Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 18

Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 ✝ Leifur Eiríks- son, bifvéla- virki og hestamað- ur, var fæddur 2. apríl 1928 í Reykja- vík. Hann andaðist á Landspítalanum 17. desember 2021. Leifur átti tvö al- systkini og tvö sam- feðra systkini. Elst þeirra var Þor- steinn Gestur, næst kom Leifur en yngri voru Heiða, Sigmundur og Bára. Leifur bjó fyrstu ár ævi sinn- ar í Reykjavík en flutti svo síðar á Hlaðbrekku 19 í Kópavogi. Foreldrar hans voru Eiríkur Matthías Þorsteinsson smiður og Ingibjörg Árnína Magdal Pálsdóttir (Bára) en hún lést ung að árum, aðeins 26 ára göm- ul, árið 1936. Faðir Leifs lést ár- ið 1984. Eftirlifandi eiginkona Leifs er Una Sigurðardóttir, fædd 12. ágúst 1929. Hún og Leifur byggðu sér hús á Hlaðbrekk- unni þar sem þau bjuggu alla tíð. Leifur og Una giftust 1. júní 1950. Leifur og Una eignuðust dóttur sem gekk börnum hans í móðurstað. Sem ungur drengur var hann í sveit á sumrin á Bakka á Bakkafirði og Möðruvöllum í Kjós. Hann hélt þó alltaf ákveð- inni tryggð við Bakkafjörð það- an sem ættin hans er og fór reglulega með föður sínum og vinum í laxveiði í Miðfjarðará nærri Bakkafirði, þá dvöldu þeir hjá Árna föðurbróður hans í Miðfjarðarnesseli. Leifur var drjúgur í skotveiðinni og gekk reglulega á yngri árum til rjúpna víða. Hestamennskan átti stóran þátt í lífi hans og byrjaði hún árið 1969 og stóð yf- ir í um 40 ár. Árið 1947 fór hann að læra bifvélavirkjun hjá Hrafni Jóns- syni og samhliða vinnu lauk hann skólagöngu árið 1949 og tók sveinspróf í greininni ári seinna. Árið 1952 hóf hann störf í Kistufelli hjá þeim bræðrum Guðmundi og Jónasi og vann alla sína starfsævi þar í 66 ár eða þar til hann var níræður. Útför hans fer fram frá Hjallakirkju í dag, 28. desember 2021, klukkan 11. Athöfninni verður streymt. Hlekkur á streymi: www.promynd.is/leifur www.mbl.is/andlat fjögur börn þau eru: 1) Bára Leifs- dóttir, f. 25. apríl 1949, giftist Stefáni H. Jónssyni, f. 1943, d. 2020. Þau eiga þrjú börn: Jón Gunnar, Leifur og Þórhildur Una, níu barnabörn og þrjú barnabarnabörn. 2) Ásta Leifsdóttir, f. 19. júlí 1951, giftist Sigurði Steingrímssyni, þau slitu samvistum. Þau eiga þrjú börn: Steingrímur, Sigurður Breiðfjörð og Sigþór, 12 barna- börn og tvö barnabarnabörn. 3) Sigurður Leifsson, f. 9. maí 1955, giftist Hallfríði Ólafs- dóttur. Þau eiga þrjú börn: Hild- ur, Una Björk og Sigrún Ýr og sex barnabörn. Eiríkur Leifs- son, f. 21. janúar 1962. Leifur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hans voru nýflutt til Reykjavíkur frá Bakkafirði eða öllu heldur Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi. Leifur missti móður sína aðeins átta ára gamall. Eiríkur faðir hans kynntist Lilju Sigurðar- Elsku Leifur afi er nú farinn frá okkur. Afi dó á Landspítalan- um 17. desember eftir stutta legu. Það er óhætt að segja að þarna sé sá maður farinn sem ruddi slóðina fyrir okkur afkomendur hans í hestamennskunni en öll okkar byrjuðu með honum. Þegar við fjölskyldan fluttum á Kálfhól 1979 voru afi og amma mætt nán- ast um hverja helgi og nokkru seinna eða 1986 byggðu þau sér bústað þar. Afi var duglegur að taka til hendinni í viðgerðum á vélum o.fl. Mér er það minnis- stætt þegar ég þurfti 12 ára gam- all að leggjast inn á spítala í Reykjavík, þá á sama tíma var afi frá vinnu vegna smá hjartaáfalls sem hann hafði fengið. Hann kom daglega til mín á spítalann, og var ég hjá þeim fyrstu vikurnar eftir aðgerð á Hlaðbrekkunni