Morgunblaðið - 28.12.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 28.12.2021, Síða 14
dæmis jógakennarinn Guðni Gunnarsson og Guðlaug Pétursdóttir, Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarmaður, Helga Ólafsson, fyrrverandi eig- inkona Jóns, og Egill Eðvarðsson svo einhverjir séu nefndir. Pabbi forseti lét sig ekki vanta í teitið hjá Rut Rut Guðnadóttir, rithöfundur og dóttir Guðna Th. Jóhann- essonar, gaf út bókina Drekar á dögunum. Pabbi mætti að sjálf- sögðu í útgáfuboðið sem haldið var í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð. Rut skrifar ekki bara bækur því hún er menntaskólakennari sem elskar hryllingsmyndir og ket- ilbjöllur. Bjössi og Dísa fögnuðu opnun Bankastrætis Birgittu Lífar 2021 var annasamt hjá Birg- ittu Líf Björnsdóttur, mark- aðsstjóra World Class. Síðasta sumar bætti hún skemmtistaðnum Bankastræti Club við og hélt geggjað opnunarteiti. Mamma og pabbi hennar, Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, létu sig ekki vanta. Það kemur kannski ekki á óvart að Birgitta Líf skuli opna skemmtistað því foreldrar hennar ráku vinsælan skemmti- stað á tímabili sem hét Ingólfskaffi og var eftirsóttur. Það var hinsvegar töluvert fjör þegar Bankastræti Club var opnaður í sumar en þangað mættu helstu áhrifavaldar landsins eins og Sunneva Eir Einars- dóttir, Ástrós Trausta- dóttir og Binni Glee svo einhverjir séu nefndir. Björn og Svava Johansen í partígír Það var fjör á Kjarval þegar Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen fögnuðu 45 ára afmæli NTC sem rek- ur fjölmargar tískuvöruverslanir í Reykjavík. Svava hefur reyndar ekki starfað hjá fyrirtækinu alla sína ævi því hún byrjaði 17 ára og hefur aldrei dreymt um að gera neitt annað í lífinu. Inga Lind og Árni í góðum félagsskap Inga Lind Karlsdóttir og Árni Hauksson voru nokkuð dugleg á partívaktinni 2021. Þau létu sig til dæmis ekki vanta þegar myndlistarmaðurinn Björgvin Jónsson opnaði sýningu sína SPEGIL-MYND í Portfolio Gallerí við Hverf- isgötu. Þau voru þó ekki eina fólki í þessu teiti því þangað mætti líka Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og Þóra Margrét Baldvinsdóttir innanhúss- ráðgjafi. Onlyfans-stjarna sýndi leyndan hæfileika í Framsóknarteiti Framsóknarflokkurinn fór nokkuð óhefðbundnar leiðir til að ná í nýja kjósendur í síðustu kosningum og hélt líklega eitt litríkasta teiti kosn- ingabaráttunnar þegar hann fékk On- lyfans-stjörnu til að skemmta í kosn- ingateiti í Grafarvogi. Það var Onlyfans- stjarnan Ósk Tryggvadóttir sem sýndi listir sínar sem eldgleypir í teitinu og vakti þetta mikla kátínu. Dorrit hugsar vel um húðina á sér Fyrrverandi forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff, er ein af þessum konum sem þjóðin elskar. Það er því ekki skrýtið að hún hafi stolið senunni þegar ís- lenska húðvörumerkið Bioeffect kynnti splunkunýtt dagkrem, EGF, sem hefur sömu eiginleika og húðdroparnir. Fyrirtækið hélt glæsilegt boð í húsakynnum sínum á Hafnartorgi og þangað var Dorrit að sjálfsögðu mætt. Þórunn Antonía gerði allt vitlaust í vísindaferð Tónlistarmaðurinn Þórunn Antonía tróð upp í einni stærstu vísindaferð landsins þegar hún skemmti háskólanemum sem heimsóttu Icelandic Startups. Yfir 500 há- skólanemar lögðu leið sína í Grósku til að kynna sér Gulleggið. Teitið fór fram í október eða stuttu áður en veiran fór að gera landsmönnum lífið leitt í skipti númer 158. Benedikt frumsýndi kærustuna Leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson hefur verið áber- andi í menningarlífinu síðan hann var barn. Í apríl mætti hann með kærustu sína, Tinnu Lind Gunnarsdóttur leikkonu, á frumsýningu Nashyrninganna í Þjóðleikhúsinu. Koma þeirra saman á sýninguna vakti mikla at- hygli þar sem Benedikt var í stuttan tíma talinn vera einn af eftirsóttustu pipar- sveinum landsins eftir að leiðir hans og fyrr- verandi eiginkonu hans skildi. Patrekur mætti með kærastann Það var ekki bara Benedikt Erlingsson sem frum- sýndi maka sinn á árinu. Það gerði nefni- lega líka áhrifavaldurinn og sjón- varpsstjarnan Patrekur Jaime, þegar hann mætti með Keem kærasta sinn í 26 ára af- mæli Sjáðu. Veislan fór fram í Gamla bíói og var ekkert til sparað til þess að gestir gætu skemmt sér sem best. Patrekur og Keem hafa verið eins og samloka með skinku og osti síðan þeir hnutu hvor um annan. Jón Ólafsson bauð í garðpartí Það var einstök stemning þegar Jón Ólafsson bauð í sitt árlega garðpartí. Jón er þekktur partípinni og elskar að lyfta sér upp og hafa gaman með samferðafólki sínu. Í júlí bauð hann í teiti í garðinum við Dillon og var teitið vel sótt af allskonar fínu og frægu fólki. Þar voru til Benedikt Erlingsson og Tinna Lind Gunnarsdóttir. Hverjir voru hvar 2021? Inga Lind Karlsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Árni Hauksson. Skemmtanalífið var ekki eins og best verður á kosið þetta árið. Fólk notaði þó hvert tækifæri til þess að hafa gaman þegar það mátti. Smartland fylgist grannt með skemmtanalífi landsmanna og það fór ekki framhjá neinum að Þórunn Antonía Magnúsdóttir hélt uppi stuðinu þetta árið. Hún flutti í Vesturbæinn á árinu eftir að hafa búið í um tvö ár í Hvergerði. Svo var það Dorrit sem skaut upp kollinum og þeir allra bjartsýnustu opnuðu skemmtistaði. Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Þórunn Antonía gerði allt vitlaust. Patrekur og Keem. Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir. Björn Sveinbjörnsson og Svava Johansen.Helga Ólafsson fyrr- verandi eiginkona Jóns mætti í teiti. 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021 Vinnur mjög vel á línum og hrukkum Með botox eftirlíkta virkni Stillir af vöðvasamdrætti sem leiða til hrukkumyndunar SUBLIME SKIN LIFT & FIRM AMPOULE Þú finnur nánari upplýsingar um vörurnar okkar og sölustaði inn á www.bpro.is Rut Guðnadóttir og Guðni Th. Jóhannesson. Onlyfans-stjarnan Ósk Tryggvadóttir skemmti gestum. Dorrit Moussaieff mætti í nokkur teiti á árinu. Egill Eðvarðsson og Jón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.