Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 32
Þrátt fyrir samkomutakmarkanir á tímum heimsfarald- urs hefur nýjasta Spider-Man-myndin þegar sett nýtt met í fjölda seldra miða á heimsvísu. Spider-Man: No Way Home var frumsýnd 13. desember og nú þegar hafa miðar verið seldir fyrir rúman milljarð bandaríkja- dala. Samkvæmt frétt BBC er þetta fyrsta kvikmyndin eftir að heimsfaraldurinn braust út þar sem miðasala fer yfir milljarð dala. Samkvæmt útreikningum Com- score gerðist það síðast árið 2019 með myndina Star Wars: The Rise of Skywalker. Metfjöldi miða seldur á Spider-Man fór í hana og festist í henni,“ segir hann. „Þegar ég var ungur voru ferðalögin skemmtilegust. Við fórum víða um Vestfirðina og komum hing- að suður. Um miðjan áttunda áratug- inn spiluðum við í Ýri til dæmis oft í Klúbbnum í Reykjavík.“ Á þessum árum hljóðritaði Ýr plötu í New York og þar komst Reynir næst Bítlunum. „Eitt lagið á plötunni, „Kanínan“, sló svolítið í gegn og Stebbi Hilmars og Sálin hans Jóns míns gerðu það enn vin- sælla. „Þetta var „hittari“ á sínum tíma, lifði lengi og enn heyrist það í útvarpinu auk þess sem við tökum það reglulega.“ Böndin hafa verið misjöfn og höfð- að til ólíkra aldurshópa. Reynir segir að þegar hann var í Saga Class hafi þeir þurft að laga tónlistina að eldra fólki en áður. „Allt í einu rann upp sá dagur að við vorum orðnir elstir í húsinu, enginn vildi lengur heyra gömludansalögin og við vildum held- ur ekki spila þau.“ Reynir segir að spilamennskan hafi verið slitrótt á covid-tímum og enginn lifi á tónlist um þessar mund- ir. Hann eigi mörg lög í kistunni og gefist ekki upp þótt á móti blási. „Ég þurfti að koma þesari plötu út og til- fellið er að þegar maður er kominn af stað er þetta ekkert mál.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Reynir Guðmundsson frá Ísafirði hefur komið víða við í tónlistinni frá 1965, spilað og sungið á mörgum plötum en gaf nýverið út sína fyrstu sólóplötu, Reyni. „Ég hef verið lengi að og þurfti að koma plötu frá mér,“ segir hann. Eftir að Bítlarnir skutust fram á sjónarsviðið spruttu upp bönd í öll- um heimshornum. Líka á Ísafirði. „Um fermingaraldurinn vissi ég hvað ég vildi verða, en ég varð samt aldrei alveg eins frægur og Bítl- arnir,“ rifjar Reynir upp. „Spýtu- byssurnar voru lagðar til hliðar og þeim jafnvel hent eftir að gítarinn tók öll völd,“ heldur hann áfram. Erf- itt hafi verið að manna hljómsveit og enn erfiðara að fylla í skarðið, þegar einhver heltist úr lestinni. Þetta hafi samt allt hafst á vestfirsku þrjósk- unni og nú sé hann fær í flestan sjó. Með átta lög af níu Níu lög eru á plötunni og þar af átta lög og textar eftir Reyni en Þór- ir Úlfarsson samdi eitt lagið við texta Stefáns Hilmarssonar. Á meðal undirleikara eru Gunnlaugur Briem trommari, Pétur Valgarð Pétursson gítarleikari og Þórir Úlfarsson hljómborðsleikari með meiru en hann sá auk þess um hljóðblöndun. Hljóðjöfnun fór fram í hljóðveri Sig- urdórs Guðmundssonar í Kaup- mannahöfn og útgefandi er hljóm- plötuútgáfan Zonet, sem á 20 ára afmæli um þessar mundir. Ferill Reynis byrjaði með Rúnari Þór Péturssyni og fleirum í skóla- hljómsveitinni Skippers 1965 og fljótlega lá leiðin í rokksveitina Ýri, forvera Grafíkur. Lengst af var hann í Saga Class, húsbandi Hótels Sögu, frá 1993 til 2010, en fyrir nokkrum árum tóku skólafélagarnir á Ísafirði upp gamla þráðinn og hafa spilað saman í bandinu Trap. „Við erum bara að leika okkur, komum saman til þess að halda okkur við,“ segir Reynir. Tónlistin virkar sem segull á marga og þar á meðal á Reyni. „Ég Spýtubyssur viku fyrir tónlistinni - Reynir Guðmundsson sendir frá sér fyrstu sólóplötuna Tónlist Reynir Guðmundsson hefur sent frá sér sólóplötu. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þessum kynslóðaskiptum er nú eiginlega bara lokið og við erum allir orðnir góðir handboltamenn. Það er varla hægt að kalla okkur einhverja krakka eða ung- linga lengur. Við munum setja okkur háleit markmið enda stefnum við hátt,“ sagði Teitur Örn Einarsson, landsliðsmaður í handbolta, um möguleika Íslands á EM í janúar. »26 Munum setja okkur háleit markmið ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.