Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 21
starfaði sjálfstætt við iðn sína, trésmíði, á þessum árum. Þar sem hann kom að smíði má segja að „sannkallaður völund- ur“ væri að verki. Þegar við hjónin réðumst í húsbyggingu kom varla annar en Hjörtur til greina til að taka að sér smíð- ina. Ég man vel eftir orðum Hjartar þegar við ræddum að- komu hans og félaga að verkinu. Hjörtur sagði eitthvað á þá leið: „Við þekkjumst jú orðið ágæt- lega en í þessu samstarfi getur auðvitað ýmislegt komið upp á svo við verðum að vanda okkur sérstaklega vel svo ekki beri skugga á kunningsskap okkar eða vináttu.“ Til þess kom ekki. Oft eru húsbyggjendur fyrir fagmönnunum á byggingarstað. Ég er þess meðvitandi að kunn- átta mín í smíði var mjög tak- mörkuð í upphafi. Ég get þó vitnað að Hjörtur var alltaf leið- beinandi og umburðarlyndur eins og síðar sannaðist. Glöggir menn sáu þá sterku eiginleika og hvöttu hann til að afla sér kennsluréttinda í iðn sinni. Svo fór að lengsti starfsvettvangur hans var við kennslu við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti þar sem hann kenndi um árabil. Við vitum fyrir víst að þar veitti hann mörgum nemendum það veganesti sem hjálpaði þeim til að öðlast þá færni í faginu er skilaði þeim sterkum út í lífið. Nemendur mátu hann mikils og höfðu sumir á orði að hann hefði nánast gengið þeim í föðurstað. Símtölin á milli okkar voru mörg á þessum árum. Samfund- um okkar fækkaði síðari árin en þó hittumst við af og til innan vébanda Fóstbræðra. Þótt vissulega syrti í álinn síðustu árin er heilsan bilaði varðveitti hann samt alltaf jafnlyndið og „sá“ það spaugilega í tilverunni þó sjónin væri farin. Hjörtur hitti lífsförunautinn hana Jónu í hrauninu sem eitt skáldið gaf nafnið „staður elsk- endanna“ við Hreðavatn vetur- inn 1962 en þá starfaði hún á Bifröst og hann við smíðar í Hreðavatnsskála. Þar til nú hef- ur leiðir þeirra ekki skilið. Við hjónin sendum Jónu og fjöl- skyldunni okkar dýpstu samúð- arkveðjur Viðar Þorsteinsson. Kær frændi og góður vinur er fallinn frá eftir löng veikindi en alltaf var hann hress og kátur og húmorinn aldrei langt undan, við höfum átt margar góðar stundir saman til sjávar og sveita, margar ferðir fórum við til okkar kæra Gautsdals í Reykhólasveit, já við fórum í leitir á haustin, hlupum upp um fjöll og dali, þetta voru miklar gleðiferðir hjá okkur og að hitta okkar kæra frændfólk. Þú hefur verið heppinn í líf- inu að hafa hitt hana Jónu þína og saman eignuðust þið yndis- leg börn, samheldin og falleg fjölskylda. Marga vísuna hefur þú sett saman sem á eftir að ylja okkur um ókomna tíð. Þú hefur verið farsæll í starfi sem smiður, afskaplega nákvæmur og vandvirkur og síðar kennari við Fjölbraut í Breiðholti, mað- ur hefur heyrt að nemendur séu þakklátir fyrir að hafa fengið þig sem kennara, allir tala vel um Hjört, hann var góður mað- ur. Margar gleðistundir höfum við hjónin átt með ykkur Jónu í sumarbústaðnum ykkar og með Karlakór Fóstbræðra og marg- ar gleðistundir á heimili ykkar og okkar, það var alltaf gaman að hittast en nú er breyting á. Hjörtur er látinn eftir farsæla ævi og þökkum við fyrir góðan tíma með þessum sómamanni á jörðinni. Jónu, Ingu Kollu, Sigga og fjölskyldum vottum við innilega samúð og biðjum góðan Guð og englana að umvefja ykk- ur ljósi sínu. Kær kveðja, kæri vinur. Guðjón Magnús og Sigríður. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 ✝ Steinunn Steinarsdóttir fæddist 26. októ- ber 1933. Hún lést á Landspítalanum 16. desember 2021. Foreldrar henn- ar voru Hróðný Pálsdóttir húsfrú, f. 1. júní 1912, d. 9. apríl 2005, og Steinar Bjarnason trésmiður, f. 17. desember 1905, d. 17. júní 1997. Systkini Steinunnar: 1) Garðar Steinarsson flugstjóri, fæddur 5. ágúst 1938, d. 2007, kvæntur Ástu Sveinbjarnar- dóttur, f. 1942, d. 2013. Börn þeirra: Hróðný, Þórhildur og Páll. 2) Sigurður Steinarsson rafvirki, f. 1. janúar 1948, kvæntur Ingibjörgu Eysteins- dóttur, f. 1948. Börn þeirra: Ólöf og Bjarni. Steinunn giftist 6. febrúar 1957 Guðna Sigurjónssyni vél- stjóra, f. 26. maí 1935. Hann Steinunn var fædd á Bjargi á Seltjarnarnesi, fluttist þaðan með foreldrum sínum á Bakka- stíg í Reykjavík og ólst þar upp til 11 ára aldurs eða þar til þau fluttust á Dvergastein á Sel- tjarnarnesi. Steinunn útskrifaðist úr Kvennaskólanum 1951, hún byrjaði ung að vinna hjá Toll- stjóranum í Reykjavík, þar vann hún í mörg ár sem ritari hjá Torfa Hjartarsyni ríkis- sáttasemjara og síðustu árin vann hún í heilbrigðisráðuneyt- inu. Steinunn og Guðni áttu og ráku um árabil Áhaldaleiguna sf. ásamt Garðari bróður henn- ar og Ástu konu hans. Steinunn gekk í Samfrímúr- araregluna ung að árum þar sem hún gegndi ýmsum trún- aðarstörfum. Steinunn og Guðni byrjuðu sinn búskap á Dvergasteini á Seltjarnarnesi, þar sem Steinar fæddist, byggðu sér einbýlishús við Nesbala, fluttu þar inn 1981 og voru þar í 20 ár eða til árs- ins 2001, er þau fluttu á Boða- granda 2. Útför Steinunnar fer fram í dag, 28. desember 2021, og hefst athöfnin kl. 13. lést 25. október 2017. Foreldrar hans voru Kristín Guðnadóttir, f. 11.12. 1904, d. 30.8. 1970 og Sig- urjón Sigur- jónsson, f. 16.10. 1903, d. 22.6. 1971. Hann átti tvær systur, Svanhildi og Hjördísi, sem báðar eru látnar. Sonur Steinunnar og Guðna er Steinar vélstjóri, f. 27.8. 1960, giftur Jóhönnu Runólfs- dóttur sjúkraliða, f. 28.8. 1962, þau eiga tvo syni: 1) Guðni vélaverkfræðingur, f. 1982, giftur Hildi Margréti, f. 1984, þau eiga 3 dætur: Ingibjörg Steinunn, f. 2009, Hugrún Anna, f. 2013 og Elín Fanney, f. 2019. 2) Ægir, húsasmiður og íþróttafræðingur, f. 1989, í sambúð með Ásu Þórdísi, f. 1991. Elsku tengdamamma. Þá er komið að leiðarlokum og langar mig í örfáum orðum að þakka þér okkar góðu sam- fylgd síðastliðin 44 ár. Ég kom 14 ára unglingsstelpa inn á heimilið ykkar Guðna þeg- ar ég kynntist elsku Steinari mínum. Mér var tekið opnum örmum frá fyrsta degi, sem er ómetanlegt. Við urðum strax góðar vin- konur og eftir að Guðni fæddist tókst þú ekki annað í mál en passa hann þar til hann fór í leikskóla. Við vorum flutt í næstu götu við ykkur þegar Æg- ir fæddist, þá var stutt fyrir þá stubbana að hlaupa yfir til ykk- ar, í ömmu- og afadekur, pottinn og kósíheit. Elsku tengdapabbi fór snögg- lega frá okkur fyrir fjórum ár- um, missirinn var mikill fyrir þig og þú saknaðir þú hans alla daga, enda voruð þið samferða í gegnum lífið í yfir 60 ár. Ég er fullviss um að þú ert komin til hans í sumarlandið og þið sam- einuð á ný. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þótt svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hugann fer. Þó þú sért horfinn í heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Elsku Steina mín, takk fyrir allt. Þín Jóhanna. Í dag kveðjum við Steinunni Steinarsdóttur föðursystur mína eða Steinu frænku, eins og mér er tamara að kalla hana. Þegar við systkinin vorum að alast upp bjó fjölskyldan á ættaróðalinu Dvergasteini á Seltjarnarnesi. Afi og amma bjuggu á fyrstu hæðinni, við á annarri og Steina, Guðni og Steinar sonur þeirra á þeirri efstu. Margar góðar minn- ingar tengjast þessum árum enda gat maður skottast um allt hús og nælt sér í kökubita hjá Steinu eða teflt eina skák með afa. Steina átti plötu með söng- leiknum Oklahoma og kom ég ótal sinnum upp og fékk að spila plötuna aftur og aftur, dansaði og söng með af mikilli innlifun. Þetta hlýtur að hafa reynt á þol- rifin hjá frænku þótt ég hafi ekki orðið vör við það. Öll þessi ár var sá siður í heiðri haldinn að allir íbúar hússins hittust í kvöldkaffi á einhverri hæðinni til að spjalla um það sem á daga fólks hafði drifið þann daginn. Þetta var góður siður sem þjappaði okkur vel saman. Ára- mótagleðin hjá Steinu og Guðna er líka eftirminnileg og þá bætt- ust fleiri ættingjar í hópinn. Svo var spilað fram eftir nóttu og börnin máttu vera með eins lengi og augun héldust opin. Seinna meir fækkaði samveru- stundunum en við hittumst þó á tyllidögum eða þegar færi, gafst til að mynda á Boðagrandanum, í bústaðnum þeirra á Flúðum eða hjá okkur í Fljótshlíðinni. Leiðir okkar Steinu lágu líka saman í Alþjóðlegri frímúrara- reglu karla og kvenna þar sem hún vann af heilum hug í áratugi og sinnti ýmsum trúnaðarstörf- um. Við gátum rætt frímúrara- fræðin og andleg málefni fram og til baka þar sem ég fékk að njóta reynslu hennar og visku. Í seinni tíð hagaði heimsfaraldur- inn því þannig að við hittumst sjaldan en ræddum þeim mun oftar saman símleiðis. Steina var reiðubúin að kveðja þessa jarðvist enda orðin 88 ára gömul og búin að skila sínu eins og sagt er. Hún sakn- aði Guðna síns og trúði á líf eftir þetta líf og þar með að þau gætu sameinast á ný. Ég þakka Steinu samfylgdina og allt það sem hún hefur gefið mér og mín- um. Steinari, Jóhönnu og öðrum ástvinum votta ég innilega sam- úð. Þórhildur Garðarsdóttir. Horfin er til hins eilífa aust- urs kær systir og góður frímúr- ari, horfin sjónum okkar en minningin lifir, minning um traustan ferðafélaga á lífsins göngu. Að rækta sinn innri mann, að fága hann og fegra mannkyni til heilla er hluti af því að vera frímúrari. Það verkefni er stórt, það er lífsstíll sem margir velja að gera að sínum, iðka hann með öðrum innan vé- banda Reglunnar og í daglegu lífi. Steinunn var ung þegar hún tók vígslu inn í Regluna og ákvað að þar væri vegur er vert væri að ganga, vegur visku, mannkærleika og fágunar. Mörg störf voru henni falin er hún gegndi af alúð og trúmennsku við hugsjónir frímúrara. Styrk- ur, virðing og jafnrétti voru hennar aðalsmerki. Í reglustarf- inu var hún kjölfesta er hafði að leiðarljósi að öll skiptum við máli, hvert og eitt okkar, og gagnkvæm virðing, bræðraþel og hjálpfýsi skyldu vera þeir eiginleikar er leiða skyldu mann- kyn á rétta braut að mannlegu réttlæti öllum til handa. Ákveðið fas hennar, hispursleysi og eðl- islægur virðuleiki ramma inn minningu hennar í huga okkar. Hafðu þökk fyrir allt, kæra systir. Fyrir alla þá vinnu er þú lagðir í starfið á löngum ferli, hvort sem það var fyrir stúkuna Ými, hærri stig eða Íslandssam- bandið. Megi ferð þín til ljóssins og kærleikans færa þér frið. Steinari og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Kveðja frá Íslandssambandi Alþjóðlegrar frímúrarareglu karla og kvenna, Le droit huma- in. Fyrir hönd Reglunnar og systkinanna í stúkunni Ými, Ásdís Þorsteinsdóttir. Steinunn Steinarsdóttir ✝ Pétur Jónsson fæddist 13. ágúst 1944 á Ak- ureyri. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Hlíð 17. des- ember 2021. Foreldrar Pét- urs voru Jón Pét- ursson frá Sigtún- um í Eyjafjarðar- sveit, f. 3. ágúst 1915, d. 28. októ- ber 2000, lengst af bílstjóri og húsvörður á Akureyri, og Auður Pálmadóttir frá Gull- brekku í Eyjafjarðarsveit, f. 16. janúar 1917, d. 25. mars 1978, húsfreyja á Akureyri. Systkini Péturs eru Gunnar, f. 30. maí 1942, Ragnheiður, f. 5. maí 1943, d. 21. júní 2014, Pálmi Geir, f. 28. mars 1946, Kristinn Örn, f. 14. apríl 1950 og Anna Margrét, f. 8. febr- úar 1956, d. 18. mars 2007. 25. desember 1966 kvæntist Pétur Helgu Eyjólfsdóttur, verslunarmanni frá Ísafirði, f. 30. október 1944. Synir þeirra eru Guð- mundur Ómar, f. 12. ágúst 1964, framkvæmdastjóri og laganemi, búsettur á Spáni, og Jón, f. 7. apríl 1966, fyrr- verandi vörubílstjóri, vélfræð- ingur búsettur í Danmörku. Eiginkona G. Ómars er Björk Pálmadóttir framhalds- var hann mörg sumur í sveit á Garðsá í Eyjafjarðarsveit. Pétur lærði rafvirkjun og út- skrifaðist árið 1964. Nokkur ár þar á eftir starfaði hann sem rafvirki en síðan sem afgreiðslumaður hjá vöru- flutningamiðstöðinni Pétri og Valdimar sf. og síðar hjá vörubílastöðinni Stefni hf. Árið 1970 keypti Pétur sinn eigin vörubíl og starfaði sem sjálfstæður atvinnurekandi í rekstri vörubíla í um 40 ár. Verkefnin voru m.a. akstur og kranavinna á Akureyri, snjómokstur á vegum norðanlands, áburðar- flutningar, vegagerð og flutningur á tækjum og tól- um milli landshluta. Vörubíl- arnir í rekstri voru einn til þrír eftir atvikum. Árið 2003 seldi Pétur tvo af bílum sín- um og keypti sumarbústað, Lækjarbrekku, í Vaðlaheiði. Árið 2008 réðst Pétur til starfa hjá Ásprenti á Akur- eyri. Þar sinnti hann út- keyrslu á vörum, lagerstörf- um og tilfallandi verkefnum allt þar til hann lét af störf- um árið 2014, þá sjötugur að aldri. Útför Péturs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 28. desember 2021, kl. 13. Streymt verður frá athöfn- inni á Facebook-síðu Ak- ureyrarkirkju. Hlekkir: https://tinyurl.com/yckuxz2h https://www.mbl.is/andlat skólakennari, f. 12. júlí 1969, og börn þeirra: a) Helga Sigrún, f. 1989, fram- kvæmdastjóri og eigandi líkams- ræktarstöðvar- innar Norður á Akureyri. b) Kristófer Leó, f. 1994, sjávar- útvegsfræðingur á Akureyri. c) Ívan Geir, f. 1996, iðnaðarmaður á Ak- ureyri. d) Aþena Björk, f. 2004, framhaldsskólanemi á Akureyri. e) Elena Soffía, f. 2007, grunnskólanemi í Dénia á Spáni. Barnabörn G. Ómars og Bjarkar eru þrjú. Eiginkona Jóns er Kolbrún Ævarsdóttir hundaræktandi, f. 1. júní 1963, og börn þeirra: a) Sigurrós Yrja, f. 1982, hús- móðir á Akureyri. b) Gunnar Sigurbjörn, f. 1987, búsettur í Reykjavík. c) Ævar, f. 1990, nemi í uppeldisfræði í Ála- borg í Danmörku. d) Pétur, f. 1996, framreiðslumaður og veitingastjóri á Bryggjunni á Akureyri. e) Kara Mist, f. 1997, kennaranemi í Árósum í Danmörku. Barnabörn Jóns og Kolbrúnar eru sex. Pétur ólst upp í foreldra- húsum í Oddeyrargötu 23 á Akureyri. Á uppvaxtarárunum Við kveðjum elskulegan bróð- ur og mág, Pétur Jónsson. Hann reyndist okkur einstaklega vel í gegnum lífið og börnin okkar hændust að honum og Helgu konu hans. Pétur lærði rafvirkjun á unga aldri þó svo að vörubílaakstur yrði ævistarf hans. Hann var duglegur og vandvirkur og þeg- ar við keyptum okkar fyrstu íbúð fokhelda kom ekki annað til greina en hann legði rafmagnið í hana. Nokkrum árum síðar þurftum við á rafvirkja að halda og Pétur ekki heima, þá fengum við gamlan vinnufélaga hans til að aðstoða okkur. Þegar hann opnaði rafmagnstöfluna sagði hann: „Ég sé hver hefur lagt í þessa töflu, ég kannast við hand- bragðið.“ Þarna var allt unnið af fagmennsku og vandvirkni. Þegar fram liðu stundir fór- um við báðir í rekstur eigin vörubíla og þeir voru ófáir tím- arnir sem Pétur lagði fram þeg- ar einhverjar bilanir urðu, það þurfti ekki að hringja í hann eft- ir aðstoð, hann kom bara. Hann var betri en enginn á svona stundum því hann var bæði lag- hentur og útsjónarsamur í við- gerðum. Pétur var eftirsóttur í vinnu og á yngri árum var hann ávallt með öfluga bíla og krana, það besta sem var á markaðnum þá. Fyrir nokkrum árum keypt- um við bræður og nokkrir frændur gamlan Chevrolet- vörubíl árgerð 1955 sem pabbi okkar hafði fengið nýjan á sínum tíma og stefndum við á að gera hann sem líkastan því sem hann var í upphafi. Þetta var gríðar- legt verkefni sem tók þrjá vetur og á þessum tíma var sjúkdóm- urinn, sem átti eftir að leika Pét- ur grátt, farinn að bæra á sér. Hann lét þó engan bilbug á sér finna og mætti fyrstur manna á morgnana og var oft búinn að moka frá dyrum og sópa þegar við hinir mættum. Verkefnið kláraðist og á Pétur sinn þátt í því. Það var erfitt að sjá þennan atorkumann hverfa smátt og smátt frá okkur en Pétur tókst á við þennan sjúkdóm sem lagðist á hann af miklu æðruleysi og jafnaðargeði. Að leiðarlokum þökkum við samfylgdina og biðj- um góðan Guð að vaka yfir fjöl- skyldu Péturs. Kristinn Örn Jónsson, Gísley Þorláksdóttir. Við Pétur ólumst upp í Odd- eyrargötunni nr. 23 og 32 á Ak- ureyri, báðir í stórum systkina- hópi. Það var líka mikill fjöldi barna í öðrum húsum í götunni og einnig þeim götum sem að Skátagilinu lágu. Þar var leik- svæði okkar barnanna árið um kring. Fótbolti og útileikir voru á sumrin en á vetrum var þetta svæði eitt besta skíðaland barna á Akureyri. Faðir Péturs var vörubílstjóri og því óku drengirnir hans áfram á þeim vegum sem hann lagði fyrir þá í lífinu. Þegar Pét- ur hafði lokið gagnfræðaprófi fór hann hins vegar að læra raf- virkjun hjá Indriða í Cóinu. Þeg- ar því námi lauk keypti hann sér fljótlega vörubíl og hóf útgerð á slíkum bíl og fljótlega fékk hann krana á bílinn og eftir það varð ekki til baka snúið. Hann varð mjög vinsæll með bílana sína og þótti laginn með kranann og því mjög eftirsóttur starfskraftur og hafði mikið að gera og gat því vinnudagurinn verið langur. Við Pétur vorum mjög nánir alla tíð. Við iðkuðum saman skallabolta tvisvar í viku um margra áratuga skeið og einnig áttum við sameiginlegt áhuga- mál sem voru vélsleðar og fórum saman í nokkrar eftirminnilegar ferðir. Pétur var vinmargur og okkar sameiginlegi vinahópur um skallboltann og vélsleðaferðir var stór. Þar var mikið brallað og oft hittumst við með kaffi- bolla og skoðuðum gamlar myndir og rifjuðum upp skemmtilegar og gamlar minn- ingar. Fyrir nokkru fór heilsu Pét- urs að hraka og sáum við þá þennan stóra og hrausta mann nánast falla saman. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð allt of snemma því ennþá átti hann mikið eftir að gera. Við félagar hans sendum Helgu og börnum þeirra og barnabörnum svo og bræðrum hans og fjölskyldum þeirra dýpstu samúðarkveðjur. Við erum þess vissir að Guð al- máttugur haldi verndarhendi sinni yfir þeim alla tíð. Hvíl þú í friði, kæri vinur, og haf þökk fyrir allt og allt. Ólafur Ásgeirsson. Pétur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.