þar sem hann hugsaði um mig og fór með mig upp á spítala í skoðun, mín veikindi voru ekki alvarleg en ég þurfti að nota hækjur og til að nota tímann vel þá fór hann með mig upp í hesthús þar sem við vorum að skipta um planka í stí- unum, ég á hækjum og hann hjartveikur. Það vildi nú ekki bet- ur til en svo að við hittum lækninn minn þar og vorum ekkert klapp- aðir upp þá nafnarnir. Seinna dvaldi ég svo hjá þeim þegar ég var í skóla og í vinnu í bænum og vann í nokkra mánuði í Kistufelli með honum. Þá tók ég hesta suð- ur og var með honum í hesthúsinu á veturna. En flestar eru minn- ingarnar frá Kálfhóli þar sem hann var mikið, við innréttuðum hesthús og redduðum hinu og þessu. Hann kenndi mér að verka gæsirnar sem ég var snemma far- inn að skjóta. Eins var hringferð- in eftirminnileg sem ég fór með þeim 1985, Siggi móðurbróðir og Fríða konan hans voru líka með. En það eftirminnilegasta úr þess- ari ferð var þegar við komum á Bakkafjörð, þá gistum við tvær nætur hjá Árna í Miðfjarðarnes- seli, föðurbróður afa. Árni fór með okkur að Gunnarsstöðum til að fá veiðileyfi í Hölkná. Ég hélt ég dræpist úr hlátri þegar Árni fékk sér kaffi, hann helti kaffinu í bollann og mokaði svo sykri í og hrærði, því næst hellti hann kaffinu á undirskálina og skellti því svo í sig í einum sopa án þess að dropi færi út fyrir, henti sér svo á eldhúsbekkinn og lagði sig, þvílíkt eintak af manni. Svo hófst veiðin í Hölkná, ég var fyrstur til þess að veiða tvo en afi og Siggi lúbörðu ána og ekkert gekk. Það enda með því að þeir færðu sig neðar í ána og er ég viss um að þar hafi afi sett í einn lax og rétt Sigga syni sínum stöngina sem fékk svo að landa honum og eigna sér tilþrifin (ath. hér gæti höfund- ur mögulega verið að færa í stíl- inn) en Árni hafði svo á orði að Siggi skylfi svo í lappirnar að hann hefði aldrei getað landað þessum laxi. Já, það eru margar dýrmætar minningar sem ég á með honum þessi 52 ár sem við fylgdumst að. Eftirlifandi er Una amma en hún hefur dvalið á Hrafnistu sl. þrjú ár. Ég þakka honum samfylgdina og sakna hans mikið, en á sama tíma er ég ánægður yfir því að hafa sinnt honum vel og komið reglulega í heimsókn til hans og get með sanni sagt að í sorg- mæddu hjarta eru milljón tonn af góðum minningum. Hvíldu í friði, elsku afi. Leifur Stefánsson, eða nafni eins og þú kallaðir mig. Leifur Stefánsson. Elsku afi minn er farinn í sum- arlandið. Á sama tíma og ég er þakklát fyrir að hafa átt hann að svona lengi er ég sorgmædd að hann sé farinn. Mér mætti alltaf mikil hlýja og ást þegar ég heim- sótti hann og ömmu í Hlaðbrekk- una og mun ég sakna þess mikið. Við afi ræddum margt en aðal- lega hesta og afkomendur Flugu gömlu og þá sérstaklega Sörla, en það var hesturinn hans afa sem ég fékk að hafa sem minn hest og vorum við afi sammála um að þetta væri besti hesturinn. Það skipti engu máli hversu hátt dæmdir stóðhestarnir eða mer- arnar voru sem komu inn í hest- húsið, alltaf sagði afi Sörla vera bestan, enda hestur með einstakt geðslag. Þegar ég var svo eldri fékk ég stundum ráðleggingar varðandi bíla og þá var svarið að best væri að eiga Toyotu. Afi var einstakur á svo marga vegu. Hann var einstaklega góður maður og man ég ekki eftir að hafa séð hann skipta skapi né tala illa um nokkurn mann. Duglegri mann hefði ekki verið hægt að finna en hann vann hjá Kistufelli sem bifvélavirki til níræðisaldurs. Þegar ég heimsótti hann stuttu eftir að hann hætti að vinna sýndi hann mér fuglana í garðinum heima í