Morgunblaðið - 08.12.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
Framkvæmdir Vinnuvélar eru á fullu þessa dagana í grunninum við horn Vatnsstígs og Laugavegar þar sem íbúðir munu rísa í stað gamalla bygginga sem þarna stóðu.
Árni Sæberg
Fyrir okkur sem höfum bar-
ist fyrir auknu frelsi launafólks
til að ávaxta lífeyrissparnað
sinn er ástæða til að fagna. Í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
arflokks og Vinstri-grænna eru
gefin fyrirheit um aukið frelsi:
„Við ætlum að renna styrkari
stoðum undir lífeyriskerfið og
stuðla að aukinni hagkvæmni
og fjölbreyttari ávöxtunar-
möguleikum. Útfærðar verða
leiðir til að auka frelsi fólks til að ráðstafa
viðbótarlífeyrissparnaði.“
Aukið frelsi til að ráðstafa séreign-
arsparnaði er mikilvægt skref í að ýta undir
samkeppni milli lífeyrissjóða en um leið
auka áhuga og vitund almennings um mik-
ilvægi fjárhagslegs sjálfstæðis. Í framhald-
inu er rétt að huga að því að veita launafólki
fullt frelsi til að velja sér lífeyrissjóð vegna
samtryggingarhluta iðgjalda, óháð kjara-
samningum og stéttarfélögum. Slík breyting
er í takt við vilja landsmanna samkvæmt
könnun sem Fréttablaðið greindi frá í mars
2017 en um 97% vilja fullt frelsi til að velja
lífeyrissjóð.
Fátt mun veita lífeyrissjóðunum meira að-
hald en aukin samkeppni um iðgjöld launa-
fólks. Og það mun leiða til aukinnar hag-
kvæmni lífeyrissjóðakerfisins.
Fjöregg þjóðar
Allar breytingar á lífeyrissjóðakerfinu
verða að vera vel ígrundaðar. Lífeyrissjóð-
irnir eru þrátt fyrir allt fjöregg okkar.
Fáum þjóðum hefur tekist með sama hætti
og okkur Íslendingum að byggja upp lífeyr-
iskerfi sem launafólk hefur getað treyst á.
Styrkleiki kerfisins er einn sterkasti horn-
steinn efnahagslegrar velferðar þjóðarinnar.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar gera sér
grein fyrir þessu og því verður
sérstök grænbók um lífeyrismál
„unnin í samvinnu við aðila
vinnumarkaðarins og lífeyr-
issjóði á fyrri hluta kjörtíma-
bilsins í því skyni að skapa
grundvöll fyrir umræðu, stefnu-
mörkun og ákvarðanir um líf-
eyriskerfið og framtíðarþróun
þess með heildstæðum hætti“. Í
stjórnarsáttmálanum segir að
meðal annars verði horft til
„einföldunar kerfisins og fjallað
um grundvallarforsendur varð-
andi hlutverk, uppbyggingu,
sjálfbærni og umfang sjóðanna í efnahagslíf-
inu, uppbyggingu réttinda og samspil milli
ólíkra stoða lífeyriskerfisins, nauðsynlega
hækkun lífeyrisaldurs og sveigjanleika til
töku lífeyris í samhengi við hækkandi líf-
aldur, tryggingafræðilegar forsendur, fjár-
festingarheimildir, starfsumhverfi og eft-
irlit“.
Kaldur hrollur
Í sinni einföldustu mynd byggist sparn-
aður launafólks á tveimur stoðum; verðmæti
eigin íbúðarhúsnæðis og lífeyrissparnaði.
Ég hef alltaf talið það eina af frum-
skyldum stjórnmála að byggja undir fjár-
hagslegt sjálfstæði fólks. Þessi frumskylda
hvílir þyngst á herðum okkar hægrimanna
enda sýna vinstrimenn oft lítinn skilning á
mikilvægi þess að auka möguleika fólks til
eignamyndunar. Að minnsta kosti hríslast
kaldur hrollur niður bak margra vinstrisinn-
aðra vina minna þegar ég ræði um drauminn
um að gera alla Íslendinga að kapítalistum –
að eignafólki sem á ekki aðeins eigið hús-
næði og góð lífeyrisréttindi heldur eru virkir
þátttakendur í atvinnulífinu.
