Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aukin eftirspurn hefur verið eftir tengiltvinnbílum á undanförnum vikum, væntanlega vegna áforma stjórnvalda um að framlengja ekki ívilnun í virðisaukaskatti af þannig bílum. Er nú svo komið að þeir bílar sem næst að skrá fyrir áramót eru að mestu eða fullu fráteknir hjá þeim bílaumboðum sem rætt var við í gær. Ef ekki verða gerðar breytingar við lokaafgreiðslu fjárlagafrumvarps fellur niður hluti vsk-ívilnunarinnar um áramót og öll ívilnunin þegar vissum kvóta verður náð og er búist við að það gerist fljótlega á nýju ári. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmda- stjóri Öskju, segir að við það muni útsöluverð bílanna líklega hækka um 960 þúsund. Það komi sér sér- staklega illa fyrir kaupendur bíla á verðbilinu fjórar til sex milljónir, þar verði hækkunin hlutfallslega mikil. Þetta séu dæmigerðir bílar fyrir ungt fólk sem býr úti á landi og vill geta ekið langar leiðir en sé ekki tilbúið að taka skrefið til fulls yfir í rafmagnsbíl. Nýjustu kynslóðir tengiltvinnbíla hafi 40 til 100 kíló- metra drægni á rafmagni og geti flestar fjölskyldur ekið mikið á raf- magni einu saman en þurfi þó ekki að hafa áhyggjur af drægninni ef þær þurfi að komast lengra. Góð áhrif á söluna Samkvæmt upplýsingum Páls Þorsteinssonar, upplýsingafulltrúa Toyota á Íslandi, hafa ívilnanirnar sannarlega hjálpað til við rafvæð- ingu bílaflotans og þær hafi haft góð áhrif á söluna. „Áhugi Íslendinga á rafmagnsbílum og tengiltvinnbílum er greinilegur og skiljanlegur því hér höfum við ódýrt rafmagn sem framleitt er á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt og það er ánægju- legt að við getum notað innlenda orku á bílana okkar. Hvort fyrirhug- uð breyting á ívilnunum hefur áhrif á sölu á eftir að koma í ljós,“ segir í skriflegu svari Páls. Frá áramótum og fram til jóla höfðu verið skráðir hér á landi 3.223 tengiltvinnbílar sem eru rúm 26% nýskráðra bíla. Allt árið 2020 voru skráðir 1.859 bílar sem voru tæp 20% af skráningum það ár. Aukn- ingin er því talsverð og meiri hlut- fallslega en á bílum sem aðeins ganga fyrir rafmagni. Skráðir voru 3.446 rafmagnsbílar frá áramótum til jóla, sem eru tæp 28% skráninga en hlutfallið var rúm 25% allt árið 2020. Ekki er að sjá að breytingin sé mikil í desember, hvað svo sem ger- ist á milli jóla og nýárs, því 270 teng- iltvinnbílar voru skráðir í desember, fram til jóla, á móti 295 allan mán- uðinn í fyrra. Fréttir um áform um niðurfellingu vsk-ívilnunar ýttu fólki af stað, samkvæmt upplýsingum bílaumboða, en áhrifin virðist hafa komið meira fram í nóvember en allra síðustu vikur ársins, skv. tölum. Hins vegar er framboðið orðið takmarkað og ekki svigrúm til að fá fleiri bíla til landsins. Þá hefur það áhrif að ívilnun fæst út á bílana þeg- ar þeir eru skráðir og það tekur að lágmarki 3-4 daga að fá bíl afgreidd- an úr tolli og skráðan. Þess vegna er svigrúmið til skráninga að verða bú- ið með þeim bílum sem þegar hafa verið pantaðir. Verða of dýrir Páll Þorsteinsson bendir á að auk- in sala á síðustu vikum ársins og niðurfelling ívilnunar, verði það raunin, hafi talsverð áhrif á sölu slíkra bíla. Jón Trausti Ólafsson leggur áherslu á að það sé ótímabært að fella niður ívilnunina nú í miðjun orkuskiptum. Hann telur að tengil- tvinnbílar verði of dýrir ef