Hlaðbrekku en hann fór reglulega út að gefa þeim brauð og voru þeir orðnir vel pattara- legir hjá honum svo duglegur var hann að gefa þeim. Oft mætti ég honum í umferðinni og var hann þá á fleygiferð með vindilinn, stundum náði ég að heilsa honum á rauðu ljósi. Síðast þegar við hittumst á rauðu ljósi kallaði hann til mín að hann væri á leið- inni að heimsækja ömmu, svo kvöddumst við. Emelía dóttir mín hafði mjög gaman af þessum hitt- ingum og leitar hún oft að bílnum hans langafa þegar við erum að keyra. Ég er svo þakklát fyrir þig, elsku afi minn, það er ekki sjálf- gefið að eiga góðan afa eins og þig. Takk fyrir allt, ég sakna þín og trúi því að þú sért á góðum stað og loks búinn að hitta móður þína og veitir það mér hlýju í hjartað. Þín sonardóttir, Sigrún Ýr. Leifur frændi var alvöru. Það var mikið lán að við náðum að kynnast þó seint væri. Dauðsföll og tvístraðar fjölskyldur okkar upp úr þarsíðustu aldamótum flæktu fjölskylduböndin og tengslin rofnuðu. En Lárus frændi átti stærstan þáttinn í að við náðum saman við ættingja okkar í Minneapolis. Það yndis- lega fólk vildi komast í kynni við rætur sínar sem spruttu úr frjó- um sverði Íslands bæði í föður- og móðurlegg. Við frændurnir fórum saman við áttunda mann í víking vestur um haf. Það var upphafið að sameiningu stórfjölskyldunn- ar. Þarna sáum við svipinn með Ellu Fríðu og Jean, Óskar bróðir og Strehlows-fólkið með langa nefið hans Páls Magdal afa og langafa okkar allra í BNA. Þar hittust þeir fyrst Jóhannes Snorri Pálsson Magdal, f. 1923 í BNA, og Leifur. Þeir voru búnir að vera frændur í 70 ár og voru að fá fréttirnar af því við stóra tréð í garðinum hjá Snorra sem var sjónarmun stærri og þeir horfðu út í garðinn, gömlu mennirnir. Leifur var með vindil í munnvik- inu og þeir töluðu saman. Snorri á ensku og Leifur á íslensku. Þeir skildu hvor annan. Þeir voru af sama meiði, rætur þeirra sprottn- ar úr íslenskri sveit, já þeir voru sveitamenn. Slíkir menn skilja hvor annan þó annar tali ensku og hinn íslensku. Þeir skildu það sem þeir vildu skilja. Lífssýn þeirra var þeim í brjóst borin og þeir höfðu sterkar skoðanir. Traust- ustu hlekkir fjölskyldunnar. Lífs- starf þeirra beggja var hjá sama vinnuveitanda lengst af. Leifur var í 66 ár hjá Kistufelli og eins og hann sagði sjálfur þá drap hann alla af sér hjá Kistufelli. Meira að segja tæknin náði ekki að ryðja honum úr vegi. Rennibekkurinn sem Kistufell keypti árið 1952 þegar hann hóf þar störf lifði af alla eigendur og starfsmenn nema karlinn. Hann stóð við bekkinn alla ævi með vindil í munnvikinu og vann vandasöm- ustu verkin. Nákvæmnisvinnu við að renna sveifarása og krún- tappa. Hendurnar voru styrkar og mældu brot úr millimetra og nýjustu tölvurnar náðu ekki að sigra Leif. Hann og rennibekkur- inn stóðu af sér alla orrahríð nú- tímans. Þeir voru líkir, báðir úr stáli og gáfu ekkert eftir í skoð- unum eða stefnu. Leifur var 90 ára þegar hann stimplaði sig út síðasta vinnudaginn. Hann hataði aumingjaskap og pírata. Þoldi ekki fólk sem nennti ekki að vinna fyrir sér og sínum. Hann vann af sér allar skerðingar og frí. Hann var ráðinn í vinnu og það var hlut- verk hans í lífinu og kærði sig ekki um vinnustyttingu. Hann var í landsliðinu í sundknattleik en hafði ekki tíma í svoleiðis leik- araskap þegar nýi rennibekkur- inn var kominn og þurfti á allri at- hyglinni að halda. Ási, þú kaupir ekki svona bíl, sagði hann einu sinni við mig. Frændi, það eru bara aumingjar og kommar sem keyra svona druslur. Ég er