Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.12.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 England Newcastle – Manchester United ............ 1:1 Staðan: Manch. City 19 15 2 2 50:12 47 Liverpool 18 12 5 1 50:15 41 Chelsea 19 12 5 2 42:13 41 Arsenal 19 11 2 6 32:23 35 Tottenham 16 9 2 5 21:19 29 West Ham 18 8 4 6 30:24 28 Manch. Utd 17 8 4 5 27:25 28 Wolves 18 7 4 7 13:14 25 Brighton 17 5 8 4 16:17 23 Leicester 17 6 4 7 30:33 22 Aston Villa 18 7 1 10 24:28 22 Crystal Palace 18 4 8 6 24:27 20 Brentford 17 5 5 7 21:24 20 Southampton 18 4 8 6 19:28 20 Everton 17 5 4 8 21:29 19 Leeds 18 3 7 8 18:36 16 Watford 16 4 1 11 21:31 13 Burnley 15 1 8 6 14:21 11 Newcastle 19 1 8 10 19:42 11 Norwich 18 2 4 12 8:39 10 B-deild: Derby – WBA ........................................... 1:0 QPR – Bournemouth................................ 0:1 Staða efstu liða: Bournemouth 24 13 7 4 38:20 46 Fulham 23 13 6 4 51:19 45 Blackburn 23 12 6 5 41:27 42 WBA 24 11 8 5 30:18 41 Middlesbrough 24 10 6 8 27:23 36 Huddersfield 24 10 6 8 31:29 36 Belgía Charleroi – OH Leuven........................... 0:3 - Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Leu- ven í leiknum. 4.$--3795.$ Þýskaland RN Löwen – Hannover-Burgdorf ..... 25:31 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. - Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Füchse Berlín – Melsungen................ 28:29 - Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyr- ir Melsungen, Alexander Petersson eitt en Arnar Freyr Arnarsson ekkert. Hamburg – Bergischer....................... 26:27 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Bergischer. B-deild: Aue – Dessauer.................................... 34:26 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6 mörk fyrir Aue en Sveinbjörn Pétursson lék ekki með liðinu. Danmörk Kolding – Fredericia........................... 27:31 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í marki Kolding, 31%, og skoraði eitt mark. Svíþjóð Bikar kvenna, undanúrslit, seinni leikur: Kristianstad – Skara........................... 32:31 - Andrea Jacobsen skoraði 7 mörk fyrir Kristianstad sem tapaði 58:63 samanlagt. %$.62)0-# Subway-deild karla Þór Þ. – Grindavík................................ 91:95 Staðan: Keflavík 10 9 1 897:814 18 Þór Þ. 11 8 3 1063:964 16 Grindavík 11 7 4 915:899 14 Tindastóll 10 6 4 852:868 12 Njarðvík 9 6 3 860:759 12 Valur 10 6 4 800:792 12 KR 10 5 5 907:920 10 Breiðablik 10 4 6 1049:1031 8 Stjarnan 9 4 5 779:766 8 ÍR 10 3 7 869:931 6 Vestri 10 2 8 796:871 4 Þór Ak. 10 0 10 738:910 0 1. deild karla Skallagrímur – Höttur ....................... 79:109 Álftanes – Sindri................................... 90:87 Staðan: Haukar 14 12 2 1452:1066 24 Álftanes 14 11 3 1321:1144 22 Höttur 12 10 2 1195:1008 20 Sindri 14 8 6 1274:1209 16 Selfoss 13 7 6 1114:1114 14 Fjölnir 13 7 6 1158:1192 14 Skallagrímur 15 5 10 1249:1328 10 Hrunamenn 14 4 10 1197:1363 8 Hamar 12 2 10 934:1112 4 ÍA 13 1 12 964:1322 2 Belgía/Holland Den Helder – Landstede Hammers .. 77:74 - Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor- aði 15 stig, tók 10 fráköst og átti 2 stoðsend- ingar á 34 mínútum með Landstede. NBA-deildin Miami – Orlando................................... 93:83 Cleveland – Toronto........................... 144:99 Washington – Philadelphia................ 96:117 Sacramento – Memphis ................... 102:127 Oklahoma City – New Orleans........ 117:112 San Antonio – Detroit ...................... 144:109 Chicago – Indiana............................. 113:105 LA Clippers – Denver...................... 