þess að halda fókus – og sækja fleiri sigra. Það sama á við um stjórnmálin og stjórnar- far í landinu. Við kunnum að vera vön því að hlutirnir séu með ákveðnum hætti en við vitum ekki alltaf – eða munum jafnvel ekki – af hverju hlutirnir eru eins og þeir eru. Þá er hætt við því að stjórnkerfi landsins dragist aftur úr og endurspegli ekki þarfir og væntingar fólks og fyrirtækja í landinu. Þess vegna er mikilvægt að hugsa hlutina upp á nýtt og ráðast í breyt- ingar sem eru til þess fallnar að auka lífsgæði okkar til lengri tíma. Hrista upp í liðinu. Við heyrum stjórnmálamenn gjarnan tala um kerfis- breytingar. Það liggur ekki alltaf fyrir hvaða kerfum þarf að breyta, af hverju eða hvernig – oftast er þetta hugtak bara notað í pólitískum tilgangi til að festa ákveðnar stjórnmálaskoðanir í sessi. Stjórnmálamenn sem telja sig nútímalegri en aðrir tala undarlega oft um kerfisbreyt- ingar ef þeir telja sig hafa betri skoðanir en aðrir og saka þá sem ekki taka undir um íhaldssemi og afturhald. Það er síðan hægt að ráðast í alvörukerfisbreytingar sem taka mið af raunverulegum aðstæðum og framtíðar- horfum okkar. Í nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar kemur fram að íslenskt samfélag sé nú í kjörstöðu til þess að horfa til framtíðar og sækja fram í þágu vaxandi velsældar. Það eru orð að sönnu, en þá liggur fyrir að stjórnkerfið þarf að vera í stakk búið til að leiða þá þróun sem hið opinbera þarf að leiða og sinna því þjónustuhlutverki sem það þarf að sinna. Stofnun nýs ráðuneytis vísinda, iðnaðar og nýsköpunar er til marks um framsækna hugs- un stjórnmála. Þannig nýtum við þær breyt- ingar sem hafa orðið á liðnum árum sem hafa skapað nýjan veruleika fyrir okkur öll og það sem mikilvægara er, þannig ýtum við undir og styðjum við það að frekari breytingar og fram- farir geti átt sér stað. Við sem eigum sæti í ríkisstjórn, og þingflokkarnir sem nú mynda meirihluta á Alþingi, erum að horfa til þess hvernig hægt er að gera hlutina betur en áður, hvernig hægt er að innleiða nýjungar, gera þjónustu hins opinbera betri og gera bæði einstaklingum og fyrirtækjum kleift að bæta hag sinn og framtíðar- horfur. Þannig eiga stjórnmál að virka og rétt eins og í íþróttunum má ekki eiga sér stað stöðnun. Til að styðja við umhverfi þar sem sköpunarkraftur fólks fær að njóta sín og það getur vaxið, dafnað og þrosk- ast í opnu og frjálsu umhverfi þarf að ráðast í kerfisbreyt- ingar. Alvörukerfisbreytingar sem hafa þýðingu fyrir líf fólks. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Alvörukerfisbreytingar Höfundur er vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is K víði er algengasti vandi barna og virðist fara vax- andi. Því er eðlilegt að þetta úrræði sé í boði,“ segir Guðríður Haraldsdóttir, sér- fræðingur í klínískri barnasálfræði og verkefnastjóri sálfræðiþjónustu barna- og unglinga hjá Heilsugæsl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Um þessar mundir er verið að innleiða foreldramiðaða meðferð við kvíða hjá 6-12 ára börnum hjá heilsu- gæslunni um allt land. Meðferðir fyrir einstaklinga eru þegar í boði á flest- um heilsugæslustöðvum og eftir ára- mót verða hópmeðferðir einnig í boði. Í umfjöllun á vef heilsugæsl- unnar kemur fram að meðferðin gangi út á að kenna foreldrum aðferð- ir hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) til að nota í daglegu lífi barns- ins og hjálpa því þannig að komast yf- ir kvíðavandann. Hugmyndin byggist á að foreldrar