Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 17

Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 Útför í kirkju Þjónusta kirkjunnar við andlát utforikirkju.is Kassagerð Reykjavíkur. Þar naut hann mikils trausts og starfaði um árabil. Síðar stofnaði hann ásamt öðrum Offsetþjónustuna sem varð hans aðalstarfsvettvangur eða þar til þeir félagar seldu fyrirtækið um það bil sem stafræn tölvu- tækni tók yfir í litgreiningu, sem gerði starf offsetljósmyndara að engu. Gunni tók þá meiraprófið og starfaði við rútuakstur í nokkur ár. Gunni hafði alla tíð mikinn áhuga á bílum og ekki síst mjög sérstökum, t.d. eignaðist hann Citroën FAF með boddí úr plasti, einnig Citroën CV, „braggann“, sem reyndist okkur afburða vel sem „torfærubíll“ þegar gaus í Skjólkvíum í Heklu 1970. Mjúk og slaglöng fjöðrun með eftirgefan- legri yfirbyggingu, fór bíllinn vel með okkur á vegaslóðum fjallsins, að vísu þurfti að herða nokkrar skrúfur og bolta í lok ferðar. Þá var hann með fyrstu mönnum til að „hækka upp“ Land Rover- jeppa, sem hann síðar seldi. Frétt- ir bárust síðar af að jeppanum hefði verið breytt aftur í fyrra horf, þótti hann ekki nógu stöð- ugur, en svona var þetta nú á ár- dögum jeppabreytinga. Þannig var hann alla tíð; hugaði að betri lausnum og notagildi. Gunnar spilaði golf í mörg ár bæði innanlands og utan. Ljós- myndun var alla tíð mikið áhuga- mál og voru margar Útivistar- ferðir farnar með myndavélartöskuna meðferðis, jafnt í göngu-, trúss- eða skála- undirbúningsferðum, þar var hann virkur félagi. Þá sá hann lengi um litgreiningu og uppsetn- ingu ferðablaðsins og ýmislegt í kringum myndakvöldin. Eignað- ist hann marga af sínum bestu vinum þar. Gunnar lenti í slysi 2015, eftir það náði hann sér aldrei alveg, en gat þó sinnt nær öllu eins og áður. Hann var mikill fjölskylduvinur, og fengu ekki síst afastrákarnir tveir að njóta þess, enda ríkti mik- il væntumþykja og trúnaður þeirra á milli. Hann var vinmarg- ur og átti sér enga óvildarmenn. Þín er sárt saknað. Kjartan B. Guðmundsson. Gunni bróðir lifði svo ríkulegu lífi og hafði svo margt fram að færa. Umvafinn vinum og fjöl- skyldu, elskaður af öllum og alls staðar velkominn. Hann var alls ekki búinn – en samt tekinn burt. Hann var pabbi, stjúpi, tengda- pabbi, afi, bróðir og sannarlega vinur vina sinna. Mamma minnt- ist þess oft þegar hún fór 6. júlí 1949 á spítalann til að eignast sitt annað barn. Kjartan kom í heim- inn og læknirinn sagði – „Það er víst annað barn frú Sigríður.“ Þannig virðast hjörtu tvíburanna hafa slegið í takt sem eitt hjarta frá upphafi. Og þeir héldu áfram að vera í takti með svipuð áhuga- mál og lífsýn. Kjartan vissi alltaf hvar Gunna var að finna og öfugt – þeir töluðu nær daglega saman. Alltaf verið að rugla þeim saman – nei ég er ekki Gunni, nei ég er ekki Kjartan – ég er hinn. Alveg eins en samt ekki eins. Gunni var sá hægláti. Þeir stórir og ég lítil og svo stolt af þeim. Gunni var ætíð til aðstoðar og ekki bara okkur í fjölskyldunni og lét þá eigin þarfir sitja á hakanum. Hann skrúfaði saman húsgögn, setti upp eldhúsinnréttingar, parketlagði, tengdi þvottavélar, setti upp þvottasnúru, skoðaði bíla og íbúðir, flutti allt milli him- ins og jarðar á stóra svarta Land Rovernum. Aldrei var komið að tómum kofunum hjá honum – hann var alltaf búinn að pæla allt til þrautar og