Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 25
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Kristín Sigfús-
dóttir framhaldsskólakennari. Þau
búa nú í Lundarhverfi á Akureyri.
Foreldrar Kristínar voru hjónin Sig-
fús A. Jóhannsson, f. 5.6. 1926, d. 2.8.
2007, bóndi og vörubílstjóri, og Sig-
ríður Jóhannesdóttir, f. 10.6. 1926, d.
15.10. 2007, húsfreyja. Þau bjuggu
alla tíð á Gunnarsstöðum í Þistilfirði.
Synir Kristínar og Ólafs eru: 1)
Oddur, f. 17.7. 1971 í Reykjavík, svæf-
ingalæknir á Akureyri. Maki hans er
Petra Halldórsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. Fyrri maki Odds er Meredith
Jane Cricco læknir, býr í Bandaríkj-
unum, þau eiga tvo syni; 2) Sigfús, f.
20.5. 1974 á Akureyri, aðstoðar-
framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu
Castlelake. Hann starfar og býr í
London, Englandi. Maki hans er
Margrét Rúna Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur, þau eiga þrjú
börn; 3) Lýður, f. 15.3. 1976 í Gauta-
borg, skurðlæknir í Kaupmannahöfn.
Sambýliskona hans er Pernille Kof-
oed, f. 23.4. 1970. Fyrri eiginkona
Lýðs er Rósa Hrönn Haraldsdóttir,
f. 22.6. 1971, hjúkrunarnemi, þau
eiga sex börn. Barnabörn Kristínar
og Ólafs eru ellefu. Kristín og Ólaf-
ur eignuðust andvana tvíburadætur
12.2. 1973.
Systkini Ólafs eru Vífill, f. 10.12.
1937, verkfræðingur í Reykjavík,
Ketill, f. 20.1. 1941, flugvirki í
Garðabæ; Þengill, f. 24.5. 1944,
læknir í Mosfellsbæ; Guðríður
Steinunn, f. 11.3. 1948, lífeindafræð-
ingur í Reykjavík; Jóhannes Vand-
ill, f. 12.6. 1956, verktaki í Mosfells-
bæ.
Foreldrar Ólafs voru hjónin
Oddur Ólafsson, f. 26.4. 1909, d.
18.1. 1990, yfirlæknir á Reykjalundi
og alþingismaður, og Ragnheiður
Jóhannesdóttir, f. 6.9. 1911, d. 23.2.
1996, húsmóðir og hárgreiðslu-
meistari og rak stofuna Carmen um
nokkurra ára skeið. Þau bjuggu
lengst af á Reykjalundi.
Ólafur Hergill
Oddsson
Vilborg Eiríksdóttir
húsfreyja í Kotvogi, frá Litlalandi í Ölfusi
Ketill Ketilsson
útvegsbóndi í
Kotvogi í Höfnum
Ólafur Ketilsson
útvegsbóndi á Kalmannstjörn
Steinunn Oddsdóttir
húsfreyja á Kalmannstjörn í Höfnum
Oddur Ólafsson
yfirlæknir á Reykjalundi,
síðar alþingismaður
Anna Vilhjálmsdóttir
húsfreyja á Stað í
Grindavík, síðar í Kanada
Oddur Vigfús Gíslason
prestur á Stað í Grindavík, síðar í Kanada
Jóhann Tómasson
prestur á Hesti í Andakíl
Arnbjörg Jóhannesdóttir
húsfreyja á Hesti
Jóhannes Lárus Lynge Jóhannsson
prestur á Kvennabrekku, síðar
starfsmaður Orðabókar HÍ
Guðríður Helgadóttir
húsfreyja á Kvennabrekku í Miðdölum og síðar á Laugavegi 54b, Reykjavík
Helgi Helgason
bóndi í Syðri-Hraundal
Guðný Hannesdóttir
húsfreyja í Syðri-Hraundal á Mýrum
Ætt Ólafs Hergils Oddssonar
Ragnheiður Jóhannesdóttir
hárgreiðslumeistari og húsfreyja
á Reykjalundi í Mosfellssveit
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Ekki láta gæludýrið
fara í jólaköttinn
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LÍFSGÆÐAKAPPHLAUP Í FIMMTÁN ÁR,
RÚNAR? HVER ÞRÁIR ÞAÐ?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá helling af
knúsum.
GRETTIR, ÞAÐ ER HÁTTATÍMI
BARA FIMM
MÍNÚTUR Í
VIÐBÓT
HÚSIÐ ÞARF VIÐHALD …
HÚSNÆÐISLÁNIÐ Í VANSKILUM …
OG ÞAÐ ERU HÚSDÝR UM ALLT HÚS!
HELGA, ELSKAN MÍN, LÍTTU Á
BJÖRTU HLIÐARNAR … DOKAÐU
VIÐ OG ANDAÐU AÐ ÞÉR ILMI
BLÓMANNA!
GET ÞAÐ EKKI.
MAUL
„ÞORPSBÚARNIR HEIMTA ZOOM-FUND.“
Sigurlín Hermannsdóttir vinnur
á Alþingi og sendi jólakveðju
til samstarfsmanna:
Strembið er þingið og starfsdagur grár
stöðugt er höndlað með lögin til fjár.
Og menn þurfa’ að vinna uns verða þau
klár
þá virðist mér fokið í skjólin.
Munu þeir tala út allt þetta ár?
Ætli þeir fundi um jólin?
Landsmenn fá yfir sig alls konar spár
ómíkron-stuðullinn verða mun hár.
En þrátt fyrir kóvíd og kosningafár
kærleiksrík höldum við jólin.
Eftir þau kemur eitt óskrifað ár
og upp á við mjakast loks sólin.
Ég greip ljóðabók Sigurlínar,
„Nágrannar, stuðlamál og stutt-
sögur“, til að lesa nú yfir hátíð-
irnar. Mér þykir það góð bók og
eiga erindi. Hér er „Vetur hörfar“:
Sinan hylur holt og móa
hvergi nokkur litur
upp þó taki alla snjóa
ís í jörðu situr.
Í viðjum bíður vorsins forði
væntanlegur aftur.
Undir köldu yfirborði
ólgar líf og kraftur.
Á næstu síðu eru „Vorboðar“:
Máríerlu mæri,
mín er vinan fínust.
Hrossagaukur hressir
hneggið kerlur eggjar.
Stelk með rauða stilka
á staur sá kátan gaurinn.
Músarrindlar masa
mest er samt af þresti.
Hér gefur Sigurlín „Heilræði“:
Þegar bjátar eitthvað á
aldrei gráta skaltu
láttu hlátur lyfta brá
lyndi kátu haltu.
Nú rifjast upp Kristján Fjalla-
skáld:
Við skulum ekki víla hót
það varla léttir trega,
og það er þó alltaf búningsbót
að bera sig karlmannlega.
Enn yrkir Kristján og ekki er
ástandið gott!
Á ævi minni er engin mynd,
hjá austanvérum slyngum
ég er eins og kláðakind
í klóm á Húnvetningum.
Benedikt Jóhannsson yrkir á
Boðnarmiði:
Gott er að slæpast og slugsa
slakur um jól
og vel um heilsuna hugsa
í hægindastól.
Gamall húsgangur í lokin:
Auminginn hann afi minn
attanbrattur kauði,
pyngir hann í pokann sinn
pundi af svartabrauði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Upp á við mjakast sólin