Morgunblaðið - 28.12.2021, Page 14
dæmis jógakennarinn Guðni Gunnarsson og Guðlaug Pétursdóttir, Vera
Sölvadóttir kvikmyndagerðarmaður, Helga Ólafsson, fyrrverandi eig-
inkona Jóns, og Egill Eðvarðsson svo einhverjir séu nefndir.
Pabbi forseti lét sig ekki
vanta í teitið hjá Rut
Rut Guðnadóttir, rithöfundur og dóttir Guðna Th. Jóhann-
essonar, gaf út bókina Drekar á dögunum. Pabbi mætti að sjálf-
sögðu í útgáfuboðið sem haldið var í bókabúð Forlagsins við
Fiskislóð. Rut skrifar ekki bara bækur
því hún er menntaskólakennari sem
elskar hryllingsmyndir og ket-
ilbjöllur.
Bjössi og Dísa
fögnuðu opnun
Bankastrætis
Birgittu Lífar
2021 var annasamt hjá Birg-
ittu Líf Björnsdóttur, mark-
aðsstjóra World Class. Síðasta
sumar bætti hún skemmtistaðnum
Bankastræti Club við og hélt geggjað
opnunarteiti. Mamma og pabbi hennar,
Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, létu sig
ekki vanta. Það kemur kannski ekki á óvart
að Birgitta Líf skuli opna skemmtistað því
foreldrar hennar ráku vinsælan skemmti-
stað á tímabili sem hét Ingólfskaffi og var
eftirsóttur. Það var hinsvegar töluvert fjör
þegar Bankastræti Club var opnaður í
sumar en þangað mættu helstu
áhrifavaldar landsins eins
og Sunneva Eir Einars-
dóttir, Ástrós Trausta-
dóttir og Binni Glee svo
einhverjir séu nefndir.
Björn og
Svava
Johansen
í partígír
Það var fjör á Kjarval þegar Björn
Sveinbjörnsson og Svava Johansen
fögnuðu 45 ára afmæli NTC sem rek-
ur fjölmargar tískuvöruverslanir í
Reykjavík. Svava hefur reyndar ekki
starfað hjá fyrirtækinu alla sína ævi
því hún byrjaði 17 ára og hefur aldrei
dreymt um að gera neitt annað í lífinu.
Inga Lind og Árni í
góðum félagsskap
Inga Lind Karlsdóttir og Árni Hauksson voru nokkuð dugleg á partívaktinni
2021. Þau létu sig til dæmis ekki vanta þegar myndlistarmaðurinn Björgvin
Jónsson opnaði sýningu sína SPEGIL-MYND í Portfolio Gallerí við Hverf-
isgötu. Þau voru þó ekki eina fólki í þessu teiti því þangað mætti líka Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og Þóra Margrét Baldvinsdóttir innanhúss-
ráðgjafi.
Onlyfans-stjarna sýndi
leyndan hæfileika í
Framsóknarteiti
Framsóknarflokkurinn fór nokkuð
óhefðbundnar leiðir til að ná í nýja
kjósendur í síðustu kosningum og
hélt líklega eitt litríkasta teiti kosn-
ingabaráttunnar þegar hann fékk On-
lyfans-stjörnu til að skemmta í kosn-
ingateiti í Grafarvogi. Það var Onlyfans-
stjarnan Ósk Tryggvadóttir sem sýndi listir
sínar sem eldgleypir í teitinu og vakti þetta mikla
kátínu.
Dorrit hugsar vel um húðina á sér
Fyrrverandi forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff, er ein af þessum konum
sem þjóðin elskar. Það er því ekki skrýtið að hún hafi stolið senunni þegar ís-
lenska húðvörumerkið Bioeffect kynnti splunkunýtt dagkrem, EGF, sem hefur
sömu eiginleika og húðdroparnir. Fyrirtækið hélt glæsilegt boð í húsakynnum
sínum á Hafnartorgi og þangað var Dorrit að sjálfsögðu mætt.
