Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.12.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Árlega velur lífsstílsvefurinn Smartland Mörtu Maríu bestu snyrtivörur ársins. Í ár er listinn yfirgripsmikill og fjölbreyttur en blaðamenn vefsins hafa allt þetta ár prófað ógrynni af góssi sem gott er að bera á andlit, í hárið eða á líkamann. Eftir ríkulega rannsóknarvinnu urðu þessar vörur fyrir valinu. Augnkrem ársins! Sensai Refreshing Eye Essence og Sensai Melty Rich Eye Cream Um er að ræða silkimjúkt gel sem sett er undir augun með ryð- og nikkelfrírri andlitsrúllu. Henni er rennt mjúklega yfir augnsvæðið kvölds og morgna. Þegar búið er að rúlla húðina með þessu er Melty Rich Eye Cream nuddað vel inn í húðina. Þessi tvenna dregur úr þrota og frískar okk- ur upp. Þetta fæst í Hagkaup. CC krem ársins! IT Cosmetics CC+ Cream with SPF 50+ Síðasta vor fóru vör- urnar frá IT Cosmet- ics að fást á Íslandi. CC kremið frá þeim hefur slegið í gegn er- lendis og var stemn- ingin ekkert öðruvísi á Íslandi. Þetta krem hylur vel og er vel hægt að nota í stað- inn fyrir farða. Gott er að bera kremið á með bursta þannig að áferðin verði ennþá jafnari og fallegri. Líkamsolía ársins! Weleda Arnica Massage Oil Þessi nuddolía er löngu orðin klassísk enda fagnaði Weleda 100 ára afmæli á árinu sem er að líða. Þessi olía mýkir húðina, dregur úr bólgum í lík- amanum og eykur blóð- flæði húðar- innar. Það er gott að bera hana á sig eftir bað eða láta nudda sig upp úr henni heima. Hún fæst í apótek- um og í völd- um matvöru- verslunum. Gloss ársins! La Mer The Lip Volumizer Lungan úr árinu þurfti fólk að bera grímu þegar það var innan um annað fólk. Þá kom þetta glæra gloss frá La Mer eins og himna- sending því það mýkir varirnar og gefur þeim góðan raka. Það er fínt eitt og sér en er líka mjög gott yfir varalit eða varalitablýant. Það fæst á beauty- box.is Púður ársins! By Terry Hyaluronic Hydra-Powder Palette Í þessum fjórum litum er hægt að skyggja andlitið þannig að fegurðin sé í forgrunni. Þetta púður státar af þeim eiginleikum að fylla upp í fínar línur og mis- fellur. Með þessum fjórum litum er auðvelt að móta andlitsdrætti og gefa húðinni samfellt og fallegt yfir- bragð. Þetta púður fæst í Madison Ilmhúsi. Naglalakk ársins! Nailberry Honesty Þessi litur er mjúk- ur og áreynslu- laus. Kosturinn við lökkin frá Nailberry er að þau eru veg- an og næra negl- urnar vel. Lakkið hleypir inn raka og súrefni og hefur hlotið vott- un PETA „Cruelty free“. Þessi naglalökk fást til dæmis á beauty- box.is og í Systra- samlag- inu. Farði ársins! Shiseido Synchro Skin Self Refreshing Cushion Compact Um er að ræða afar góðan farða sem hylur vel. Við fyrstu sýn minnti hann á gamla góða kökumeikið en það var þó ekki raunin þegar farðinn var kom- inn á andlitið. Hann gefur fallega áferð og húðin verður sléttari og glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Ef þú átt eftir að prófa þennan farða þá ættir þú að bæta úr því strax. Hann fæst til dæmis í Hagkaup. Auga- brúna- vara ársins! Anastasia Brow Definer Auburn Þessi blýantur gerir kraftaverk þegar augabrúnir eru ann- ars vegar. Auðvelt er að móta þær með því að nota blýant- inn. Í þessum blýanti er líka bursti þannig að hægt er að greiða vel úr augnhárunum. Það sem er svo gott við þennan blýant er að hann er skáskor- inn og því auðvelt að búa til skýrar línur. Hann fæst á nola.is Snyrtivörur ársins 2021!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.