Morgunblaðið - 08.12.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 08.12.2021, Síða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021 _ Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson mun yfirgefa Gautaborg þegar samningur hans við sænska úr- valsdeildarfélagið rennur út um ára- mótin. Þetta tilkynnti félagið á heima- síðu sinni í gær. Kolbeinn lék fyrstu 17 leiki liðsins í deildinni á árinu og skor- aði fjögur mörk en lék ekkert eftir að hann var settur í ótímabundið leyfi í byrjun september vegna ofbeldismáls frá árinu 2017. Þá fór hann jafnframt í aðgerð vegna meiðsla. _ Þrír Íslendingar eru í úrvalsliði Evr- ópumótsins í hópfimleikum sem fram fór í Portúgal. Ásta Kristinsdóttir, Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kolbrún Þöll Þorradóttir voru valin í úrvalsliðið en í því eru sex bestu karlar og sex bestu konur mótsins. Þá var hin sex- tán ára gamla Auður Helga Halldórs- dóttir valin efnilegasti keppandinn í stúlknaflokki. _ Ragnar Friðbjarnarson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari í sundi hjá Íþróttasambandi fatlaðra. Í tilkynning- unni frá ÍF segir að Ragnar hafi lengi verið í fagteymi sambandsins og sé öllum hnútum kunnugur. Hann var með í för á Paralympics 2016 og 2021. Eitt ogannað HM kvenna Leikið á Spáni: A-RIÐILL: Frakkland – Svartfjallaland................ 24:19 Angóla – Slóvenía ................................. 25:25 Lokastaðan: Frakkland 6, Slóvenía 3, Svartfjallaland 2, Angóla 1. B-RIÐILL: Kamerún – Pólland .............................. 19:33 Rússland – Serbía................................. 32:22 Lokastaðan: Rússland 6, Serbía 4, Pólland 2, Kamerún 0. C-RIÐILL: Noregur – Rúmenía ............................ 33:22 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Kasakstan – Íran .................................. 31:25 Lokastaðan: Noregur 6, Rúmenía 4, Kasakstan 2, Íran 0. D-RIÐILL: Holland – Svíþjóð ................................. 31:31 Púertó Ríkó – Úsbekistan ................... 30:24 Lokastaðan: Holland 5, Svíþjóð 5, Púertó Ríkó 2, Úsbek- istan 0. _ Þrjú efstu lið í A- og B-riðli fara í milli- riðil eitt. _ Þrjú efstu lið í C- og D-riðli fara í milli- riðil tvö. _ Í milliriðli þrjú eru Danmörk, Þýskaland, Suður-Kórea, Ungverjaland, Tékkland og Kongó. _ Í milliriðli fjögur eru Spánn, Brasilía, Japan, Argentína, Króatía og Austurríki. _ Neðstu lið riðlanna fara í Forsetabikar- inn og leika um sæti 25 til 32. Evrópudeild karla B-RIÐILL: GOG – Lemgo....................................... 34:28 - Viktor Gísli Hallgrímsson lék ekki í marki GOG. - Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir Lemgo og var markahæstur. _ GOG 9, Benfica 9, Nantes 8, Lemgo 8, Medvedi 2, Cocks 0. C-RIÐILL: Magdeburg – Nexe.............................. 32:26 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson lék ekki með liðinu. La Rioja – Aix....................................... 33:26 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Aix. _ Magdeburg 9, Sävehof 8, Nexe 8, La Rioja 5, Gorenje 3, Aix 1. D-RIÐILL: AEK Aþena – Kadetten ...................... 28:31 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. _ Nimes 9, Pelister 8, Sporting Lissabon 7, Kadetten 6, AEK 4, Tatabánya 2. .$0-!)49, KSÍ Bjarni Helgason Víðir Sigurðsson „Þetta eru vissulega erfið mál en við fögnum því engu að síður að það sé komin niðurstaða hjá úttektarnefnd- inni,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, í samtali við Morgun- blaðið eftir að úttektarnefnd ÍSÍ kynnti í gær niðurstöður sínar, þar sem viðbrögð og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í lands- liðum Íslands voru skoðuð ítarlega. Nefndina skipuðu Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari sem var formaður hennar, Hafrún Kristjáns- dóttir sálfræðingur og Rán Ingvars- dóttir lögfræðingur. „Við lítum svo á að þetta sé enn eitt púslið í þeirri vegferð sem við erum á að gera góða hreyfingu ennþá betri. Þetta er mjög vönduð skýrsla í alla staði og í henni eru góð ráð og punktar sem við munum halda áfram að vinna með í okkar stefnumótun.“ Viljum að allir séu öruggir „Starfshópur á vegum ÍSÍ er að vinna að því að endurskoða allar reglur innan íþróttahreyfingarinnar í þessum málaflokki, sem er mjög já- kvætt. Við viljum að okkar fólk og allir sem eru hluti af hreyfingunni séu örugg í okkar umhverfi og það er ástæðan fyrir því að við fórum af stað í þessa vinnu til að byrja með,“ sagði Vanda. Stjórn KSÍ mun fara ítarlega yfir skýrslu úttektarnefndarinnar á stjórnarfundi sambandsins í næstu viku. „Núna mun ég setjast niður með starfsfólki og stjórn KSÍ þar sem við munum fara ennþá betur yfir það sem kemur fram í skýrslu úttektar- nefndarinnar. Þetta eru góð gögn með miklum upplýsingum og það er okkar að greina hana eins og best verður á kosið. Þetta eru flókin mál sem tekur tíma að vinna úr. Við þurfum að vanda okkur og fylgja settum reglum og lögum auðvitað þar sem vinnuverndar- og persónuverndar- lög eru ekki brotin.“ Aðspurð hver væru næstu skref sambandsins í þessum málaflokki sagði Vanda: „Við höfum rætt það innan sam- bandsins að boða til blaðamanna- fundar þegar við höfum farið betur yfir skýrsluna en fyrst þurfum við að fá að leggjast almennilega yfir þetta.“ Ítarlegar niðurstöður Í ítarlegum niðurstöðum í skýrsl- unni kemur m.a. fram að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri hafi 3. júní 2021 haft vitneskju um að frá- sögn um alvarlegt kynferðisofbeldi sem birtist í opinni færslu á Insta- gram tæplega mánuði áður tengdist tveimur leikmönnum í A-landsliði Ís- lands. Þar er vísað til atviks í Kaup- mannahöfn árið 2010. _ Starfsmaður KSÍ, sem er tengdamóðir viðkomandi konu, hafi rætt málið ítrekað við þau bæði og Guðni rætt við annan leikmannanna. _ Ljóst sé að stjórnarfólki KSÍ hafi verið ókunnugt um tengslin og frásögn af kæru en tölvupósts- samskipti í stjórn KSÍ gefi það ein- dregið til kynna. _ Ekki sé hægt að sjá að fram- ganga stjórnar, framkvæmdastjóra eða annarra starfsmanna varðandi meðferð frásagna um ofbeldi beri einkenni þöggunar- og nauðgunar- menningar umfram það sem al- mennt gerist í samfélaginu. _ Þáverandi formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, hafi ásamt fleirum innan sambandsins haft vitneskju um tilkynningar um ólæti og grun um heimilisofbeldi á dvalarstað leik- manns landsliðsins 5. júlí 2016, eftir heimkomu landsliðsins frá EM í Frakklandi. _ Athugunarvert sé að formað- urinn hafi rætt við almannatengil vegna málsins, þrátt fyrir skýringar um að málið hafi aldrei verið „form- lega á borði KSÍ og um einkalíf leik- mannsins var að ræða“. _ KSÍ hafi brugðist strax við ábendingu um að lögregla hefði til meðferðar kæru vegna ofbeldis leik- manns á