Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þau tíðindi sem bárust annan í jól- um, að erkibisk- upinn Desmond Tutu væri fallinn frá, níræður að aldri, kölluðu þegar á viðbrögð og samúðarkveðjur frá nær öll- um helstu þjóðarleiðtogum heims. Það er ekki að undra, því að fáir menn hafa haft jafnmikil áhrif á samtíma sinn og sögu og Tutu, jafnvel þótt hann hafi aldrei gegnt kjörnu embætti. Barátta Tutu gegn aðskiln- aðarstefnunni í Suður-Afríku aflaði honum á sínum tíma ekki margra vina þar í landi. Hann var hataður af hvítu yfir- stéttinni, á sama tíma og áhersla hans á friðsama mót- spyrnu þýddi að Tutu var of hófsamur fyrir marga af sam- tíðarmönnum sínum sem vildu beita beinskeyttari og blóðugri aðgerðum til þess að varpa af sér okinu. Engu að síður náði Tutu með meðfæddri útgeislun sinni eyr- um margra, ekki síst á erlendri grundu, á sama tíma og flestir aðrir leiðtogar svartra, líkt og Nelson Mandela, máttu sitja bak við lás og slá. Tutu hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1984 fyrir forystuhlutverk sitt og suðurafrísku kirkjunnar í bar- áttunni gegn aðskilnaðarstefn- unni. Áhersla Tutu á að beita frið- sömum aðgerðum leiddi að lokum til þess að Mandela valdi hann til þess að leiða sannleiks- og sáttanefndina árið 1995. Næstu þrjú árin stýrði hann störfum nefndarinnar af þeirri festu og myndugleik sem hið erfiða hlut- verk hennar kallaði á. Var til þess tekið, að Tutu skirrðist ekki við að leiða í ljós voðaverk sem svartir höfðu framið og leita sátta til jafns og við þau, sem hvíti meirihlutinn hafði framið. Varð Tutu í raun nokk- urs konar „samviska“ Suður- Afríku, meðan samfélagið leit- aði að fótfestu eftir það umrót sem endalok aðskilnaðarstefn- unnar höfðu í för með sér. Á seinni árum gaf Tutu sig að ýmsum öðrum mannréttinda- málum og beitti sér fyrir lausn þeirra af sömu einlægni og hann hafði áður barist gegn aðskiln- aðarstefnunni. Rauði þráðurinn í öllum verkum hans var ævin- lega hinn sami; áhersla á frið, lýðræði og bróðurlegan kærleik í anda þeirrar kristni sem hann þjónaði alla ævi. Það er á vissan hátt viðeig- andi, að Tutu skyldi kveðja þessa jarðvist á sama tíma og fólk um alla veröld minnist fæð- ingar frelsarans og fagnaðar- erindisins. Alltént hafa fáir af þjónum hans náð eyrum jafn- margra og Desmond Tutu. „Samviska Suður-Afríku“ markaði djúp spor í samtíð sína} Desmond Tutu Í ágætu samtali Morgunblaðsins í gær við Lilju Al- freðsdóttur, nýjan ráðherra ferða- mála, viðskipta og menningar, kom fram að stór skref hefðu verið stigin til að styrkja bókaútgáfu og að mikil áform væru uppi um aukinn stuðning við kvikmyndagerð og tónlist. Þá var rætt um rekstrar- umhverfi fjölmiðla og fram kom að ráðherrann telur ljóst að fjölmiðlar þurfi áfram stuðning frá ríkinu. Lilja segir framtíð fjölmiðla á Íslandi í húfi og að hún muni „á næstu mánuðum gera mjög ákveðna atlögu sem miðar að því að bæta rekstrar- umhverfi þeirra. Eitt er að breyta leikreglum þannig að Ríkisútvarpið gefi öðrum miðl- um meira rými á auglýsinga- markaði. Verði umsvif RÚV þrengd þarf vissulega að bæta stofnuninni slíkt upp, en bilið sem brúa þarf verður samt ekki ýkja stórt.“ Lilja segir einnig að skapa þurfi „jafnvægi í rekstrar- umhverfi milli innlendra fjöl- miðla og félagsmiðla og er- lendra streymisveitna, sem eru umsvifamiklar á markaði hér. Skatt- lagningu þarna þarf að breyta og þar er valdið hjá fjármálaráðherra, sem ég legg mikla áherslu á að bæti úr. Fjölmiðlar eru að- göngumiði okkar út í samfélagið og lykill að tungumálinu. Ef við drögum úr aðgengi ungs fólks að vönduðu fjölmiðlaefni á okk- ar móðurmáli veikist sam- keppnishæfni Íslands. Sköp- unarkraftur minnkar og við verðum ekki lengur þjóð. Þetta er mitt hjartans mál og ég kalla eftir liðstyrk.