Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
50 ÁRA Kristín er frá Dalvík en býr í
Reykjavík. Hún er með grunnskólakennara-
próf og meistaragráðu í almannatengslum frá
Stirling-háskóla í Skotlandi. Hún rekur eigið
fyrirtæki sem heitir April almannatengsl. „Það
sinnir almannatengslum og markaðsmálum í
frekar víðum skilningi þess orðs en ég er að-
allega með fasta viðskiptavini sem eru fyrir-
tæki í ýmsum atvinnugreinum. Þetta er mjög
skemmtilegt og fjölbreytt starf og alltaf eitt-
hvað nýtt að gerast og nýju fólki að kynnast.“
Kristín er í kór sem heitir Spectrum, kven-
veiðifélaginu Barmarnir og er félagskona í
FKA. „Spectrum var einmitt með tónleika í
fyrradag, en hann er metnaðarfullur og flottur
kór.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Kristínar er Rúnar Dýrmundur Bjarnason, f.
1973, umhverfissérfræðingur hjá Mannviti. Börn þeirra eru Bjarni Ívar, f.
1997, Ísold Kristín, f. 1999, og Gísli Dan, f. 2006. Foreldrar Kristínar voru
Jóhann Kr. Daníelsson, f. 1927, d. 2015, kennari og söngvari, og Gíslína Hlíf
Gísladóttir, f. 1935, d. 2009, fulltrúi sýslumanns á Dalvík.
Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Umræðuefnið sem þú bryddar upp
á í vinnunni á eftir að hafa mikil áhrif á
vinnuandann. Þú ert full/ur af hugmyndum
og veist hreinlega ekki hvernig þú átt að
koma þeim frá þér.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er alveg kominn tími til þess að
þú breytir einhverju í kringum þig heima
fyrir. Leitaðu eftir tækifærum til að gera
góðverk.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sæktu þér hjálp þar sem þú veist
að hana er að finna. Ekki spila rassinn úr
buxunum, það er engin ástæða til þess.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Láttu ekki minniháttar persónuleg
vandamál byrgja þér sýn, þú ert í góðum
málum með öll þín mál.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hugsar mikið um tilgang lífsins
þessa dagana. Með innsæið að vopni, og
með því að reyna að vera næm/ur á tilfinn-
ingar annarra, kemstu langt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur tekið fullmörg verkefni að
þér og sýpur nú seyðið af því skipulags-
leysi. Þú getur reiðst og/eða streist á móti,
það er bara verst fyrir þig. Sýndu sam-
starfsvilja.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Allt virðist ætla að ganga upp hjá þér
svo það er ærin ástæða til að fagna með
góðum vinum. Mundu að brennt barn forð-
ast eldinn.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Notaðu daginn til þess að fara
í saumana á lífi þínu og skoða markmið þín.
Gáðu að því hvernig þú talar við aðra og öf-
ugt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er svo auðvelt að fylgja
straumnum en erfiðara að standa á sínu.
Stilltu þig um að hlaupa á eftir tískubylgj-
um.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er engin ástæða til að týna
sér í sjálfsvorkunn. Margir hafa reynt það
sama og þú og komist vel frá því.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú heldur þig vita til hvers fólk
ætlast af þér – reyndar ertu viss um að
geta lesið hugsanir. Ekki láta glepjast af
fagurgala sem kemur inn í líf þitt fljótlega.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Lausnin á vandamáli þínu er akkúrat
öfugt við það sem þú hélst í fyrstu. Mundu
eftir að þakka fyrir það sem gott er í lífinu.
Jón Örn hóf síðan störf hjá Ís-
lensku auglýsingastofunni og vann
þar við hugmyndasmíði, textagerð
og bæklingaskrif. „Það gjörðist
þannig að sumarið 1989 hafði góður
maður samband við mig og bauð mér
þetta starf. Eftir 15 ár hjá ríkis-
útvarpinu þótti mér freistandi til-
breyting að reyna fyrir mér á alls
óskyldum vettvangi og á eilítið betri
launum en voru í boði hjá ríkinu.
Þarna vann ég með góðu fólki og
inu, „gömlu Gufunni“ við Skúlagötu
4. Þar var hann fyrst fréttamaður á
fréttastofu Útvarps í sex ár, síðan
varadagskrárstjóri í eitt ár og loks
tónlistarstjóri í átta ár. „Ég held ég
megi fullyrða að á skemmtilegri og
þroskavænlegri vinnustað hef ég
ekki unnið, hvorki fyrr né síðar. Þar
kynntist ég fjölmörgum ógleyman-
legum samstarfsmönnum og varð-
veiti dýrmætar minningar frá Skúla-
götu og Efstaleiti.“
J
ón Örn Marinósson fæddist
8. desember 1946 á Reyni-
mel 37 í Reykjavík og ólst
þar upp fyrstu tvo áratugi
ævinnar. „Ég telst því
óumdeilanlega innfæddur Reykvík-
ingur en er svo að auki eins sunn-
lenskur og eitthvað sunnlenskt getur
orðið; slóðir forfeðra minna eru í Ölf-
usi, á Eyrarbakka, í Flóa, á Rang-
árvöllum og Landi og í Meðallandi.
Til að bæta mér upp þessa sunn-
lensku einhæfni var ég sendur í sveit
til Skagafjarðar þegar ég var 11 ára.
