Morgunblaðið - 29.12.2021, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 2021
Faxafeni 14, 108 Reykjavík
www.z.is
meistara. Við byggðum meðal ann-
ars Hótel Plaza við Aðalstræti 4 og
breyttum Eddufelli 8 í íbúðar-
húsnæði. Seinasta verkefni okkar
var Hótel South Coast á Selfossi,
en Gísli féll frá skömmu fyrir opn-
un þess 2019.“
Guðni er enn að starfa og teikni-
stofa hans hlaut í vikunni fyrir jól
leyfi til að grafa fyrir fyrsta áfanga
af sérstæðum íbúðarhúsum við
Hamranes í Hafnarfirði. „Ég kalla
þetta klasa því hver eining saman-
stendur af fjórum húsum. Þetta
verða í allt 162 íbúðir.
Í ár hlotnaðist mér sá heiður að
húsið okkar á Litlubæjarvör 4 var
valið til friðlýsingar. Þetta er lík-
lega mesti heiður sem maður getur
fengið sem arkitekt.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðna er Guðríður
Tómasdóttir, f. 8.7. 1950, hársnyrti-
dama að mennt og vann hjá Ice-
landair, þau eru búsett á Litlu-
bæjarvör 4 á Álftanesi. „Því miður
hefur Gurrý frá 2014 verið að glíma
við framheilabilun og frá því 2018
hefur hún verið á hjúkrunarheimili.
Þetta hefur sett mikinn svip á okk-
ar heimilislíf.“ Foreldrar Gurrýjar
voru hjónin Tómas Pétursson, f.
19.9. 1910, d. 16.8. 1969, stór-
kaupmaður í Reykjavík, og Ragn-
heiður Einarsdóttir, f. 11.2. 1917, d.
2.6. 2008, húsfreyja.
Dætur Guðna og Gurrýjar:
Ragnheiður Andrea, f. 12.5. 1995,
d. 30.6. 1995, og tvíburarnir Ragn-
heiður og Andrea, f. 19.7. 1996.
Andrea er nemi í lífeindafræði við
HÍ og Ragnheiður er nemi í bygg-
ingarfræði við HR.
Systkini Guðna: Hilmar, f. 30.4.
1949, d. 17.12. 1949; Páll Hilmar, f.
8.12. 1950, d. 1.7. 1951; Þór Elís, f.
23.9. 1952; Lísa, f. 13.12. 1953, og
Rannveig, f. 18.12. 1958.
Foreldrar Guðna voru hjónin
Páll Guðnason, f. 22.6. 1920, d. 20.2.
2000, skrifstofumaður í Reykjavík,
og Paula Andrea Jónsdóttir, f. 13.1.
1920, d. 2.10. 2013, húsfreyja,
saumakona og matráðskona í
Reykjavík.
Guðni Pálsson
Oline Eriksen
bjó í Álasundi
Kristian Eriksen Tidingevåg
bjó í Álasundi í Noregi
Elise Sivrine Eriksen Jónsson
húsmóðir í Reykjavík
Jón Bergþór Jónsson
leikfangasmiður í Reykjavík
Paula Andrea Jónsdóttir
húsfreyja, saumakona og
matráðskona í Reykjavík
Kristbjörg Sigurðardóttir
húsfreyja í Norðurgröf
og á Melum
Jón Jónsson
bóndi í Norðurgröf og á Melum á Kjalarnesi
Rannveig Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Magnús Pálsson
verkamaður í Reykjavík
Jórunn Þórey Magnúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðni Pálsson
prentari og skipstjóri í Reykjavík
Svanhildur Gísladóttir
húsfreyja í Götu
Páll Pálsson
bóndi í Götu í Selvogi
Ætt Guðna Pálssonar
Páll Guðnason
skrifstofumaður í Reykjavík
„KINKAÐU KOLLI EF ÞEIR NEYDDU ÞIG
TIL AÐ GERA ÞETTA.“ „ER ÞÉR ENNÞÁ ILLT Í HNÉNU?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... furunálafreyðibað.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG LEITA AÐ
INNRI FRIÐI
AHHH … ÞARNA
ER HANN
SÆLIR! SÆLL, BRÓÐIR
ÓLAFUR!
ÉG HEF ALDREI SÉÐ HANN ÁN
ÞESSARAR BÓKAR!
HANN HLÝTUR AÐ LESA
MJÖG HÆGT!
Ég get ekki stillt mig um að
birta þetta gullfallega ljóð,
„Jólakvöld“, eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Jólaljósin ljóma hrein,
líta má þá jólasvein,
skakkvaxinn og skrýtinn kall,
skelfilegan rugludall.
Kominn er um langa leið
lengst ofan af Herðubreið,
rauða húfu hefur sá,
heilsar upp á börnin smá.
Gefur hann þeim gjafirnar,
gott og leikföng alls konar,
kvæði og sögur segir þeim,
síðan fer hann aftur heim.
Kvatt er hefur karlfuglinn
kemur pabbi sposkur inn,
höfðinglegur, hár og beinn,
hann er enginn jólasveinn.
Kvöldið líður kyrrt og blítt,
krása neytt og messu hlýtt
er á meðan ofur hljótt
yfir færist jólanótt.
Á Boðnarmiði yrkir Reir frá
Drangsnesi við fallega ljósmynd
eins og segir í stökunni:
Á flæðiskeri sáttur svaf
selurinn minn heima;
hamingjuna hafið gaf,
hana er gott að dreyma
Friðrik Steingrímsson um
„stærstu haldlagningu á grasi í
langan tíma á Íslandi“:
Dugleg löggan virðist alltaf að
með yfirburðamenn í sínu fagi.
Ég held það megi hiklaust segja það
að heyskapurinn þeirra sé í lagi.
Jökull Jónsson um „raunir græn-
metisætu“:
Á jólunum mikið við étum
af jólamat, eins og við getum.
Hinir fá hrygg
- þó borða ég bygg
og bragðgóða steik úr hnetum.
Svo að áfram sé flett upp í bókum
sem eru hendi næst. Í „Handan um
höf“ eftir Helga Hálfdánarson eru
m.a. „Ljóð frá miðöldum“ eftir jap-
anska höfunda:
Það sem fölnar
svo enginn sér þess merki –
er blómið
í hjarta mannsins
á þessari jörð.
Og „um konur í Hólmi“ kvað Sím-
on:
Sem að yndi ætíð lér
Adams flestum sonum
Hólmurinn má hrósa sér
helst af fríðum konum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Jólakvöld og
selur á flæðiskeri