“ Þetta eru athyglisverð um- mæli og hljóta að fela í sér að ríkisstjórnin hyggist loks stíga skref sem um munar í þessum efnum. Hingað til hefur stuðn- ingur við fjölmiðla einkum mið- ast við að styrkja stöðu Ríkis- útvarpsins og smærri einkarekinna miðla. Stærri miðlar með stórar ritstjórnir og þar með mikinn kostnað hafa síður notið stuðningsins þó að það séu vitaskuld þeir miðlar sem flytja langflestar fréttirnar og tryggja með því nauðsynlegt framboð af hvers kyns vönduðu íslensku fjölmiðlaefni. Ráðherra boðar átak í þágu einkarekinna íslenskra fjölmiðla} Athyglisverð ummæli V ið höfum öll fundið með einum eða öðrum hætti fyrir veirunni sem markað hefur líf okkar síðustu tvö ár. Hún gefur hátíðum og fjöl- skylduaðstæðum engan gaum og gerir bara sitt líkt og veirur gera. Strax í upp- hafi faraldursins var sleginn sá tónn að pestir væru illviðráðanlegar og best væri að nýta kraftana í að heilbrigðiskerfið réði við verk- efnið. Ástæðan er einföld; ef heilbrigðiskerfið brestur er ekki hægt að beita lífsbjargandi úr- ræðum sem nútímaheilbrigðiskerfi færa okkur. Þetta er og var gott og skýrt markmið. Síðan hefur það verið fært nokkrum sinnum; veiru- frítt land varð takmarkið, svo að hemja út- breiðsluna þar til búið væri að bólusetja, og að verjast innrásum ýmissa afbrigða. Í því er mikilvægt að hafa í huga að það er ekki fjárhagslegur vandi sem veldur því hve spítalinn þyk- ir brothættur heldur aðrir þættir sem öll eru sammála um að leysa verði sem fyrst. En það er ekki bara veira sem getur valdið álagi heldur allt mögulegt. Skorður á líf fólks mega ekki verða sjálfkrafa svarið. Ef bráðamóttakan ræð- ur ekki við rútuslys getur niðurstaðan ekki verið að loka vegum, heldur að undirbúa spítalann betur. Hér þarf nauðsynlega formlegt samtal um það hvað er undir svo við getum sett stefnuna sameiginlega, ekki síst með það fyrir augum að veirur og áföll verða alltaf hluti af tilveru okkar. Þingið og lýðræðislega kjörnir fulltrúar ættu að hafa meira um þetta allt að segja. Undir er ekki bara veira heldur heilt samfélag þar sem skað- inn getur verið langvinnur og ósýnilegur. Menntun barna er til að mynda mannréttindi þeirra og það er mikið á sig leggjandi til að hér sé hægt að halda úti sem eðlilegustu samfélagi sem ekki fer fram bak við luktar dyr. Þetta segi ég af fullum skilningi og samkennd gagn- vart því álagi sem heilbrigðisstarfsfólk er und- ir. Nú á næstu dögum þegar tölfræðin að baki þessarar nýju bylgju liggur fyrir verðum við að horfa yfirvegað yfir sviðið og meta áhrif og afleiðingar – bæði faraldursins og aðgerðanna – og taka ákvarðanir með það að leiðarljósi. Ómíkron-afbrigðið virðist svo smitandi að fyrirtæki eru farin að loka, ekki vegna veik- inda heldur sóttkvíar. Fjöldi fjölskyldna eyddi jólunum í sundur, í einangrun og sóttkví, og hér væri engin leið að halda úti skólahaldi í þekkjanlegri mynd ef skólar væru ekki í fríi. Ef staða heilbrigðiskerf- isins kallar raunverulega á sömu aðferðafræði og í upphafi faraldursins þegar við vissum ekkert, þekktum enga töl- fræði, veikindin voru alvarlegri og bóluefnin engin, þá stefnir hér í mjög mikið óefni. Næsta skref hlýtur að vera að taka ákvarðanir sameiginlega út frá staðreyndum eins hratt og heildstætt og hægt er og gæta þess að aðgerð- irnar valdi ekki meiri sársauka en það sem þær eru að vernda gegn. Hildur Sverrisdóttir Pistill Jól í ómíkron Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Í slensk stjórnvöld ættu að til- einka sér þá sýn á mikilvægi persónuverndarmála sem ríkjandi er í nágrannalöndum okkar. Þar er litið svo á að sterk per- sónuverndarstofnun leiði til styrk- ingar allra innviða og geti aukið sam- keppnishæfni landsins, svo sem á sviði nýsköpunar og tækni. Þetta segir Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónu- verndar, í formála nýútkominnar árs- skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020. Óhætt er að segja að starfsfólk Persónuverndar, um 20 manns, hafi haft nóg á sinni könnu á síðasta ári. Voru 2.519 mál nýskráð hjá stofn- uninni og við það bættust óafgreidd mál frá fyrri árum; var heildarfjöldi mála því 3.156 