alltaf með vélarnar úr þessu dóti í höndunum. Þú átt að vera á bíl fyrir alvöru menn eins og ég. Leifur frændi var alvöru mað- ur, snillingur. Þjóðasagnapersóna í heimi vélamanna en tími hans og rennibekksins er liðinn. Leifur frændi var einstakur iðnaðarmað- ur sem þáði aldrei opinbera að- stoð. Ég votta Unu og fjölskyldu hjartans samúð. Ásmundur Friðriksson. Leifur Eiríksson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUNNVÖR SVERRISDÓTTIR sjúkraliði, Klukkuvöllum 10, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans mánudaginn 13. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Gunnlaugur Grétar Sigurgeirsson Sverrir Gunnlaugsson Ingunn Gunnlaugsdóttir Sigurður Karl Magnússon Silja Rós, Steinunn Kamilla og Sævar Ernir Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ANNA BJARNARSON, Þrúðvangi 25, Hellu, lést á dvalarheimilinu Lundi miðvikudaginn 22. desember. Útför hennar fer fram frá Oddakirkju miðvikudaginn 5. janúar. Í ljósi aðstæðna fer athöfnin fram í kyrrþey og verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir. Þökkum starfsfólki Lundar hlýja og góða aðhlynningu. Ragnar Pálsson, Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir Ragnar Páll, Ásgerður og Þorgerður Harpa Stefán Smári, Álfheiður Fanney og Ásrún Ásta Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR ÖRN JAKOBSSON, bifreiðastjóri og verktaki, Reynihlíð 7, varð bráðkvaddur mánudaginn 20. desember. Útför verður auglýst síðar. Olga Sigríður Marinósdóttir Guðrún Anna Gunnarsdóttir Ólafur Róbert Ólafsson Erna Dís Gunnarsdóttir Haukur Gunnarson Díana Dögg Gunnarsdóttir Jónas Bjartur Kjartansson Daði Freyr Gunnarsson Karen Jóhannsdóttir Guðmunda María Sigurðard. Sigurgeir Gunnarsson Íris Sigurðardóttir Breki Konráðsson og barnabörn Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma, ÞORGERÐUR MARÍA GÍSLADÓTTIR íþróttakennari, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 17. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. desember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á https://youtu.be/sNyz1pzX4-U Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir en gestir eru vinsamlegast beðnir að framvísa hraðprófi við inngang. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Sigríður Jónsdóttir Jón Ólafur Gestsson Katrín Ásta Stefánsdóttir Þorgerður María Halldórsd. og langömmubörnin Elsku faðir okkar, afi og langafi, BENÓNÝ M. ÓLAFSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 19. desember. Ásta María Benónýsdóttir Styrmir Ingi Bjarnason Ólafur Björn Benónýsson Arnór Freyr Styrmisson Helena Friðbertsdóttir Birna Mjöll Styrmisdóttir Axel Ingi Jónsson Kára Dís Ólafsdóttir, Krista Bríet Ólafsdóttir, Hrannar Ben Ólafsson og Sara María Arnórsdóttir Móðir okkar, ESTHER BRITTA VAGNSDÓTTIR, Öldrunarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést 19. desember. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 4. janúar klukkan 13. Einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Glerárkirkju – beinar útsendingar. Egill, Skúli, Snorri og fjölskyldur Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGÞÓR BJÖRNSSON pípulagningameistari, lést á Hrafnistu, Sléttuvegi 3, miðvikudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. desember klukkan 13. Ólöf Ingþórsdóttir Guðbjörn Sævar Garðar Ingþórsson Ingibjörg Óladóttir Sigríður Ingþórsdóttir Benedikt Ingþórsson Mirjam van Schijndel Hjörtur Ingþórsson Þórunn Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.