100:103 4"5'*2)0-# Systkini á unglingsaldri urðu fyrir valinu sem karatefólk ársins 2021 hjá Karatesambandi Íslands. Það eru þau Ronja Halldórsdóttir, 17 ára, og Hugi Halldórsson, 16 ára, Hafnfirðingar sem keppa fyrir Ka- ratefélag Reykjavíkur. Þau urðu bæði bikarmeistarar fullorðinna á árinu og Hugi varð jafnframt Norð- urlandameistari unglinga í kumite. Þá sigruðu þau bæði í fullorðins- flokkum og unglingaflokkum á Reykjavíkurleikunum í janúar 2021 og Ronja fékk brons á Norður- landamóti unglinga. Systkinin voru best á árinu Ljósmynd/kai.is Systkinin Ronja og Hugi með verð- launin frá Karatesambandinu. Liverpool og egypska knattspyrnu- sambandið hafa komist að sam- komulagi um að Mohamed Salah haldi til Kamerúns til þess að taka þátt með Egyptum í Afríkumótinu í knattspyrnu að loknum leik Liver- pool gegn Chelsea 2. janúar. Allt út- lit var fyrir að Salah myndi missa af leiknum mikilvæga í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þar sem flestir sem taka þátt í Afríkumótinu verða farnir þegar leikurinn fer fram. Sadio Mané og Naby Keita, leikmenn Liverpool, fara einnig á mótið með Senegal og Gíneu. Salah nær að spila í London AFP 15 Mohamed Salah er markahæstur allra í ensku úrvalsdeildinni. HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Teitur Örn Einarsson hefur komið sem stormsveipur inn í þýska hand- boltann eftir að hafa gengið til liðs við Flensburg frá sænska félaginu Kristianstad fyrir rúmum tveimur mánuðum. Teitur hefur smollið sem flís við rass hjá þýska liðinu þar sem hann leikur í stöðu hægri skyttu og látið vel að sér kveða þegar kemur að markaskorun og að gefa stoðsend- ingar. Í þeim 11 leikjum sem Flens- burg hefur spilað í 1. deildinni frá því Teitur kom hafa níu þeirra unnist, tveir endað með jafntefli og enginn tapast og er liðið farið að gera sig gildandi í toppbaráttunni. Er tilkoma hans helsta ástæðan fyrir þessu frábæra gengi? „Það er erfitt að segja en það hjálp- ar gríðarlega í handbolta að vera með örvhentan leikmann í sínu liði. Lið eru alltaf hálflöskuð þegar þau eru að spila með þrjá rétthenta leikmenn fyrir utan. Áður en ég kom voru allir örvhentu leikmennirnir meiddir. Það má alveg segja að ég hafi komið inn sem mikilvægur leikmaður, að geta verið þarna og kastað með vinstri. Það var svolítið það sem þá vantaði; einhver sem gæti kastað boltanum með vinstri og ekki verið hálfheftir alltaf í spilinu, að þurfa að spila með þrjá rétthenta,“ sagði Teitur hógvær í samtali við Morgunblaðið. Félagaskiptin hentuðu bæði hinum 23 ára gamla Teiti og Flensburg afar vel þar sem hann tók skrefið upp í sterkari deild og liðið vantaði sárlega örvhenta skyttu. Skiptin bar brátt að. „Það var eitthvað búið að heyrast af áhuga Flensburg fyrir tímabilið en það var bara til þess að spyrja út í mig og fá að vita hver ég væri. Það voru engin önnur samskipti þá,“ sagði hann. Fékk strax nýjan samning „Hægriskyttan sem var að koma til baka úr krossbandsslitum, það kom eitthvert bakslag í hnéð á honum og þá hringdu þeir í mig á miðvikudegi, ég keyrði til Flensburg á laugardegi og skrifaði undir á sunnudegi,“ út- skýrði Teitur. Upphaflega gerði hann skamm- tímasamning út yfirstandandi tímabil en vegna góðrar frammistöðu var hann verðlaunaður með nýjum samn- ingi sem rennur út sumarið 2024. Teitur sagði framlenginguna til marks um að ánægja ríkti með frammistöðu hans til þessa. „Samn- ingurinn sýnir að þjálfaranum og lið- inu finnst ég meira en nógu góður til þess að spila í þessari deild og passa fullkomlega inn í liðið.