Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Val di Fassa
5. febrúar í 7 næturSkíðaferð
Verð á mann frá
142.500
Verð á mann frá
165.700
Sjö kórónuveirusmit greindust meðal
sjúklinga hjartadeildar Landspítalans
í gær, eins og mbl.is greindi fyrstur
miðla frá í gærkvöldi. Smit greindist
einnig á Landakoti í gær en óljóst er
hversu mörg smitin kunna að vera.
Deildinni var lokað í gær en hana á að
opna aftur í dag. Útbreiðsla meðal
starfsfólks er sögð einhver en umfang
hennar ekki ljóst.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra greindi frá því í gærkvöldi að
hann hefði greinst með veirusmit.
Alls 664 greindust með veiruna inn-
anlands í fyrradag, þar af voru 255 í
sóttkví við greiningu eða um 38%. Um
er að ræða metfjölda smita á einum
degi, en áður höfðu mest 493 greinst
smitaðir.
Niðurstöður rannsóknar í vísinda-
ritinu Nature Medicine fyrr í desem-
ber sýna fram á að aukin hætta sé á
því að fá hjartavöðvabólgu eftir bólu-
setningu með bóluefni Moderna, í
samanburði við að smitast af veirunni
sem veldur Covid-19.
Í annarri grein sem birtist í fyrra-
dag er rýnt betur í þau gögn sem áður
voru sett fram. Þar kemur í ljós að töl-
fræðilega marktækur munur er hjá
karlmönnum yngri en 40 ára, ef horft
er til tíðni hjartavöðvabólgu eftir
þriðja skammt af bóluefni Pfizer og
eftir annan skammt af bóluefni Mod-
erna, miðað við tíðnina hjá þeim sem
sýkjast af veirunni. Þetta útskýrir Jón
Ívar Einarsson, prófessor við lækna-
deild Harvard-háskóla, fyrir blaða-
manni Morgunblaðsins.
„Auðvitað veldur Covid ekki bara
hjartavöðvabólgu, það getur valdið
alls konar öðrum vandræðum, þannig
að með þessu er kannski ekki verið að
segja að yngri karlmenn ættu að forð-
ast örvunarbólusetningu. En hins veg-
ar ættu þeir að hugsa sinn gang með
það,“ segir Jón.
Jón telur þessar rannsóknir til þess
fallnar að breyta umræðunni að ein-
hverju leyti. Mikilvægt sé að líta til
aldurs, kyns og áhættuþátta þegar
bólusetningar eru annars vegar.
„Ég er á því að það sé ekki nauð-
synlegt að bólusetja heilbrigð börn,
því ég hef áhyggjur af því að áhættan
hjá þeim við að fá bóluefni gæti hugs-
anlega verið meiri en ávinningurinn,
sérstaklega hjá strákum, en við vitum
það ekki nógu vel ennþá.
Þau börn sem eru í áhættuhópum –
þeim er vissulega ákveðin hætta búin
af því að fá Covid og það er þess virði
að vernda þau með bóluefnum.“
Nánar er rætt við Jón Ívar á mbl.is.
logis@mbl.is
Hópsmit á hjarta-
deild Landspítalans
- Varað við áhættu af bólusetningum yngri karlmanna
júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des.
206
664
14
2432
90% landsmanna 12 ára
og eldri eru fullbólusettir
287.813 einstaklingar
hafa fengið
að minnsta kosti einn skammt
Heimild: LSH og covid.is
154
Fjöldi innanlandssmita og innlagna
á LSHmeðCovid-19 frá 1. júlí
664 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
Staðfest smit 7 daga meðaltal
Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð staðfest Covid-19 smit
4.174 erumeð virkt smit
og í einangrun
6.187 einstaklingar
eru í sóttkví
14 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar affimmá gjörgæslu, þrír í öndunarvél
650
600
550
500
450
400
350
300
250
200
150
100
50
0
Gamlárskvöld er í hugum margra
eftirminnilegt kvöld þar sem fagn-
að er nýju ári og það gamla kvatt
með hefðbundnum hætti. Fyrir
gæludýraeigendur getur þó kvöld-
ið reynst nokkuð strembið, enda
oft töluverður ótti sem grípur dýr-
in í kjölfar flugeldanna.
Hanna Arnórsdóttir, dýralæknir
á Dýraspítalanum í Garðabæ, segir
afar mikilvægt að eigendur þekki
hvernig hræðsla komi fram hjá
dýrum en að fólk virðist oft á tíð-
um vera nokkuð blint á það hvað
sé hræðsla. Þá sé eðlilegt að dýr,
og þá aðallega hundar, verði
stressuð á gamlárskvöld en eðli-
legt sé að þeir jafni sig á hræðsl-
unni en séu ekki hræddir í marga
daga. Það geti ógnað bæði and-
legri og líkamlegri velferð hunds-
ins.
Kvíðastillandi lyf
Hanna segir að stundum sé grip-
ið til þess að gefa hundum sérstök
kvíðastillandi lyf, sem ávísað er af
dýralæknum og hægt er að kynna
sér þau í samráði við dýralækni.