Þar tók ég út þroska í sjö sumur í
Holtsmúla í Staðarhreppi og naut
þeirrar forfrömunar undir lokin að
vera nefndur „Jón í Holtsmúla“ þeg-
ar skipt var niður verkum í göng-
um.“
Jón Örn sótti sér grunnmenntun í
Melaskóla og Hagaskóla og lærði
meðfram því á píanó. Eftir þáver-
andi landspróf fór hann í Mennta-
skólann í Reykjavík. „Ég átti þar
fjögur ógleymanleg ár en eftir stúd-
entspróf taldi ég rétt að taka mér
hvíld frá námsbókum. Þar sem ég
hafði kynnst nær eingöngu sjálf-
stæðismönnum á æskuheimili mínu
og í Skagafirði þótti mér fýsilegt að
fá svolitla nasasjón af framsóknar-
mönnum og réðst því til starfa sem
„skríbent“ í eitt ár hjá Sunnudags-
blaði Tímans undir handleiðslu Jóns
Helgasonar ritstjóra. Þetta var lær-
dómsríkt ár sem færði mér heim
sanninn um að framsóknarmenn
voru nær allir mætir menn og eru
það flestir eflaust enn. Ég réð þó af
að verða ekki framsóknarmaður
enda óvíst að ég hefði þá kosti til
sveigjanleika sem prýða framsókn-
armenn.“
Að loknu starfsnámi hjá Jóni
Helgasyni á Tímanum tók Jón Örn
eitt ár í íslensku og sögu í Háskóla
Íslands. „Mér þótti kennslan hjá
flestum fremur daufleg og réð því af
eftir nokkra umhugsun að leggja
stund á lögfræði. Mér sóttist námið
sisona þokkalega og náði lögfræði-
prófi í júní árið 1974. Ég náði bestu
einkunn í þjóðarrétti en sú kunnátta
hefur aldrei komið mér að nokkrum
notum.“ Þá um haustið 1974 réðst
Jón Örn til starfa hjá Ríkisútvarp-
fékk nasasjón af hvernig hlutirnir
ganga fyrir sig í viðskiptalífinu á Ís-
landi. Ég var starfsmaður á „Ís-
lensku“ allt þar til „hrunið“ illræmda
varð til þess að ég mátti sjá fyrir mér
eftir það með því sem skattyfirvöld
nefna „sjálfstæða atvinnustarfsemi“
en við einyrkjar köllum gjarnan
„hark“.
Meðfram þeim störfum, sem talin
voru hér á undan, fékkst ég við að
skrifa eitt og annað fyrir útvarp,
gamansama og „íróníska“ pistla um
málefni líðandi stundar, Flóamanna-
rollu og sitthvað fleira sem markaði
engin tímamót í íslenskri bók-
menntasögu en skemmti sjálfum
mér ágætlega. Auk þess tók ég sam-
an fjöldann allan af þáttum um sí-
gilda tónlist á mínum útvarpsárum.
Nú – úr því að maður er orðinn
hálfáttræður hef ég haft fremur
hægt um mig á opinberum vettvangi
enda full vinna að eldast hægt og
hægt, reyna að botna í greiðslukerfi
Tryggingastofnunar, nöldra í sífellu
út í stjórnvöld fyrir framkomu þeirra
gagnvart eldri borgurum og safna
fyrir sisona eins og einum „implant“.
Ég hef aldrei verið ofstækisfullur
„nörd“ þegar kemur að áhugamálum
en nálgast þó eiginlega áráttu hvað
mér þykir nauðsynlegt að fylgjast
með veðurfregnum og fréttum (arf-
leifð frá dvölinni í Skagafirði og á
fréttastofunni). En vissulega get ég
nefnt með góðri samvisku að sígild
tónlist, bókmenntir, saga og stjórn-
mál eru áhugamál sem stytta mér
stundir og gefa lífi mínu nokkurt
gildi. En framar öllu hef ég notið
þess og er þakklátur fyrir að hafa
notið samvista við einstaka og ynd-
islega eiginkonu í nærri hálfa öld,
þrjú börn mín og sex barnabörn.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Arnar er Sigríður
D. Sæmundsdóttir, f. 15.11. 1947, á
eftirlaunum. Þau bjuggu fyrst í níu
ár í Sörlaskjóli í Reykjavík, síðan í 21
ár á Seltjarnarnesi, í 13 ár í Kópa-
vogi og síðan i janúar 2016 hafa þau
búið á Víðimel 70 í Vesturbæ
Reykjavíkur. Foreldrar Sigríðar
voru hjónin Sæmundur Kristjáns-
son, f. 2.9. 1909, d. 5.11. 1982, vél-
Jón Örn Marinósson, á eftirlaunum – 75 ára
Í Biskupstungum Jón Örn og Sigríður með nokkrum sýnishornum af fjöl-
skyldu sinni á veröndinni í sumarbústaðnum, Marteinsseli, neðst í Haukadal.
Er ekki bara best að vera 75?
Afmælisbarnið Jón Örn á góðri stundu í Kvosinni fyrir þremur árum.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Helena Katrín Daníels-
dóttir fæddist 30. nóvember 2021 kl.
0.34. Hún vó 4.460 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Hulda
Sveindís Jóhannesdóttir og Daníel
Grímur Kristjánsson.
Nýr borgari
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heilsa
&útivist
–– Meira fyrir lesendur
Nú er tíminn til að
huga að betri heilsu
og bættum lífstíl.
Í blaðinu verður kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir fimmtudaginn 23. desember.
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. janúar
SÉRBLAÐ