Morgunblaðið - 29.12.2021, Side 2

Morgunblaðið - 29.12.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinn- ar var samþykkt í gær. Þá lauk sömuleiðis atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu um svokallaðan band- orm, vegna fjárlaga ársins 2022. Al- þingi er nú komið í hlé fram til 17. janúar. „Allir vinna“ framlengt Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar fyrir næsta ár var samþykkt á Alþingi í gær með 32 atkvæðum en 21 þingmaður greiddi ekki atkvæði og voru 10 fjarstaddir. Meðal þeirra sem voru fjarstaddir voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir en þær greindust báðar með Covid-19 í gær. Auk þeirra er Bjarni Benediktsson smitaður en hann greindist á mánu- daginn. Atkvæðagreiðslu eftir aðra um- ræðu um bandorminn lauk einnig í gær eins og áður sagði, en bandorm- ur er frumvarp sem hefur að geyma ýmsar breytingar á lögum sem kall- ast á við fjárlög, ýmsar upphæðir og/ eða hlutföll, undanþágur á borð við „Allir vinna“-átakið, vörugjöld, gjöld af áfengi og tóbaki og svo framvegis. Atkvæðagreiðsla tók á aðra klukku- stund og fjölmargar breytingatillög- ur voru teknar fyrir. Átakið „Allir vinna“, þar sem virð- isaukaskattur af ýmiss konar iðnað- arvinnu við heimili er endurgreiddur að fullu, var framlengt í breyttri mynd. Tillögu Ástu Lóu Þórsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, um framlengingu átaksins í óbreyttri mynd var hafnað. Þá sátu þingmenn Pírata hjá í atkvæðagreiðslu um mál- ið og sagði Þórhildur Sunna Ævars- dóttir, varaformaður þingflokks Pí- rata, það óþarft og kosta mikið. Tillaga minnihlutans felld Tillaga um hækkun sóknargjalda til safnaða þjóðkirkjunnar var sam- þykkt. Ásamt stjórnarflokkunum studdu þingmenn Miðflokksins til- löguna. Þá var tillögu minnihlutans um tæplega tvöföldun á fjárhæð frítekju- marks vegna atvinnutekna örorkulíf- eyrisþega miðað við tillögu meiri- hlutans hafnað. Að baki tillögunni stóðu þingmenn Samfylkingar, Við- reisnar, Flokks fólksins og Pírata. Fjárlagafrumvarp samþykkt - Hlé gert á störfum - Þrír ráðherrar smitaðir af Covid-19 - Píratar segja átakið „Allir vinna“ óþarft - Sóknargjöld hækkuð - Miðflokkurinn studdi ríkisstjórnina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Salur Alþingi er nú komið í frí eftir að hafa samþykkt frumvarpið. Umbúðagámar Terra fyrir pappa, plastumbúðir og jólapappír á völdum stöðvum Orkunnar voru allir orðnir yfirfullir stuttu eftir hádegi á jóla- dag og hafa verið tæmdir nokkrum sinnum á dag. Myndin er tekin á móttökustöð Sorpu í Seljahverfi þar sem margir komu við í gær til að losa sig við það sem fellur til á jólunum. Hægt er að skila ruslinu einnig til endurvinnslu á fjórum stöðvum Orkunnar fram til dagsins í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Endurvinnslugámar fyllast af jólapappír eftir jólin Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Líkur eru á rysjóttu veðri á gaml- ársdag og mátulega góðu flugelda- veðri, ef þannig má að orði komast. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Norðaustlægar áttir hafa verið ríkjandi á landinu síðustu daga en vindur ætti að ganga niður á gamlársdag. Þeg- ar nýtt ár gengur í garð verður stekkingur af austri víða um landið og á höfuð- borgarsvæðinu gæti vindstyrkur verið um 5 m/sek. „Norðaustanáttin gengur niður og ekki eru horfur á éljum sem heitið getur um norðan- og austanvert landið. Eftir því sem líður á gaml- ársdag léttir til með hægum vindi. Sums staðar verður strekkingur um kvöldið, en áfram þurrt,“ segir Ein- ar sem bætir við að veðurspár hafi breyst hratt síðustu sólarhringa. Nokkuð djúp lægð nálgast landið úr suðri á gamlársdag. SV-lands hlánar síðdegis með austan- strekkingi, svo snjóar um miðjan daginn, en síðar rignir. Rigningin verður þó ekki samfelld og á nýárs- nótt ætti að hafa stytt upp og hiti verður þá sennilega kominn í plús. Mögulega rigning á nýársnótt „Mögulega verður á höfuðborgar- svæðinu einhver rigning á fyrstu klukkustundum nýja ársins. Svipuð veðrátta verður á Suðurlandi og austur á bóginn, sem er þó for- smekkur að umskiptum á nýársdag þegar hlánar víða um landið,“ segir Einar Sveinbjörnsson. Umskipti í veðri um áramót - Flugeldaveður tvísýnt - Strekkingur og lægð nálgast Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugeldar Ljós á himni leiftra skær. Einar Sveinbjörnsson Gærdagurinn var annasamur hjá björgunarsveitum vegna vonsku- veðurs á Norðurlandi. Sveitir voru kallaðar út um klukkan eitt í gær á Siglufirði og aðstoðuðu ökumenn innanbæjar vegna ófærðar og snjóþunga. Þá þurfti síðdegis í gær að loka þjóð- veginum um Mývatns- og Möðru- dalsöræfi. Björgunarsveitin á Akureyri að- stoðaði ökumenn sem höfðu verið í vanda vegna ófærðar innst í Öxna- dal í gær. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins höfðu að minnsta kosti átta bílar farið út af veginum á svæðinu í gær. Ekki er vitað um nein slys á fólki. Vegagerðin tilkynnti í gærkvöldi að búið væri að loka Öxnadalsheiði, Siglufjarðarvegi um Almenninga, veginum um Hófaskarð og Fjarðar- heiði. Búist var við að hægt yrði að opna vegina árdegis í dag. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Snjór Öxnadalsheiði varð ófær mörgum eftir að veðrið skall á. Átta lentu utan vegar - Lokuðu þjóðvegum Brugðið getur til beggja vona hvað varðar nýtt eldgos á Reykjanes- skaga. Þorvaldur Þórðarson eld- fjallafræðingur segir gögnin ekki geta sagt af eða á að svo stöddu um það hvort kvika sé á leiðinni upp á yfirborðið eða hvort dragi úr virkni á svæðinu. Þá segir hann mikla vinnu fram undan við undirbúning for- virkra aðgerðaáætlana á svæðinu. „Við virðumst vera á krítískum punkti eins og stendur. Hvort skjálftavirknin og breytingar á af- löguninni séu merki um að það sé að draga úr þessu eða að kvikan sé grynnra og á leiðinni upp á yfirborð- ið. Gögnin segja í raun ekki af eða á með það, eins og stendur hið minnsta.“ Stærsti skjálfti gærdags- ins mældist 3,9 að stærð og varð skammt vestur af Kleifarvatni. Óvíst hvort gjósi á Reykja- nesskaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.