skemmtistað haustið 2017 og sent hann úr landsliðsverkefni. _ Niðurstöðurnar eru birtar í heild sinni á mbl.is/sport ásamt yfir- lýsingu Guðna Bergssonar. Fögnum því að fá niðurstöðu - Ítarleg skýrsla frá úttektarnefnd ÍSÍ vegna viðbragða og málsmeðferðar KSÍ - Góð ráð og punktar sem við vinnum með, segir Vanda Sigurgeirsdóttir Morgunblaðið/Eggert Úttektarnefndin Rán Ingvarsdóttir, Kjartan Bjarni Björgvinsson og Haf- rún Kristjánsdóttir kynna niðurstöðurnar á fréttamannafundi í gær. Ísland átti fjóra keppendur í flokk- um fatlaðra á Norðurlandamótinu í sundi í Väsby í Svíþjóð um síðustu helgi, og allir unnu til verðlauna. Guðfinnur Karlsson úr Firði fékk bronsverðlaun í 100 metra bak- sundi og 400 metra bringusundi í flokki S11. Sonja Sigurðardóttir úr ÍFR fékk silfurverðlaun í 50 metra baksundi í flokki S4. Þórey Ísafold Magnúsdóttir úr KR fékk silfur- verðlaun í 100 metra bringusundi í flokki S14. Thelma Björg Björns- dóttir úr ÍFR fékk bronsverðlaun í 100 metra bringusundi í flokki SB5. Öll fjögur unnu til verðlauna á NM Ljósmynd/ÍF Norðurlandamót Guðfinnur, Þórey, Sonja og Thelma kepptu í Väsby. Hásteinsvöllur, aðalknatt- spyrnuvöllurinn í Vestmanna- eyjum, verður lagður gervigrasi með flóðlýsingu fyrir keppnis- tímabilið 2023. Þar hefur ÍBV leikið heimaleiki sína á grasi frá árinu 1963. Haraldur Pálsson fram- kvæmdastjóri ÍBV staðfesti við Fréttablaðið í gær að þetta hefði verið samþykkt sem forgangsverk- efni á félagsfundi hjá ÍBV. Fram- kvæmdir eiga að hefjast næsta haust, strax að loknu keppnis- tímabilinu 2022, og stefnt er að því að geta hafið tímabilið 2023 þar. Gervigras lagt á Hásteinsvöll Ljósmynd/Sigfús Gunnar Eyjar ÍBV hefur leikið heimaleiki á Hásteinsvelli í tæp sextíu ár. Breiðablik leikur í kvöld síðasta heimaleik sinn í riðlakeppni Meist- aradeildar kvenna í knattspyrnu þegar Breiðablik tekur á móti stórliði Real Madríd klukkan 20. Breiðablik er með eitt stig í keppninni eftir fjóra leiki en liðið á enn eftir að skora mark og reynir að bæta úr því í kvöld. Ósennilegt er að mótsleikur í knattspyrnu hafi áður farið farið fram utandyra á Íslandi á þessum árstíma. Vel viðraði til knatt- spyrnuiðkunar í Kópavoginum í gær þótt vafalaust verði viðbrigði fyrir konur búsettar í Madríd að spila á íslensku vetrarkvöldi. Í gær mátti sjá snjó og klaka í kringum upphitaðan völlinn. Vegna sóttvarnareglna þurfa áhorfendur að framvísa nið- urstöðum úr hraðprófi til að sækja leikinn en tvö fimm hundruð manna sóttvarnahólf eru í stúk- unni á Kópavogsvelli. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, leikmaður Breiðabliks, sagði á blaðamannafundi í Smáranum í gær að liðið hefði reynt að und- irbúa sig eins vel og kostur væri fyrir leikinn á morgun. Til dæmis með því að spila æfingaleiki við ís- lensk félagslið. Liðið væri í ágætu standi þótt komið sé fram í desem- ber en augljóslega sé leikæfingin ekki sú sama og meðan á Íslands- mótinu stendur. Hafrún Rakel segir að til að skora gegn stórliðum eins og Real Madríd eða París St. Germain þurfi að grípa tækifærin sem bjóð- ast. Marktækifærin séu ekki það mörg gegn slíkum andstæðingum. kris@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Meistaradeild Hafrún Rakel Halldórsdóttir í Evrópuleik fyrr á tímabilinu. Síðasti leikur Blika á heimavelli - Real Madríd leikur í Kópavogi í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.