séu best til þess fallnir að styðja barnið þar sem þeir eru oft- ast með barninu á erfiðum tímum þegar kvíðinn kemur fram. „Rannsóknir gefa til kynna að allt að 30% einstaklinga muni á ein- hverjum tímapunkti á lífsleiðinni þróa með sér kvíða sem verður það mikill að hann hindrar eða skerðir verulega daglegt líf einstaklingsins,“ segir á vef heilsugæslunnar. „Helmingur allra kvíðaraskana þróast fyrir 12 ára aldur og hátt í 7% barna greinast með kvíðaröskun einhvern tíma. Það getur skipt sköpum að grípa snemma inn í og veita börnum, sem stríða við kvíða, stuðning til að draga úr hættu á að vandinn þróist á verri veg. Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að þessi meðferð er hagkvæm og mælist jafn árangursrík og aðrar HAM- meðferðir sem krefjast mun lengri meðferðartíma,“ segir þar enn frem- ur. Staðan margra verri í Covid Dæmi eru um að löng bið hafi verið eftir sálfræðiþjónustu hér á landi sem hefur þótt sérstaklega hvimleitt með börn sem glíma við kvíða. Guðríður kveðst vona að þetta nýja úrræði bæti úr því. „Já, við erum að vonast til þess að geta boðið fleiri börnum og foreldrum þeirra þjónustu og þar af leiðandi stytt biðlista án þess að slá af gæðum.“ Unnið hefur verið að innleiðingu þessarar meðferðar síðustu 2-3 ár að sögn Guðríðar. Sálfræðingar hafa fengið viðeigandi þjálfun og ýmiss konar efni fyrir þá hefur verið þýtt á íslensku. Þá var þýdd bókin „Hjálp fyrir kvíðin börn – handbók fyrir for- eldra“ sem er fáanleg í bókabúðum. Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsu- gæslu stóð fyrir þýðingu bókarinnar með styrk frá Lýðheilsusjóði og emb- ætti landlæknis. Á vef heilsugæsl- unnar segir að bókin nýtist foreldrum kvíðinna barna hvort sem þau eru í meðferð eða ekki. „Með útgáfu bókar og innleiðingar meðferðar í heilsu- gæslu eykst aðgengi foreldra og barna að árangursríkri kvíða- meðferð,“ segir á vef heilsugæsl- unnar. Guðríður segir í samtali við Morgunblaðið að kannanir sem Rannsókn og greining hefur gert í grunnskólum leiði það í ljós að börn hafi meiri áhyggjur en áður og upplifi meiri vanlíðan. Hún segir aðspurð að kórónuveirufaraldurinn hafi síður en svo hjálpað. Þau börn sem voru við- kvæm fyrir eða glímdu við kvíða hafa orðið kvíðnari af völdum óvissu og umróts sem faraldurinn hefur skap- að. „Margt í kringum börnin hefur raskast og þetta hefur skapað meiri vanda fyrir börn sem eru viðkvæm og þau sem eru í viðkvæmri stöðu.“ Freista þess að taka á kvíðavanda barna Morgunblaðið/Eggert Vandi Helmingur allra kvíðaraskana þróast fyrir 12 ára aldur og hátt í 7% barna greinast með kvíðaröskun einhvern tíma. Meðferð verður bætt. Með aðgerðaáætlun í heilbrigð- ismálum til fjögurra ára frá árinu 2016 var meðal annars sett fram það markmið að að- gengi á heilsugæslustöðvum að gagnreyndri meðferð sál- fræðinga við algengum geð- rænum vanda, svo sem þung- lyndi, kvíðaröskunum og áfallastreitu, yrði bætt. Því hafa heilsugæslustöðvar um allt land sett í forgang sál- fræðiþjónustu fyrir börn, ung- menni og fjölskyldur þeirra. Dr. Brynjar Halldórsson, sálfræð- ingur á LSH, klínískur dósent við Háskólann í Reykjavík og University of Oxford, hefur undanfarin þrjú ár kynnt gagn- reynda foreldramiðaða með- ferð við kvíða hjá 6-12 ára börnum hér á landi. Að sögn Guðríðar mun hann setja af stað rannsókn um áramótin þar sem árangur af þessari nýju meðferð verður metinn. Munu meta árangurinn DR. BRYNJAR RANNSAKAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.