Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 1
Björgunarsveitir lögðu lögreglu til fjölmennt lið í gær, þegar leitað var að illa áttuðum og fáklæddum manni í Elliðaárdal. Á myndinni sjást þrír af þeim rúmlega hundrað björgunarsveit- armönnum sem leituðu mannsins, sem fannst heill á húfi um kvöldið. Fyrir norðan voru björgunarsveitir kallaðar út vegna vonskuveðurs sem skall á síðdegis í gær. Fjöldi bíla fór út af veginum innst í Öxnadal en engar fregnir bárust af slysum á fólki. Á sama tíma hófu sveitirnar árlega flugeldasölu sína um land allt, en síðustu daga hafa sjálfboðaliðar flokkað vörur og sett upp sölustaði sem verða opnir frá morgni til kvölds. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Annasamur dagur hjá björgunarsveitum víða um landið M I Ð V I K U D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 305. tölublað . 109. árgangur . SYKURMAGN MINNKAÐ UMTALSVERT SKRIFA MJÖG NÚTÍMALEGA TÓNLIST MIKIL BREYTING AÐ FARA BEINT HÉÐAN TIL ÍTALÍU STEINGRÍMUR ROHLOFF 24 BRYNJAR INGI 23VIÐSKIPTAMOGGINN Tvö hundruð sex- tíu og níu nýir fé- lagar hafa bæst við það sem af er ári í höfundar- réttarsamtökin STEF að sögn Guðrúnar Bjark- ar Bjarnadóttur, framkvæmda- stjóra samtak- anna. Hún segir fjölgunina bera vitni um mikla grósku á tónlistarsviðinu. „Ungt fólk er að skila sér til okkar,“ segir Guðrún í samtali við Viðskipta- Moggann. Tekjurnar 100 milljónir Í samtalinu kemur einnig fram að tekjur íslenskra tónlistarmanna af streymisveitum meira en tvöföld- uðust á árinu sem nú er að líða. Tekjurnar námu rúmum 97 millj- ónum króna fyrstu ellefu mánuði ársins en allt árið í fyrra voru þær tæpar 44 milljónir. Guðrún segir að um sé að ræða greiðslur til lagahöfunda en tekjur til flytjenda og útgefenda séu ekki inni í þessum tölum. „Ef þú ert eigin útgefandi og flytjandi líka færðu greitt fyrir sama streymi annars staðar frá. Sú greiðsla kemur ekki í gegnum höfundarréttarsamtök, heldur beint frá útgefanda sem fær tekjurnar í gegnum sinn miðlara eða dreifingaraðila,“ útskýrir Guðrún. Fái stærri sneið Að hennar sögn rennur um ein króna af hverju streymi til íslenskra tónlistarmanna. Af því fá útgefendur og flytjendur 55%. „Það er mín skoð- un að lagahöfundar eigi að fá stærri sneið af kökunni.“ Hundruð nýrra félaga hjá STEFi - Streymistekjur tvöfölduðust á árinu Guðrún Björk Bjarnadóttir Ari Páll Karlsson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er með til athugunar breytingar á leiðbeiningum um einangrun og sóttkví vegna Covid-19, með hliðsjón af nýjum leiðbeiningum sóttvarna- stofnunar Bandaríkjanna um að stytta einangrun einkennalausra smitaðra einstaklinga úr tíu dögum í fimm og viðhafa grímuskyldu í fimm daga eftir það. Víðir Reynisson, yfirlögreglu- þjónn almannavarna, segir í samtali við Morgunblaðið að gert sé ráð fyrir að þessari vinnu ljúki í síðasta lagi í dag. Spurður hvort það sé hætt við því að faraldurinn fari úr böndunum ef einangrunartími verður styttur og fólki falin sú ábyrgð í staðinn að bera grímu í kringum annað fólk, segir Víðir: „Ef það verður metið þannig þá munum við ekki gera þetta, en sóttvarnastofnun Bandaríkjanna er með gríðarlegan fjölda sérfræðinga og mikla hópa sem þeir geta rann- sakað. Hingað til hafa gögn þeirra reynst okkur nokkuð góð og við höf- um farið eftir þeirra mati í mörgum tilfellum.“ Landspítalinn var færður á neyð- arstig í gær og segir Víðir þá ákvörð- un hafa breytt stöðunni. „Þannig að við verðum að taka tillit til þess í okkar vinnu.“ Margir að hringja í göngudeild Sóttvarnalæknir bað fólk í gær um að hætta að hringja í göngudeild Co- vid-19 til að fá fram styttingu ein- angrunar, fyrr en sjö dagar væru liðnir af henni. Samkvæmt núgild- andi reglugerð er heimilt að stytta eða lengja einangrun með mati lækna á göngudeild Covid-19. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að til greina kæmi að stytta einangrun einkennalausra, gæfi slíkt góða raun í Bandaríkjun- um. Það yrði þó gert í samráði við sóttvarnalækni. »4 og 11 Niðurstaða um styttingu einangrunar á að fást í dag - Til skoðunar að stytta einangrun eins og í Bandaríkjunum Morgunblaðið/Eggert Beðið Fjöldi smita hefur greinst eftir skimanir undanfarna daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.