finna út hvar gæðin og fegurðin lá í hlutunum. Hann var þúsundþjalasmiður og lista- maður. Hann var sinn eigin kenn- ari. Þannig lærði hann að teikna hús, byggja hús, smíða og inn- rétta, mála myndir, gera upp hús- gögn, taka ljósmyndir, framkalla myndir o.m.fl. Ekkert var gert nema vel gert – þar var honum ekki haggað og við lærðum af hon- um. „Gunni myndi aldrei sam- þykkja þetta,“ var þekkt setning. Hann var hamingjusamur þegar Hera og Njáll fóru að búa í húsinu hans, fyrst með honum þar til hann flutti. Þar var hann öllum stundum að klára húsið og garð- inn með þeim sem hann elskaði mest. Sinnti afastrákunum sínum af þeirri natni sem hann sýndi í öllum sínum verkum en kannski hvergi betur en í afahlutverkinu. Hann elskaði litlu drengina sína, Benjamín Gunnar og Brynjar Reyni, heitt og innilega. Hann hitti þá helst á hverjum degi, sótti þá í leikskólann, fór með þeim í ævintýraferðir út í náttúruna, las fyrir þá, teiknaði með þeim, smíð- aði, hann vildi ekki missa af neinu sem þeir gerðu og fylgdist grannt með því hvernig þeir tóku á móti lífinu. Hann sagði oft sögur af þeim með gleðiglampa í augum – hvernig þeirra tilsvör voru og hvað þeir hefðu lært þann daginn. Hann var svo stoltur og þeir voru sannkallaðir afastrákar, afi skyldi vera með í öllu. Gunni talaði alltaf við börn af virðingu og sem jafn- ingja en fannst líka mikilvægt að miðla til þeirra. Það var unun að sjá hversu samrýnd Hera og Gunni voru alla tíð. Hvílíkur feng- ur var svo að fá Njál inn í fjöl- skylduna þegar þau Hera tóku saman. Njáll og Gunnar urðu ein- staklega góðir vinir. Þar fóru góð- ir menn saman. Missir ungu fjöl- skyldunnar er mikill og ekki annað hægt að gera en að ylja sér við minningarnar og þakka fyrir sannarlega góðar stundir. Bryndís S. Guðmundsdóttir. Nú er elskulegur bróðir minn farinn. Svo óvænt að ég er varla farin að meðtaka það ennþá. Hann var á heilsubótargöngu með vin- um sínum, sem betur fer, þegar hann hnígur niður og hjartað hættir að slá. Þetta er auðvitað besta leiðin til að fara en bara ekki alveg strax! Þrátt fyrir hvað Gunni bróðir var hæglátur maður þá skilur hann eftir sig ótrúlega stórt skarð. Bróðir minn var svo lánsamur að eignast eina yndis- lega dóttur, Heru Brá, og voru þau alla tíð mjög náin. Hann var líka svo heppinn að eignast Njál fyrir tengdason. Þeir áttu mjög vel saman. Litlu drengirnir þeirra, Benjamín og Brynjar, voru mikið með afa sínum og hafa þeir misst mikið. Ég get ekki sagt eins og er sagt okkur hinum til huggunar að nú sé Gunni kominn á betri stað því hann var á góðum stað. Elsku litla fjölskylda, Hera, Njáll, Benjamín og Brynjar, ég samhryggist ykkur innilega. Ásta Guðmundsdóttir. - Fleiri minningargreinar um Gunnar S. Guðmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Páll Arnar Pétursson fæddist 31. ágúst 1934 í Reykjavík. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 25. nóv- ember 2021. For- eldar hans voru Pétur Pálsson, f. 1906, d. 1989, verkamaður, og Steinunn Sæ- mundsdóttir, f. 1908, d. 1989, húsmóðir. Systkini hans eru Sæmundur, f. 1943, og Stein- unn, f. 1945. Sonur Páls er Ólafur Þor- kell, f. 27. júlí 1954, móðir hans var Katla M. Ólafsdóttir. Fyrri eiginkona Ólafs er Jóhanna S. Sveinsdóttir. Dætur þeirra eru: 1) Kristín Þóra, f. 7. maí 1973, í sambúð með Hreiðari Geirs- syni og eiga þau tvær dætur og á Kristín einn son frá fyrra sambandi. 