Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég er mjög ánægður með að fá að
skrifa svona mikið fyrir þessar
dönsku hljómsveitir sem virðast hafa
uppgötvað mig,“ segir íslensk-þýska
tónskáldið Steingrímur Rohloff þegar
blaðamaður sló á þráðinn til hans yfir
hafið, í aðraganda fimmtugsafmælis
hans sem vill svo til að er í dag 29.
desember, til þess að forvitnast um
störf hans í Danmörku.
Steingrímur hefur verið beðinn að
semja fjögur verk fyrir þrjár merkar
danskar hljómsveitir.
Hinn 17. mars mun Sinfóníuhljóm-
sveit Álaborgar frumflytja verk eftir
hann. Það er svokallað „concerto
grosso“, þ.e. verk sem er flutt af stórri
hljómsveit og nokkrum einleikurum.
Einleikararnir fjórir sem þarna um
ræðir spila allir með Berlínarfíl-
harmóníunni og leika hver á sitt
málmblásturshljóðfærið. „Þetta er
stórt verk sem ég er mjög stoltur af
og það er draumi líkast hvernig þessir
einleikarar spila,“ segir hann.
Áhrif frá leikhúsi og nýsköpun
Steingrímur var einnig beðinn að
semja verk fyrir tónleika Fílharmó-
níusveitarinnar í Kaupmannahöfn
sem eru tileinkaðir tónskáldinu Rob-
ert Schumann og verða haldnir í byrj-
un mars. Þeir eru hluti af tónleikaröð-
inni „Afgørende øjeblikke“ þar sem
teknir eru fyrir hápunktar í tónlistar-
sögunni.
„Ég hef skrifað verk um hann sem
ég kalla „Schumann Fragmente“,
hann dó snemma og líf hans var nokk-
uð tragískt. Það verður hápunktur
þessara tónleika.“ Verkið er skrifað
fyrir einsöngvara og hljómsveit og er
undir áhrifum frá leikhúsinu en sjálf
hljómsveitin færir sig til í rýminu.
Raftónlist sem og vísanir í verk Schu-
manns koma einnig við sögu í verkinu.
„Það er viss nýsköpun og ég var í
góðu samstarfi við hljómsveitina og
öllum mínum hugmyndum var tekið
afskaplega vel.“
Sinfóníuhljómsveit Óðinsvéa hefur
einnig pantað tvö verk eftir Stein-
grím, „Krigsrequiem“ og „Doppel-
gänger-Koncert“. Í því síðarnefnda
umbreytast víóluleikararnir Law-
rence Powers og Rafaell Altino í hálf-
gerða tónlistartvífara. Hitt verkið er
stríðssálumessa fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit. „Það varpar ljósi á
stríð og sýnir ólíkar hliðar þess. Þetta
er frekar pólitísk sálumessa sem
varpar ljósi á samtímann og jafnvel
hlutverk Danmerkur í stríðinu í
Afganistan og Írak. En ég vil samt
halda þessu eins almennu og hægt er,
þetta er vandamál sem virðist ekki
ætla að hverfa, en þetta fjallar líka
svolítið um samtímann og Dan-
mörku,“ segir tónskáldið.
„Ég lærði fyrst í Köln í Þýskalandi
og síðan í París og það sem mér
fannst svo gott við námið í París var
áherslan á hljómsveitarútsetningu,
þar hafði maður hljómsveit til að
vinna með svo þar var mögulegt að
upplifa að tónlistin væri spiluð af
stórri hljómsveit. Svo það að ég skuli
vera eftirsóttur í dag má þakka náms-
árunum í París. Það að semja fyrir
stórar hljómsveitir er flókið, þetta er
flókið bæði félagslega og hljóð-
fræðilega.“
Steingrímur hefur gaman af því að
skrifa tilraunakennda tónist. Hann
nefnir sem dæmi mjög tilrauna-
kenndar óperur sínar þar sem hann
blandar saman ýmsum ólíkum list-
formum. „Ég vinn til dæmis með víd-
eó, þar sem söngvararnir eiga að
syngja dúett með myndbands-
upptöku af sjálfum sér og ég hef látið
slagverksleikara leika á nakta efri lík-
ama. Ég hef prófað margt sem er
virkilega „avant-garde“. Fyrir mér er
ekki sérlega mikilvægt að gera
markaðsvæna list, ég skrifa frekar
mjög nútímalega tónlist.“
Grískur innblástur
Steingrímur gaf nýlega út plötu
þar sem Esbjerg Ensemble, sveit
sem samanstendur af nokkrun af
bestu hljóðfæraleikurum Evrópu, lék
verk hans. Þar má finna brot úr óperu
hans Lýsiströtu sem gerð var við
texta Peters Laugesens og sýnd í
Óðinsvéum. „Svo skrifaði ég nýtt
verk um Medeu, það er efni sem ég
hef unnið mikið með. Þessi plata er
svolítið svart-hvít. Þetta eru þessar
grísku kvenpersónur; önnur drap
börnin sín og hin er þessi boðberi
friðar,“ segir hann og bætir við:
„Ég hef mjög gaman af því að
vinna í leikhúsi og mig langar að gera
meira af því því það inniheldur svo
margar listgreinar og mér finnst svo
gaman að vinna með sögur eins og
gömlu grísku sögurnar og þetta sjón-
ræna. Ég hef svo gaman af því að
rjúfa skilin milli listgreina.“
Danska útvarpið útnefndi Stein-
grím sem fulltrúa sinn á Alþjóðlega
tónskáldaþinginu (International
Rostrum of Composers) með verkið
„Die 4 Himmelsrichtungen“. Þangað
senda útvarpsstöðvar hvaðanæva úr
heiminum verk sem þeim þykir það
besta sem tónskáld heimalandsins
hafa fram að færa.