ekki verði breytingar á áformum stjórnvalda við lokaafgreiðslu fjárlaga. »14 Flestir bílar fráteknir til áramóta - Aukin eftirspurn eftir tengiltvinnbílum vegna áforma um að framlengja ekki vsk-ívilnun um áramót - Takmarkað hvað hægt er að skrá marga bíla - Verð bílanna hækkar að óbreyttu um 960 þúsund Páll Þorsteinsson Jón Trausti Ólafsson Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir tók sæti sem varaþingmaður í gær fyrir þingflokk Pírata og varð þar með yngsti varaþing- maður Íslandssögunnar. Gunn- hildur hefur undanfarin misseri látið að sér kveða í samfélags- umræðunni á sviði umhverfismála og barist fyrir nýrri stjórnarskrá, einkum á samfélagsmiðlinum Tik- Tok, sem hrinti af stað umræðu um málefnið. Þá varð Lenya Rún Taha Ka- rim fimmti yngsti varaþingmað- urinn til þess að taka sæti á þingi í gær. Kváðust þær í gær hafa „tekið yfir“ þingið. Lenya hafði fengið kynningu á þingstörfum á meðan undirbún- ingsnefnd kjörbréfanefndar var að störfum en Gunnhildur fékk stutta kynningu á þinginu í gær- morgun. „Ég myndi aldeilis ekki kjósa að gera neitt annað í jólafríinu. Einhverjir varaþing- menn hafa talað um að þeir hefðu viljað verja fríinu sínu öðruvísi en ég segi bara: „Ha?“ Þetta er það besta sem maður getur gert yfir jólin,“ sagði Gunnhildur í samtali við Morgunblaðið í gær. veronika@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ungar kon- ur „tóku yfir“ þingið Þróunin á skjálftahrinunni á Reykjanesskaga helst sú sama og enn eru líkur á gosi á svæðinu. Þeg- ar Morgunblaðið fór í prentun í gær höfðu fæstir skjálftar mælst á einum degi síðan hrinan hófst 21. desem- ber. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúru- vársérfræðingur hjá Veðurstofu Ís- lands, segir stöðuna álíka og fyrir gos, en í mars þegar gosið í Geld- ingadölum hófst voru dagarnir í að- draganda gossins rólegir og minna um skjálfta þar en áður. Hann segir þó erfitt að bera saman stöðuna nú og í mars þótt þetta sé á sama svæði. Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfræðingur segir líklegast að kvika berist upp á yfirborðið á sama svæði og síðast, það er í námunda við Fagradalsfjall og Geldingadali. „Það hefur ekkert breyst í þeirri sviðsmynd að ef þetta heldur áfram á sömu braut þá sé þetta sennilegast undanfari þess að gos taki sig upp að nýju. Líklegasti staðurinn er þá þarna í Fagradalsfjalli og Geldinga- dölum. Mælingarnar benda til þess,“ sagði Magnús í samtali við mbl.is síðdegis í gær. Hann segir aukna virkni beggja vegna svæðisins þar sem gaus nú í vor vera skólabókardæmi um svo- kallaða gikkskjálfta. Spenna sé fyrir á svæðinu og þeg- ar viðbótarfærsla á landi kemur ofan í spennuna eykst þrýstingurinn, sem leiði til skjálfta á svæðunum við Kleifarvatn og í Svartsengi, norðan við Grindavík. „Við höfum séð þetta býsna oft. Til að mynda þegar Holuhraun myndaðist, þá voru miklir skjálftar í Kverkfjöllum. Það var bara viðbót- arspenna og hafði ekkert með kviku á svæðinu að gera. Sama er uppi á teningnum nú.“ steinar@mbl.is Skjálftavirknin minnkað - Minni skjálftavirkni fyrir gosið í mars - Líklegast að kvika berist upp á yfirborðið á sama svæði - Gikkskjálftar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hraun Almannavarnir hafa varað fólk við því að ganga á hrauninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.