Þórunn Antonía gerði allt vitlaust í vísindaferð
Tónlistarmaðurinn Þórunn Antonía tróð upp í einni stærstu vísindaferð landsins
þegar hún skemmti háskólanemum sem heimsóttu Icelandic Startups. Yfir 500 há-
skólanemar lögðu leið sína í Grósku til að kynna sér Gulleggið. Teitið fór fram í
október eða stuttu áður en veiran fór að gera landsmönnum lífið leitt í skipti
númer 158.
Benedikt frumsýndi kærustuna
Leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson hefur verið áber-
andi í menningarlífinu síðan hann var barn. Í apríl
mætti hann með kærustu sína, Tinnu Lind
Gunnarsdóttur leikkonu, á frumsýningu
Nashyrninganna í Þjóðleikhúsinu. Koma
þeirra saman á sýninguna vakti mikla at-
hygli þar sem Benedikt var í stuttan tíma
talinn vera einn af eftirsóttustu pipar-
sveinum landsins eftir að leiðir hans og fyrr-
verandi eiginkonu hans skildi.
Patrekur mætti
með kærastann
Það var ekki bara Benedikt Erlingsson sem frum-
sýndi maka sinn á árinu. Það gerði nefni-
lega líka áhrifavaldurinn og sjón-
varpsstjarnan Patrekur Jaime,
þegar hann mætti með Keem
kærasta sinn í 26 ára af-
mæli Sjáðu. Veislan fór
fram í Gamla bíói og var
ekkert til sparað til þess
að gestir gætu skemmt
sér sem best. Patrekur
og Keem hafa verið eins
og samloka með skinku og
osti síðan þeir hnutu hvor
um annan.
Jón Ólafsson bauð
í garðpartí
Það var einstök stemning þegar Jón Ólafsson bauð í sitt
árlega garðpartí. Jón er þekktur partípinni og elskar að
lyfta sér upp og hafa gaman með samferðafólki sínu. Í
júlí bauð hann í teiti í garðinum við Dillon og var teitið
vel sótt af allskonar fínu og frægu fólki. Þar voru til
Benedikt
Erlingsson og
Tinna Lind
Gunnarsdóttir.
Hverjir voru hvar 2021?
Inga Lind Karlsdóttir,
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Árni Hauksson.
Skemmtanalífið var ekki eins og best verður á kosið þetta árið. Fólk notaði þó hvert tækifæri til þess að hafa
gaman þegar það mátti. Smartland fylgist grannt með skemmtanalífi landsmanna og það fór ekki framhjá neinum
að Þórunn Antonía Magnúsdóttir hélt uppi stuðinu þetta árið. Hún flutti í Vesturbæinn á árinu eftir að hafa búið í
um tvö ár í Hvergerði. Svo var það Dorrit sem skaut upp kollinum og þeir allra bjartsýnustu opnuðu skemmtistaði.
Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is
Þórunn
Antonía
gerði allt
vitlaust.
Patrekur
og Keem.
Björn Leifsson
og Hafdís
Jónsdóttir.
Björn Sveinbjörnsson
og Svava Johansen.Helga Ólafsson fyrr-
verandi eiginkona
Jóns mætti í teiti.
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 2021
Vinnur mjög vel á línum og hrukkum
Með botox eftirlíkta virkni
Stillir af vöðvasamdrætti sem leiða til hrukkumyndunar
SUBLIME SKIN
LIFT & FIRM AMPOULE
Þú finnur nánari upplýsingar um vörurnar okkar og sölustaði inn á www.bpro.is
Rut Guðnadóttir
og Guðni Th.
Jóhannesson.
Onlyfans-stjarnan
Ósk Tryggvadóttir
skemmti gestum.
Dorrit Moussaieff mætti
í nokkur teiti á árinu.
Egill Eðvarðsson
og Jón Ólafsson.