Ég hef lengi barist fyrir því að auðvelda
launafólki að taka beinan þátt í atvinnulífinu
með kaupum á hlutabréfum. Skilvirkasta
leiðin er að heimila einstaklingum að draga
frá tekjuskatti kaup á skráðum hlutabréfum
og hlutdeildarskírteinum sem eru skráð á
skipulegan verðbréfamarkað. Frumvarp
þessa efnis verður lagt fram að nýju á þessu
þingi. Nái frumvarpið fram að ganga verður
ekki aðeins skotið enn einni stoðinni undir
eignamyndun almennings heldur er einnig
verið að byggja undir hlutabréfamarkaðinn
– gera hann skilvirkari, dýpri og auka að-
gengi fyrirtækja að áhættufé. Skattaaf-
sláttur vegna hlutabréfakaupa spilar vel
saman við hugmyndir um að auka frelsi
launafólks til að ráðstafa séreignarsparnaði
sínum.
Þannig færumst við nær því að draum-
urinn um fjárhagslegt sjálfstæði launafólks
rætist. Hagsmunir almennings og atvinnu-
lífsins verða betur samtvinnaðir. Á því getur
enginn tapað.
Samstarfsverkefni
Ég hef áður gert það að umtalsefni að líf-
eyrissjóðirnir á almennum vinnumarkaði séu
samstarfsverkefni launafólks og atvinnurek-
enda, sem hafa tekið höndum saman til að
tryggja launafólki lífeyri eftir að góðri
starfsævi lýkur en um leið veita sameig-
inlega tryggingavernd vegna örorku eða
veikinda.
Ábyrgð þeirra sem hafa tekið að sér
stjórn lífeyrissjóða er því ekki lítil. Launa-
fólk gerir þá skýru kröfu til stjórna og
starfsmanna sjóðanna að láta aðeins hags-
muni sjóðfélaga ráða för. Sjóðfélagar geta
aldrei sætt sig við að fjármunir þeirra séu
nýttir í valdabaráttu eða til að vinna að
framgangi sjónarmiða eða vinna gegn
ákveðnum fyrirtækjum, sem hafa ekkert
með hagsmuni þeirra að gera. Hafi for-
ystumenn verkalýðsfélaga eða atvinnurek-
enda ekki andlegan styrk til að virða sjálf-
stæði stjórna sjóðanna grafa þeir undan
lífskjörum launafólks.
Stærsta áskorun lífeyrissjóða á hverjum
tíma er að ávaxta fjármuni launafólks og oft
hafa möguleikarnir ekki verið margir. Þar
skipta áhættudreifing og fjölbreytilegir fjár-
festingarkostir mestu.
Það er rétt sem Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra hefur sagt að vísbendingar
séu um að lífeyrissjóðirnir þurfi meira svig-
rúm til fjárfestinga erlendis. Raunar má
leiða rök að því að skynsamlegt sé að aflétta
öllum hömlum á fjárfestingum í öðrum lönd-
um og jafnvel setja lágmarkskröfu um hlut-
fall erlendra eigna. Þannig verður fjöreggj-
unum dreift í fleiri en eina körfu.
Í stjórnarsáttmálanum kemur skýrt fram
að ríkisstjórnin áttar sig á mikilvægi þess að
lífeyrissjóðirnir eigi fjölbreytta möguleika til
að ávaxta fjármuni: „Stuðlað verður að því
að fjölga ávöxtunarmöguleikum lífeyrissjóð-
anna og möguleikum til aukinnar þátttöku í
innviðafjárfestingum og grænum fjárfest-
ingum.“
Ríkisstjórnin ætlar með öðrum orðum að
taka höndum saman við lífeyrissjóðina við
uppbyggingu mikilvægra innviða. Með því
vinnst tvennt. Annars vegar fá lífeyrissjóð-
irnir nýja fjárfestingarmöguleika sem sjóð-
félagar njóta í formi góðrar ávöxtunar og
hins vegar njóta allir landsmenn uppbygg-
ingar sterkari innviða, jafnt hagrænna og fé-
lagslegra.
Takist ríkisstjórninni ætlunarverk sitt í
lífeyrismálum með auknu frelsi, fjölbreyttari
ávöxtunarmöguleikum lífeyrissjóðanna og
öflugri uppbyggingu innviða getur margt
annað setið á hakanum.
Eftir Óla Björn Kárason »Ein af frumskyldum stjórn-
málanna er að byggja undir
fjárhagslegt sjálfstæði fólks.
Þessi skylda hvílir þyngst á
herðum okkar hægrimanna.
Óli Björn Kárason
Frelsi í lífeyrismálum aukið
Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.