„Verkið er skrifað fyrir kvartett
kærustu minnar og vina okkar sem
búa allir hér rétt hjá okkur, á Austur-
brú. Ég vildi skora á sjálfan mig, ég
vildi að þetta yrði erfitt verk og stór-
brotið.“ Þess má geta að Stein-
grímur hefur áður verið fulltrúi Ís-
lands á þessari hátíð.
„Þetta voru bara stórstjörnur“
Það er athyglisvert að Íslend-
ingar líti á hann sem Íslending en
Dönum þykir hann danskt tónskáld.
Þegar hann er spurður hvers lensk-
ur honum sjálfum finnist hann vera
segir hann að það sé erfitt að segja.
Hann hefur búið í Danmörku í átján
ár, fæddur á Íslandi en alinn upp í
Þýskalandi. Móðir hans heitir Unn-
ur Sigurðardóttir og er frá Sáms-
stöðum í Fljótshlíð en faðirinn, dr.
Alfred Rohloff, er þýskur.
„Ég tala mjög mikla dönsku í
hversdeginum og ég reyni að þvinga
mig til þess að tala þýsku við börnin
mín svo þau læri hana. Mér hefur
aldrei fundist ég meira þýskur en ís-
lenskur, og ég hef alltaf haft mikla
tengingu við Ísland, það eru margir
sem hafa flutt tónlistina mína, til
dæmis Caput Ensemble og
Sinfóníuhljómsveitin. En mér hefur
alltaf þótt leiðinlegt að ég skuli ekki
tala betri íslensku.“
Hans tónskáldaferill er vissulega
litaður af námsárunum í Þýskalandi
og Frakklandi og segist hann sér-
staklega sakna Frakklands því
þangað komi hann of sjaldan. „Ég er
mjög þakklátur fyrir að þessar
dönsku hljómsveitir skuli sýna verk-
unum mínum áhuga en Þýskaland
og Frakkland eru auðvitað þunga-
vigtarlönd hvað viðkemur menningu
og listum og þar eru betri innviðir
fyrir tónlist eins og þá sem ég sem.“
Þegar hann er beðinn að líta yfir
farinn veg á þessum tímamótum og
rifja upp eitthvað sem honum þykir
hápunktur nefnir hann samvinnuna
við hina þýsku sveit Ensemble Mod-
ern. „Það er ég virkilega þakklátur
fyrir. Þegar ég var námsaður í Köln
þá sá maður þau á tónleikum og
þetta voru bara stórstjörnur í mín-
um augum. Svo það er merkilegt að
núna skuli þetta vera vinir mínir og
kollegar.“
Ljósmynd/Niklas Ottander
Tónskáldið „Ég hef prófað margt sem er virkilega avant-garde. Fyrir mér er ekki sérlega mikilvægt að gera
markaðsvæna list, ég skrifa frekar mjög nútímalega tónlist,“ segir hið íslensk-þýska tónskáld Steingrímur Rohloff.
Rýfur skilin milli listgreina
- Þýsk-íslenska tónskáldið Steingrímur Rohloff semur verk fyrir þrjár danskar hljómsveitir
- Gaf út plötu fyrr á árinu með Esbjerg Ensemble - Vill frekar gera tilraunir en vera markaðsvænn
Bandaríski myndlistarmaðurinn
Wayne Thiebaud er látinn, 101 árs
að aldri. Litrík og vinsæl málverk
eftir hann eru í eigu allra helstu
listasafna Bandaríkjanna.
Thiebaud ólst upp í mormónatrú
í Utah-ríki en skildi snemma við
trúna, var búsettur öll sín fullorð-
insár sín í Kaliforníu og varð einn
dáðustu listamanna ríkisins. Þrátt
fyrir að hann hafi slegið í gegn á
tímum popplistarinnar á 7. ára-
tugnum byggðist list hans alla tíð á
klassískum rótum en myndefnið
sótti Thiebaud til miðrar tuttugustu
aldar – hann málaði iðulega fagur-
lega skreyttar kökur, matarborð,
sælgæti og einnig hús, bíla og hrað-
brautir, auk litfagurs landslags:
táknmyndir ameríska draumsins og
viss sakleysis. Í umfjöllun í The
New York Times er hann sagður
hafa verið málari minninga en líka
birtunnar og þagnarinnar í vestur-
hluta Bandaríkjanna.
Wayne Thiebaud náði 101 árs aldri
Málarinn Wayne Thiebaud.
Kanadíski kvik-
myndaleikstjór-
inn Jean-Marc
Vallée er látinn
58 ára að aldri. Í
tilkynningu frá
Nathan Ross,
sem um árabil
starfaði sem
framleiðandi
Vallée, sem send
var til The Hollywood Reporter
kemur fram að Vallée hafi látist á
jóladag í kofa sínum í Quebec, en
ekki kemur fram hver dánar-
orsökin var. Vallée var þekktastur
fyrir að leikstýra kvikmyndinni
Dallas Buyers Club, sem skilaði
honum Óskarsverðlaunatilnefn-
ingu. Hann hlaut Emmy-verðlaun
fyrir framlag sitt til þáttanna Big
Little Lies sem HBO framleiddi.
„Hann var sannur listamaður og
snillingur,“ skrifar Ross í tilkynn-
ingu sinni og tekur fram að Vallée
hafi verið afar ástsæll. Í tilkynn-
ingu frá HBO segir: „Vallée var
snjall og ákafur kvikmynda-
gerðarmaður, sem bjó yfir ein-
stökum hæfileikum. Skyndilegt
fráfall hans kemur okkur í opna
skjöldu og við sendum samúðar-
kveðjur til sona hans, Alex og Émi-
les.“
Jean-Marc Vallée er látinn 58 ára
Jean-Marc Vallee