“ Gífurlegur styrkleikamunur Teitur segir skrefið úr sænsku úr- valsdeildinni yfir í hina ógnarsterku þýsku 1. deild stórt og mikið. „Það er rosalegur munur á deildunum, bæði hvað líkamlegan styrk leikmanna og hæfileika varðar. Sænska deildin er nær íslensku deildinni en þeirri þýsku nokkurn tíma. Það er svaka- legur munur, sérstaklega á breidd- inni. Það eru öll lið góð hér og maður getur ekki mætt í neinn leik og geng- ið að einhverju sem vísu. Ef maður er ekki 100 prósent þá lendir maður bara í veseni eins og við gerðum í Bal- ingen. Þá vorum við að spila á móti næstneðsta liðinu í deildinni og af því að við vorum ekki 100 prósent lentum við bara í veseni og gerðum jafntefli við þá. Við töpuðum þar dýrmætum stigum,“ sagði Teitur. Hann þurfti þó ekki á neinum að- lögunartíma að halda og hélt góðum dampi úr sænsku deildinni yfir í þá þýsku. Hvernig tókst Teiti að aðlag- ast þýsku deildinni þetta fljótt? „Ég veit það eiginlega ekki. Ég kom bara og spilaði minn handbolta, ég var ekkert að aðlaga mig einhverju held- ur mætti ég bara og gerði það sem ég veit að ég er góður í. Ég var ekkert að reyna að flækja hlutina og gera ein- hverjar gloríur.“ Með rosalega gott lið Teitur er í íslenska landsliðinu sem tekur þátt í EM í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar á næsta ári. Hann er spenntur fyrir mótinu og telur liðið geta staðið sig vel. „Ég hef fulla trú á liðinu og mér finnst við vera með rosalega gott lið. Við eru með mjög mikið af góðum leikmönnum. Ég þori ekki að nefna einhver sæti eða eitt- hvað svoleiðis en ég veit að fyrsta markmiðið verður að lenda í fyrsta sæti í riðlinum, það er ávallt mark- miðið í byrjun. Það er ofboðslega mikilvægt upp á milliriðlana að gera, að vinna sinn rið- il. Ég hugsa að það sé alveg gerlegt fyrir okkur að vinna þennan riðil okk- ar. Þetta verða þrír erfiðir leikir en ég held að þetta sé gerlegt fyrir okk- ur með þetta lið sem við erum með núna,“ sagði Teitur. Kynslóðaskiptunum lokið Undanfarin ár hafa kynslóðaskipti átt sér stað hjá íslenska landsliðinu og árangurinn á síðustu stórmótum verið dræmur. Nú teljast fjölmargir leikmanna ekki lengur ungir og efni- legir heldur vaxnir úr grasi og ein- faldlega góðir leikmenn. Með því eykst pressan á landsliðið að standa sig vel þótt Teitur hafi ekki orðið var við neina utanaðkomandi pressu. „Ég get náttúrlega bara talað fyrir sjálfan mig en mér finnst við ekki finna fyrir neinni pressu nema frá okkur sjálfum þegar kemur að því að standa okkur á stórmótum. Þessum kynslóðaskiptum er nú eiginlega bara lokið og við erum allir orðnir góðir handboltamenn. Það sést ef maður horfir á liðin sem við erum að spila í og hvað menn eru að gera í þeim liðum, góðum liðum í góðum deildum. Það er varla hægt að kalla okkur einhverja krakka eða unglinga lengur. Að mínu mati er það allavega engin afsökun að við séum í ein- hverjum kynslóðaskiptum. Við mun- um setja okkur háleit markmið enda stefnum við hátt,“ sagði Teitur að lok- um við Morgunblaðið. Allir orðnir góðir hand- boltamenn - Teitur gerir það gott í Þýskalandi - Hefur fulla trú á landsliðinu á EM Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölhæfur Teitur Örn Einarsson er einn af fimm örvhentum leikmönnum í landsliðshópnum og gæti spilað hvort sem er sem skytta eða í horninu. Grindvíkingar áttu frábæran enda- sprett í gærkvöld þegar þeir sneru blaðinu við og sigruðu Íslandsmeist- ara Þórs á útivelli í Þorlákshöfn í úr- valsdeild karla í körfuknattleik, 95:91. Grindvíkingar styrktu þar með stöðu sína í þriðja sætinu og eru nú tveimur stigum á eftir Þórsurum, sem hefðu náð Keflavík með sigri. Þór var með tólf stiga forystu í byrjun fjórða leikhluta en Grindvík- ingar náðu að jafna um hann miðjan og þriggja stiga körfur Ólafs Ólafs- sonar og ísraelska bakvarðarins Na- or Sharabani gerðu útslagið undir lokin. Sharabani skoraði 21 stig fyrir Grindavík, Ólafur Ólafsson og Ivan Aurrecoechea 20 hvor, en Aurre- coechea tók auk þess 12 fráköst. Danski framherjinn Daniel Mortensen skoraði 32 stig fyrir Þór og tók 9 fráköst, Glynn Watson skor- aði 19 og Davíð Arnar Ágústsson skoraði 18, öll með þriggja stiga skotum þar sem hann var með 60 prósenta nýtingu. Frábær lokasprettur Grind- víkinga gegn meisturunum Morgunblaðið/Árni Sæberg Drjúgur Ólafur Ólafsson var Grindvíkingum mikilvægur í Þorlákshöfn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.