2) Ásthildur, f. 11. nóvember 1975, gift Matthíasi Zaiser og eiga þau tvo syni. 3) Erna Sif, f. 10. maí 1983, gift Finni Ei- ríkssyni og eiga þau þrjú börn. Eiginkona Ólafs er Lára Björnsdóttir og eiga þau eina dóttur, Kötlu Boghildi. Fyrir átti Lára son, Smára Ein- arsson. Páll lauk námi sem vél- virki frá Vélsmiðjunni Héðni og vann mikið í fiskimjöls- verksmiðjum og frystihúsum við uppsetningu á vélbúnaði um land allt. Seinna starfaði hann hjá Vegagerð ríkisins í fjölda ára. Páll bjó með for- eldrum sínum þar til þau lét- ust og seinna í sama húsi og systir hans og fjölskylda. Ár- ið 2018 fór Páll á hjúkrunar- heimilið Sunnuhlíð og bjó þar þar til hann lést. Útför Páls fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 8. des- ember 2021, klukkan 13. Elsku Palli minn, komið er að kveðjustund. Við höfum átt samleið sl. þrjátíu ár enda ég svo heppin að vera eina tengdadóttir þín. Þú varst tíður gestur á Hraun- braut 1, æskuheimili þínu, þeg- ar við bjuggum þar enda stutt að fara fyrir þig, þú áttir heima á nr. 7, ásamt Steinunni systur þinni og hennar fjölskyldu, það ber að þakka hversu vel var hugsað um þig þar. Gaman er að rifja upp ferða- lög okkar með þér, þú komst og gistir hjá okkur í hjólhýsinu í Þjórsárdal, þá var Katla á fyrsta ári og þú gafst henni fyrsta kóksopann við litla hrifn- ingu okkar foreldranna. Þú varst fljótur að koma þér út úr því: Afar mega allt. Austur á Fáskrúðsfjörð komstu nokkrum sinnum á þeim tíu árum sem við bjuggum þar. Eitt skiptið vorum við að fara í skálavörslu í Breiðuvík í Víkunum og þú varst með í för og naust þín úti í náttúrunni. Við lögðum net í ósnum og fengum þennan flotta lax sem var góður á grillið og þú og Katla afastelpan þín borðuðuð á ykkur gat. Við skruppum í Loðmundar- fjörð í þessari ferð og þar lent- um við í þvílíkum berjamó; allir dallar og pokar fylltir, ekkert okkar hafði séð annað eins. Já við fjölskyldan eigum margar góðar minningar um þig, og afabörnin Katla og Smári biðja að heilsa en þau áttu ekki heimangengt að koma við útför þína. Síðustu árin dvaldir þú í Sunnuhlíð við góða umönnun og það ber að þakka. Alzheimersjúkdómurinn tók þig frá okkur smátt og smátt, svo hvíldin var kærkomin fyrir þig elsku Palli minn. Ég hugsa vel um Óla þinn áfram. Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir, Lára Björnsdóttir. Í dag minnist ég Palla frænda míns sem hefur verið stór hluti af mínu lífi alla tíð. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að búa nálægt ömmu og afa, á meðan þau lifðu, og Palla frænda. Í hús- unum tveimur við Hraunbraut- ina höfum við öll fylgst að og þar var Palli mikilvægur hlekk- ur enda fjölskyldan honum afar kær. Palli var elstur af sínum systkinum og það var gaman þegar þau hittust systkinin, Palli, Sæmi og mamma. Þau rifjuðu upp gamla tíma, bernskubrek og stríðnissögur bræðranna gagnvart litlu syst- ur og oftast ræddu bræðurnir sameiginleg áhugamál sín, bíla og vélar. Palli lærði vélvirkjun og vann hjá Vegagerðinni við lok starfsævinnar. Menntun hans og reynsla fylgdi honum í einkalífinu því flest lék í hönd- unum á honum. Hann var sann- kallaður þúsundþjalasmiður og ef eitthvað var bilað eða skemmt gat hann lagað það. Átti það við jafnt um vélar, hús eða bíla – hann fann út úr því sem þurfti að laga. Hann var