Morgunblaðið - 08.12.2021, Síða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
CHAN MADDEN NANJIANI McHUGH HENRY RIDLOFF
BARRY
KEOGHAN
DON
LEE
WITH KIT
HARINGTON
WITH SALMA
HAYEK
AND ANGELINA
JOLIE
O B S E R V E R E N T E R TA I N M E N T
94%
Frábær ný Fjölskyldumynd frá Disney
sýnd með Íslensku og Ensku tali
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur er margt
til lista lagt. Hún starfar sem mynd-
listamaður, myndasöguhöfundur og
rithöfundur auk þesss sem hún er
einn liðsmanna hinnar vinsælu
hljómsveitar FM Belfast. Hún sagði
frá störfum sínum í Dagmálum,
frétta- og dægurmálaþætti Morgun-
blaðsins. Þar sagðist hún elta tilvilj-
anirnar sem koma upp í hversdeg-
inum. Það að hafa verið opin og
forvitin hafi komið henni á þann
stað sem hún er á í dag.
Lóa teiknaði eina mynd á dag allt
árið 2020 og úr varð bókin Dæs,
sem er bæði skemmtileg og falleg
myndræn lýsing á því óvenjulega
ári. Hún skrifaði og teiknaði einnig
barnabókina Grísafjörð og var bæði
tilnefnd til barnabókaverðlauna
Norðurlandaráðs og í flokki barna-
bóka á Íslensku bókmenntaverð-
laununum.
Lóa þykir einstaklega fyndin og
hefur hún til dæmis verið valin í hóp
þeirra sem skrifa Áramótaskaupið.
Það hefur verið ákveðin jafn-
vægislist fyrir hana að reyna að sjá
fyrir sér með listinni. Lóa segir það
geta verið erfitt að tengja list-
sköpun við peninga, listamenn verði
að fá að gera tilraunir án þess að
hugsa um að þær seljist vel.
Í Dagmálum segir Lóa einnig frá
áhuga sínum á buxnadrögtum og
hvernig hann hefur leitt til sýningar
sem opnar í Listasafni Árnesinga í
febrúar. Hún sagði einnig frá mörg-
um skemmtilegum atvikum, því
þegar hún ullaði á gagnrýnanda
sem hafði skrifað dóm um leikverk
eftir hana og því þegar hún gerði í
því að reyna að ná augnsambandi
við gesti Reðursafnsins úr bílnum
sínum.
Það síðarnefnda varð uppspretta
hlaðvarpsþátta sem hún gerði bara
fyrir sjálfa sig og er það dæmi um
það hvernig hún reynir stöðugt að
skemmta sjálfri sér í hversdeginum.
Lóa hefur gert áhugamálin að
fullu starfi og því finnst henni mikil-
vægt að finna ný áhugamál þar sem
engin pressa er á henni. Trommu-
leikur er nýjasta áhugamálið. „Það
er mjög frelsandi að þurfa ekki að
vera góð í því, að engum þurfi að
finnast þetta góð pæling nema mér
og trommukennaranum mínum.“
Opin, forvitin og
eltir tilviljanirnar
- Lóa H. Hjálmtýsdóttir í Dagmálum
Morgunblaðið/Hallur
Listakonan Í Dagmálum segir Lóa meðal annars frá áhuga sínum á buxna-
drögtum og mikilvægi þess að skemmta sjálfri sér í hversdeginum.
Bresk-tansaníski rithöfundurinn
Adulrazak Gurnah, sem tilkynnt var
í liðnum mánuði að hreppti Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum í ár, tók
við verðlaunaskjalinu við athöfn á
heimili sænska sendiherrans í Bret-
landi á mánudag. Vegna heimsfar-
aldurs kórónuveirunnar hefur hin
annars árvissa nóbelshátíð í Stokk-
hólmi verið slegin af og taka nóbels-
verðlaunahafar við viðurkenning-
unum í heimalöndum sínum.
Síðan hann var tvítugur hefur
Gurnah að mestu verið búsettur í
Bretlandi þar sem hann hefur kennt
bókmenntir við háskóla. Í umsögn
sænsku akademíunnar segir að
Gurnah fái verðlaunin fyrir „óvægna
en samúðarfulla umfjöllun um áhrif
nýlendustefnu og örlög flóttamanna
í dýpinu sem er á milli menningar-
heima og heimsálfa“.
Gurnah tók við Nóbelnum
AFP
Lukkulegur Rithöfundurinn Adulrazak Gurnah með verðlaunaskjalið.
S
tjórnlaust brjálæði kemur
fyrst upp í hugann eftir
lestur spennusögunnar
Dansarans eftir Óskar
Guðmundsson. Erfiðar heimilis-
aðstæður í æsku geta haft þessi
áhrif, gætu viðkvæmir bætt við.
Í stuttu máli
fjallar sagan um
vonir og þrár,
drauma sem
verða skyndilega
að engu. Í stað
glæstrar fram-
tíðar blasir ekk-
ert við nema
dauði og djöfull.
Ekkert ljós, eng-
in von. Ekki beint uppörvandi.
Tony er leiksoppur örlaganna.
Hann elst upp hjá einstæðri móð-
ur og eftir að hún verður fyrir
áfalli verður hann að standa og
sitja eins og hún skipar fyrir,
halda áfram í hennar sporum.
Honum er strítt í skóla, hann nær
engu sambandi við aðra og ekki
einu sinni afa sinn, sem reynir allt
hvað hann getur til þess að beina
drengnum í góðan farveg.
Þessi grunnhugmynd er góð svo
langt sem hún nær, en byggingin
ofan á hana er svona sitt lítið af
hverju frekar en vandlega íhuguð
atburðarás. Innkoma Dodda er til
dæmis vel hugsuð með minningu
um stuðning í huga en missir al-
gerlega marks, því eftirfylgnina
vantar. Tenging Gunnhildar og
Beggu er áhugaverð, en lesandinn
þarf sjálfur að fylla í eyðurnar.
Lykt af dúkum vekur athygli
rannsakenda, en síðan er ekkert
gert með vísbendinguna þótt les-
andinn geti auðveldlega lagt sam-
an tvo og tvo.
Glæpasagan Dansarinn er villt
og viðbjóðsleg frásögn. Níðst er á
börnum og dýrum og það góða í
fólki er virt að vettugi. Sagan
hverfist um Tony, sem er ekki
venjulegur ungur maður enda
bregður hann sér í nokkur hlut-
verk, lætur finna fyrir sér og eirir
nánast engu. Svolítið ósamræmi
miðað við frammistöðu hans í
Broadway. Leiftrin eru mörg en
þau eru eins og norðurljósin; vekja
athygli, en vara of stutt.
Óskar „Leiftrin eru mörg en þau
eru eins og norðurljósin; vekja
athygli, en vara of stutt“.
Stjórnlaust brjálæði
Glæpasaga
Dansarinn bbbnn
Eftir Óskar Guðmundsson.
Storytel 2021. Innb., 237 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR