Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vegagerðarinnar er
einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-15.30. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Eitthvað skemmtilegt á tjaldinu kl. 14. Heitt á könnunni. Kaffi-
sala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 10-11.
Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Lokum kl. 14.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Heilsu-
Qi-gong er komið í jólafrí en byrjar aftur strax í janúar!
Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut frá kl. 9 til 11.30 alla virka
daga. Félags- og tómstundastarf eldri bæjarbúa er komið í jólafrí fram
yfir áramót. Byrjum aftur miðvikudaginn 5. janúar. Óskum ykkur
öllum gleðilegrar hátíðar, árs og friðar og þökkum samveru og sam-
starf á liðnum árum.
FINNA VINNU
AtvinnublaðMorgunblaðsins
kemur út tvisvar í viku.
Á fimmtudögum í aldreifingu
og í laugardagsblaðinu.
Þær birtast líka á atvinnuvef
mbl.is og finna.is
Aðeins er greitt eitt verð.
80.000manns 18 ára og eldri sjá FINNA
VINNU atvinnublaðMorgunblaðsins
Lesendur Morgunblaðsins lesa blaðið oftar
og lengur en hjá öðrum
71% landsmanna heimsækja mbl.is daglega
sem gerir hann að stærsta fjölmiðli landsins*
Fáðu meira út úr þinni
atvinnuauglýsingu!
Fjórir snertifletir – eitt verð!
1
Morgunblaðið
fimmtudaga
2
Morgunblaðið
laugardaga
3
mbl.is
atvinna
4
finna.is
atvinna
*GallupMediamix – dagleg dekkun 2020
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Verslun
Hringar fyrir áramótin, frí áletrun
Tökum enn við pöntunum og afgreið-
um fyrir áramót trúlofunar- og gifting-
arhringa. Mikið úrval. Kíkið á heima-
síðuna www.erna.is.
ERNA Skipholti 3,
s. 552 0775.
Bókhald
NP Þjónusta
Tek að mér bókhaldsvinnu
o.fl. fyrir einstaklinga
og fyrirtæki
Upplýsingar í síma 892 2367.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Nýr 2021 Hyundai Kona EV
Premium rafmagnsbíll með 64
kWh rafhlöðu Raun drægni um 380
km. Flottasta typa með leðri og gler-
topp-lúgu + fullt af öðrum lúxus. Nýtt
útlit. 2 litir svartur og dökk grár á
staðnum. Til afhendingar strax !
Okkar verð aðeins: 5.790.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmisskonar
húsaviðhald og
ýmis smærri verk-
efni .
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
✝
Einar Gunnar
Guðmundsson
fæddist á Blöndu-
ósi 8. október
1952. Hann lést á
HSN Blönduósi 17.
desember 2021.
Hann var sonur
Guðmundar Mýr-
manns Einars-
sonar, bónda á
Neðri-Mýrum, og
Guðrúnar Hólm-
fríðar Sigurðardóttur frá
Mánaskál.
Einar var elstur þriggja
systkina: Sigurbjörg Sigríður,
f. 17. nóvember 1953. Maki:
Jón Bjarnason, f. 24. janúar
1946, d. 15. nóvember 1990.
Synir þeirra eru Bjarni og
Guðmundur Rúnar Jónssynir.
Guðrún Björg, f. 17. mars
1958. Maki: Egill Sigurjón
Benediktsson, f. 14. júlí 1953,
d. 16. nóvember 2012. Synir
þeirra eru Benedikt Rúnar og
Unnar Bjarki Egilssynir.
Einar bjó á Neðri-Mýrum í
félagsbúi með föðursystkinum
sínum, þeim Unni og Hall-
grími. Hann eyddi megninu af
sínu lífi í að hlúa að þeim og
til merkis um það þá flutti
hann ekki að heiman. Gæska
Einars við föðursystkini sín
var með eindæmum og hélst
alveg þar til þeirra tilveru
lauk hér á jörðu. Eftir hefð-
bundna barnaskólagöngu tók
hann gagnfræðapróf á Skaga-
strönd. Einar fór síðan haustið
1972 í Hólaskóla. Þeir sem
voru með gagnfræðapróf köll-
uðust vetrungar og stunduðu
eins árs búfræðinám. Einar
dúxaði þar. Búskapur á Neðri-
Mýrum varð svo hans lífsstarf.
Hann sinnti félagsmálum, var
kosinn í nefndir fyrir sína
sveit. Í hreppsnefnd, bygg-
ingarnefnd, sókn-
arnefndar-
formaður Hösk-
uldsstaðakirkju
ásamt því að sjá
um kirkjugarðinn
og umsjónarmað-
ur kirkjunnar og
réttarstjóri í
Skrapatungurétt.
Árið 1998 var
happaár í lífi Ein-
ars þegar Sonja G.
Wium flytur til hans með
tveimur ungum dætrum sínum.
8. október 2000 ganga þau í
hjónaband. Einar reyndist
þessum systrum einstaklega
vel sem og hinum eldri börn-
um og barnabörnum Sonju.
