Morgunblaðið - 08.12.2021, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
stjóri, og Benedikta Þorsteinsdóttir,
f. 20.5. 1920, d. 6.5. 2011, húsmóðir.
Þau bjuggu í Reykjavík.
Börn Jóns Arnar og Sigríðar eru:
1) Melkorka, f. 14.1. 1972, forstöðu-
maður skóla- og velferðarþjónustu
Árnesþings, búsett í Reykjavík.
Sambýlismaður: Kjartan Long, f.
12.7. 1972. Barn: Elísa Guðrún Agn-
arsdóttir, f. 3.2. 1994; 2) Brynjólfur
Borgar, f. 1.11. 1974, stofnandi og
forstjóri DataLab Ísland, búsettur í
Reykjavík. Maki: María Reynis-
dóttir, f. 1.7. 1976, sérfræðingur á
skrifstofu ferðamála í atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneyti. Börn:
Sveinn Marinó, f. 2.7. 2007; Vigdís, f.
26.7. 2010; 3) Ragnhildur, f. 20.11.
1981, teymisstjóri hjá Sambýlinu við
Hólmasund í Reykjavík, búsett í
Reykjavík. Sambýlismaður: Lukasz
Bogdan Stencel, f. 22.2. 1981. Börn:
Embla Gabríela, f. 9.12. 2008, Týr, f.
28.8. 2012, Askur, f. 27.11. 2019.
Systkini Jóns Arnar: Lovísa
Margrét Marinósdóttir, f. 4.9. 1937,
og Sigrún Ólöf Marinósdóttir, f. 6.2.
1941, d. 15.2. 2021.
Foreldrar Jóns Arnar voru hjónin
Marinó Ólafsson, f. 16.6. 1912, d.
26.5. 1985, verslunarmaður, og Guð-
rún Jónsdóttir, f. 27.10. 1913, d. 2.1.
1997, húsfreyja. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Jón Örn
Marinósson
Þórey Sveinsdóttir
húsfreyja, f. í Simbakoti
Brynjólfur Vigfússon
trésmiður í Simbakoti á
Eyrarbakka, f. á Söndum í
Meðallandi
Margrét Sigríður
Brynjólfsdóttir
húsfr. í Rvík og á Eyrarbakka
Jón Gíslason
sjómaður og verkamaður í
Reykjavík, síðar á Eyrarbakka
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Rvík,
uppeldisforeldrar: Jón
Eyvindsson og Kristjana
Lovísa Ísleifsdóttir
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja, f. á Stóra-Núpi í
Gnúpverjahr.
Gísli Jónsson
sjóm. í Eyvakoti á Eyrarbakka, f.
á Litlu-Háeyri á Eyrarbakka
Sigríður Eiríksdóttir
húsfr., f. á Tjörvastöðum á Landi
Halldór Böðvarsson
bóndi í Holtsmúla og Neðra-Seli
á Landi og loks í Lágum í Ölfusi,
f. á Reynifelli á Rangárvöllum
Sigborg Halldórsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ólafur Þórðarson
ökumaður og kyndari í Reykjavík
Guðný Helgadóttir
húsfreyja, f. á Læk í Ölfusi
Þórður Jónsson
bóndi lengst af í Króki í Arnar-
bælishverfi í Ölfusi, f. í Sogni
Ætt Jóns Arnar Marinóssonar
Marinó Ólafsson
verslunarmaður í Reykjavík
„ÁTTU SAMA MÓDEL FYRIR ÖRVHENTA?“ „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ OPNA EKKI TÖSKUNA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera samstiga.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HRÓLFUR ER MIKIÐ
FYRIR AÐ SKIPA
MÖNNUM FYRIR!
ÉG SÉ
EKKERT
AÐ ÞVÍ!
SÉRSTAKLEGA ÞEGAR
HANN SPLÆSIR!
LAUKHRINGI OG RIF
FYRIR ALLT BORÐIÐ…
OG LÁTTU BJÓRINN
FLÆÐA!
NOTAÐIR
BÍLAR
ÞJÓNUSTU-
VERKSTÆÐI
Hér eru þrjár hringhendur sem
tónlistarmaðurinn Reynir
Jónasson sendi Vísnahorni. Faðir
Reynis, Jónas Friðriksson (1896-
1983) á Helgastöðum í Reykjadal,
setti þær saman, liggjandi á sjúkra-
húsi:
Ég er orðinn alveg frá,
allur úr skorðum genginn.
Gefur borðin bæði á,
broti forðar enginn.
Nú er fátt sem gleður geð,
góðs er máttur fjarri.
Hvíli ég lágt á kvalabeð,
kominn háttum nærri.
Fjörið þrýtur, þrekið dvín,
þreyttur hnýt að beði.
Enginn lítur inn til mín,
engrar nýt ég gleði.
Ingólfur Ómar skaut að mér
þessari stöku „þar sem nú er komið
talsvert frost. Annars eru veður
breytileg eftir dögum á þessum árs-
tíma“:
Þó nú sé úti frost og fönn
er fjör á bragaslóðum.
Ekki vefst mér tunga um tönn
og tala því í ljóðum.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Í vinnu ég var
en veit nokkur hvar
ég mæti á morgun?
Ég spenntur hef spurt:
Mín spor liggja – hvurt?
Má búast við borgun?
Pétur Stefánsson orti þessar
tvær vetrarvísur:
Kyljur harðar kjúkur bíta,
krókna döpur gróðurstrá.
Klæðir foldu fönnin hvíta,
flæða ský um loftin blá.
Smýgur frost um gil og gjár,
grund er köld og hrakin.
Skýin hvít og himinn blár,
heimur fönnum þakinn.
Friðrik Steingrímsson orti eftir
atkvæðagreiðslu á þingi á föstudag:
Ég vil stýra stjórnarmynstri
stimpast við það lengi enn,
helst að kæra hægri, vinstri
og hýrudraga nefndarmenn.
Á Boðnarmiði yrkir Atli Harð-
arson við mynd af stækkunargleri:
Í náköldu netþjónabúi
nem’ allt sem talað er hér
vélar og víst mun sá grúi
vista hvert lífsmark hjá mér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Misjafnt er
gengi manna