Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 28

Morgunblaðið - 28.12.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Stigar og tröppur í mjög góðu úrvali Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kate hertogaynja af Cambridge kom kirkjugestum á óvart við jóla- messu í Westminster Abbey þegar hún lék á píanó í flutningi tónlistar- mannsins Toms Walkers á nýju jóla- lagi hans sem nefnist „For Those Who Can’t Be Here“. Áður höfðu þau á laun tekið lagið upp í stúdíói og var þeirri upptöku deilt á twit- terreikningi Kensington-hall- arinnar um jólin og jafnframt sýnd á sjónvarpsstöðinni ITV. Kate lærði á píanó á sínum yngri árum. Walker var hæstánægður með frammistöð- una og sagði Kate hafa neglt þetta. Kate kom á óvart með píanóleik sínum Fjölhæf Kate hertogaynja af Cambridge. Hinn áhrifamikli bandaríski rit- höfundur Joan Didion er látin, 87 ára gömul. Didion var fjöl- hæfur, vinsæll og virtur höfundur en hvað mest áhrif höfðu greinaskrif hennar seint á sjöunda áratugnum og þeim áttunda, sem kennd hafa verið við „nýja blaðamennsku“, greinar um mannlíf og dægur- menningu samtímans, til að mynda hippamenninguna, og þá einkum í Kaliforníuríki. Þekktustu greina- söfn hennar frá þeim tíma eru Slouching Towards Bethlehem (1968) og The White Album (1979). Skáldsögur Didion þóttu gagn- rýnendum einnig slá nýjan tón í bandarískum bókmenntum en þekktastar eru Play It as It Lays og A Book of Common Prayer. Um langt skeið störfuðu Didion og eiginmaður hennar, John Greg- ory Dunne, saman að handrits- skrifum fyrir kvikmyndir og þá skrifaði hún einnig nokkrar bækur um stjórnmál og átök í Bandaríkj- unum og nágrannalöndum. Greina- safnið Where I Was From (2003) fjallar til dæmis um Kaliforníu, Salvador (1983) um borgarastyrj- öldina í El Salvador og Miami (1987) um innflytjendur í Flórída. The Year of Magical Thinking (2005) fjallar um dauða eiginmanns Didion og einkadóttur þeirra og hreppti National Book Award. Rithöfundurinn Joan Didion látin Joan Didion Drottningin sem kunni allt nema … er bók fyrir börn sem nálgast skólaaldurinn og eru búin að ná tökum á flestu, nema kannski því sem skiptir svo miklu máli þegar mað- ur byrjar í barnaskóla. Frábærar teikningar Ránar Flygenring eru í aðalhlutverki í bók- inni, en texti Gunnars Helgasonar er líka einkar lifandi og skemmtilegur. Skemmtun fyrir börn og fullorðna, eins og allar góðar barnabækur eiga að vera.. Lesið líka Kennarinn sem kveikti í eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason. Barnabókin Í ljóðasafni Þórdísar Helga- dóttur, Tanntöku, kallast fegurðin og ljótleikinn á. Skáldið kafar ofan í hið lík- amlega með hráum lýs- ingum sem oftar en ekki reynast magnaðar. Í Tann- töku má finna vissa þroska- sögu og sögu af fjölskyldu- böndum og öðrum mann- legum samböndum. Ljóðin eru frumleg, stundum óhugnanleg og veita lesandanum ákveðna mótstöðu en það gerir þau bæði spennandi og áhrifarík. Lesið líka Á asklimum ernir sitja eftir Matt- hías Johannessen og Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal. Ljóðabókin Kristinn E. Andrésson var einn áhrifamesti hliðvörður íslenskrar menningar í ára- tugi, vel studdur af Þóru Vigfúsdóttur eiginkonu sinni. Ævisaga þeirra hjóna, Kristinn og Þóra - Rauðir þræðir, eftir Rósu Magnúsdóttur, er saga þeirra og um leið íslenskrar menningar frá fjórða og fram á áttunda áratug síðustu aldar. Vel kem- ur fram í bókinni hvernig trúin á bóndann í Kreml litaði þeirra líf allt og starf. Lesið líka IImreyr eftir Ólínu Kjerúlf Þor- varðardóttur og Læknirinn í Englaverksmiðj- unni eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur. Ævisagan Bækur ársins Bókaútgáfa jókst milli ára og útgefendum fjölgaði. Pestarfár síð- ustu tveggja ára kemur eðlilega víða við sögu, en einnig glíma rithöfundar við stærstu mál samtímans, ekki síður en ólguna sem geisar innra með okkur. Árni Matthíasson og Ragnheiður Birgisdóttir stungu sér í bókaflóðið og veiddu upp þær bækur sem þeim þótti skara fram úr að gæðum og frumleika. Óskilamunir eftir Evu Rún Snorradóttur er verk sem liggur á mörk- um skáldsögu og ör- sagnasafns. Það