Börnin eru í aldursröð: Sólveig
Ruth, f. 20. ágúst 1972, Bjarni
Guðmundur, f. 9. október
1973, Björn, f. 24. mars 1976,
Páley Sonja, f. 23. júlí 1981,
Jófríður Eva, f. 31. mars 1989
og Steinunn Agnes, f. 29.
ágúst 1996. Faðir systkinanna
og fyrrverandi eiginmaður
Sonju er Ragnar P. Bjarnason,
bóndi í Norðurhaga.
Upp úr 2010 tekur heilsu
Einars að hraka, parkinsons-
veikin lætur á sér kræla og
þar kemur að þau bregða búi.
Selja jörðina og flytja til
Blönduóss og kaupa íbúð á
Smárabraut 12 árið 2011. Ein-
ar og Sonja ferðuðust mikið
um landið eftir að þau fluttu á
Blönduós.
Útför hans fer fram frá
Blönduóskirkju í dag, 28. des-
ember 2021, kl. 13. Vegna
fjöldatakmarkana verða ein-
ungis nánustu aðstandendur
viðstaddir. Hægt verður að
nálgast streymi frá athöfn á
facebook-síðu Blönduóskirkju.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
Kynni okkar Einars hófust
haustið 1972 er við settumst á
skólabekk við Bændaskólann á
Hólum. Vorum við báðir „vetr-
ungar“ en það voru þeir kall-
aðir sem komu til skólavistar
með landspróf eða gagnfræða-
próf og gátu útskrifast sem bú-
fræðingar eftir eins vetrar
nám, annars voru nemendur
tvo vetur. Vetrungar voru þá
sjö talsins en nemendur alls í
eldri deild 20. Kennarar voru
þá sex að skólastjóra meðtöld-
um.
Einar var hæglátur og fór
ekki mikið fyrir honum, hann
gat þó verið glettinn og gam-
ansamur. Strax komu í ljós
góðar gáfur hans og námshæfi-
leikar og var hann jafnvígur á
greinar og ávallt með góðar
einkunnir. Það voru þrír sem
náðu yfir 9 í meðaleinkunn við
útskrift og dúxaði hann þrátt
fyrir að vera lasinn í einhverj-
um prófum, sem er mér minn-
isstætt vegna þess að ég las
upphátt fyrir hann við und-
irbúning fyrir próf í einni
grein.
Að útskrift lokinni vorið
1973 fór allur hópurinn til
Færeyja í skólaferðalag og
dvöldum við á farfuglaheimili í
Þórshöfn. Á rölti okkar um
Þórshöfn sáum við auglýst ball
daginn eftir hjá bindindisfélagi
þar í bæ og ræddum við um að
gaman væri nú að komast á
ball í Færeyjum og var þó ekki
frekar rætt um það. Við höfð-
um orðið okkur úti um smá
víndreitil og vorum ofurlítið
kenndir, þar á meðal Einar.
Daginn eftir kemur Einar
hróðugur til okkar og veifar
skírteini, hann er þá búinn að
skrá sig félaga í bindindis-
félaginu og félagsmenn máttu
bjóða með sér gestum! Við fór-
um og skemmtum okkur kon-
unglega.
Í Færeyjaferðinni var lent í
Reykjavík og held ég að það
hafi verið í fyrsta skipti sem
Einar kom til Reykjavíkur. Atli
Már herbergisfélagi Einars átti
heima í Njarðvík og bauð hon-
um með sér þangað og keyrði
með hann vítt og breitt um
Reykjanesið áður en Einar hélt
heimleiðis í búskapinn.
Einar var uppalinn á Neðri-
Mýrum og bjó þar allan sinn
starfsaldur eða á meðan heilsan
leyfði, en síðustu árin bjó hann
á Blönduósi með konu sinni.
Einar og Sonja bjuggu góðu
búi á Neðri-Mýrum, búið var
ekki stórt en gaf vel af sér
enda var hann natinn og góður
bóndi. Áberandi var hve þrifa-
lega var gengið um á búinu.
Eftir að við útskrifuðumst
vorum við svo í sambandi ann-
að slagið. Einar var drengur
góður og hringdi oftar í mig en
ég í hann og töluðum við þá oft
lengi saman. Síðan voru heim-
sóknir á báða bóga. Sumarið
2018 fórum við Einar ásamt
konum okkar í eftirminnilega
jeppaferð fram á Laxárdal
fremri eins langt og með góðu
móti mátti komast á bíl, keyrð-
um við áreyrarnar fram eftir.
Einar var þá orðinn talsvert
þjakaður af sjúkdómi þeim sem
hrjáði hann síðustu árin. Við
nutum þeirrar ferðar öll, þó
held ég að Einar hafi notið þess
sérstaklega að fara um þær
slóðir sem hann þekkti svo vel
og líklegast í síðasta sinn. Dáð-
ist ég að því hve lipurlega hann
keyrði gamla Landcruiserinn.
Með þessum orðum kveð ég
þig kæri vinur og reikna með
að þú hafir orðið hvíldinni feg-
inn eins illa og parkinson hafði
leikið þig.
Við Margrét vottum Sonju
og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Kári Sveinsson.
Einar G.
Guðmundsson