nýtinn og af honum og hans kynslóð getum við yngri kyn- slóðirnar lært mikið. Að nýta hlutina, farga ekki því sem er heilt og koma auga á notagildi hluta. Palli fylgdist vel með fréttum og þjóðfélagslegri um- ræðu og naut þess að rökræða enda var hann rökfastur og oft á tíðum þrjóskur. Hann var traustur, hjartahlýr, trygglynd- ur, fylginn sér og góður maður sem ég mun sakna sárt. Börnin mín, sérstaklega eldri tvö, kynntust Palla vel og nutu þess að heimsækja hann, hvort held- ur sem var á Hraunbrautina eða í Sunnuhlíð. Hann var mikil barnagæla og tók dætrum mín- um fagnandi og hann laumaði til þeirra sælgætismola, helst án þess að við foreldrarnir tækjum eftir. Á aðfangadag áttum við Palli okkur hefð; að tendra kerti við leiði ömmu og afa, en í ár breytist hefðin. Ég mun kveikja á kerti hjá þeim ömmu, afa og Palla. Þannig mun hefð- in okkar lifa áfram. Minning hans, nærvera, hugulsemi og hlýja mun alltaf fylgja mér og kann ég honum allar mínar hjartans þakkir fyrir að vera besti frændi í heimi. Elsku Óli, Lára, Stína, Ásta, Erna Sif, Smári og Katla – innilegar samúðarkveðjur til ykkar sem og til mömmu, Sæma og Péturs. Starfsfólki Sunnuhlíðar vil ég þakka kær- lega fyrir hlýja og góða umönn- un síðustu ár. Ég kveð Palla með söknuði, þakklæti og góð- um minningum. Steinunn Skúladóttir. Páll Arnar Pétursson Tilkynningar Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – V26 Ytri-Sólheimar Í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028. Breytingin fellst í sér að verslunar- og þjónustusvæði V26, Gisti- og ferðaþjónusta á Ytri-Sólheimum er stækkað úr 1,2 ha í 7,7 ha og nýtingarhlutfall lækkað í 0,1. Breytingartillagan og umhverfismatsskýrsla liggja frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík, á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is og á Skipu- lagsstofnun frá 9. desember 2021 til og með 22. janúar 2022. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif- stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 22. janúar 2022. Ytri-Sólheimar 1, 1A og lóð - deiliskipulag Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulagstillögu fyrir Ytri-Sólheimar 1, 1A og lóð. Deiliskipulagstillaga nær yfir jaðar Sólheimasands og tekur til hluta af jörðinni Ytri-Sólheimum 1 L163037, Ytri-Sólheimum 1a L226302, og Ytri-Sólheimum lóð L210360. Svæðið er við Mýrdalsjökulsveg nr. 222 austan við Húsá á Sólheimasandi og er um 8,45 ha að stærð. Deiliskipulagstillagan og umhverfismatsskýrsla liggja frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps www.vik.is frá 9. desember 2021 til og með 22. janúar 2022. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrif- stofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 22. janúar 2022. George Frumuselu Skipulags- og byggingarfulltrúi Mýrdalshrepps Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags- og byggingarfulltrúi Smáauglýsingar Bækur Bækur Bækur úr bílskúrnum. Opin sölusíða á Facebook Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr 2021 Nissan Leaf e+ 62 kWh Tekna 3ja ára evrópsk verksmiðju- ábyrgð. Með öllu sem hægt er að fá í þessa bíla. Reykgrár – hvítur og dökkgrár. 800.000 undir tilboðsverði um- boðs á aðeins 4.990.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar mbl.is alltaf - allstaðar ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.