hefur að geyma frásagnir úr lífi listakonu sem hefur ný- lega gengið í gegnum skilnað. Formið er frum- legt og krefjandi; örsög- ur, ljóð og ljósmyndir mynda þéttriðið net merkingar. Myndin sem dregin er upp er brotakennd en þó tekst höfundinum að setja fram sannfærandi heildarsýn. Eva Rún kem- ur ótrúlega miklu fyrir í hverri sögu, ljóð- rænn textinn er þéttur og uppfullur af áleitn- um hugmyndum um ást, sorg og sársauka. Lesið líka Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Guð leitar að Salóme eftir Júlíu Margréti Ein- arsdóttur. Skáldverkið Bernardine Evaristo dreg- ur upp áhrifamikla mynd af stöðu þeldökkra í Bretlandi í verki sínu Stúlka, kona, annað. Sögur tólf persóna fléttast saman og mynda marglaga vef þar sem vangaveltur um stétt, kyn- þætti og kynhneigð koma saman. Verkið dregur fram þann margbreytileika sem einkennir samfélag samtímans. Evaristo hlaut Booker-verðlaunin fyrir verkið sem kom út í vandaðri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur. Lesið líka Nickel-strákana eftir Colson Whitehead og Tsjernobyl-bænina eftir Svetl- önu Aleksíevítsj. Þýðingin Birta, aðalpersóna skáldsög- unnar Sterk eftir Margréti Tryggvadóttur, er trans- stúlka sem flyst til borg- arinnar úr þorpinu til að geta verið hún sjálf. Í húsinu sem Birta býr í er mikið rennerí af öðrum leigjendum og hún kemst á snoðir um að ekki er allt með felldu. Myndin sem Margrét gefur af Birtu er ekki síst trúverðug fyrir það hvernig hún hafn- ar staðalímyndum – transkonur og -karlar eru nefnilega alls konar. Lesið líka Mister EinSam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur og Eldinn eftir Hjalta Hall- dórsson. Ungmennabókin Eins og viðeigandi verður að teljast þegar norræn glæpasaga er annars vegar eru myrkur og kuldi í stóru hlutverki í Þú sérð mig ekki eftir Evu Björgu Ægisdótt- ur. Bókin hefst þar sem meðlimir auðugrar fjöl- skyldu safnast saman í hót- eli á Snæfellsnesi í illviðri og myrkri allir með sín leyndarmál. Bókin er einkar vel skrifuð og kemur lesandanum á óvart hvað eftir annað. Lögregluteymið úr fyrri bókum Evu birtist en þetta er saga um glæp, frekar en rannsókn. Lesið líka Launsátur eftir Jónínu Leósdótt- ur og Náhvíta jörð eftir Lilju Sigurðardóttur. Glæpasagan Lóa Hlín Hjálmtýs- dóttir setti sér það markmið að teikna eina mynd á dag allt árið 2020. Það tókst og úr varð hin dásamlega litríka bók Dæs. Lóu óraði auðvitað ekki fyrir því að árið 2020 yrði eins og það varð og úr varð skemmtileg heimild um lífið á þessu viðburðaríka og á sama tíma viðburðalitla ári. Húmor og alvara takast á í þessu myndasögusafni þar sem myndlistin og bókmenntirnar mætast. Lesið líka Stríð og klið eftir Sverri Norland og Erindi: Póetík í Reykjavík, safn hugleið- inga eftir fjórtán höfunda. Pælingin Bókmenntafræðingurinn Guðni Elísson stígur hinum megin borðs og gengur í lið rithöfunda með fyrstu skáldsögu sinni Ljósgildr- unni. Bókin er mikil að vöxtum, 800 síður, en mætti eiginlega ekki vera styttri, svo mikið er undir. Í bók- inni leikur Guðni sér með bókmenntahefðina með til- vísunum í samtíma- og stjórnmálasögu, sem oft eru meinlega fyndnar. Margir hafa fundið sjálfa sig í bókinni, en hún er um okkur öll. Lesið líka Þegar fennir í sporin eftir Stein- dór Ívarsson og Að telja upp í milljón eftir Önnu Hafþórsdóttur. Frumraunin Fjölmargar bækur hafa verið skrifaðar um morðið á Natani Ketilssyni á Illuga- stöðum árið 1828, ort hafa um það ljóð og sungnir textar. Það er þó ekki fyrr en nú með bók Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur, Bærinn brennur, sem rýnt er í frumgögn málsins, rannsókarskýrslur og yfirheyrslur, en ekki byggt á munnmælum. Fyrir vikið gefur bókin nýja sýn á það sem fram fór og dregur upp trúverðuga mynd af ógæfufólkinu og fórnar- lömbum þess. Lýsingarnar á aðförunum eru hrottalegar og ekki síður lýsing grimmilegs samfélags þar sem líf fátæklings var lítils virði. Lesið líka bókin um Kristínu Þorkelsdóttur eftir Birnu Geirfinnsdóttur og Bryndísi Björg- vinsdóttur og Skáldkona gengur laus eftir Guðrúnu Ingólfsdóttur. Fræðiritið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.