alls. Lokið var við 2.574 mál og meðal annars litu tvær fyrstu sektarákvarðanir stofnunarinnar dagsins ljós. Kórónuveirufaraldurinn hefur aukið álag á Persónuvernd. Urðu mál tengd faraldrinum um 190 í fyrra. „Málin áttu það sammerkt að flest þeirra voru brýn og við þeim þurfti að bregðast með hraði,“ segir Helga. Þessi mál snerust m.a. um heimildir sóttvarnalæknis til gagnaöflunar og vinnslu persónuupplýsinga og hvern- ig smitrakningaforrit á vegum land- læknisembættisins væri úr garði gert. Þá þurfti Persónuvernd að af- greiða fjölda erinda frá vísinda- siðanefnd vegna rannsókna. Voru þær 564 í fyrra en 430 árið 2019. Voru 63 rannsóknanna í fyrra tengdar kór- ónuveirufaraldrinum. Í skýrslunni kemur fram að meðal helstu verkefna í fyrra hafi verið gerð álits um skrár landlækn- isembættisins. Var talið að þörf væri á skýrari lagaákvæðum um skrán- ingu persónuupplýsinga í sam- skiptaskrá starfandi sérfræðinga. Álit var unnið um persónuvernd og tjáningarfrelsi fjölmiðla auk þess sem stofnunin sinnti nokkrum frumkvæð- ismálum, m.a. um ferðagjöf stjórn- valda, birtingu persónuupplýsinga á vefsíðum dómstóla og notkun lög- reglu á samfélagsmiðlum. Þá fór mik- ill tími í undirbúning nýs starfsleyfis fyrirtækisins Creditinfo Lánstrausts hf. Umfangsmikil ráðgjöf var veitt ráðuneytum vegna breytinga á stjórnsýslu barnaverndarmála. Að auki urðu starfsmenn Persónuvernd- ar við fjölmörgum fundarbeiðnum frá ýmsum fyrirtækjum, stofnunum og öðrum ásamt því að sérfræðingar hennar veittu ráðgjöf til margra vinnuhópa á vegum hins opinbera. Flokkarnir nærgöngulir Í formála ársskýrslunnar segir Helga Þórisdóttir að veigamesta álit Persónuverndar á síðasta ári hafi varðað vinnslu persónuupplýsinga hjá stjórnmálaflokkum í tengslum við alþingiskosningarnar 2017 og 2018. Greint hafi verið frá því hvernig ís- lensk stjórnmálasamtök unnu per- sónuupplýsingar um íslenska borgara á samfélagsmiðlum. Sumar af þeim breytum sem þeir notuðu hafi falið í sér „nærgöngula rýni,“ eins og hún kemst að orði. „Ekki verður séð að fé- lagsmenn stjórnmálasamtakanna og kjósendur almennt hafi fengið nema takmarkaða fræðslu um það hvernig staðið var að þessari vinnslu samtak- anna á persónuupplýsingum ís- lenskra kjósenda,“ segir Helga. Við undirbúning fjárlaga þessa árs óskaði Persónuvernd eftir heimild til að fjölga starfsfólki um tíu til að sinna „viðvarandi og verulega auknum verkefnum“. Við því var ekki orðið og varð að fækka fastráðnum starfs- mönnum á árinu. Tímabundið viðbótarframlag var þó veitt til nýrrar tveggja manna starfsstöðvar á Húsavík. Verkefnin ærin hjá Persónuvernd Stofnunin Persónuvernd hefur lögum samkvæmt sterka stöðu til að tryggja að hún geti gegnt því hlutverki sínu að gæta hags- muna almennings, þannig að mannréttindi séu ekki brotin við meðferð persónuupplýsinga. Hún er sjálfstæð með sér- staka stjórn og tekur ekki við fyrirmælum frá ríkisstjórninni eða öðrum, þótt ýmsir sem eiga í útistöðum við hana láti sig dreyma um það. Ákvörðunum hennar samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð per- sónuupplýsinga verður ekki skotið til annarra stjórnvalda. Auk þess að fylgjast með því hvernig persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar af stjórnvöldum, fyrirtækjum og einstaklingum er Persónuvernd ætlað að efla þekkingu, vitund og skilning almennings á áhættu, reglum, verndarráðstöf- unum og réttindum í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga. Stofnun með sterka stöðu Helga Þórisdóttir Nýskráð og afgreidd mál hjá Persónuvernd Árið 2020 2.518 mál voru nýskráð árið 2020 2.574 mál voru afgreidd árið 2020 Nýskráð mál Afgreidd mál Heimild: Ársskýrsla Persónuverndar 2020 0 100 200 300 400 500 600 Álitsbeiðnir Eftirfylgnismál Frumkvæðismál Fyrirframsamráð Kvartanir Tilkynningar um öryggisbresti Umsagnarbeiðnir um lög og reglur Úttektir Vísinda- rannsóknir Útgáfa leyfa PERSÓNUVERND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.