„Það er lyf sem heitir Sileo, sem er
svona munngel. Það vinnur þannig
að það hægir aðeins á hjartslætt-
inum hjá þeim, það er náttúrlega
bara eins og hjá okkur að púlsinn
fer upp þegar við erum hrædd og
okkur líður illa.“ Hún segir mikil-
vægt að útbúa skjól fyrir hundinn
og veita honum þannig aðgengi að
stað þar sem hann er vanur að
draga sig í hlé og þar sem minnsta
hljóðáreitið er. „Sumum líður best
að fá að vera upp við okkur og hjá
okkur.“
Einnig sé mikilvægt að huga að
því að hundar geta bitið og glefsað
í varnarskyni ef gestir eða
ókunnugir ætla sér að klappa
hundinum á meðan hann er hrædd-
ur og óöruggur. rebekka@mbl.is
Eigendur þekki
hræðslumerki
- Hlúa þarf að hundum á gamlárskvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugeldar Gamlárskvöld er oft erf-
itt kvöld fyrir hunda og eigendur.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Félagsstofnun stúdenta (FS) mun fá í
sinn hlut fjórðu til sjöundu hæð norð-
urálmu Hótel Sögu. Þar verða útbún-
ar 113 litlar stúdíóíbúðir. Fé-
lagsstofnun stúdenta er með
veitingasölu í háskólanum undir
merkjum Hámu. Hefur félagið óskað
eftir því að fá aðstöðu til veit-
ingareksturs á fyrstu hæð hótelsins,
þar sem hótelið var með veitingahús,
og segir framkvæmdastjórinn að það
sé til athugunar hjá Háskóla Íslands.
Félagsstofnun keypti 27% af Hótel
Sögu á móti ríkinu sem mun afhenda
Háskóla Íslands þann hluta í maka-
skiptum fyrir önnur hús háskólans.
Kaupverðið á hlut FS er um 1,3 millj-
arðar. Að auki þarf félagið að kosta
viðgerðir á sínum hlut og breytingar
á húsnæðinu vegna nýrra nota. Til að
mynda eru rakaskemmdir víða í hús-
inu vegna þakleka. Guðrún Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri Fé-
lagsstofnunar stúdenta, segir enn
nokkuð óljóst hvað endurbæturnar
muni kosta en frumdrög geri ráð fyrir
900 milljónum kr. Vonast hún þó til
að kostnaðurinn verði heldur minni.
Ekki þarf að brjóta veggi
Í húshluta FS eru nú 113 rúmgóð
hótelherbergi. Þau verða öll endur-
nýjuð og sett upp eldhúsaðstaða.
Ekki þarf að brjóta niður veggi til að
sameina herbergi og út úr þessu
munu koma 113 tiltölulega litlar stúd-
íóíbúðir.
Félagsstofnun mun fá húsnæðið af-
hent í áföngum á næstu vikum og
mánuðum og þá verður hafist handa
við að kanna nánar ástand eign-
arinnar, gera við og endurbæta. Guð-
rún vonast til þess að hægt verði að
taka íbúðirnar í notkun í upphafi árs-
ins 2023, það er að segja eftir rúmt ár.
Stúdentaíbúðirnar eru augljóslega
á mjög góðum stað, í útjaðri háskóla-
svæðisins. Guðrún segir að leigan
verði sú sama og fyrir sambærilegar
íbúðir hjá Félagsstofnun, um 115-120
þúsund á mánuði miðað við verðlag í
dag.
Hagstæð lán frá HMS
Húsið er keypt samkvæmt lögum
um almennar leiguíbúðir, út á hag-
stæð langtímalán hjá Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun. Guðrún segir að
kostnaðarrammi fyrir framkvæmdir
sé þröngur og verði íbúðirnar í Hótel
Sögu í hærri kantinum í þeim ramma,
eins og aðrar framkvæmdir hjá Fé-
lagsstofnun sem rekur nú um 1.500
leiguíbúðir fyrir námsmenn. Hún seg-
ist þó full bjartsýni um að kostnaður-
inn verði innan rammans, enda verði
svo að vera. Ekki sé hægt að hækka
leiguna.
FS fær 113 stúdíóíbúðir í Sögu
- Félagsstofnun stúdenta óskar eftir
að fá aðstöðu til veitingasölu á jarðhæð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íbúðir Félagsstofnun stúdenta festi kaup á fjórum hæðum í nýrri álmu
Bændahallarinnar. Þar verða 113 stúdíóíbúðir fyrir námsmenn.
Fjölmiðlafólk kom að læstum
dyrum Héraðsdóms Reykjavíkur í
gær þegar taka átti fyrir mál
fimm einstaklinga gegn sótt-
varnalækni þar sem reynir á lög-
mæti PCR-prófa og hvort þau
séu nægur grundvöllur einangr-
unar fyrir einkennalausa. Vænta
má niðurstöðu dómsins í dag.
Arnar Þór Jónsson, lögmaður
einstaklinganna fimm, segir í
samtali við Morgunblaðið að
skýrslutaka Þórólfs Guðnasonar
sóttvarnalæknis hafi staðið yfir í
um klukkustund. Segir Arnar
sóttvarnalækni meðal annars
hafa sagt að ekki ætti að horfa
til dauðsfalla vegna Covid-19
heldur frekar sjúkrahúsainn-
lagna þegar meta eigi alvarleika
sjúkdómsins. Þá segir Arnar
sóttvarnalækni ekki hafa viður-
kennt að Ómíkrón-afbrigðið væri
vægara en önnur afbrigði Co-
vid-19.
Vænta niðurstöðu dómsins í dag
SKORIÐ ÚR UM LÖGMÆTI EINANGRUNAR
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögmaður Arnar Þór lét reyna á sótt-
varnalögin fyrir héraðsdómi í gær.